Tíminn - 23.02.1963, Side 6
TÓMAS KARLSSON RITAR
TIR
ÞINGFRETTIR
Veita þarf kornrækt eðlilegan stuðning
og iafnrétti við erlent, innfiutt korn
Framsóknarmenn í landbún
aðarnefnd efri deildar hafa
lagt fram minnihlutaálit um
frumvarp til laga um korn-
rækt, er þeir Ásgeir Bjarna-
son og Páll Þorsteinsson flytja.
Nefndin varð ekki ásátt um
afgreiðslu frumvarpsins og
leggur minnihlutinn til að það
verði samþykkt óbreytt. Þetta
frumvarp hefur verið flutt á
undanförnum þingum, en ekki j
náð fram að ganga. Hefur áður
verið skýrt frá efni þess hér á
síðunni. Minnihlutinn leitaði
álits Klemesar Kristjánssonar
tilraunastjéra á Sámsstöðum
um frumvarpið, sem er eins og
kunnugt ér frumkvöðul! í korn
yrkju hér á landi. Álit til-
raunastjórans fer hér á eftir:
Grundvallað á þeirri reynslu,
sem fengizt hefur í kornyrkju frá
1923—1962 við tilraunir og stærri
ræktun á Sámsstöðum og próf-
ræktun í flestöllum héruðum
landsins, virðist ræktun á byggi
vera sú framleiðsla, sem skylt er
að bæta við íslenzka fóðuröflun.
Til þess að gera fært, að þessi
framleiðsla nái öruggri fótfestu í
íslenzkri ræktun sem víðast á land
inu, er brýn þörf á, að þjóðfélagið
þ. e. ríkið, stuðli að útbreiðslu
kornyrkjunnar. Markið er, að
kornyrkja verði stunduð á Suður-
landi í flestum héruðum, og eru
þá einkum Rangárvaliasýsla og
Skaftafellssýslur hafðar í huga.
svo og Árnessýsla.
Á Vesturlandi má ætla, að í
flestum árum þroskist bygg í
Gullbringu- og Kjósasýslu, víða í
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, svo
og héruðunum í krnigum Breiða-
fjörð. Þá má ætla, að nokkuð ör-
ugg verði byggrækt í Eyjafjarðar-
og Þingeyjarsýslum, svo og víða
í Múlasýslum. Alls staðar á þess-
um stöðum eru byggðarlög, sem
hafa meira og minna góð skilyrði
og sums staðar ágæt fyrir bygg-
þroskun.
Það, sem komræktin byggist á:
Tilraunastarfsemi og ræktun til
framleiðslu s. 1. 40 ár
Það, sem tilraunirnar hafa sann
að:
Bygg og hafrar þroskast fylli-
lega 8 af hverjum 10 árum að með
altaíi og uppskera 15—25 tn. af
ha. í verstu ámm og með Óhöpp-
um vegna veðurs 5—12 tn. af ha.
og ber þá kornframleiðslan sig
illa, en verður að jafnaði arðgæf.
Þetta gildir fyrir Suðurland. Aðrir
landshlutar gefa ekki að jafnaði
eins góðan árangur.
Tilraunir, sem gerðar hafa ver-
ið, em í höfuðdráttum þessar:
1. Sáðtímatilraunir með bygg og
hafra 20 sumur. Þær hafa varðað
sáðtíma koms hér á landi Bezti
sáðtfmi 20.-4. — 10. 5.
2. Áburðartilraunir með búfjár-
áburð og tilbúiiln áburð. Þessar
tilraunir hafa sagt fyrir um á-
burðarmagn við ýmisleg skilyrði
við kornrækt.
3. Tilraunir með sáðskipti og
forræktun.
6
4. Tilraunir með sáðmagn og
-áðdýpi.
5. Tilraunir með áburðartíma.
6. Tilraunir með kornafbrigði,
og eru það umfangsmestu tilraun-
ir, sem enn hafa verið gerðar. Má
í þessu efni nefna, að búið er að
reyna á 4. hundrað kornafbrigði
af byggi, höfmm, rúgi og sveiti.
