Tíminn - 30.12.1962, Qupperneq 3
Útflutningur hundruðum
milli. kr. meiri en 1961
TK-Reykjavík, 29. des.
1. des. s.l. nam heildarverð-
mæti útflutningsafurða or'o-
ið 3 miiljörSum og 228 millj-
ónum króna 11 mánuði árs-
ins 1962, en nam allt árið í
fyrra 3 milljörðum og 74
milljónum króna, og er þá
gengi umreiknað á gengi
ársins 1962. Fyrstu 11
mánuði þessa árs hefur heild-
arverðmæti útflutningsins því
orðið um 150 milljónum króna
meira en allt árið í fyrra og er
því sjáanlegt, að heildarverð-
mæti útflutningsins á þessu
ári verður mörg hundruð
milljónum króna meira en í
fyrra. Auk þess er þess að
geta að miklar birgðir útflutn
ingsafurða eru ( landinu. 1.
des. s.l. höfðu verið fluttar út
síldarafurðir fyrir samtals
951 milljón króna á árinu.
Blaðig hefur aflað sér talua um
heildarfiskaflann eins og hann
var í lok septembermánaðar s. 1.
Heildarfiskaflinn nam þá 659.851
tonni, en var á öllu árinu 1961,
■sem þó var algert metár, nokkru
Thalidomide lækn
aði krabbameinið
Aðeins nokkrum mánuð-
um eftir að lyfið thalidom-
ide hafði verið lýst mesta
skelfing í sögu læknavís-
indanna, var það lofsungið
í ísrael, þar eð talinn var
möguleiki á því, að hér
hefði fundizt lyf, sem nota
mætti við krabbameins-
lækningar.
Upphaf málsins er það, að
árið 1955 hljóp upp þykkildi á
læri ekkju nokkurrar, Blum
Bursi í ísrael, sem nú er 78 ára
gömul. Þykkildið varð stærra
og stærra, og að lokum varð
það á stærð við grapefruit. Eft
ir að meinafræðingar í Tel Aviv
höfðu rannsakað þykkildið, sem
skorið hafði verið af konunni,
kom þeim saman um, að hér
væri um illkynjaða meinsemd
að ræða — fitukirtilskrabba-
mein. Auðsætt var, að ekki
hafði verið komizt fyrir rætur
meinsemdarinnar, því hún tók
sig upp að nýju, og fóturinn
var tekinn af Bluma Bursi ár
ið 1960. Seint á síðasta ári fór
hún að fá miklar kvalir, kviður
inn bólgnaði eins og um
krabbamein væri að ræða, í
honum kom einnig í ljós grun-
samlegur hnúður, og Bluma
tók að hósta upp blóði. —
Morphine hafði ekki lengur
nein áhrif og megnaði ekki að
linna kvalir konunnar. Lækn-
arnir sögðu hana aðeins eiga
eftir 10 daga.
Tengdasonur Bluma, hinn
rússneskættaði dr. Arieh Ra-
poport kom að heimsækja hana
og í staðinn fyrir að gefa henni
morphine eða önnur samskonar
kvalastillandi lyf, lagði hann
til að thalidomide yrði reynt
í von um, að það reyndist á-
hrifameira deyfilyf. Honum
kom alls ekki til hugar að það
ætti eftir að hafa nokkur áhrif
á sjúkdóminn sjálfan og gang
hans.
„Strax eftir fyrstu töfluna”,
segir dóttir Bluma, „sofnaði
mamma í fyrsta sinn svo vikum
skipti rólegum svefni og svaf
alla nóttina. Næsta dag talaði
hún án þess að nokkurt rugl
væri á henni, og að mánuði
liðnum gat hún farið að borða
sjálf og nú getur hún borðað
hvað sem er, án þess að verða
veik af því“.
Dr. Rapoport hætti að gefa
Bluma thalidomide í apríl, þeg
ar hann heyrði um hin óæski-
Sjúklingurinn Bluma Bursi. —
LyfiS, sem olli hvaS mestri
skelfingu, flutti meS sér vonar-
neista.
legu áhrif, sem lyfið getur haft
m. a. á taugakerfi sjúklinganna
bæði karla og kvenna sama á
hvaða aldri þeir eru. En nú fyr
ir 'skömmu var Bluma oröin
rjóð í kinnum og kát og dóttir
hennar segir, að hefði hún nú
aðeins fótinn, sem tekinn var
af henni, gæti hún annazt hús-
verkin.
Rapoport læknir, sem er
57 ára gamall, er skelfdur
vegna þeirrar miklu athygli,
sem þetta óvenjulega tilfelli
hefur vakið. Hann er þess full
viss, að frú Bursi var með
lungnakrabba síðast liðið ár,
en hann viðurkennir þó, að
ekki ligg: fyrir neinar sannanir
um það frá rannsóknarstofum.
