Tíminn - 28.11.1962, Side 2
Nýlega opnaði Eðvald Hinriks-
son, fþróttakennari, finnskt gufu-
bað í Hátúni 8 í Reykjavík. — í
gufubaðijiu geta gestirnir einnig
fengið nudd. Gufubaðið er opið
aðra virka daga en laugardaga frá
klukkan níu að morgni til klukkan
tíu að kvöldi, en nudd er hægt að
fá til klukkan sjö, á laugardögum
frá klukkan 9—17 og sunnudög-
úm frá klukkan 9,30 til hádegis.
Eðvald til aðstoðar er kona hans,
Sigríður Bjarnadóttir. Myndina
tók ljósmyndari Tímans, RE, af
fyrstu gestunum, Páli V. G. Kolka
lækni og Benedikt G. Waage fyrr-
verandi forseta ÍSÍ.
Stundum les maður um
bíla sem hefur veriS ekið
400.000, 500,000 eSa 700,000
kílómetra án þess að viðgerðir
á vél hafi farið fram, nema
e.t.v. ventilslípanir. Slíkar
fréttir hafa jafnan talsverð
áhrif á bílaeigendur, og menn
spyrja sjálfan sig, hvort búast
megi við slíkri endingu venju-j
legra fólksbíla.
Ef kílómetratölunni 500,000 er
deilt með hinum algenga ársakstri
Í0.000 km., kemur í ljós hvað um
er að ræða. En auðvitað verður
endingin á öðrum hlutum bílsins
að vera í samræmi við kosti vél-
arinnar, cf ætlazt er til að dæmið
hafi raunverulega þýð'ingu, en sú
sicoðun hefur verið ríkjandi, að
yfirbyggingin væri brostfeldug-
asti hluti bifreiða, og skæri úr um
er.dingu.
Margt bendir til, að yfirbygging
ar bíla, sem nú eru í framleiðslu,
endist lengur en yfirbyggingar
eldri gerð'a. Má benda á, að flestar
Ljdðasafn Sigurð-
ar Breiðfjðrð
í ritsafni Sigurðar Breið-
fjörðs, sem ísafoldarprent-
smiðja gefur út, er komið út
þriðja bindi af Ijóðasafni Sig-
urðar. í því eru sex flokkar
Ijóða, og í safninu munu vera
nær öll Ijóð Sigurðar, þau er
varðveitzt hafa, önnur en
rímur.
Sigurður var geysilega afkasta-
mikill Ijóðasmiður og orti af alls
konar tilefnum. Er bindið nokk-
uð á þriðja hundrað blaðsíður og
allþétt sett á síður. Sveinbjörn
Sigurjónsson, magister annast út
gáfu ljóðanna, nema rímnanna,
sem Sveinbjörn Beinteinsson mun
sjá um, en útgáfa þeirra er nú
einnig hafin á vegum ísafoldar. —
í þessu þriðja bindi ljóðasafnsins
eru þessir flokkar: Glettni og
græska; Árnað heilla; Erfiljóð;
Andleg Ijóð; Þýdd og stælt og Ljóð
á dönsku, en aftast er Viðauki.
Loks eru nokkrar athugasemdir og
skýringar við Ijóðin.
enskar bílgerðir eru nú baðaðar
í fosfórsýru. Verksmiðjur eins og
Volvo og VW nota sömu aðferð,
en hún er betri ryðvöm en nokk-
uð annað, sem hingað til hefur
þekkzt. Sá háttur að forðast öll
óþarfa útskot, þar sem vatn og raki
getur safnazt fyrir, er líka til þess
fallinn að koma í veg fyrir ryð.
Enn frekari trygging fæst svo með
því að ryðverja bílinn á nokkurra
ára fresti.
