Tíminn - 07.03.1963, Page 15
Erindi um ís-
lenzka tungu
Nýr flokkur sunnudagserinda er
nú hafinn í útvarpinu. Er þar fjall-
að um islenzka tungu og verða er.
indin sjö eða átta, öli flutt af
þekktum málfræðingum og tala þeir
hver um sinn þátt tungunnar eða
málaögunnar. Erindin eru þ'íssi:
1. Dr. Hreinn Benediktsson:
Upptök íslenzks máls (3. marz);
2. Dr. Jakob Benediktsson: Þættir
úr sögu ísl. orðaforða (10. marz);
2 Dr. Halldór Halldórsson: Ný-
gervingar (17. og 24. marz); 5.
Jón Aðalsteinn Jónsson’cand. mag
íslenzkar mállýzkur (31. marz) —
6. Dr. Hreinn Benediktsson: Breyt
ingar á hljóðkerfi ísl. tungu (7.
apríl); 7. Ásgeir Bl. Magnússon,
cand. mag.: Um geymd íslenzkra
orða (14. apríi).
Ef til vill verður 8. erindið um
viðhorf til íslenzkrar tungu á ýms
um tímum, en ekki er til fulls
frá því gengið enn.
Fyrsta erindið flutti dr. Hreinn
Benediktsson síðastl. sunnudag og
síðan koma erindin hvert af öðru.
Hefur ekki fyrr verið fjallað um
þessi efni öll í heild eða samfellu.
Mun fá/st þatlna mjög fróðlegt
yfirlit um merka og mikilsverða
þætti móðurmálsins á aðgengileg-
an hátt. Það hefur sýnt sig lengi
undanfarið, að útvarpsþættirnir
um íslenzkt mál hafa verið mjög
vinsælir og þeir hafa einnig haft
mikið gildi fyrir orðasöfnun og
orðaskýringar þeirra, sem vinna
að orðatoók Háskólans. Fjöldi
hlustenda hefur lagt þar orð í
belg.
Næst á undan þessum flokki var
fiokkur, 17 erindi um tækni og
verkmenningu og kom þar fram
margvíslegur fróðleikur og marg-
ar nýjungar.
Finnlandskvöld
Finnskur fyrirlesari Per-Erik
Lundberg, rektor frá IMATRA í
AusfurJFinniandl, kom hingaS til
lands á mánudagskvöldið og mun
dveljast hér í nokkra daga og halda
erlndf á vegum Norræna félagslns.
Rektor Lundberg er formaður
í deild Norræna félagsins í Imatra,
þar sem hann nú starfar, sem rekt
or við menntaskóla. Árin 1935—
1955 var harin skólastjóri við lýð-
háskóla í Finnlandi, og hafa nokkr
ir íslenzkir nemendur notið skóla
vistar við þann skóla á þeim árum,
er hann veitti skólanum forstöðu.
Rektor Lundberg er snjall og
mjög vinsæll fyrirlesari og hefur
hann ferðazt víða, bæði um Norð
urlönd, Mið-Evrópu, Bandaríkin
og Kanada. Hingað kom hann úr
fyrirlestrarferð um Noreg.
Á fimmtudagskvöldið talar hann
a skemmtifundi Norræna félags-
ins í Reykjavík. Sá fundur verð-
ur í Glaumbæ og hefst kl. 20.30.
Á föstudagskvöldið mun rektor
Lundberg svo flytja erindi í Flens
borgarskóla á vegum Norræna fé-
lagsins í Hafnarfirði.
Enn fremur verður dansað til
klukkan eitt eftir miðnætti. —
Hljómsveit Árna Elvar leikur fyr-
ir dansinum, söngvarinn Arthur
Duncan syngur með hljómsveit-
inni. — Sérstaklega eru þeir, sem
dvalizt hafa á lýðháskólum fyrir
niilligöngu Norræna félagsins,
hvattir til að sækja fundinn.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Drótikvæði
Framhald af 16 síðu.
verði að teljast listasmíð að sama
skapi sem verk Picassos teljast
listaverk.
