Tíminn - 26.03.1963, Blaðsíða 15
SýsEumannatogstreita
Framnald ai i siðu
kvæði. Friðjón fékk hins vegar
29 atkvæði áfram.
Eftir þetta varð engum sáttum
við komið og fóru Dalamenn fljót-
lega af fundi og heim og varð fátt
um kveðjur. Telja kunnugir, að Ás
geir muni ófús að láta sinn hlut
og gefa eftir sætið, en Friðjón
mun heldur ekki láta liklega.
Blaðið héfur fregnað, að Bjarni
Benediktsson, formað'ur Sjálf-
stæðisflokksins, sé nú á förum vest
ur í Búðardal.. Eftir því ag dæma
virðist það ætlun flokksforystunn-
ar að reyna að beygja Friðjón
sýslumann.
Ráku þúsundir
Framhald ai l síðu
þeirra höfðu sótt menntun sína á
búnaðarskóia.
Mestu vandræð'unum hafa valdið
hin tíðu mannaskipti í bústjórnar-
stöðum. Á síðast liðnu ári var
skipt um bústjóra á 75 af 661 sam- ■
yrkjubúi, en á ríkisbúunum, sem,
eru 131 að tölu, var á sama tíma
skipt um menn í 170 yfirmanna- j
stöðum. Eitt af þeim ríkisbúum,!
sem Krúsjoff lét stofna árig 1953 j
á óbrotnu iandi, hafði á sjö árum
haft sjö bústjóra.
Jusupov kvartar sárlega undan
auknu tapi hjá ríkislandbúnað'in-
um. Segir hann, að á síðustu þrem j
ur árum hafi rekstrarhallinn auk-
izt um 544 milljónir rúblna.
Einkaréttur
Framhald af 16 síðu
frumvarp um afnám einkaréttar
Ferðaskrifstofunnar, en þau hafa
ekki náð fram að ganga. Fyrir
þessu þingi liggur einnig frumvarp
írá Þórami um þetta efni og jafn
framt annað frumvarp því tengt
um eftirlit með starfsemi ferða-
skrifstofa. Á undanförnum þingum
hefur Gylfi Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra, mælt gegn frum-
vörpum Þórarins. Nú leggur hann
fram frumvarp um þetta sama
eíni.
Frumvarpið kveður eðlilega á
um nokkrar breytingar á Ferða-
skrifstofu ríkisins. Einnig eru í
frumvarpinu ákvæði um stofnun
7 manna ferð'amálaráðs og enn
fremur stofnun sérstaks ferðamála
sjóðs, er skal veita lán til eflingar
ferðamálum.
3 féru í rafiostí
Framhald af 16 síðu
ar og fleiri illa farnar, en virðast
þó ætla að lifa þetta af. Talið er
víst, að rafmagnið hafi einhvern
veginn komist í vatnsleiðslurnar
og mun eftirlitsmaður frá rafveit-
unum hafa bannað, að straumi yrði
aftur hleypt a fyrr en búið væri
að br'eyta jarðtengingu. j
Gil brann
Framhald af 16. síðu.
mínútur frá því eldurinn varð laus
og þar til husið var ð alelda. Á Gili
húa tvenn hjón og eru bændurn-
ir feð'gar, Björn Jónsson og Frið-
rik Björnsson. Friðrik og kona
hans eiga þrjú börn.
Skí9amennirnir
F»-3mhald at 3 síðn
sjötta sætinu með 85,1 sek (43,9
+41,2), Gunnlaug Sigurðsson í;
sjöunda sæti meg 87,6 sek. (41,1
+46,5), Hiiirik Hermannsson í átt
unda sæti með 87,6 sek. (45,0+
44,7), og Sigurð Guðjónsson í ní-
unda sæti með 102,7 sek. (48,5+
54,5). f tíunda sætinu varð Skot-
landsmeistarinn David Banks.
Reykvísku skíðamennirnir komu
heim í gær og létu þeir mjög vel I
yfir förinni — móttökur voru góð
ar, það eina sem ef til vill skyggði
á, var lagning brautanna, sem
hefði mátt vera betri. — Þess má
geta, að Norðmenn létu hljóm-'
sveit leika i hvert skipti sem kepp
andi kom i mark og vakti það
mikla lukku.'
Alþjóðaleikhúsdagur
og Andorra á morgun
Reykjavík, 25. marz.
Á miðvikudag er Alþjóðaleikhús
dagurinn, og í tilefni þess frum-
sýnir Þjóðleikhúsið þá um kvöldið
hið fræga svissneska leikrit
Andorra eftir Max Frisch undir
stjórn austurríska leikstjórans
VValter Firners. Þorvarður Helga-
son hefur þýtt leikritið á íslenzku.
Þorgrímur Emarsson málaði leik-
tjöldin, í fyrsta sinn sem hann ger-
ir það fyrir Þjóðleikhúsið.