En mega bileigendur almennt
gera sér vonir um endingu véla
eins og fyrr getur? Þeir bílar, sem
um er að ræða hafa nær undan-
tekningarlaust verið keyrðir svo
stöðugt, að vélarnar hafa sjaldan
eða aldrei náð að kólna. Og þetta
er mergurinn málsins! Það að
ræsa vélina kalda orsakar meira
slit en nokkuð annað, ef gengið
er út frá, aö bílnum sé sómasam-
!ega ekið og ekki píndur upp brekk
ur í hæstu gírum. Bíleigendur
hafa þó engin tök á að halda vél-
nnum heitum milli þess að bílar
cru notaðir og upphitaðir bílskúr-
ar eru út í hött. Þvert á móti
hafa menn komizt að raun um, að
upphitaðir skúrar eru vondar bíla
geymslur. Lausn þessa vandamáls
er vélvermir, sem nota skal, þegar
iofthitinn er um og neðan við frost
mark. Svíar komust að raun um
það fyrir nokkrum árum, hve vél-
ar slitna stórkostlega við ræsingu
í lækkandi hita, en geislavirkir
stimpilhringir voru notaðir við þá
prófun. Ræsing við frostmark or-
sakar sama slit og 80 km. akstur
m. v., vélina heita. Þegar frost-
ig er 10 gráður, orsakar ræsingin
sama slit og 150 km. akstur, og í
25 stiga frosti svarar þetta til
800 km aksturs.
Tónleikar sinfóníunnar
ÞRIÐJU tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar voru haldnir í
samkomusal Háskólans þ. 22 þ. m.,
undir stjórn William Strickland.
Efnisskráin samanstóð að þessu
sinni, af gömlum og nýrri verk-
um, einsöngvari með hljómsveit-
inni var Kristinn Hallsson.
Upphaf tónleikanna var hin vold
uga toccata . Frescobaldis (1583—
1643). Þessi meistari sem var fyr-
irrennari Bachs er svo lifandi enn
í dag, að hann á aðgang að allra
eyrum. Toccatan sem samin er
fyrir hljómsveit, var í flutningi
hljómsveitarinnar ágætlega leik-
in, þótt sú reisn, sem í verkini*
er afmarkaðist ekki svo skýrt sem
vænta hefði mátt.
Fjögur andleg ljóð eftir J.
Brahms eru í sannieika sagt him-
nesk tónlist. Kristinn Hallsson
hefur þann dýrmæta og jafnframt
fágæta hæfileika að hafa alltaf
eitthvað að tjá hlustendum. Hann
stendur ekki bara á sviðinu og j
syngur, heldur á hann ævinlega '
það innra með sér, sem knýr
mann til að hlusta. Túlkun og
flutningur Kristins á þessum
mjög svo vandmeðförnu söngv-
um, var frábærlega vandaður, það
má segja að einu gildi hvaða við-
fangsefni hann fæst við, aldrei er
höndum kastað til neins heldur
leggur hann sig allan fram. —
Hljómsveitarundirleikur sem Mal
colm Sargent hefur útsett var vel
og látlaust fluttur af hljómsveit-
inni.
Tvö næturljóð eftir Claude De-
bussy er sú tegund tónlistar, sem
segja mætti um að risti ekki
djúpt, en þau gleðja eyrað líkt
cg fallegt málverk augað, með sín
um margbreytilegu og flúruðu
hljómasamböndum. Leikur hljóm
sveitarinnar var þarna lifandi og
mjög áheyrilegur.
Igor Stravinsky (f. 1882), og
sem enn er á lífi er sá höfundur,
sem nær alltaf veitir manni á-
nægju með sínum verkum. í efnis
skrá tónleikanna segir svo um
Stravinsky: „Hann hefur látið svo
um mælt, að innblástur kæmi með
vinnnunni, það stappaði • nærri
sjálfstortímingu að sitja auðum
höndum og bíða eftir andagift".
Eflaust gildir einu hvernig vinnu-
brögðum er hagað í þessum efnum,
er, einhvern veginn hefur maður
það á tilfinningunni að andinn
hafi alltaf verið viðlátinn hjá
honum eða að minnsta kosti vitjað
hans áður en verkinu lauk. Svíta
og Scherzo fyrir litla hljómsveit
eftir Stravinsky flutti hljómsveit-
in af reglulegu iífi og sál.
Stjórnandinn, W. Strickland hef
ur á þessum tónleikum náð góð-
um og traustum tökum á ólíkum
viðfangsefnum.