Um þetta efni hefur prófessor
Stefán flutt fyrirlestra við The
Johns Hopkins University og Há-
skóla Kaliforníu í Berkley Öllum
er heimill aðgangur að fyrirlestr-
inum.
FÁ SÉR EPLI OG
REYKJA EKKI
BÓ-Reykjavík, 6. marz.
Tímaritið Heilsuvernd, sem
NáttúrulækningafélagiS gef-
ur út, flytur reykingamönnum
mikinn boSskap, þ. e. a. s.
þeim sem vilja hætta reyking-
um. Ráðið er einfalt, og von-
andi haldgott, og það er að
borða epli!
Ritið skýrir frá ungum reykinga
manni bandarískum, sem af til-
viljun var lokaður inni í skúr og
varð að hírast þar í 3 daga. í
skúrnum var mikið af eplum, en
ekkert annað matarkyns. Piltur
hafði nóg af vindlingum, en svo
kynlega brá við, þegar hann fór
að éta eplin, að tóbakslöngunin
dvínandi og var horfin þriðja dag-
inn.
Þá segir að reynsla margra
reykingamanna hafi sýnt, að tó-
bakslöngunin minnkar við neyzlu
epla og annarra nýrra aldina og
hefur þannig áhrif á bragðskynið
að mönnum þyki tóbaksbragðið
vont eftir ávaxtaátið. Þá er bent
á annað ráð til að venja sig af
reykingum, en það er að anda
djúpt að sér og frá fimmtán sinn-
um í röð, þegar tóbakslöngunin
gerir vart við sig. Samkvæmt
þessu ætti það að vera vandalítið
að hætta að reykja.
FARIN
UTAN
MÁ—Saurbæ, 5. marz.
Konan, er bandaríska þyrlan,
sem nauðlenti við Hafnarfjörð á
dögunum, var að sækja vestur að
Gilsfirði, heitir Guðlaug Guðlaugs
dóttir, frá Efri-Brunná í Saurbæ.
Hún er 58 ára að aldri, gift Stef-
áni Eyjólfssyni. Við rannsókn fyr-
ir sunnan kom í Ijós, að konan
er með heilablæðingu og var hún
fiutt út til Kaupmannahafnar í
gærmorgun.
Kirkjuvikan
á Akureyri
KH-Reykjavík, 6. marz. — Á yfir-
standandi kirkjuviku í Akureyrar
kirkju leggja hvorki meir^ né
minna en átta prestar fram liq ftitt
— auk fjölmargra annarra, sem
í óðum fiski
Framhald at 1 siðu.
arson með 14 og Hafrún með 13.
Hefði þetta magn raunar þótt
prýðilegt fyrir skömmu, eða
þar til aflakóngarnir fóru að koma
að með marga tugi tonna.
Austur við Vestmannaeyjar
veiða þeir svo ljómandi fallega
síld, sem fer í frystingu og fá svo
þar að auki heilmikið af þorski
í næturnar. Ófeigur II. kom í
kvöld inn með 350 tunnur af síld
og 5 tonn af þorski og Hringver
kom með 200 tunnur af síld og
10—15 tonn af þorski. Þá koni
Reynir með 200 tunnur, Kári með
200 og Gjafar í morgun með 450
—500 tunnur. Fleiri bátar voru
þarna í kvold að leita síldar og
kasta, Höfrungur II., Halkion og
Gullborg voru meðal þeirra.
þar koma fram, m.a. eru það fjmm
kennarar, æskulýðsfulltrúi, hjúkr-
UT-arkona, söngmálastjóri þjóð-
k’rkjunnar og fjöldi hljómlistar-
manna. Vandað er hið bezta til
kirkjuvikunnar, sem er hin þriðja
í röðinni, og í sambandi við hana
er safnað féutil byggingar sumar-
búða kirkjunnar við Vestmanns-
vatn, sem byrjað var á s.l. sumar.