í leiknum koma fram 13 leikarar
í meiriháttar hlutvérkum, en að
auki koma íram um 30 leikendur.
Með stærstu hlutverkin fara Gunn
ar Eyjólfsson, Valur Gíslason,
Kristbjörg Kjeld, Herdís Þorvalds
dóttir, Bessi Bjarnason og Guð-
björg Þorbjarnardóttir. Hér birtist
mynd af leikstjóranum, Walter
Frisch.
Afgamall bátur
sökk á Sundum
MB-Reykjavík, 25. marz.
Á NÍUNDA tímanum í morg-
un var Slysavarnafélagi íslands
tilkynnt frá Gufunesi, að bátur
væri á reki austan megin við Vlð-
ey.
Að beiðni Slysavarnafélagsins
ætluðu Gufunesmenn að fara út
og reyna að bjarga bátnum. Sáu
þeir til hans, að hann rak aftur
frá eynni í áttina að Gufunesi. En
áður en þeir komust að honum á
sínum báti, sökk fyrrnefndur bát-
ur. Hafnsögumönnum var tilkynnt
um atburðinn, og fór Magni á stað
inn til að kanna með dýptarmæli,
hvort báturinn hefði sokkið á sigl-
ingaleið. Reyndist ekki svo vera.
Báturinn, sem sökk, reyndist
vera Sæfari. Hafði eigandinn, Jón
Sigurðsson, lagt honum upp í
fjöru á sundunum og borað gat á
hann, svo ag hann flyti ekki út á
flóði. En strákar munu hafa þétt
bátinn svo að honum hefur skolað
út á flóði í morgun.
EKIÐ Á VÖRIJBÍL
Reykjavík, 23. marz — í nótt var
ekig á vörubíl, sem stóð á Reylya-
vegi, skammt frá Sundlaugunum.
Þá var ekið á fólksbifreið, sem
stóð við Miðbæjarbarnaskólann.
Rannsóknarlögreglan óskar eftir
yitnum, en talsverðar skemmdir i
urðu á báðum þessum bílum.
Lézt á Skeiðvell-
inum
BÓ-Reykjavík, 25. marz.
SÍÐDEGIS á laugardagiinn varð
dauð’sfall á Skeiðvellinum í Rvík.
Kristinn Kristjánsson, sérleyfi’s-
hafi, Njálsgötu 77, hné niður og
missti meðvitund, þegar hann var
að stíga af hestbaki. Hann var lát-
dnn áður en sjúkrabifreiðin kom
með hann á Slysavarðstofuna.
Á sunnudaginn féll Baldur
Pálmason, útvarpsmaður, af hest-
baki á Vatnsveituvegi og fékk við
það heilahristing, Hann liggur nú
á Landakotsspítala.
Sama dag féll hafnfirzk kona,
Sigrún Árnadóttir, af hestbaki við
Hafnarfjarðarveginn. Sigrún var
flutt heim til sín, en síðar var
farið með hana á Sólvang, þar sem
meiðslin reyndust alvarlegri en
var gert ráð fyrir.
St. MIRREN vann
f aukaleik í þriðju umferð
skozku Bikarkeppninnar, sem
fram fór í Glasgow í gærkvöldi,
vann St. Mirren Partich með 1:0.
í 4. umferö mun St. Mirren mæta
Seltick á heilnavelli sínum.
ENN NAGLAKEX!
KH-Reykjavík, 23. marz.
BLAÐINU barst í morgun eitt
eintakið enn af kexi með bygg-
ingarvöru í, og varS þá einhverj
um aS orSi: — Því I ósköpunum
breyta þeir ekki kexverksmiSj-
unni í naglaverksmiSju?
Blaðið hafði þegar í stað sam-
band við beilbrigðiseftirlitið og
lét því kökuna í té. Verður von
andi framkvæmd ærleg rann-
sókn i viðkomandi verksmiðju,
því að það er meira en lítið al
varlegt, þegar slíkir aðskota-
hlutir finnast í vöru frá sömu
verksmiðju æ ofan í æ.
Þegar naglrnn fannst í kex-
inu um daginn, kom í ljós við
rannsókn, að . um sams konar
nagla var að ræða og þá, sem
iialda kössum verksmiðjunnar fannst í kexinu og var svo ræki
saman Var talið, að hér væri lega falinn í kökunni, að
um óviljaverk að ræða. En minnstu • munaði. að neytand-
hvað um vírgaurinn. sem nú inn brvti úr sér tönn við bitið?
BÍLLINN STÓRSKEMMDIST -
EN HESTURINN SLAPP
GB-Reykjavík, 25. marz.
