Alþýðublaðið - 21.08.1940, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 21. ágúst 194*.
Hver var að hlæja?
KaupiS bókiraa
og brosið með!
MÞÝÐUBLAÐIÐ
Hvér var a$ hlæja?
er bók, sem þér
þurfið að eignast.
MIÐVIKUDAGUR
Næturlæknir er Páll Sigurðsson,
Hávallagötu 15, sími 4959.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnar-Apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.30 Hljómplötur: íslenzkir söngv
arar.
20.00 Fréttir'
20.30 Útvarpssagan. Þættir úr
ferðasögum (V.Þ.G.)
21.00 Strokkvartett útvarpsins: —
Kvartett eftir Haydn (Op.
20, D-dúr).
21.20 Hljómplötur: Harmonikulög.
21.45 Fréttir.
Dagskrárlok.
Ágúst H. Bjarnason prófessor
var 65 ára í gær. Hefir hann ver-
ið prófessor við Háskóla íslands
frá árinu 1911. Auk þess hefir
hann verið afkastamikill rithöf-
undur og hefir gefið út fjölda rita
um heimspekileg efni. í tilefni af
afmælinu hélt Háskólinn honum
samsæti í Oddfellowhúsinu í gær-
kveldi.
Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur á Austurvelli í kvöld kl.
8V2, ef veður leyfir. Stjórnandi
verður Alberth Klahn.
Lík Guðmundar Jóhannssonar,
sem drukknaði á Ólafsfirði hinn
' 26. júní síðastliðinn, fannst rekið
á sunnudaginn, var skammt vestan
við Ólafsfjarðarós.
50 ára hjúskaparafmæli
eiga í dag hjónin Margrét Sig-
urðardóttir og Guðmundur Guð-
mundsson, Grettisgötu 70.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 28. júlí til
3. ágúst (í svigum tölur næstu viku
á undan): Hálsbólga 24 (10). Kvef-
sótt 73 (29). Blóðsótt 11 (0). Gigt-
sótt 1 (0). Iðrakvef 63 (17). Kvef-
lungnabólga 1 (2). Taksótt 1 (0).
Kossageit 0 (1). Heimakoma 0 (1).
Munnangur 1 (0). — Landlæknis-
skrifstofan.
Ný skiptimynt
í vændum.
RÍKISSTJÓRNIN auglýsir í
bíöðunum í dag, að eftir
tvo mánuði sé væntanleg hing-
að ný íslenzk skiptimynt.
Um leið æskir ríkisstjórnin
þess, að kaupsýslumenn og aðr-
ir þeir, sem kunna að hafa fé
undir höndum, afhendi bönk-
unum þá mynt, sem þeir geta
losað við sig.
Útbreiðið Alþýðublaðið.
VIÐBURÐIRNIR I NOREGI
Frh. af 2. síðu.
legar hetjusögur úr þessari styrj-
öld, og þær eru ekki sízt af
sjónúm. Saga „Eidsvolds“,
„Sleipnis“, „Ólafs Tryggvasonar“,
„Draugs“ og f jölda annarra skipa
er ögleymanleg. Mér er sagt, að
Wiiloch herskipsstjóri, sem var
skipherra á „Friðþjófi Nansen“
hér við land 1938, sé mjög kunn-
ur hér. Hann var skipherra á
„Eidsvold“, sem lá í Narvik hina
örlagaríku nótt. Þjóðverjar sendu
vélbát til skipherrans og skipuðu
honum að gefast upp, en hann
neitaði því. Vélbáturinn lagði af
stað frá skipinu, en e.r hann var
kominn örskamman spöl frá þvi
gaf báturinn merki, og samstund-
is var skotið mörgum tundur-
skeytum á skipið og því sökkt.
Áf um 250 manna skipshöfn
björguðust aðeins 10 eða 12.
Þetta er aðeins ein sagan af
mörgum.
Við höfum enn stóran her —
og enginn má gieyma þeim mikla
skerf, sem við leggjum fram til
að halda uppi samgöngum
Bandamanna við umheiminn.
Verzlunarfloti okkar er nú 41/2
milljón smálestir. Skip vor sigla
nú eins og áður um öll heims-
ins höf undir frjálsum norskum
fána. Norsku sjómenuirnir brjóta
hafnbann Þjóðverja og flytja her
og hergögn, mat og aðrar nauð-
synjar á norskum skipum. Þá
skal ég taka það fram, að við
Norðmenn stöndumst allan kostn-
að sjálfir af hernaði okkar.
Ég get fullvissaö Islendinga um
það, að frelsisþráin logar i
brjóstum Norðmanna. Ég full-
vissa þá um, að hún slokknar
aldrei og að hatrið til innrásar-
hersins magnast dag frá degi.
Ég öfunda ekki Þjóðverja af því
að eiga að stjórna Norelgi í vetur.
Mér er kunnugt um, að þjóðin
býr sig dag og nótt undir áfok,
leynileg starfsemi er rekin svo að
segja í.hverju húsi og hverjum
bóndabæ, í dölum og úti á
annesjum.