Prestarnir átta eru séra Pétur Sig
irgeirsson, frú Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir, cand. theol., séra Jón
Bjarman, séra Sigurður Haukur
Guðjónsson, séra Þórarinn Þór,
séra Birgir Snæbjörnsson, séra
Stefán V. Snævarr og séra Sigprð-
ur Stefánsson, vígslubiskup.
Trúlofunarhringar
íoi afgreiðsla
GUÐM ÞORSTEINSSON
gullsmiSur
Bankastræti 12
Simi 14007
Senrlum eeen póstkröfu
AugBýsið í
TÍMANUIVB
Fermingarföt
1. fl. cfni og snið
Drengjajakkaföt
6—14 ára
Stakir drengjajakkar
Drengjabuxur
frá 3—14 ára
Buxnaefni
kr. 150 pr. nieter.
Fermingarskyrtur
hvítar drengjaskyrtur frá
4—14 ára
Patons ullargarn
allir lifir og 5 gróflcikar
Æðardúnssængur
Vöggusængur
Kaupum æðardún
Sendum í póstkröfu.
Vesturgötu 12. Sími 13570
Óánægður
(Framha'c at 3 síðn)
eðlilegt horf í náinni framtíð, og
benti orðsending Kúbustjórnar til
U Thants framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna nú í vik-
unni, þar sem Bandaríkin voru
ásökuð um að undirbúa innrás í
landið, ekki til þess, að Kúbu væri
hugleikið að eiga vinsamleg sam-
skipti við Bandaríkin.
Rennedy kvað Bandaríkin þó
ekki hafa í hyggju að setja nýtt
hafnbann á Kúbu. Hafnbann væri
styrjaldaraðgerð, og styrjöld væri
ekki Bandaríkjunum í hag. Hins
vegar hvatti hann lönd Suður-
Ameríku til að einangra landið
eftir mætti.
ífiróttir
bæði a og b lið komust áfram
í keppninni. Keflavík a mætti
Víking í fyrsta leik síðari kvöld
ið og vann með 5:3, en í næsta
leik burstaði Þróttur liðið með
8:3. Keflavík b mætti Fram í
fyrsta leik og vann Fram auð-
veldlega með 9:4.
Úrslitaleikurinn milli Fram
og Þróttar var skásti leikur
mótsins og spenna í honum eins
og vera ber í úrslitaleik. —
Framarar voru nokkuð óheppn-
ir, en tveir leikmenn liðsins,
Grétar Sigurðsson og Ragnar
Jóhannsson meiddust i leikjum
áður í mótinu og gátu því ekki
verið með í sjálfum úrslitaleikn
um.
Það var Þróttur sem skoraði
fyrsta markið — Ómar — en
Guðmundur Óskarssón jafnaði
fyrir Fram. Aftur skoraði
Þróttur og enn jafnaði Fram
og var staðan í hálfleik 2:2.
Fljótlega í seinni hálfleikn-
um komst Þróttur yfir og náð'i
tveggja marka forskoti. Ekki
var reiknað með að Fram tæk-
ist að jafna þetta bil, enda léku
þeir oftast tveir. Ásgeir skor-
aði þó þriðja mark Fram og
Hallgrímur Scheving jafnaði
litlu síðar glæsilega. Örfáar
sekúndur voru eftir og búizt
við að framlengja þyrfti leik-
inn — en Hauki Þorvaldssyni
tókst að skora sigurmark Þrótt
ar fyrir klaufaskap Framvarn-
arinnar.
Dómari í leiknum var Sigur-
geir Guðmannsson.
Þetta afmælismót Víkings
fór vel <ram þótt varla sé hægt
að segja að skilyrði til að leika
knattspyrnu í litla salnum að
Hálogalandi séu góð. — Það
sýndi sig einnig að knatt-
spyrna leikin úti er allt annað
en inanhússknattspyma —
innanhússknattspyrna að Há-
logalandi er leikaraskapur!
— alf.