UM hálfníuleytið í kvöld varð
hestur fyrir bíl á Sléttuvegi með
þefm afleiðingum, að bíljnn
skemmdist talsvert, en ekbi varð
Mánafoss nærri
farinn á land
ÞJ-Húsavík, 25. marz
Þegar Mánafo.ss var að fara hér
írá bryggju síðdegis á laugardag,
rak hann undan suðlægri golu
norður eftir höfhinni og inn á
lægi smábátanna. Þegar skipið gat
stöðvað sig, var það komið' iskyggi
iega nærri iandi.
Skipið var búið ag sleppa bryggj
unni og hafði því engan stuðning
af henni. Það hafði ankeri úti og
gat stöðvað sig, en var þá komið
ískyggilega nærri landi. Því tókst
að mjakast vestur að hafnargarð-
inum, en þar voru menn fyrir, sem
gátu fest skipið við garðinn.
Á ferðalagi sínu um höfnina
bafði Mánafoss dregið til legufæri
báta með ankeri sínu, og einn bát-
inn, Báru II 18, dró skipið með
sér. Engar skemmdir urð'u þó á
Báru eðá nokkrum öðrum báti í
höfninni. Verður að teljast mikil
heppni, að verulegur hluti báta-
flotans var við bryggjuna, þegar
þessi atburður varð, því að skipið
fór yfir legufæri a.m.k. eins báts-
ins og hefði lent á honum, hefði
hann varig a legu sinni.
Ríll ofan í hraungjótu >
KB-Rekjavík, 25. mayrz.
ÞAÐ SLYS varð í kvöld, að bif-
reiffin R-8433 Ienti út af veginum
á Flatahrauni skammt fyrir inn-
an Hafnarfjörð. Féll bifreiðiin þar
niður í hraungjótu og er mikið
skemmd, en stúlka, sem var ein
manna í bílnum slapp frá slysinu
með skell'inn einan, ómeidd að
öð'ru Ieyti.
STRANDASÝSLA
Allmennur stjórnmálafundur
verður haldinn á Hólmavík sunnu
daginn 31. marz, í samkomuhúsinu
og hefst kl. 2 e. h. Frummælendur
á fundinum verða alþingismenn-
irnir Hermann Jónasson, fyrrver-
andi forsætisráðlierra og Sigurvin
Einarsson. Félaig ungra Framsókn
armanna i Strandasýslu gengst
fyrir fundinum og undirbýr hann.
séð, að hestinum yrði mikið melnt
af.
Þetta gerðist á móts við húsið
nr. 54 við Sléttuveg. Segir bílstjór
inn, sem ók þarna um, að allt í
einu hefði hestur hlaupið í veg
fyrir bílinn og skipti það engum
togum að bíllinn ók á hann. Sjón-
arvottar sögðust ekki hafa séð,
að hesturinn hefði slasazt neitt að
ráði. Hins vegar urðu æðimiklar
skemmdir á bílnum. Beyglaðist
bretti og vélarhús, vatnskassir.n
lagðist aftur og ljósker brotnaði.
Ekki hafði hesturinn verið rann-
sakaður í kvöld, er blaðíð átti
tal við lögregluna. Eigandi hests-
ins er Valdimar Auðunsson að
Sléttuveg 45.
Auglýsinga-
sími Tímans
er 19523
16250 VINNINGAR!
Fjórði hver miði vinnúr að meðaltali!
Hæsiu vinningar 1/2 milljón krónur.
Laegstú 1000 krónur.
Ðregið 5. hvers mánaða1-.
Shodr
GrmAjL simimw ER
KJÖRINN BÍLLFYRIR ÍSLENZKA VEGIi
RYÐVARINN,
RAMMBYGGÐUR,
AFLMIKILL
OG
O D Y R A R I
TÉKHNESHA BIFREIÐAUMBOÐID
VONARíratTI 12, SÍMI 37851
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartans þakkir til allra sem heiðruðu mig með nær-
veru sinni, gjöfum og skeytum á sjötugs afmælisdaginn
minn, svo sem mínum góðu börnum, tengdabörnum,
venslafólki og vinnufélögum, sem og öðrum er gerðu
mér daginn ógleymanlegan bið ég þann er öllum okkur
er æðri að blessa ykkur öll um ókomna æfidaga.
Sigfús Einarsson, Garðavegi 1, Keflavík
Elglnmaður minn,
Björn Jónsson
fyrrverandi skólastjóri
Lyngholtl, Hvammstanga, andaðist 22. þ. m.
Margrét Jóhannesdótfir.
Hjartkær elginmaður minn, faSir, tengdafaðir og afi,
Kristinn Kristjánsson
kaupmaður, Njálsgötu 77, andaðist 23. þ. m.
Vilborg Slgmundsdóttir,
Reynir Kristinsson,
Erna Haraldsdóttir
og barnabörn.
T í M I N N, þriðjudagur 26. marz 1963. —
15