Tíminn - 05.12.1962, Blaðsíða 15

Tíminn - 05.12.1962, Blaðsíða 15
Bókmenntaviðburður ILMA vörur í jólabaksturinn Brúnkökukrydd Hunangskrydd Allrahanda Engifer Kardimommur Paprika •F0- Múskat Negull Pipar Matarsódi Hjartasalt Eggjagult Súkkat Möndlur Hnetukjarnar Bökunarhnetur Kókósmjöl Skrautsykur Vanillusykur Lyftiduft Matarlím Jaröarberjasulta Hafið listann með yður þegar þér kaupið í JÓLABAKSTURINN Efnageröin ILMA „Með þessari bók hafa íslendingar eignast nýtt fastmótað skáld." Einn hinn heiðarlegasti bókmenntagagnrýnandi, A.K., segir urn hina nýju ljóðabók Hannesar Péturssonar, Stund og staðr: „Það fer varla lijá því að þessi Ijóðabók verði talin tímamótaverk í skáldskap Hannes- ar Péturssonar. Þó að hún beri skýr einkenni fyrri Ijóða hans, í orðfæri, málskynjun og formi, sem allt hefur þroskast að mun, skjlur þar greinilega á milli þess sem var og er. Því valda efnisval og efnistök, lífsviðhorf nýs æviskeiðs, nýr áfangi á þroska- braut. Með þessari bók hafa íslendingar eignast nýtt, fastmótað skáld, sem sýnt þefur persónuleg listatök á máli og formi, býr yfir hófsemi og aga, er laus úr viðjum trúdýrkunar og kredduboðunar en leitar lífsraka af alvöru og trúleik með skarpskyggni. ...........“ Bókmenntaviðburður árslns. Helgafellsbók, fæst í Unuhúsi og öðrum bókabúðum. Dungal og Lára Framhald af 1 siðu von á málsókn. __ — Blaðið hringdi til Láru Ágústsdóttur í dag, en maður hennar, Stein- grímur Sigursteinsson, svaraði og sagði, að Lára væri sjúk og hefði legið rúmföst undanfar- ið. Hann kvaðSt því ekki hafa sagt henni frá þessum skrifum fyrr en í dag, er hann fékk svar Sigurðar í hendur og sýndi Láru það. Steingrímur kvaðst á þessu stigi ekki geta sagt, hvað þau hjón mundu gera í þessu máli, cn sagðíst þó múndi nota rétt sinn út í æsar, þar sem Lára hefði orðið fyrir gjör samlegri mannorðssvipting. — Dungal skal hljóta þá refsingu, sem honum ber, sagði hann einnig. Sigurður Ólason var verjandi Láru, þegar sakamál var liöfð- að gegn henni. Sigurð'ur segir í Morgunblaðinu, að prófessor- inn lialli réttu máli með því að segja, að Lára hafi verið dæmd í fangelsi, þar eð hæsti- réttur mælti svo fyrir, að fang- elsisrefsingu skyldi ekki beita. Segir hann, að breytingar hæstaréttar á undirréttardómi sýni, að miðilshæfileikar og fyrirbæri hafi gegnum rann- sóknina þótt nægilegt sönnuð til að fangelsisrefsing yrði ekki dæmd, þrátt fyrir misfellur Heyrir stöðugleiki . .. Framhald af 1, síðu. nú upp á síðkastið hefði skipaskoð unin farið fram á það við erlend- ar skipasmíðastöðvar, sem smíða fiskiskip fyrir íslendinga, að þær gerðu þessa útreikninga. Væru því til stöðugleikaútreikningar fyrir þó nokkur fiskiskip. Skipaskoðunarstjóri kvað það hafa vqrið rætt hérlendis, að gera slíkar mælingar og reikna síðan út stöðugleika fiskiskipa. En það væri geysimikið verk; það tæki til dæmis um hálfan mánug fyrir skipaverkfræðing að gera slíka út- reikninga fyrir eitt einasta skip. — Þar að auki tel ég chka út- reikninga ekki koma að fullu gagni, nema um leið sé auktn þekk ing fiskiskipaskipstjóra á stöðug- leika og hleðslu skipa almennt, sagði skipaskoðunarstjóri. Blaðið spurði skipaskoðunar- stjóra um það, hvort skipaeftirlit víðar í heiminum hefðu íarið fram á stöðugleikaútreikninga