Tíminn - 28.05.1963, Side 2

Tíminn - 28.05.1963, Side 2
SAGA AF UNGU FÓLKI OVÆNT FJOLGUN OG HÚSN4ÐISHRAK BRÚÐKAUPSDAGURINN var engum öðrum líkur. Hann var alveg viss um það, að hún hefði aldrei verið svona falleg í hinum kjólunum, sem hún mátaði. Hún var líka eitthvað svo breytt, horfði svo mikið á hann og það var eitthvað svo hlítt og nýtt í augnaráðinu. Hann var í sjöunda himni. Foreldrar hennar héldu veizl- una og foreldrar hans og systkini komu að norðan. Þau fengu marg ar gjafir: Útvarpstæki, stand- lampa, straujárn, stálbakka, skrautskál, steikarhníf og gaffal, rafmagnshitapönnu, hitakönnu, þrjú sett af pipar & salt stauk- um, salatskeið og gaffal og raf- magns vekjaraklukku. Og Gulli bróðir sá aumur á þeim og ók þeim, ásamt öllu draslinu heim á nýja heimilið þeirra: kvisther- bergi á fimmtu hæð, eða réttara sagt risi yfir fjórum hæðum. — Það voru fjögur svona herbergi um eitt eldhús, hálfgerða kytru, þar sem hvert herbergi hafði sína skápa og sinn stað. í herberginu öðrum megin við þau bjuggu tvær systur, önnur þeirra var með fjögurra eða fimm ára gamlan krakka. í herberginu hinum megin við þær voru tveir strákar, sem voru að læra bif- vélavirkjun, og í hinu þriðja voru tveir sjómenn, sem sjaldan voru báðir í einu í landi. Auk eldhúss- ins átti þetta fólk að koma sér saman um eitt klósett með steypi baði og ganginn, og það átti að skipta því á milli sín að þvo stig- ann niður á fjórðu hæðina. Annar sjómaðurinn var í landi þetta kvöld og fullur. Hann vildi endilega. hjálpa þeim að bera upp brúðkaupsgjafirnar og hætti ekki, fyrr en hann braut krystal- skálina, sem Gyða frænka gaf þeim. Systurnar buðu þeim kaffi inn til sín, þegar þau voru komin upp með allt draslið, og þau' drukku kaffið með systrunum meðan berrassaður krakkinn var á þönum um herbergið og fram á klósett. Loks fengu þau að vera ein. Hún sýslaði við fötin sín í skápn- um hans og raulaði á meðan. Hann setti útvarpið í samband og reyndi að finna útlendar stöðv ar. Það tókst ekki. Svo hætti hún að sýsla í skápn- um og kom til hans. Hann lét hana setjast á kné sér og hall- aði henni upp að sér. Hún tók utan um hálsinn á honum og sagði lágt: — Ég á eftir að gefa þér brúð- kaupsgjöf. — Ég á líka eftir að gefa þér. — Þú færð þína gjöf ekki fyrr en eftir sex og hálfan mánuð. Hann reyndi í skyndi að reikna út, hvað það væri, sem hún þyrfti að vera svona lengi að safna í. Hann gat ekki fundið það. — Af hverju ekki? spurði hann. — Af því bara. Fyrr verður gjöfin ekki tilbúin. Hann var orðinn forvitinn, en vildi ekki láta á því bera. Hann þagði. Hún þagði líka um stund, en þegar hún sá, að hann ætlaði ekkert að segja, spurði hún: —Á.ég að segja þér hvað það er? Forvitnin kom enn þá ofar. — Hann reyndi að hlæja. — Þú ræður því, ástin mín. Hún svaraði ekki strax, en horfði í gegnum vegginn, eitt- hvað burt, þangað sem enginn sá nema hún. Svo sagði hún: — Ég ætla að gefa þér líHnn strák. Hann varð fyrir raflosti. Það kom innan frá og hríslaðist út um hann allan. Hann hreyfði sig ekki. — Ertu alveg viss? spurði hann svo. —- Alveg. — Hvernig geturðu verið það? — Ég fór til læknis í gær. — Og hvað? — Hann sagði að það væri alveg öruggt. — Hvernig gat hann séð það? — Það er alveg sama. Þeir hafa aðferð til þess. Hann var vantrúaður: — Að- ferð til að sjá, hvort það er strák- ur eða stelpa? Hún hló. — Auðvitað ekki, kjáninn þinn. Bara til að sjá, að það er barn. Allt í einu losnaði hann við stjarfann, og greip um hana báð um höndum og þrýsti henni að sér: — Það verður stelpa og hún verður alveg eins og þú, hvislaði hann inn í hár hennar. Hún reif sig úr faðmlaginu o" settist