Alþýðublaðið - 16.01.1943, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.01.1943, Blaðsíða 4
*________________________OLÞWuaunn Langardagnr 16. jaa&ta Itgjá’ ^lþijðubUMð tftcefudi: AIhre«n«kk«ri»m. Bltstjérl: Stefán PJetnnsoa. Rltstjórn og afgreiðsla í Al- þýðuhúsinu við verfisgötu. Simar ritstjórnar: 4901 og 4902. .. .rti afgreiðslu: 4906 og 480«. Verð í Jausasölu 40 aura. AlþýðuprentsmiSjan h.f Deilan nm skipan viðskiptarððsins. NOKKUR ágreiningur hefir orðið um það á alþingi, livér ráða skuli mannavali í hið fyrirhugaða viðskiptaráð. í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um það er svo ráð fyrir gert, að hún ein skuli velja menn í ráð- ið. En af hálfu tveggja þing- flokka, Framsóknarflokksins og Kommúnistaflokksins, hefir það ákvæði frumvarpsins sætt tölu- verðri mótspyrnu. Þeir vilja, að þingflokkarnir tilnefni fjóra menn af fimm í viðskiptaráðið, sinn manninn hver, og aðeins fimmti maðurinn verði til- nefndur af ríkisstjórninni. Kommúnistar fluttu beinlínis breytingartillögu við frumvarp- ið í þessa átt í neðri deild. Hún var að vísu felld þar. En búið er að boða, að sams konar breyt- ingartillaga verði flutt við frumvarpið í efri deild. Og eng- inn getur með neinni vissu sagt, hvernig henni kann að reiða af þar. Vitað er aðeins, eftir fyrstu umræðu frumvarpsins í efri deild í fyrradag, að ríkisstjóm- in ætlar að standa og falla með því ákvæði þess, að hún ein skuli ráða vali manna í við- skiptaráðið. * ...........' Það væri dálítið einkennilegt, ef alþingi neitaði stjórninni um þetta vald. Hún er skipuð utan- þingsmönnum eftir að alþingi sjálft hafði gefizt upp við að mynda stjórn, og hefir engan stuðningsflokk að baki sér á þingi. Og það er sérstaklega ein- kennilegt, að þeir tveir þing- flokkar, sem beinlxnis stungu upp á því, að þingið afsalaði sér rétti sínum og skyldu til stjórn- armyndunar með því að biðja ríkisstjóra að skipa utan þings stjórn, skuli nú verða þeir fyrstu til þess að heimta, að hún afsali sér í hendur þing- flokkanna því valdi, sem hún telur nauðsynlegt fyrir sig til þess að geta borið ábyrgð á því, sem gert verður, Það er ómögu- legt að lá ríkisstjórn, sem eins er til komin og þessi, og engan stuðningsflokk á í þinginu, þótt hún vilji ekki fallast á slíka kröfu. Og frá sjónarmiði alþing- ís sjálfs virðist það miklu heppi- legra og hreinlegra að láta þ e ssa stjórn eina um það, að bera ábyrgð á viðskiptaráð- inu og árangrinum af starfi þess; en þao gerir hún að sjálf- sögðu ekki nema hún ráði vali manna í það. Því betur stæði alþingi síðar meir að vígi til þess að skipta um ríkisstjórn, ef störf þessarar skyldu farast þannig úr hendi, að þess þætti þörf, en þá yrði alþingi að minnsta kosti að sýna sig fært um það, að mynda nýja stjóm. Hinu er erfitt að trúa, að nokk- ur þingflokkur sé svo ger- sneyddur allri ábyrgðartilfinn- ingu, að hann vilji gera sér leik að því, að neita núverandi rík- isstjórn um það vald, sem hún telur sig þurfa til þess að geta staríað, án þess að hann eða fleiri flokkar séu þá að minnsta læling áfengls i bliði. IFLESTUM menningarlönd- um munu vera lagaákvæði, er banna mönnum akstur bif- reiða eða vélknúihni ökutækja, ef þeir eru ölvaðir í þeim mæli, að hætta geti stafað af. Hér á landi eru einnig lagaákvæði um þetta atriði. í bifreiðalögunum frá 16. júní 1941 eru þessi á- kvæði: ,,Enginn má neyta á- fengis við bifreiðaakstur. Eng- inn má aka bifreið eða reyna að aka bifreið, er hann er undir ábxifum áfengis. Ef ástæða er til að ætla, að maður hafi brot- ið gegn þessu fyrirmæli, getur lögreglan fært