Tíminn - 19.05.1963, Side 16

Tíminn - 19.05.1963, Side 16
Sunnudagur 19. maí 1963. 111. tbl 47. árg. Cooper kátur og heilsuhraustur NTB-Kearsage á Kyrrahafi, 18. maí. LÆKNAR um borð í bandaríska skipinu Kearsage, sem hafa rann- sakað geimfarann Gordon Cooper, skýrðu frá því í dag, ag Cooper hefði ekki beðið neitt mein af hinu langvarandi þyngdarleysi sinu, meðan á gemferffiinni stóð. Fyrirliði læknanna, dr. Richard sagði að Cooper væri jafnfrísk- ur eftir ferðalagið og hann var, þegar han lagði af stað. Þegar læknamir rannsökuðu hann hafði hann sofið í hálfan ellefta tíma, en þegar hann kom út úr geimfar- inu var hann rauðeygður og hás- mæltur. Þessi einkenni voru hins vegar horfin eftir svefninn. Þá var Cooper kátur og blóð- þrýstingur hans var eðlilegur. Hin ágæta heilsa Coopers eftir geimferðina er einhver þýðignar- mesta niðurstða tilraunarinnar, og þessi staðreynd eykur vonimar um, ag Bandaríkin geti sent mann að geimfar til tunglsins á næstu tíu árum. Cooper sagði læknunum, að Myndar More nýja stjórn? NTB—Rómaborg, 18. maí. Amintore Fanfani, forsætisráð- herra ítaliu afhenti forseta lands Ins, Antont Segni, lausnarbeiðni sína og ráðuneytis síns í gærkvöldi, en forsetinn fól sjóminni a'ð sitja, þar til ný ríkisstjóm hefði verið mynduð. Forsetinn ræddi í gær við stjóm málaforingja landsins og þeim við ræðum var haldið áfram í dag. Bú izt er við að nokkrir dagar muni líða, þar til forsetinn hafi ákveðið sig og feli annað hvort Fanfani eða einhverjum öðrum stjórnmála manni að mynda nýja ríkisstjórn. Margir telja líklegt, að fram- kvæmdastjóri flokks kristilegra demókrata, Aldo More, verði fyrir valinu. Framhald á 15. síðu. það sem hefði hrifið sig mest í ferðalaginu, hefði verig útsýnið yfir jörðina. Hann talaði með hrifningu um tign Himalayafjalla og kvaðst hafa séð reykinn frá húsum í sveitaþorpum í Tíbet. HAFNIR Kjósendafundurinn í Höfnum hefst klukkan 16.00 í dag, sunnudaginn 19. maí. Frammælendur: Jón Skaftason, alþm. og Valtýr Guðjóns son, framkvæmdastjóri. Sagt upp húsnæðí með daga fresti MB-Reykjavík, 18. maí. MAÐUR nokkur leit inn á rit- stjórnarskrifstofu Tímans í dag og liafði alleinkenilega sögu að segja af viðskiptum sínum við borgar- yfirvöldin. Honum var í gær til- kynnt, að rafmagn yrði á mánu- daginn tekið af húsnæðli því, sem haiin býr i og er eign bæjarins, og fyrir þann tíma þyrfti hann ag hafa rýmt húsnæðið! Maður þessi hefur undanfarið búið ásamt fjölskyldu sinni í Golf- skálanum. Hann flutti þangað á sínum tíma fyrir tilmæli veitinga- manns, sem hafði atvinnurekstur í sibálanum og vildi fá mann til þess að líta eftir honum. Félagsbréf AB Út er komi'ð 29. hefti Félags- bréfa AB, sem er fyrsta hefti þessa árgangs. Efni þess er sem hér segir: Þorkell Grímsson ritar grein, er hann nefnir Myndlist á fornstein- öld, og er það fyrri hluti, en síð- ari hlutinn mun birtast í næsta hefti. Þá er sagan Merkið eftir Svövu Jakobsdóttur, grein eftir Gylfa Ásmundsson, er hann nefn- ir Andatrú og sálarrannsóknir og grein eftir Ólaf Jónsson um Alan