Tilgáta sú, sem læknar hafa
borið fram í sambandi við það,
hvernig thalidomide eyðiiegg-
ur fóstur er, að frumur í örum
vexti villast á því og annað
hvort glutamik-sýrum eða B-
vítamíni, drekka það í sig og
hætta síðan að þroskast á eðli-
legan hátt. í rauninni kann að
vera, að thalidomide komi í
veg fyrir, að hinar örtvaxandi
krabbameinsfrumur haldi á-
fram að þróast á sama hátt og
frumur fóstursins. Tilraunir
hafa verið gerðar í Bandaríkj-
unum til að lækna dýr af
krabbameini með því að gefa
þeim thalidomide, en þær hafa
allar mistekizt fram að þessu.
Læknar í Bandarikjunum,
sem vinna við krabbameins-
rannsóknir, halda enn áfram
að nota thalidomide handa
krabbameinssjúklingum, sér-
staklega körlum og svo kon-
um, sem komnar eru úr barn-
eign, enda þótt lyfið hafi ver-
ið kallað inn í apríl, þegar kom
í ljós, hversu hættulegt það er
barnshafandi konum. Almenn
ir læknar hafa lyfið ekki und
ir höndum, og gera má ráð fyr
ir, að þeir fáu, sem vinna að
rannsóknunum, muni bíða með
að nota það að nokkru ráði,
þar til komið hefur í ljós, hver
áhrif það hefur á dýr.
Að minnsta kosti 20 konur
frá einum 12 löndum hafa far
ið í pílagrímsför til Stokkhólms
síðan í ágúst s. 1. í von um, að
þar gætu þær á löglegan hátt
látið eyða fóstrum sínum eins
og sjónvarpsstjarnan Sherry
Finkbine frá Arizona gerði í
sumar, vegna þess að hún hafði
notað thalidomide snemma á
meðgöngutímanum. Læknáfé-
lag Svíþjóðar virðist hins veg-
ar ekki vera í skapi til þess að
láta Svíþjóð fá orð á sig fyrir
að vera einhver fóstureyðingar
stöð fyrir útlendinga, en félag-
ið verður að veita leyfi til fóst
ureyðinganna. Vísað hefur ver-
ið á bug ósk kennslukonu nokk
urrar frá Los Angeles, sem
selt hafði allar eigur sínar til
þess að afla sér fjár til farar
innar til Svíþjóðar, og fram af
þessu hefur aðeins eitt leyf1
verið gefið fyrir utan leyfi'
til handa Sherry Finkbine, er
það var gefið konu frá Vestur
Þýzkalandi.
minni eða 632.315 tonn — og á
árinu 1960 nam aflinn til saman-
burðar 510 þús. tonnum. í septem
berlok var sjáanlegt, að síldarafl
inn á þessu ári yrði meiri en
nokkru sinni fyrr í sögu síldveiða
við ísland, því að hann var þá
þegar orðinn um 413 þús. tonn
eða tæpum 100 þús. tonnum meiri
en hann var allt árið í fyrra, sem
var þó algert metár í síldveiðum
og við þessa tölu á eftir að bæt-
ast sá mikli afli, sem fengizt hef-
ur í þessum og síðasta mánuði.
Til samanburðar og frekari
glöggvunar á því, hve síldarafl-
inn nú er mikill má geta þess,' að
þegar í septemberlok eða fyrstu
10 mánuði þessa árs var heildar-
síldaraflinn orðinn um fjórum
sinnum meiri en hann var að með
altali öll árin 1956, 1957 og 1958.
Fréttir í stuttu máli
REYKJAVÍK, 29. des. — Réttarhöld
standa yfir á Seyðisflrði út af mann
inum, sem kafnaði þar i fangaklefa.
Fyrlr réttinn hafa komið héraðs-
læknirlnn, bæjarfógeti, slökkviliðs-
stjórl, og báðir lögreglumenn stað-
arins. Ekkert nýtt mun hafa komið
fram i mállnu.
REYKJAVÍK, 29. des. — Góð síld-
veiði var í nótt. Flotlnn var á svlp-
uðum slóðum og í fyrrinótt, en
nokkuð dreifðari. Alls fengu 56 bát-
ar samtals 47.130 tunnur. Tvelr bát.
ar, Auðunn og Sigurður Bjarnason
fengu 2 þúsund tunnur, og Hallveig
Fróðadóttir, Skírnir, Eldborgin og
Valafell fengu 1800 tunnur hver.