hann 4il læknis til rannsóknar, og er þá við- komanda skylt að hlíta þeirri meðferð, sem læknirinn telur nauðsynlega vegna rannsóknar- innar, þar á meðal, að tekið sé úr honum blóðsýnishorn. Dóms- málaráðherra setur nánari regl- ur um læknisrannsóknina. Það er bannað ao fá þeim, sem er undir áhrifum áfengis, stjórn bifreiðar“. Eigi er nánar tilgreint í lög- unum, hvenær maður skuli telj- ast undir áhrifum áfengis, og getur það að vísu oft verið á~ litamál. En á öðrum stað í þess- um lögum er skýlaust tekið fram, að enginn megi aka eða réyna að aka bifreið, ef hann vegna ofneyzlu, svefnleysis, undanfarandi neyzlu áfengis eða æsandi og deyfandi lyfja eða annarra slíkra orsaka, er haldinn slíkri þreytu eða sljó- leika, að hann geti eigi á tryggi- legan hátt stjórnað bifreiðinni. Þeim, er þetta ritar, er eigi kunnugt um, að dómsmálaráð- herra hafi enn sett reglur um, hversu haga skuli læknisrann- sókninni á þeim, sem grunaðir eru um ölvun við akstur. En síðan 1935 hefir lögreglan í Reykjavík, og víðar, látið gera rannsóknir á blóði allmargra manna, sem slíkur grunur hefir hvílt á, ef vera mætti, að sú rannsókn gæfi bendingar um sekt eða sýknu. Svo sem fyrr segir, getur oft orkað tvímælis, hvórt maður sé ölvaður eða ekki. Þau einkenni, sem ölvun veldux að jafnaði, og lýsa séx ýmiist andlega eða lík- amlega, eða hvort tveggja, geta stafað af öðxum oxsökum en nautn áfengis. Ýmis önnux eituxefni en áfengi, geta valdið svipuðum bxeytingum á hátt- um manna, en einnig geta ýmr,- ix sjúkdómax komið til greina. Því fer þess vegna fjarri, að það sé alltaf einfalt mál að fella úrskurð um, hvort maður sé ölvaður eða ekki, og gildir þetta jafnt, hvort sem dómar- inn á að byggja á framburði lögreglunnar, vitna, eða al- mennri læknisskoðun út af fyr- ir sig. Það er hvergi nærri einhlítt, þótt áfen'gislykt leggi af vitum hins grunaða. Oft, og jafnvel oftast, vill svo til, að slys hefir orðið, og ökumaðurinn vakið á sér gruninn fyrir þær sakir. En vel getur málum þá verið svo farið, að ökumaðurinn hafi sjálfur slasazt, fengið heila- Eftirfarandi grein um nýja, stórmerkilega, vísindalega aðferd til þess að mæla áfengismagn í blóði er eftir Jóhann Sæmundsson lækni, núverandi félagsmála ráðherra, og birtist í hinu á- gæta tímariti Rauða kross- ins, „Heilbrigt líf“, rétt fyrir rfólin. Er greinin prentuð hér upp með vinsamlegu leyfi ritstjór ans, dr. Gunnlaugs Claessen. hristing og orðið ruglaður í bili, hafi beinbrotnað eða slasazt svo á annan hátt, að eigi sé hægt að gera almennar rannsóknir, til þess að skera úr um, hvort hann sé ölvaður eða ekki. Þegar svo stendur á, getux mæling áfeng- ismagns í blóði hans gefið rétt- vísinni mikilvæga vitneskju um hið sanna í málinu. Mæling áfengis í blóði hefir tíðkazt um alímörg ár erlendis, eftir að aðferðir fundust til að framkvæma slíka rannsókn, að- ferðir, sexn tailizt gætu nægilega öruggar, en þó eigi flóknari en svo, að þær væru vel gerlegar. Sú aðferð, sem einna mest er notuð á Norðurlöndum, og raunar víðar, er kennd við sænskan prófessor, Widmark að nafni, og hefir hann lagt mjög mikla vinnu í að rannsaka nota- gildi hennar. Hefir hann nýlega gefið út rit um rannsóknir sín- ar og niðurstöður. Aðferðinni verður eigi lýst hér nema með almennum orðum. Ákveðið magn af blóði hins grunaða er vegið og mælt. Blóðið er síðan hitað í vatnsbaði, gufar þá vín- andinn upp úr því og blandast tilteknu magni af sérstöku efni, með ákveðnum styrkleika (kalium-biehromat leyst í hreinni og sterkri brennisteins- sýru). Vínandinn veldur efna- breytingum í þessari blöndu, og