á smærri fiskiskipum frá skipasmíða stöðvunum. Kvað hann sér ekki kunnugt um það. Aðspurður um það, hvort hingað til lands hefðu verið keypt skip af sömu gerð og þau dönsku skip, sem farizt hafa að undanförnu í Norðursjórmm, sagði hann það ekki vera Skipaskoðunarstjóri kvað þetta •mál að mörgu leyti erfitt hérlend- is. Stöðugleiki skipa færi vita- skuld mjög eftir hleðslunni. Hún væri oft á tíðum mikið hagsmuna atriði áhafnar, t. d. þegar síldveiði skipin væru drekkhlaðin af síld, svo að vatnaði yfir dekk. Hætt væri við, að áhöfn myndi ekki sætta sig vig það, að henni yrði með lagasetningu bannað að taka þag aflamagn um borð, sem hún teldi skipið geta borið. Skipaskoð unarstjóri kvað hafa verið leitað álits Farmanna- og fiskimannasam bands íslands, Alþýðusambands íslands og Landssambands is- lenzkra útvegsmanna um þessi at- riði. Svar hefði borizt frá einurn aðila, en skipaskoðunarstjóri kvaðst ekki að svo komnu máli geta skýrt frá þvi svari. sem fyrir lágu. SigurðUr vítir, að barn Láru, þá 12 ára, er dreg ið inn í umræðurnar, en próf- essorinn vitnar þar beint í rétt- arskjölin. yglýsið í Tímanuir* Bækur á lágmarksveröi Framhald af 1. síðu. ag verðið gæti ekki lægra verið. Ekkj náðist samkomulag um slíkt meðalverð, einfaldlega vegna þess að útgefendur treystust ekki til þess, og töldu að' þessi hækkun mundi þýða stórminnkaða bók- sölu. Saknaöi Indverja ,'Framhald af 3 síðu) koma þeirra einnig ógnun við Sovétríkin, sagði Novotny. Forsetinn kvað það mjög leitt, að enginn fulltrúi var kominn til þingsins frá komnj- únistaflokki Indlands, en áður hafði flokkurinn boðað komu fjölmennrar nefndar, en ein- hver breyting hafði orðið á þessu vegna ástandsins í Ind- landi. Ekki voru heldur mættir fulltrúar Júgóslavíu og Alban- íu. Bæiarmálafunduf Framsóknarfélag Akraness held- ur fund um bæjarmál miðvikudag inn 5. des. kl. 8,30 í félagsheimili sínu Sunnubraut 21. Framsögumenn verða bæjarfull trúar flokksins: Ólafur J. Þórðar- son og Daníel Ágústínusson. Stuðningsmenn flokksins eru hvattir til að f jölmenna á fundinn. Aðalfundur Fram- sóknarfél. Kópav. Framsóknarfélag Kópavogs held- ur aðalfund sinn miðvikudaginn 5. desember kl. 8,30 síðdegis í Kópavogsskóla. Venjuleg aðal- fuudarstörf. Auk þess mun Zóp- hónías Pálsson skipulagsstjóri ræða um skipulagsmál Kópavogs, og síðan verða umræður um þau og önnur bæjarmál. Tilkynning til nofenda rafmagns og hitaveitu. Auk þeirra greiðslustaða, sem áður hafa verið aug- lýstir, mun Vesturbæjarútibú Landsbankans í Háskólabíói taka við greiðslum vegna rafmagns og hitaveitu- reikninga. Notendur eru minntir á að nauðsynlegt er að fram- vísa ókvittuðum reikningi til þess að bankinn geti tekið við greiðslu. Rafmagnsveita Reykjavíkur. Bróðir minn, STEFÁN ÞORMAR Geltagerði, lézt 3. þ. m. — Fyrir hönd vandamanna, / Vigfús Þormar. Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, JÓN S. ÓLAFSSON fyrrv. forstöðumaður Bifreiðaoftlrlits ríkisins, lézt í Landsspítalanum að morgni 4. desember. Herþrúður Hermannsdóttir, börn og tengdabörn. Móðir okkar, JÓHANNA EGGERTSDÓTTíR BRIEM lézt að heimili sínu Laugarbökkum, Öifusi 4. desember. . Börn og tengdabörn. í f M I N N, miSvikudagur 5. desember 1962. 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.