Konungur vor og ríkisstjórn
situr nú í Lond-on og stjómar
málefnum Noregs þaðan. Önnur
stjórn er ekki til í N-oregi.
Við, sem nú berjumst fyrir
Noreg, snúum ekki heim fyrr en
Noregur er aftur fullkomlega
frjáls og lýðræðið endurreist.“
VSV.
RÆÐA CHURCHILLS
Frh. af 1. síðu.
fengið aukinn matarskammt á
annarra kostnað undangengna
mánuði.
Sðkin Þjððverja einna
el hunonrsnejð verðnr.
■t. ___
Þjóðverjum er því um að
kenna, ef til hungursneyðar
kemur á komandi vetri í Ev-
rópulöndum vegna flutnings
matvæla til Þýzkalands eða
vegna þess, að þeir dreifa ekki
þeim birgðum, sem þeir hafa
yfir að ráða.
Þá vék Churchill að því, að
margar hinar verðmætustu mat-
vælategundir væru nauðsynleg-
ar við mikilvæga hernaðarlega
framleiðslu. — Ef Þjóðverjar
nota þær matvælabirgðir, sem
þeir hafa komizt yfir, þannig,
til framleiðslu, sem gerir þeim
kleift að varpa sprengikúlum á
konur vorar og börn, í stað þess
að nota þær til þess að fæða
þjóðir þeirra landa, sem þeir
hafa hernumið, getum vér verið
vissir um að hvers konar inn-
flutt matvæli færu sömu leið-
ina. Látum því Hitler bera full-
an þunga þeirrar ábyrgðar, sem
hann hefir tekið sér á herðar.
Stuðlum að því, að sá dagur
renni upp sem fyrst, að veldi
hans verði brotið á bak aftur.
Reynum að koma því til leiðar.
að sem mestar birgðir safnist,
svo að unnt verði að koma þeim
sem hraðast til hvers þess lands,
sem Þjóðverjar hafa hernumið,
undir eins og það losnar undan
oki þeirra. Verum hvetjandi
þess, að slíkum birgðum verði
safnað sem víðast um heim, svo
að öllum þjóðum álfunnar, sem
nazistar hafa kúgað, þeirra með-
al Þjóðverjum sjálfum og Aust-
urríkismönnum, megi ljóst
vera, að þegar veldi nazista er
brotið á bak aftur, fá þær þeg-
ar í stað matvæli, frelsi og frið.
Brctar verða að bðast
við langri síyrjöld.
Öll strandlengjan frá Norð-
urhorni í Noregi til Spánar er
á valdi óvinanna. Allar hafnir
og flugstöðvar á þessu svæði
eru í höndum óvinanna. Má
líkja þessum stöðvum við stökk-
bretti, sem Þjóðverjar ætla að
nota, þegar þeir hefja innrásina
í Bretland. Loks er þess að geta
að Þjóðverjar hafa miklu fleiri
flugvélar en við. Flugher Þjóð-
verja hefir nú bækistöðvar ná-
lægt okkur. Það, sem vér óttuð-
umst mest, hefir gerzt.
Sprengjuflugvélar og orustu-
flugvélar óvinanna eiga ekki
nema nokkurra mínútna flug til
lands vors. Þær geta flogið
hingað úr mörgum áttum. Ef
vér hefðum horfzt í augu við
þetta í byrjun maí hefði það
þótt ótrúlegt, að vér myndum
nú vera’ öruggir í þeirri trú, að
fullnaðarsigur falli oss í skaut.
Churchill sagði í ræðu sinni,
að manntjón Breta fyrsta ár
heimsstyrjaldarinnar hefði ver-
ið 365 00Ó menn, en í styrjöld
þeirri. sem nú geisar, 92 Ó0Ö og
væru þá meðtaldir borgarar,
sem særzt hefðu, fallniá menn
og fangar. — Mikill hluti þessa
fjölda hefðji verið tekinn til
fanga.
Churchill kvað brautina tú
sigurs, ef til vill ekki myndu
reynast eins langa og margir
ætluðu, en menn mættu ekki
reiða sig á neitt í þessum efn-
um, heldur yrðu þeir að búa sig
undir langa styrjöld. Nú væri
svo komið, að engir þeirra, sem
Vegna jarðarfarar
verður búðin lokuð allan
daginn á morgun.
Marteinn Einarsson & Co.
Reykþvlk - Alareyri
Hraðferðir alla daga.
Bifreiðastðð Afeureyrar. Bifreiðastöð Steindórs.
HfiAMLA BSO
BEAU GESTE
Amerísk stórmynd af hinni
víðlesnu skáldsögu eftir
P. C. WREN. — Aðalhlut-
verkin leika:
GARY COOPER,
RAY MILLAND,
ROBERT PRESTON.
Börn fá ekki aðgang.
Sýnd kl. 7 og 9.
NYJA 810 m
Friiin, böndiOD og vin
konan.
