Tíminn - 03.04.1963, Side 5
RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON
HH
Nýlega er loklð íslandsmótinu í körfuknattleik ( 1. flokki og
urðu Ármenningar slgurvegarar, en þeir unnu alla s(na leik! í
mótinu meS talsverSum yfirburSum. — Myndina tll vlnstrí tók
Sveinn ÞormóSsson af hlnum nýbökuSu íslandsmeisturum. —
Fremri röð frá vins'tri: Árni Samúelsson; Jón Þór Hannesson;
Elías Magnússon 03 Lárus Lárusson. — Aftari röS: Olfert Nábye;
Davfð Jónsson; Hilmar Ingólfsson; Sigurjón Yngvason; Finnur
Finnsson og Hafsteinn Hjaltason. — Á myndina vantar þjálfar.
ann, landsliSsmannlnn Davíð Helgason.
BALOUR MOLLER
FORMAÐUR ÍBR
Páskavika í
Skíöaskála f.R.
AÐ VANDA gangast ÍR-lngar
fyrir páskavikn vlð smn nýbyggða
og glæsilega skíðaskála í Hamra-
glM við KoIviiParhól.
Þar sem aðeins er svefnpláss
fyrlr 46 maims má búast við að
færri geti dvalið þar en þess
ósfca en dvalarleyfm verða isteld í
ÍR-húsinu við Túngötu n. k.
fimmtudag og föstudag kl. 5—7
e. h.
Gestum verður séð fyrir fæði
allan timann og þurfa því aðeins
að hafa með sér svefnpoka, skíði
og fatnað, en gestir þeir, sem að-
eins dvelja á daginn við skálann
geta fengið keyptar veitingar.
Ferðir verða frá BSR á miðviku
dagskvöld og á hverjum morgni
og til baka að kvöldi.
Skíðasnjór er sæmilegur í
Hamragili og á Skarðsmýrarfjalli.
Þá er nægur snjór í Innstadal og
á Hengli, en þangað verða farnar
gönguferðir þegar veður leyfír
undir stjórn kunnugs manns.
Skíðakennsla verður fyrir þá,
sem þess óska og að lokum verð-
ur skíðakeppni.
Á kvöldin verða haldnar kvöld-
vökur fyrir dvalargesti og e. t. v.
dansað.
Körfubolti
í kvöld
í KVÖLD kl. 20,15 heldur Körfu
knattleiksmót - fslands áfram að
Hálogalandi. Leiknir verða tveir
Isikir og verður sá fyrri milli ÍR
og B-liiðs Ármennings í II. flokki.
í síðari. leiknum mætast svo KR-
ingar og KFR-ingar í mfl. og má
búast við liörð’um og skemmtileg-
um leiik.
Sjöundi sigur
Fulham í röð
★ Á MÁNUDAGINN fóru fram
nokkrir leikir í ensku knattspyrn-
unni. Úrslit urðu þessi;
I. DEILD:
Aston Villa-Everton 0:2
Manch. Utd.-Fulham 0:2
II. DEILD:
Chelsea-Luton Town 3:1
Huddersfield-Plymouth 4:2
Stoke City-Rotherham 3:1
Fulham sigraði nú í sjöunda
leiknum í röð og hefur færzt úr
21. sæti í 11. sæti. f 2. deild náði
Chelsea aftur forustunni, hefur 41
stig, en Stoke City — með „gömlu“
landsliðsmennina Matthews, Mud-
ie„ Violett og Mcllroy, er í öðru
sæti með sömu stigatölu, lakara
markahlutfall, en hefur leikið 2
leikjum minna en Chelsea. Þau
2800 pund, sem Stoke greiddi
Blackpool fyrir Matthews, liafa
gefið félaginu tvö-þriú hundruð
falda uppskeru.
Ársþing ÍBR, hið 19. í röð-
inni, hófst miðvikudaginn 20.
marz í húsi Slysavarnafélags
íslands á Grandagarði. For-
maður bandalagsins, Baldur
Möller, setti þingið og bauð
fulltrúa og gesti velkomna.
Ávarpaði hann sérstaklega for
seta ÍSÍ, Gísla Halldórsson,
sem harín bauð velkominn á!
fyrsta þing bandalagsins eftir
að hann var kjörinn forseti
ÍSÍ. Þakkaði formaður Gísla ]
farsælt og dugmikið starf í
þágu bandalagsins, fyrst í
framkvæmdastjórn og síðan
um 15 ára skeið sem formað-
ur bandalagsins.
Forseti ÍSÍ ávarpaði þingig og
minntist samverustunda og sam-
starfs með þingfulltrúum og fram-
kvæmdastjórn bandalagsins frá
stofnun þess, og óskaði bandalag-
inu gengis og velfarnaðar í fram-
tíðinni.
Þingforseti var kjörinn Jón Ingi
marsson og 2. þingforseti Þorvarð
ur Árnason, þingritari var kjörinn
Sveinn Björnsson, og 2. þingrit-
ari Einar Bjömsson.
Til þings voru mættir 67 full
trúar frá 18 aðildarfélögum og 6
sérráðum.