REYKJAVÍK, 29. des. — Um tólf
áramótabrennur hafa verið undir-
búnar í Hafnarfirði og nágrenni og
hefur lögreglan eftlrllt með þeim.
REYKJAVÍK, 29. des. — í gær urðu
þrír bílaárekstrar i Hafnarflrði og
tveir í morgun, Er það óvenju mik-
ið að sögn Hafnarfjarðarlögregl-
unnar.
VESTMANNAEYJUM, 29. des. —
Jólin hér voru óvenjulega kyrr og
frlðsæl. Stundum hefur verið hér
dálítið fjörugt á Þorláksmessu, en
nú var þar allt mjög frlðsamlegt. —
Um áramótin verða hér margar
brennur elns og venjulega, munu
verða nálægt þrjátíu.
Segja Bandaríkja-
menn undirbúa árás
á Kúbu
NTB-Key West, 29. des.
Havanaútvarpið skýrði frá
því í dag, að andkúbönsk
öfl, væru nú flutt til banda
rísku herstöðvarinnar Guan
tanarnó á Kúbu, og væri
þeim ætlað að taka þátt í
árás á Kúbu.
Útvarpið sagði, að nú væri
verið að flytja kúbanska
flóttamenn til herstöðvar-
innar, og gengju þeir þar í
her Bandaríkjanna til þess
að geta tekið þátt í alvar-
legum æsingum og árásum
á kúbönsku str'andlengjuna.
Þá sagði útvarpið, að árás
ina ætti að gera undir því
yfirskini, að um væri að
ræða vörn á herstöðinni.
Ánægdur meö
viðræðurnar
NTB-Rawalpindi, 29. des.
Indverska samninganefnd
in hélt frá Pakistan í dag
áleiðis heim til Indlands eft
| ir nokkurra daga viðræður
við fulltrúa Pakistans um
deilu landanna út af Kas-
mír.
Við brottförina sagði for-
maður indversku nefndar-
innar, Sardar Singh, við
fréttamenn, að hér færi
ánægður maður. Hann bætti
því við, að fyrstu skrefin
í átt til samkomulags hefðu
verið stigin. Ekki kvað hann
hafa verið tekna fyrir neina
eina hlið • málsins, heldur
hefði verið rætt um það vítt
og breitt.
Ævilangt fangelsi
fyrir aö aðstoöa
flóttamenn
NTB-Berlín, 29. des.
Harry Seidel, sá sem
reyndi að hjálpa flóttamönn
um tll þess að komast frá
Austur-Berlín til Vestur-
Berlínar gegnum göng, sem
grafin höfðu verið undir
Berlínarmúrinn, hefur nú
verið dæmdur í ævilangt
fangelsi. Æðsti dómstóll
Austur-Þýzkalands kvað
upp dóm í máli Seidels í
dag.
Seidel var handtekinn 14.
nóvember við göngin undir
múrinn, þar sem þau opnuð
ust inn í Austur-Berlín.
Hann hafði þá fylgt nokkr-
um flóttamönnum um hin
70 metra löngu göng, en
austur-þýzku lögreglunni
hafði borizt njósn af þessu
fyrirtæki og greip hún
Seidel, þegar hann var að
koma úr þessari ferð.
Stjómar sjálfur
aðgerðuuum
J
NTB-Kongó, 29. des.
HERMÖNNUM Sameinuðu þjóð-
anna hefur tekizt að ná á sltt vald
öllum helztu stöðvum í höfuðborg
Katanga, Elizabethville, en þrátt fyr-
Ir velgengni herjanna heldur skot-
hriðin áfram.
Sex eþíópskir hermenn úr liði
SÞ eru sagðir hafa fallið og þar að
auki hafa 6 Eþíópíumenn og 1
indverji særzt í átökunum. Engan
Evrópumann mun hafa sakað.
Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna
i Leopoldville segja, að Tshombe
forseti hafi reynt að komast á
brott frá Elizabethville til þess að
leita öruggs hælis annars staðar.
Kimba utanríkisráðherra Katanga
bar þessa frétt til baka í útvarps-
ávarpi, sem hann flutti í útvarpið
Frjálst Katanga. Þar sagði hann,
að Tshombe stjórnaði sjálfur að-
gerðunum í úthverfum Elízabeth-
ville, og hefði hann stöðugt sam-
band við ráðherrana í stjóm sinni.
Formælandi Sameinuðu þjóð-
anna í Leopoldville sagði í dag, að
flugvél frá her SÞ hefði tekizt að
eyðileggja þrjár flugvélar Katanga
hers í morgun. Vélarnar voru á
flugvellinum í Kolwezi í nágrenni
Elizabethville.
tÍMINN. sunnudaccinn 30. desember 1962
/