Nemendatónleikar
Söng- og óperuskóla
Demefz
Nemendatónleikar geta oft ver-
ið skemmtilegra fyrirbæri en
nafnið eitt segir til um. Viss eftir-
vænting og spenna liggur í loftinu,
áhugi og samúð áheyrenda með
því unga fólki, sem þarna reynir
sína vængi, er næstum áþreifan-
leg. í óperuskóla Demetz hefur
margt fólk fengið undirstöðu og
þjálfun sinnar raddar, áður en
lengra er haldið á þeirri braut.
Að þessu sinni komu fram sex
nemendur, þar af margir hverjir
furðu sjálfstæðir.
Örn Erlendsson baryton hefur
þokkalega rödd, en á eftir að móta
viðfangsefni sín, og ná á þeim
fastari tökum.
Matthías Matthíasson hefur háa
tenórrödd, taugaóstyrkur virtist
há honum f fyrstu, en hann sótti
sig er á sönginn leið.
Jóhann Pálsson hefur þjálan og
blæfallegan baryton. Honum virð-
ist auðvelt að lifa sig inn í verk
Framh. á 13 síðu
REISA ÚTVARPS-
/ r /
STOÐ IETIOPIU
BÓ-Reykjavík, 23. nóv.
Hingað er kominn pastor
Harald Nyström frá Svíþjóð,
en hann er starfsmaður þeirr
ar stofnunar, sem af hálfu
sænsku kirkjunnar annast
samstarf við Lútherska heims-
sambandið sem var stofnað í
Lundi 1947.
Biskupinn, hr. Sigurbjörn Einars
son, og séra Jakob Jónsson ræddu
við fréttamenn í dag ásamt pastor
Nyström, er skýrði frá starfsemi
Lútherska heimssambandsins, sem
er á vettvangi guðfræð'ilegra vís-
i.nda, félags- og líknarmála. ís-
ienzka kirkjan hefur verið með-
limur þar ira byrjun.
Hlutverk pastor Nyström er m.a.
að stofna til og halda við tengsl-
um kirkna i Evrópu, en hann er
hingað komirn þeirra erinda. Hing
e.ð kom hann á þriðjudaginn og
fei aftur á mánudaginn. Hann
hefur hitt að máli marga presta
rætt við kirkjumálaráðherra og
skoðað kirkjubyggingar í Reykja-
vík, einnig farið til Þingvalla og
kom í Skálholt í þeirri ferð.
Pastor Nyström tjáði fréttamönn
um, að 62—63 kirkjudeildir væru
í heimssambandinu, en verkefni
bess eru yfirgripsmikil. M. a. ætl-
ar trúboðsdeild sambandsins að
reisa alþjóðlega útvarpsstöð í
Etíópíu, en þaðan verður útvarp-
að á mörgum málum um Afríku
og Austurlönd. 30 dagskrárskrif-
stofur verða í ýmsum löndum og'
safna útvarpsefni. Hjálparstofnun
sambandsins, með aðsetur í
Genf, hefur mörgum verkefnum að
'sinna. Pastor Nyström gat þess
m. a., að líknarstarfsemi, sem rek-
in var á vegum trúboðsins i Alsír,
væri haldið áfram í samráði við
hina nýju ríkisstjórn FLN, og í
Hong Kong eru áætlanir um mat-
gjafir, skóla- og íbúðabyggingar á
vegum sambandsins. Stærsta verk
efnið er þó < Tanganyka, en þar
hefur verið óskað eftir, að sam-
bandið reisíi skóla til að mennta
100 lækna og 100 hjúkrunarkonur
auk Ijósmæðra. Þá hefur Tanga-
nyka beðið sambandið að reisa
geysistórt sjúkrahús. í Svíþjóð á
að safna 6 milljónum króna (s.) i
þessu skyni, en kirkjan hefur skor
a£ á hvern söfnuð að leggja til
eina krónu á mann.
Pastor Nyström talar um starf
heimssambandsins á kirkjukvöldi
í Hallgrímskirkju kl. 20,30 á sunnu
daginn.
2
T f MI N N, miðvikudaginn 28. nóvember 1962