Tíminn - 28.11.1962, Qupperneq 6
* rv
1 TÓMAS KARLSSON RITAR
ÞINGFRÉTTIR • • ;•■..•• ; ÞINGFR ÉTTIR
Leit að heitu vatni á Sel
f ossi og í Laugardælum
Ágúst Þorvaldsson flytur
ásamt Karli Guðjónssyni til-
lögu til þingsáiyktunar í sam-
einuðu þingi um leit að heitu
vatni á Selfossi og í Laugar-
dælum. Tillagan er svohljóð-
andi:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að hlutast til um, að á
vegum jarðhitasjóðs verði gerð leit
að heitu vatni í Selfosshreppi og
að Laugardælum, og verði sú leit
við það miðuð, að möguleikar finn
ist til að auka hitaveitu til hitunar
íbúðarhúsa og annarra fram-
kvæmda á Selfossi.“
f greinargerð með tillögunni
segir:
„A Selfossi hefur um alllangt
skeið verið hitaveita, sem Kaup-
félag Árnesinga lét byggja. í ná-
grenni Selfoss er hin mikla jörð
Laugardælir með hjáleigum, og er
Laugardælatorfan öll eign kaup-
félagsins. Heit laug er í landi hjá-
leigunnar Þorleifskots. Var þar
borað eftir heitu vatni, og var það
leitt til Selfoss og í íbúðarhúsin
austan Ölfusár. Mjólkurbú Flóa-
manna hefur einnig haft not af
hitaveitu þessari við mjólkuriðn-
aðinn.
Vestan Ölfusár er hluti Selfoss-
hrepps, og þar er allmikii byggð.
í þeim hluta hreppsins er engin
hitaveita, en hins vegar verður þar
vart nokkurs hita við yfirborð
jarðar. Yfirborðsmælingar hafa nú
farið fram og borun til reynslu á
einum stað. Er hola sú, sem boruð
hefur verið, orðin um 90 metra
djúp, og hitinn hefur mælzt um
58° C í botninum. Vatn hefur
hins vegar ekki komið fram í holu
þessari enn þá. Gera má ráð fyrir,
að á fleiri stöðum þurfi að bora.
Æskilegast væri, að svo öflug lind
fyndist vestan árinnar, að hún
nægði byggðinni, sem þar er, og
væri auk þess aflögufær til ann-
arra nota.
Samfara jarðhitaleit vestan Ölf-
usár á Selfossi er einnig mikil
nauðsyn, að kannað verði, hvort
unnt muni að auka magn heita
vatnsins austan árinar, t. d. frá
Þorleifskoti. Er með tillögu þess-
ari gert ráð fyrir slíkri rannsókn
þar.
Rannsóknír af þvi tagi, sem hér
um ræðir, og síðan hitaveitufram-
kvæmdir eru mjög fjárfrekar. Á
Selfossi búa innan við 2000 manns,
og er hætt við, að ekki fjöimenn-
ara sveitarfélagi geti orðið ofviða
svo fjárfrekar framkvæmdir sem
hér er um að ræða.
Ekki þarf að lýsa því, hversu
dýrmætt það er að finna heitt
vatn eða gufu í jörðu og virkja
slíka orku. Á Selfossi er mikill og
almennur áhugi á því, að takast
megi að finna þar hita í jörðu og
á þann hátt skapist skilyrði til auk
innar og fjölbreyttari atvinnu. Ef
Ágúst Þorvaldsson
meira heitt vatn næst þar úr jörðu,
má telja slíkt undirstöðu þess, að
þorpið geti vaxið og blómgazt og
íbúum fjölgað á komandi tímum.