Fyrsta flokks amerísk tal-
og söngva skemmtimynd
frá FOX. Aðalhlutverkin
leika:
LORETTA YOUNG,
WARNER BAXTER
og
BINNIE RARNES.
Sýnd kl. 7 og 9.
Það tilkynnist vinum og ættingjum, að jarðarför konunnar
minnar, dóttur og systur,
Katrínar Gísladóttur,
fer fram föstudaginn 23. þ. m. frá heimili liennar, Reynimel 48,
klukkan 1%. Athöfninni verður útvarpað.
Karl Ó. Frímannsson. Oddný Oddsdótfir og systkini.
Jarðarför mannsins míns,
Þorsteinn Ásbjörnsson, trésmiðs,
fer fram frá dómkirkjunni n. k. föstudag 23. þ. m. og hefst með
húskveðju að heimili okkar, Egilsgötu 10, kl. 3% e. h.
Jónasína Guðlaugsdóttir.
talað hefðu um frið, töluðu um
annað en styrjöld. 2—3 ár í lífi
manna væru ekki langur tími, í
lífi heillar þjóðar ekki neitt. Við
verðum að hugsa um annað en
að verjast — vér verðum að
miða að því, að sækja á, —
greiða þung högg og stór. Vér
höfum víggirt land vort og
hjörtu’vor, sagði Churchill. Vér
höfum byggt upp her vorn.
Tvær milljónir manna hafa
fengið vopn í hendur í Bret-
landi. Aldrei hefir slíkur herafli
verið í landinu. Því stærri sem
hann verður. því meiri herafla
þarf Hitler að senda til Bret-
lands. Og því auðveldara verður
fyrir flota vorn að sigra.
Afleiðingarnar af upp-
gjöf Frakka fyrlr Bitler.
Með stöðugri eflingu brezka
flughersins, sagði hann, er einn-
ig miðað að því, að hann verði
jafnsterkur þýzka flughernum,
að flugvélatölu til, og þar næst
að hann yrði enn sterkari, en
undir hernaðarstyrkleika í lofti
kynnu úrslitin í styrjöldinni að
verða að miklu leyti komin.
Churchill gerði síðan nokkra
grein fyrir þeim hnekki, sem
Bretar hefðú beðið og málstaður
Bandamanna, vegna uppgjafar
Frakka. Bretar hefðu gert ráð
fyrir að hafa not af franska
hernum í Somalilandi, flug-
stöðvum og flotahöfnum Frakka
við Miðjarðarhaf og franska
flotanum. Þótt Þjóðverjar
hefðu vaðið yfir Frakkland
hefðu nýlendur Frakklands get-
að tekið þátt í stríðinu áfram, (
og ef Bretar hefðu staðið í spor-
um Frakka, hefðu þeir talið sér
skylt að tryggja öryggi Kanada
og Newfoundlands. Glæpur sá,
sem hér væri um að ræða, væri
ekki „glæpur mikillar, göfugrar
þjóðar“, heldur mannanna frá
Vichy.
Churchill kvað ekki viturlegt
að fara út í spár um framtíðina,
BRÆÐSLUSILDARVERÐIÐ
Frh. af 1. sí'ðu.
veiða meira en nóg upp í þá
sölusamninga, sem þegar hafa
verið gerðir — og sé því ekk-
ert vit í að halda áfram að
borga sama verð og borgað hefir
verið. Þá er líka gert ráð fyrir
því, að þessi ákvörðun hafi þau
áhrif, að hin stærri. skip hætti
síldveiðum, en fari aftur á ís-
fiskveiðar, en við það rýmkast
mjög við verksmiðj urnar; svo
að smærri skipin geti veitt stöð-
ugt og þurfi ekki að stöðvast
vegna löndunarerfiðleika.
Það er kunnugt, að síldar-
verksmiðjurnar allar hafa grætt
allverulega á veiðunum — og
segja sumir, að gróðinn nemi að
minnsta kosti 1 kr. á máli.
Maður skyldi því hafa ætlað,
að þssi gróði hefði átt að nægja
til þess að hægt væri að halda
áfram að borga sama verð fyrir
síldina og greitt hefir verið. En
sú ákvörðun var ekki tekin —
og munu jafnvel ýmsir hafa
viljað lækka verðið um helm-
ing!
Þessi ákvörðun mun mælast
illa fyrir, þó að ef til vill megi
segja að þetta muni ekki verða
að verulegu tjóni, ef allt fer eins
og áætlað er.
meðan enn væri barizt. hvað
gera þyrfti til þess að koma í
veg fyrir, að hörmungar þriðju
heimsstyrjaldarinnar bitnuðu á
öllu mannkyni. Vér erum enn
að klífa fjallið. sagði hann, og
vér erum ekki komnir upp á
brúnina, og getum enn ekki séð
roða nýs dags, og hvað fram-
undan er. En hann kvaðst óska
þess og biðia, að brezka þjóð-
in, ef henni yrði það veitt að
sigra, reynist verðugt frfðar-
ins.