Þessar tilraunir hafa bent á eft-
irfarandi afbrigði til þroskunar:
Af 6 raða byggi: Donnesbygg,
Eddabygg, Flojabygg, Tampar-
bygg. Tvö þau síðastnefndu eru
ættuð frá Færeyjum og hafa þol-
að bezt af öllu byggi stormsama
haustveðráttu. Atvinnudeildin hef-
ur kvíslað saman Eddabygg og
Floja og hyggst ag ná ræktunar-
bæfu korni úr þeirri blöndu — en
það tekur talsverðan tíma. Af 2
raða byggi, er þarf um 6—10 daga
lengri þroskunartíma en 6 raða
bygg. eru þessi afbrigði bezt: —
Hertabygg, Maribygg og Morgun-
roði (Morgenrot), sem þroskast
fyrst, eða á sama tíma og 6 raða
bygg. Af höfrum: Samehafrar, Nig
arhafrar, Tammehafrar og Nín-
hafrar. Af vorhveiti:Norronehveiti
Fylia og Diamant, en ekki ná
þessi afbrigði fullum þroska nema
í betri sumrum á venjulegum móa
jarðvegi. Það skal þó tekið fram,
að vorhveitiafbrigði hafa náð full
um þroska á Skógasandi 1962, og
er líklegt, að sandarnir með suð-
urströnd landsins þroski fyrst og
bezt korn hér á landi. Vetrarrúg-
ur þrífst í flestum árum.
Sú þekking og aðstaða, sem
skapazt hefur á síðustu 4 áratug-
um, er það verðmæt fyrir inn-
lenda fóður- og mataröflun, að
brýn nauðsyn er á að hagnýta þau
sannindi, sem þegar eru fengin.
útbreiðslu og uppbygging korn-
ræktarinar er hvort tveggja í
senn, hagsmuna- og menningar-
mál þjóðarinnar. Með áframhald-
andi tilrauna- og ransóknarstarf-
semi verður vafalaust hægt að
gera komyrkju árvissari og fjöl-
breyttari en liðin tilraunastarfsemi
hefur orkað, en það er þó sýnt,
ag með þeim kornafbrigðum, sem
nú er völ á, má reka arðgæfa kom
rækt. S. 1. sumar var slæmt fyrir
þessa framleiðslu, m. a. í þvi,
hvað vorið tálmaði og dró á lang-
inn sáðtímann, og svo 3—11 °C
frost fyrri hluta sept. Þó fengust
á Geitasandi á Rangárvöllum 10—
11 tn. af ha. af byggi og í smá-
tilraunum 20—24 tn. ha. Á Skóga
sandi náði Hertabygg fullum
þroska og 14—15 tn. uppskeru af
ha. og meira á Síðunni. Bygg náði
góðum þroska víðast i Hornafirði,
í A.-Skaftafellssýslu í Gunnars-
holti náði Hertabygg um 85% af
fullþroska, á Hvolsvelli um 65—
70% af fullþroska (eftir athugun
í haust). Uppskera varð á þessum
stöðum minni en 10 tn. af ha„ en
hér kom ekki til að öllu leyti
sumarið, heldur framkvæmdir
einkum sáðtími, áburðardreifing
og sáðmagn).
í þessu sambandi má benda á,
að kornrækt hefur víðar mistek-
izt en hér á landi s. 1. ár, því að
um alla Norður-Evrópu urðu mik-
il áföll á kornframleiðslu, og væri
hægt að benda á ýms héruð, t. d.
N.-Þýzkaland, þar sem *kornfð'
varð ekki uppskorið vegriá rign-
inga og annarra veðurfarsgalla,
sem þar eru taldir óvenjulegir.
Þá má minna á eitt atriði, sem
gæti tryggt mjög t. d. byggrækt,
en það er vetrarbyggrækt. Nú eru
i gangi tilraunir á Sámsstöðum
með 2 afbrigði af vetrarbyggi á
3 jarðvegstegundum og reyndir
6 sáðtímar frá 5.-7. — 20.-10. Engu
skal spáð um árangur, en víst virð
ist mér vera, að vinna mætti vetr-
arbyggrækt inn í íslenzka korn-
rækt, og væri það aðferð, sem
tryggði öruggari árangur en vor-
byggræktin ein. Vetrarbygg á að
þroskast 2—3 vikum fyrr en vor-
sáð bygg.