Mætti slík þróun einnig verða hin-
um frjósömu nágranasveitum Sel-
fosá til stuðnings á mörgum svið-
um.“
Þingstörf í gær
Þingfundir voru stuttir í
bóðum deildum í gær. í efri
deild var eitt mál á dagskrá,
frumvarp um breyting á lög-
um um dýarlækna, er þeir
Magnús Jónsson, Karl Kristj
ánsson, Friðjón Skarphéð-
insson og Bjiartmar Guð.
mundsso,n flytja. Magnús
Jónsson fylgdi frumvarp-
inu úr hlaði. Frumvaripið
fjallar um að Eyjafjarðar-
umdæmi verði skipt í tvö
dý^æknisumdæmi, þnr sem
með öllu sé orðið ófullnægj-
andi iað hafa þar aðeins einn
dýralækni. Annar dýralækn.
ir hefur verið þar starfandi
um skeið, en þar sem eigi
er heimilt að greiða honum
laun úr rikissjóði, eru starfs-
skilyrði hans hin bágustu,
eú héraðsdýnalæknir telur
sér ekki fært að gegna starfi
sínu, ef hinn dýralæknirinn
hverfur á brott.
I neðri deild talaði Hanni
b.al Valdimarsson fyrir frum
varpi um kvikmyndastofnun
ríkisins og Guðlaugur Gísla-
son fyrir frumv. um lán-
töku vegna vatnsveitufram-
^ kvæmda í Vestmannaeyjum.
Til sölu
er 5 herb. íbúð við Álf-
heima. Félagsmenn hafa for
kaupsrétt lögum samkv.
Byggingarsamvinnufélag
Reykjavíkuy.
Guðlaugur Finarsson
MÁLFLUTNINGSSTOFA
Freyjugötu 37 Simi 19740
HeSmilishjálp
Stórísar og dúkar teknir
i strekkingu. — Upplýs-
íngar i sima 17045.
Vönduð vinna.
Fljót afgreiðsfa.
Oúmmívinnustofan hf.
Skipholti 35. - Reykjavík Sími 18955.
TTgTTBglllll I
A'í-jj,
•'V 8 -í.h
UTGERÐARMENN
Gúmmíklæðum
kraftblokkarhjól
Fangelsuð fyrir
mök við svertingja
Höfundur bókarinnar „Sonur minn og ég“
hin sænska Sara Lidman var í hitteðfyrra tek-
in föst af stjórnvöldum Suður-Afríku vegna of
náinna kynna við blökkumenn. Mál þetta yakti
heimsathygli. Bókin „Sonur minn og ég“ er
stórbrotin skáldsaga, sem byggir á vandræðum
þeim í sambúð hvírra og svartra, sem höfund-
urinn kynntist af eigin raun. Bókin hefur orðið
metsölubók þar sem hún hefur komið út og
höfundurinn hefur með henni hafizt í röð
fremstu ritsnillinga
Bók handa vinum vðar! Bók handa yður!
Bókaútgáfan Fróði
. . . &
SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS
Ms. Hekla
fer vestur um land í hringferð
1. des. Vörumóttaka til Patreks
fjarðar, Sveinseyrar, Bíldudals,
Þingeyrar Flateyrar, Suðureyr
ar, ísafjarðar, Siglufjarðar,
Dalvíkur, Akureyrar, Húsavík-
ur og Raufarhafnar. Farseðlar
seldir á föstudag.
Ms. Herðiibreið
fer austur um land í hringferð
3. des. Vörumóttaka á fimmtu-
dag til Hornafjarðar, Djúpa-
vogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvar-
| fjarðar. Mjóafjarðar, Borgar-
fjarðar, Vopnafjarðar, Bakká-
fjarðar, Þórshafnar og Kópa-
skers. Farseðlar seldir á mánu
dag.
Ms. Baldur
fer til Gilsfjarðar og Hvamms
fjarðarhafna á fimmtudag. —
Vörumóttaka i dag til Skarð-
stöðvar, Króksfjarðarness,
Hjallaness, Búðardals og Rifs-
hafnar.
Jeppi
Til sölu Willys-Jeppi í
góðu lagi, hagstætt verð.
Upplýsingar gefur Krist-
mundur Árnason, Brekku-
braut 23, Akranesi. sími
707.
bila&ala
GUÐMUNDAR
Bergþðrugötu 3. Símar 19032, Z0070.
Hefur avalli tij sölu allai teg-
undii bifreiða
rökuro oifreiðn 1 umboðssölu
Óruggasta fcjónustan
GUÐMUN DA.F?
Bergþórugötu 3. Símar 19032, 20070.
6
T í M I N N , miðvikudaginn 28. nóvember 1962