Moorehead og bók hans Hvítu-Nfl, en hún var aprílbók AB. Syrpu skrifa þeir Ólafur Jónsson (Haust- bækur) og Sigurður A. Magnús- son (Haustverk Þjóðieikhú®sins). Um bækur rita þeir Kristján Bersi Ólafsson, Jökull Jakobsson og Ólafur Jónsson. Þá er í heftinu greinin Frá Almenna bókafélag- inu, þar sem gerð er grein fyrir útgáfubókum félagsins fyrri hluta þeSsa árs, enn fremur skrá yfir Framhald á 15. síðu. Nú hefur Golffélagið selt Reykjaví'kurborg skálamn og mun Æskulýðsrag hafa þar starfsemi í sumar. Maðurinn hefur margsinn is spurzt fyrir um það hvort hann myndi geta dvalizt þar áfram, enda nú hvergi nærri gott að fá hús- næði, eins og allir vita. Hefur bann lengst af engin ákveðin svör getað fengið við þessum fyrir- spumum. Síðast fyrir viku síð- Framhald á 15. sfSu. Hersteinn hættur Bí gær tílkynnti Gnnnar Thorjrrin menn unnið, sem nú eru starfandi á öðnxm blöðum. Hersteinn var í hópi þeirra rit- stjóra, sem hafa náð lengstum starfstíma ritstjóra við dagblað hér í borg, og mun mörgum eftirsjá að brottför hans frá Vísi, eftir svo langt og ágætt starf._ fikÍ3l tn. í nótt BÓ-Reykjavík, 18. maí. SÍLDVEIÐI var með bttra móti í gærkvöldi og í nótt. Mörg skip fengu sfld á dreifðu svæði vestur undir Jökul. Guðmundur Þórðar- son var hæstur með 1300 tunnur, Hannes Hafstein fékk 1000, Sig- uður Bjaraason 900, Ólafur Magn- ússon 700. Margir voru með 100— 200 tunnur og þar yfir. Til árétt- ingar Vegna þess, að fyrirsögnin á forsíðu TÍMANS í gær, „EUHaun hækkuðu um 10 þús., en daggjaldið um 20 þús.“ getur valdið misskiln ingi, þykh rétt að geta þess Framhald á bls. 15. 1 Stjórnmálafundur í Reykjavík Framsóknarfélögin í Reykjavík halda STJ ÓRNMÁL AFUND í Glaumbæ, miðvikudaginn 22. þ.m. klukkan 8,30. Ræðumenn: Þórarinn Þórarinsson, ritstj. Einar Ágústsson, sparlsjóð'sstj. Hjördís Elnarsdóttir, húsfrú Steingrímur Hermannsson, framkvæmdastjóri ] Maginús Bjarnfreðsson, blaðam. Fundarstjóri: Kristján Thorla- cius. — FR AMSÓKN ARMENN! Fjölmnnið á fundinn. *>órarhm Elnar Hjördís Steingrímur Magnús Kristján Minningarsjóiur um þús. ára kristnitöku Kristján Jónsson á Fremstafelli hefur afhent biskupsembættinu til vörzlu kr. 10.000.00 — tíu þúsund króinu gjöf tfl sjóðsstofnunar. Gjöfin er bundin við nöfn þeirra hjóna beggja, Kristjáns Jónsson- ar og konu hans Róisu sálugu Guð- laugsdóttur. Upphæðin er gefin í þeim til- gangi að vekja athygli á, að senn nálgast ártalið 2000, þegar liðin eru 1000 ár frá kristnitöku á Al- þingi, og ætlazt til, að hún verði upphaf að sjóði, er mætti vaxa á þessum árum, sem eftir eru til aldamóta, og hafa það markmið að minnast hinna merku tímamóta, 1000 ára afmælis kristnitöku og þátts Ljósvetningagoðans Þorgils í farsælli lausn á miklum vanda á örlagastund þjóðar, með bygg- ingu kirkju að Ljósavatni til vígslu árið 2000. Velunnurum málefnis og staðar gefst tækifæri til að styðja hug- mynd þessa með gjöfum til sjóðs- ins. Verður þeim veitt viðtaka í skrifstofu biskups að Klapparstíg 27. Kristján Jonsson J

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.