er þá hægt að mæla og reikna út, hve miklu vínandinn nemur í blóði mannsins. En ekki verð- ur hér farið nánar út í þá sálma. Prófessor Widmark hefir, í samvinnu við sænsku lögregl- una, gert mikið af rannsóknum á blóði ökumanna, sem grunað- ir voru um ölvun. Auk mælinga á áfengismagni blóðsins var gerð almenn læknisrannsókn á hinum grunuðu, til þess að bera mætti saman ytri einkenni ölvunarinnar og það áfengis- magn blóðsins, er fannst við efnagreininguna. Heildarniður- staða þessara rannsókna var sú, í stuttu máli, að þeir, sem höfðu minna áfengismagn í blóði en 0,6 af þúsundi, töld- ust algáðir eða fullfærir um akstur. Væri áfengismiagnið 1 af þús- undi, reyndist þriðjungur hinna grunuðu ölvaður. Þegar það var um 1,5 af þúsundi, voru héx um bil 70% ölvaðir; en væri á- kosti við því búnir að mynda aðra stjórn í hennar stað. * Hitt er svo allt annað mál, að árangurinn af störfum hins fyr- irhugaða viðskiptaráðs, og af störfum núverandi stjórnar yf- irleitt, hlýtur að fara mikið eft- ir því, hvernig henni tekst mannavalið í viðskiptaráðið, enda hefir verið bent mjög rækilega á það í umræðunum á alþingi, ekki hvað sízt af Al- þýððuflokknum. Það mun tii daamis hugsandi mörmum ekki þykja spá neinu góðu, ef það skyidi reápast rétt, sem heyrzt hrfir, að stjóxnui hafi í ’xyggju að skn jneSal -ar*v> í við- skiptaráðið sinn fulltrúann fyrir hvom hinna stóru aðila inn- flutningsins, Verzlunarráðið og Samband íslenzkra samvinnufé- laga. Allra sízt myndi það þykja spá neinu góðu um verðlagseft- irlit viðskiptaráðsins, þar sem vitað er, að einmitt þessir tveir aðilar eiga hvað mesta sök á verðhækkunárbrjálæðinu und- anfarin ár svo og á árangurs- leysi verðlagseftirlitsins hingað til. En stjórnin um það. Fái hún vald til þess að ráða skipun við- skiptaráðsins, eins og lang eðli- legast er, þá ber hún ein á- byrgðina og veit, hvers hún béfir' að vænta af háHu þmgs- ins og þjóðarinnar, e£ iUa fer. A LLMIKILL þytur hefir orðið út af því, hvernig skipa ei'gi hið væntanlega við- skiptaráð. Ríkisstjómin ætlast til þess í frumvarpi sínu, að hún sé einráð um það hverjir fara í ráðið, en einstakir þing- menn, einkum úr flokkum Frmlsókxxar og Komimúnista, viilja láta þingið kjósa í ráðið. Morgimhlaðið átelur þetta harð lega í gær. f forystugrein blaðs- ins segir svo: „Sjálfstæðisflokkurinn, . . leit svo á, að eina úrræðið til farsæls árangurs væri, að allir flokkar tækju höndum saman, bæði innan þings og utan. Sjálfstæðisflokkurinn er enn þeirrar skoðunar, að þessa Ieið hefði átt að fara — og hana ætti að fara. En allar tilraunir til slíks samstarfs strönduðu á andstöðu annarra flokka, og þá fyrst og fremst á Sósíalístaflokknum og Framsóknarflokknum. Og það ein- kennilega var, að það var ekki vegna málefnalegs ágreinings, sem starfið strandaði, heldur vegna hins, að þessir flokkar viidu ekki samvin.nu. Óþarft er að rifja það upp hér, hvað kom upp úr þessu öngþveiti. <T5n hjns'ið fékk ríkisstiórn, án tii- sefningar af þaas hálfu. hessi ríkisstjórn hefir undanfarnar vik- ur verið að glíma við þau við- fangsefni, sem alþingi átti að leysa, en gat ekki vegna sundr- úngar. Enn verður ekki sagt neitt um það, hvort ríkisstjórninni tekst að leysa vandamáiin. Það er ó- reynt með öllu. En meðan alþingi lætur flokkadrætti og sundrung sitja í fyrirrúmi, er það vissulega skylda þess, að leyfa stjórninni að hafa starfsfrið. En sundrungaröflin í þinginu geta ekki á sér setið. Þetta kem- ur greinilega í ljðs í sambandi við stjórnarfrumvarpið (Viðskipta- ráðið), sem nú er til meðferðar í þinginu. Stjómin hefir ákveðið í huga með þessum lögfum, sem hún biður um. Og hún vill að sjálf- sögðu, að Viðskiptaráðið starfi I samræmi við það. En sundrungar öflin segja: Við viljum ráða mönn- um í Viðskiptaráðið, til þess að rifrildið og togstreitan geti veriS þar, eins og í þingsölunum!