Það, sem ég hef hér nefnt varð-
andi innlenda kornframleiðslu,
er þess eðlis, ag stefna að full-
komnu landnámi kornyrkjunnar,
og það ætti að vera ósk allra, sem
vlja hag og heill íslnzkra atvinnu-
vega. En til þess að þessar at-
hafnir allar nái sem fyrst eðli-
byggðarlögum landsins, þarf meiri
átök en gerð hafa verig fram að
þessu. Vrðist mér, að það hljóti að
felast í eftrifarandi atriðum:
1. Að haldlð sé áfram þeirri til-
raunastarfseml, sem rekln hef
ur verið af atvinnuðeild og
tilraunastöðvum með aðstoð
ríkisvaldsins.
2. Að samin verði og lögfest lög-
gjöf um ráðstafanir til út-
breilJslu kornræktarinnar, er
m. a. feii í sér:
a. Innlend kornframleiðsla sé
gerð jafnrétthá hvað verð-
lag snertir og samtegunda
erlent korn (sem er nú
niðurgreitt).
b. Að veittur sé ákveðinn
styrkur tii vélastöðva, er
aðstoða við kornrækt.
c. Að vett sé jarðvinnslufram-
lag miðað við ha. árlega
næstu 10 ár, meðan korn-
, ..-yrkjan, er að ná fótfestu.
"’th'Aff serstok raðunautastarf-
semi verði hafin með leið-
beiningum lútandi að' því að
leiða á faglegan hátt fram-
kvæmd á útbreðslu og
rekstri almennrar kornfram
ieiðslu bænda.
Ef þessu, sem hér hefur verið
á minnst, yrði framfylgt, er ég
ekki í neinum vafa, að komyrkj-
an nær útbreiðslu í flestum byggð
arlögum landsins, bæði til fóðurs
og manneldis.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
RÍKISÚTVARPIÐ
Tónleikar í Háskólabíói
í kvöld kl. 19,00.
Stjórnandi:
GUSTAV KÖNIG
Einsöngur:
IRMGARD SEEFRIED
Einleikur:
WOLFGANG SCHNEIDERHAN
Efnisskrá:
Mozart: Sinfónía í g-moll
Mozart: Aría úr óp. BrúðkauD Figaros
Richard Strauss: Traum durch die Dámmerung,
Zueignung.
Beethoven: Konsert fyrir fiðlu og hljómsveit op. 61.
Aðgöngumiðar í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar og bókaverzlun Lárusar Blöndal á Skóla-
vörðustíg og í Vesturveri
Jörð til leigu
Jörðin Brautarland í Víðidal V-Húnavatnssýslu,
er laus til ábúðar í næstu fardögum. Áhöfn og vél-
ar geta fylgt. Jörðin liggur við þjóðbraut. Raf-
magn frá ríkisrafveitu. Umsóknarfrestur til 15.
marz. — Upplýsingar gefur undirritaður eigandi
jarðarinnar
Steindór Benediktsson.
Nýkomið:
ÍTALSKAR HARÐPLASTPLÖTUR
ýmsir litir. 1. fl. vara. Stærð 280x130 cm.
Verð aðeins kr. 686,15 pr pl
Enn fremur fyrirliggjandi:
GIPSONIT ÞILPLÖTUR
260x120. Verð kr. 130.00 pr. pl.
HAMRAÐ TRÉTEX
4x9 fet. Verð kr. 115,20 pr. pl.
HARÐTEX (finnskt)
4x8 fet. Verð kr 66,15 pr pl.
4x9 fet. Verð kr 74,35 pr pl.
PROFIL-KROSSVIÐUR (fura)
203x61 cm. Verð kr. 241,00 pr. pl.
Páll Þorgeirsson
tTmTÍTn, laucrardagur 23. febrúar 1963.