Færeyingavaka
í Kópavogi
iwm \
Norræna félagið í Kópavogl efndi 1
til Færeyingavöku s.l. sunnudags
kvöld í Félagsheimlli kaupstaðar
ins. Var hún eins fjölsótt og hús-
rúm frekast leyfði'. Auk bæjarbúa
voru margfr Færeyingar þar sam
an komnir.
Form. félagsins, Hjálmar Ólafs-
son bæjarstjóri, setti samkomuna
með ávarpi og stýrði henni. Gat
hann þess m.a. að afrek Færey-
inga að viðhalda tungu sinni, menn
ingu og þjóðareinkennum væri
stórum meira en íslendinga miðað
við allar aðstæður.
Þá talaði Leiv Gregersen og bar
fram þakkir til norræna félagsins
fyrir að boða til samkomu þessar-
ar, — Þjóðminjavörður Færeyinga
Sverre Dal flutti ræðu um þjóð-
ernis -og menningarbaráttu í Fær
eyjum frá fyrstu tíð. Hann hafði
meðferðis tvær gullfallegar kvik
myndir færeyskar, sem teknar
voru sumarið 1961 af Færeying-
um og með færeysku tali. Var góð
ur rómur gerður að máli ræða-
œanns og myndunum.
Þá flutti Liv Joensen, stud. mag
færeysk kvæði afburðavel. Voru
þau síðan sungin af fundarmönn-
um öllum. — Loks var stiginn fær
eyskur dans. Þótti þessi kvöldvaka
hafa tekizt mjög vel.
6 prestaköll
Reykjavík 5. marz. — 6 presta-
köll hafa verið auglýst laus til
umsóknar. — Þau eru: Desjar-
mýrarprestakall í N-Múlaprófasts-
dæmi, Húsavíkurprestakall í S-
Þingeyjarprófastsdæmi, Hofsós-
prestakall í Skagafjarðarprófasts-
dæmi, Holtsprestakall í V-ísafjarð
arprófastsdæmi, Miklabæjarpresta
kall í Skagafjarðarprófastsdæmi,
Breið'abólstaðarprestakall í Rang-
árvallaprófstsdæmi.
Umsóknarfrestur er til 31. marz
n.k.
(Frá biskupsstofu)
Sýning í Nígeríu
Framhald al 6 síðu
kennurum sínum, er sumir höfðu
ekið dagleið í trukkum í brenn-
andi hita, og einnig kom mikið af
verzlunarmönnum vrðs vegar að
úr landinu og ræddu þeir við þá
fulltrúa ísl. fyrirtækjanna, er þar
voru, þá Einar Farestveit, fram-
kvæmdastjóra og Birgi Halldórs-
son.
Nigeríumenn, sem eru yfir 40
millj. talsins, eru nú að koma
sjálfir inn á heimsmarkaðinn, eft-
ir að þeir hafa fengið stjórn lands
ins í sínar hendur, en áður fór
öll þeirra verzlun, bæði innflutn-
ingur og útflutningur, gegnum
stóru Evrópufyrirtækin. Og stóra
vörusýningin á Victoriueyju í
Lagos i haust, fyrsta almenna
vörusýningin, sem haldin er í
Afríku, vakti mikla athygli i álf-
unni og dró að viðskiptamenn úr
öllum hinum heimsálfunum.
ÞAKKARAVÖRP
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér vin-
arhug á sjötugsafmæli mínu. Lifið heil.
Ingigerður Ágústsdóttir, Stykkishólmi
Utför
Árna Einarssonar
í Múlakoti,
verður gerð frá Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð laugardaglnn 9,
marz. Athöfnin hefst með húskveðju að heimill hans, Múlakoti
kl. 1 e.h. Blóm og kranzar afbeðnir, en þeim sem vlldu minnast
hans, er benf á Landgræðslusjóð. Fyrlr hönd vandamanna.
Guðmundur Guðmundsson.
T í BÍIN N , fimmtudaginn 7. marz 1963 —
15