upp. Hún horfði beint i augu hans og sagði; — Við gerí um ekki ráð fyrir þessu. — Nei, svaraði hann. — En svona getur alltaf komið. — Nú verð ég að hætta að vinna. — Já, elskan mín. — Svo þurfum við að kaupa bamaföt og vöggu og barnavagn. — Já, elskan mín. — Og svo þurfum við að fá stærri íbúð. — Já. Eigum við ekki að fara að sofa? Það er skammgóður vermir að slá áhyggjunum á frest. Hann lét í það skína við hana fyrst í stað, að hann gerði það. En raun- in var önnur. Hann velti því fyr- ir sér allan daginn, hvernig hann gæti bezt séð fjölskyldu sinni farborða. Hann hætti við að fara í meiraprófið. Það kostaði sinn pening, og líklega var ekkert meira upp úr því að hafa að fara að keyra strætó, en halda áfram Framhald á 6. síðu. íhaldssiefnan íhaldsflokkar um heim allan álífa, að heppilegasta skipulag þjóðfélagsins og framleiðsfl- unnar sé það, að atvinnutækin og fjármagnið séu sem mest á fárna manna höndum. Það er því engin tilviljun, að það eru au'ðjöfrar heimsins, sem eru kjaminn í íhaldsflokkunum og gera þá út. íhaldsflokkar hafa raunar fallizt á féliagsleg- ar umbætur vegna barátttu hagsmunasamtaka fódksins, staðið geign þeim, en látið um síðir undian til að halda von um völd í lengstu lög. Hins gæta þeir jiafnan trygigilega, að sá grundvöllur þjóðféiagsins, — þ.e. yfirráð tiltölulega fárra manna yfir framleiðslu otg at- vinnutækjum, rakskiist ekki. Það er trú fhaldsmanna, að þetta þjóðfélag verði bezt tryggt með svonefndu „hæfi- legu atvinuleysi", sem heldur áhrifum verkalýðshreyfingar- innar í skefjum oig kaupmætti launa niðri, enn fremur sem þeir segja framleiðslunni nauð synlegt, að hafa jiafnan úr nægu vinnuafli að velja, þann- ig að skortur á vinnuafli s'tandi sem hagkvæmustum rekstri fyrirtækjanna ekki fyrir þrif- um, og mikil eftirspum eftir vinnuafli valdi ekki launahækk unum annaðhvort í formi beinna samningsbundnna baup hækkania eða fyrr svonefnt launaskrið, en það leiðir af sér að vinnuaflið nær stærri hluta af arði atvinnufyrirtækjanna en en ella. Hagsmunir laun- þeganna eiga þannig ætíð að víkja fyrir hagsmunum fyrir- tækjanna og þeirra, sem fjár- magninu ráða . Góðæri og kosníngar Það var að þessu þjóðfélags- skipulagi, sem „viðreisnin" átti að stefna, en hið mikla góð- æri og ótti ríkisstjómarinnar við dóm kjósenda, hefur nú tafið þessa- þróun, en þeir hygigjast taka til óspilltna mál- anna að kosningum loknum, ef þeir halda meirihluta sínum og stefna hratt til „hi.nna gömlu, góðu daga“. Framleiðslustefnan Öndverð þesaari íhaldsstefnu er framleiðslu og framfara- stefnan, frjálslynd stefna, sem er andvík óhóflegum yfirráð- um fárra einstaklinga yfir at- vinnugreinum o>g stærstu at- vinnutækjum,- en viil efla ein- staklingsframfak fjöldans til beinnar þátttöku í framleiðsl- unni, því að þannig séu kraftar einstaklinganna Ieyistir úr læð. ingj og tryggður beztur rekstur oig sem bezt nýting atvinnutækj anna og hagkvæmni í störfum. Þetta er djörf efnahagsmála- stefna, sem vill halda kaup- mætti í há:marki og laða ein- staklingana til að leggja sem mest af tekjum sínum til fram- kvæmda, atvinutækja og upp-. byiggingar og brúa þau bil, sem kunna að myndast i þjóðarbú- sbapnum með tiltækum af- skiptum ríkisvaldsins af cfna- hagslífimi. Þessari stefnu var fylgt vegna áhrifa Framsókn- arflokksins fram til 1959, er mergurinn var svo gersamlega úr Alþýðuflokknum, að hægri sinnaðir og bitlinigasjúkir menn, sem komizt höfðu þar til valda, gátu knúið flokkinn til stuðnings við íhaldsstefn- una, sem flokkurian í upphafi Framhald á bls. 6. TÍMINN, þriðjudaginn 28. maí 1963

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.