“ Það er ýmisleglt tiil í þesm, Enn er engin smvinna eða sam- vinnugrundvöllur fyrir hendi hjá þingflokkunum og því ekki fremur ástæða til að ætla, að svo verði í viðskiptaráði, eigi þeir að kjósa þangað fulltrúa. Hitt er annð mál, sem þingmenxa Ailþýðuflokksins hafa hvað eft- ir annað bent á, að rnjög verð- ur að vanda til manna í 'þessa voldugu nefnd. En xxmfram allt verða þeir, að verða algerlega óháðir öllum hagsmunaklíkum og verzlunarsamtökum. Það lítur út fyrir, að Þjóðólf- ur sé að verða stjórnarblaði Hann er mjög hrifinn af nú- verandi stjórn og gerðist svo raxxsnarlegaxr í fyrradag að gefa. út áramótaræður allra ráðherr- anna fimm, séxrprentaðar, og var Vísir þó búiixn að birta þær allar áður. Um, þessa sérprentun segir Þjóðólfur í forystugrein sinni í gær: „Það er miklu tryggara a@ kynna sér stefnuna eins og hún er túlkuð af þeím, sem ábyrgðina eiga að bera, ráðherrunum sjálf- um, én að fara þar eftir túlkun annarra, meira eða minna vel- viljaðra. Það er allt útlit á, að stjómim fái nauðsynlegan starfsfrið. Má í því sambandi vekja athygli á þvf, að Morgunblaðið viðurkennir S síðásta Reykjavíkurbréfi, að þa5 sé stjórninni hinn mesti styrkur, að þurfa ekki að taka tillit til hinna einstöku flokka. Viðurkenning þessara sanninda er að yprða al- F«fc. á S. aföu. Orðseidiog til útsolmaooa jUplðobiaðsins.! I $ Vegna ársnppgjörs blaðsins, ern útsðlu- menn þess bvarvetna ntn land beðnir að senda skrifstofnnni skiiagrein sina sem allra fyrst. fengismagnið 2—3 af þxísundi, reyndustu ölvaðir 90—100% þeirra, sem rannsóknin var gerð á. Af þessu er ljóst, að sam- kvæmt þessum rannsóknum iteljast menn skilyrðislaust öl- vaðir, sé áfengismagn í blóði 3 af þúsundi eða meira. En sé það minna, er ekki hægt að byggja úrskurð á áfengismæl- ingunni einni saman. Hins veg- ar getur hún verið mikilvægur stuðningur, með hliðsjón af vitnisburði lögreglumanna eða annarra, en þó einkum, ef al- menn læknisrannsókn er látin fara fram á andlegu og líkam- legu ástandi ökumannsins. Slík rannsókn og áfengismæling bæta hvor aðra upp, og með því móti eru mestar líkur til þess, að réttvísin komist næst hinu sanna í málinu. Rétt er að geta þess hér, að sá, er tekiuir tolóð úr manni til áfengisákvörðunar, verður að gæta þess að þvo eigi hörund hans með vínanda, æther eða öðru slíku. Þá er og að gæta þess, að dælan eða nálin, sem til þess er notuð að ná blóðimi, sé eigi menguð vínanda. Refsingin, sem við liggur, ef menn eru öívaðir við akstur, er þung, sem eðlilegt er, og er á- ríðandi, að þau gögn, sem dóm- ur um sekt eða sýknu er byggð- ur á, séu sem traustust. Mæling á áfengismagni í blóði bætir aðrar rannsóknaraðferðir upp til mikilla muna. Það er eigi hægt að gera aðrar rannsóknir á meðvitundarlausum eða dauð um manni til þess að ganga úr skugga unx, hvort eða að hve miklu leyti hann hafi verið öl- vaður. En þegar svo stendur á, getur mæling áfengismagns í blóði gefið mikilvægar bend- ingar eða jafnvel fulla vitn- eskju. Þessi rannsóknaraðferð getur því haft talsverða þýð- ingu frá sjónarmiði réttarlækn- isfræðinnar, en einnig, og ekki síður, í ýmsum tryggingarmál- um, þar sem ráðið getur úrslit- um um bótaskyldu tryggingar- félags, hvort um ölvun hafi ver- ið að ræða eða ekki. %

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.