Formaður flutti ársskýrslu fram
kvæmdastjórnar, en hún var lögð
fram prentuð svo sem venja hefur
verið. Rakti hann störf stjórnar-
iunar og drap á helztu mál, sem
nú eru á döfinni, en hæst bera
bygging hins nýja íþrótta- og sýn-
ingahúss í Laugardal og bygging
sameiginlegs skrifstofuhúss á veg
um ÍBR og ÍSÍ en það stendur nú
fokhelt vestan við íþróttahúsið.
Gjaldkeri bandalagsins, Andre-
as Bergmann, las upp ársreikninga
þess, íþróttahússins við Háloga-
land, Framkvæmdasjóðs og Slysa-
tryggingarsjóðs. Nam höfuðstóls-
í>ukning á árinu kr. 236,672,68 og
nemur skuldlaus eign bandalags-
;ns nú kr. 1,746,701,59. Voru reikn
ingamir samþykktir samhljóða.
Kosnar voru millifundanefndir
og var tillögum, sem lagðar voru
fram á fyrri fundi, vísað til þeirra.
Síðari fundur þingsins var hald
inn fimmtudaginn 28. marz í húsi
SVFÍ. Lögðu nefndir fram álits-
Framh á bls. 15
St. Mirren vann
St. Mirren sigraði Hearts í gær
kvöldi með 7 mörkum gegn 1 í
deilaarkeppninni.
Þjálfarínn hljép inn á voll-
inn og dómarí sleit leiknum
ÞAÐ dró aldeilis til tíðinda
að Hálogalandi í fyrrakvöld í
leiik Áirmanns og Vals í 2.
deildinni — en þessi Lið heyja
baráttuna um efsta sætið í
deildinni og réttinn um setu
í I. deild á næsta ári — en
þegar fjórar mínútur voru til
leiksloka, varð dómarinn Gunn
laugur Hjálmarsson, ag slíta
leiknum, þar sem þjálfari Vals,
Birgir Björnsson, neitaði að yf-
irgefa liúsið að beiðni dómar-
ans, sem taldi sig ekki geta
haldið Ieiknum áfram vegna
framferðis hans, en þá stóðu
leikar þannig, að Ármann haFði
skorað 24 mörk gegn 22 Vals.
Vegna þessa snérum við okk-
ur td þeirra Gunnlaugs og
Birgú í gærdag og spurðum
þá nánar um þennan atburð. —
Reyndar voru þeir ekki sam-
mála um öll atvik. nr rétt er
Óvenjulegt atvik í úrslitaleik Ármanns
og Vals í 2. deild. Rætt viS deilualila.
þó að framburður þeirra beggja
komi fram.
Er við hittum Gunnlaug,
vildi hann lítið um þetta segja,
en leyfði okkur að líta á at-
hugasemdir sínar á leikskýrsl-
unni og fara þær hér á eftir:
„Er fjórar mínútur voru td
leiltsloka dæmdi ég vítakast á
Val. — Hörður Krsitiinsson,
Ármanni, tók vítakastið, en
markvörður Vals varði. — Þar
sem ég áleit að markvörð’urinn
hefði staðið nær Herði en þrjá
metra. ákvað ég ag kastið
skyld’ endurtekið. — Gegndu
allir leikmenn þessum dómi
strax. en hjálfnri Vals. Birgir
Björnsson gekk inn á völlinn
og spurði hvað hefði verið at-
liugavert. — Þrátt fyrir að mér
bæri engin skylda að svara
Birgir Björnssyni, svaraði ég
honum til hvað skeð hefði. —
Mótmælti hann því cg sagði að
markvörð'ur Vals hefði staðið
þur sem hann siðan benti á gólf
ið. — Tók ég eigi mótmæli hans
til greiina og bað hann að fara
á þann stað, sem hann hafði
verig áður á. — Neitaði hann
að fara þangað og hélt áfram
mótmælum sínum. — Taldi ég
þá eðlilegt. þar sem þjálfari
Vals átti í hlut. að vísa hon-
um úr hústnu, þar sem leik-
uriinn gat eigi haldið áfram
með liann staðsettan þar sem
hann var. — Þ. e. a. s. inn í
mi'ðjum vítateig Valsmanna. Er
ég bag hann að yfirgefa husið,
svaraði hann til, að hann
myndi hvergi fara — og við
það stóð hann þrátt fyiiir að
ég bæði hann um það tvisvar
sinnum. Er svo var komið, taldi
ég ekki ráðlegt að halda leikn-
um áfram og sleit honum. —
Stóðu leikar þá 24:22 fyrir Ár-
mann. — Þess skal getið að
flestir Ieikmenn Vals komu
prúðmannlega fram viið' atvik
þetta“.
Birgir Björnssyni sagðist svo
frá:
„Ée gekk nokkur skref inr>
á vnlliun og bentl dómaranum
á þá augljósu sfn«i)-eynd að
markvörðurinn hefði staðið a
m. k. fjóra metra frá kastpunkt
inum, eins og honum er leyfi-
Iegt, en ekki innan þriggja
metra, eins og hann fullyrti. —
Skipti þá engum togum, að
Gunnlaugur gekk til mín og
bað mig um ag víkja úr húsinu,
Að siáifsngðu var erfitt fyri>
mig — sem biálfara liiítsins _
að verða við belrri kröfu. er
hins vegar eekk ée strax út af
ietkvellinum. enda hafð'i ba?
aldre' verið ætlun mín að tak°
þátt : leiknum“.
T í M I N N , mi'ðvikudaginn 3. anríl 1963