Alþýðublaðið - 05.02.1943, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 05.02.1943, Blaðsíða 2
s $ s \ I * s $ s s S s s s * s s s s s s s s s s $ s * i Bæjarrekstur kvik~ myndabúsanna! Sampykktnr af meiriMuta bæ|arstjórnariamar f nóft. ------».—.... TILLAGA ALÞÝÐUFLOKKSINS um að bærinn skuli taka rekstur kvlkmyndahúsanna í sínar hendur var samþykkt við atkvæðagreiðsluna um fjárhagsáætlun bæjar- ins á fundi bæjarstjómar í nótt. Breytingartillaga frá Árna frá Múla hafði áður verið samþykkt, þess efnis, að bærinn skyldi aðeins taka rekstur Nýja Bíós og Gamla Bíós í sínar hendur, þar eð Tjarnarbíó væri redgið tíl styrkta|- vífeindastarfsemi íj landinu; enn fremur, að öllum arði af bæjarrekstri kvikmyndahiisanna skyldi varið til líknarstarfsemi í bænum. Með tillögu Alþýðuflokksins þannig breyttri greiddu atkvæcþ í /bæjarfulltrúar A^þýðuflokksms) bæjarfulltrúair kommúnista og Árni frá Múla. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sögðu allir nei. Þegar blaðið fór í pressuna stóð atkvæðagreiðslan um fjárhagsáætlunina enn yfir, en búizt var við, að fundur héldi áfram þar til henni væri lokið. Stofnon sambands sveitar- félaganna er í nndirbnningi Samtal við eftirlitsmann sveitarstjórn- armálefna um tilgang og hlutverk hins væntanlega sambands. ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefir átt viðtal við Jónas Guðmundsson, eftirlitsmann sveitarstjómarmálefna í til- efni af bréfi hans til bæjar- stjómar Reykjavíkur út af stofnun sambands meðal sveitarfélaga landsins og fór- ust honum orð á þessa leið. „Já, það er rétt, að ég hefi skrifað bæjarstjórnum Reykja- víkur og Hafnarfjarðar um þetta mál. Eins og þér er kann- ske kunnugt, eru hjá flestum ■menningarþjóðum nú á dögum — eða voru fyrir stríðið réttara sagt — félög eða sambönd með þeim mönnum, sem lík störf höfðu með höndum í ýmsum greinum. Við þekkjum þetta nú bezt frá stéttasamtökunum, en víða var einnig búið að koma á fé- lagsskap milli ýmsra manna, er höfðu sömu störf með höndum, þó ekki gætu talizt „stéttir“, og náðu þau samtök yfir stór svæði, heil héruð eða jafnvel heil? lönd. Þannig vpru t. d. í Danmörku tvö sambönd, er sveitarstjórnarmenn þar höfðu með sér. Var annað fyrir kaup- staðina, en hitt fyrir sveitarfé- lög á landsbyggðinni. Svipað var í Noregi og Svíþjóð. Hér á landi hefir aldrei verið stofnað til neinna slíkra sam- taka, hvorki almennt né með sveitarstjórnarmönnum, er til- heyra sama flokki eins og líka þekktist erlendis. Var til dæmis samband Alþýðuflokksmanna í sveitarstjórnum í Noregi mynd- arlegur félagsskapur, er gaf út allstórt tímarit um sveitarmál- enfi. Ég skrifaði um þetta mál í tímarit mitt „Sveitarstjórnar- Tnál“ 1941 og stráx á eftir bár- ust mér bréflega og símleiðis tilmæli ýmsra sveitarstjórnar- manna um áð beita mér fyrir stofnun slíks sambands, en þar sem almennar kosningar áttu fram að fara 1942, ákvað ég að eiga ekki neitt við málið fyrr en þær væru um garð gengnar. Nú hafa allar bæjarstjórnir og hreppsnefndir verið kjörnar til 4 ára og því álít ég nú tímabært að reyna að koma málinu eitt- hvað áleiðis. Ég hefi því farið fram á það við bæj arstj órnirnar í Reykja- vík og Hafnarfirði, að þær til- nefndu sinn manninn hvor í nefnd með mér til þess að at- huga möguleikana fyrir stofnun sambands milli sveitarfélaga landsins, en ennþá hefir mér ekki borizt svar þeirra, enda munu þær ekki hafa haldið fundi síðan ég skrifaði þeim. Sýnist það tiltækilegt að efna til slíkra samtaka, hefi ég litið svo á, að æsfeilegit væri að þess- ar tvær bæjarstjórnir boðuðu til stofnþingsins, sem vafalaust yrði þá haldið hér í Reykjavík. Hvernig fyrirkomulag ég hefi hugsað mé rá þessu sambandi tel ég ekki rétt að láta neitt uppi um fyrr en ég hefi fengið tækifæri til að ræða málið við þá menn, sem bæjarstjórnirnar tilnefna, ef þær verða við þess- um tilmælum mínum. Verkefni slíks sambands sveitarfélaga eru margvísleg og ég fyrir mitt leyti tel hina mestu nauðsyn á stofnun þess, sérstaklega til þess að skapa meira samræmi um mörg þýð- ingarmikil málefni, sem sveitar- félögin hafa með höndum, en sem nú er hið mesta ósamræmi ríkjandi um. Sama er að segja um ýmsa löggjöf, sem sveitar- félögin varðar, og sem alþingi væri hinn mesti styrkur að að fá tillögur um frá þingi slíks sambands eða stjórn þess. Á því byrjunarstigi, sem mál þetta enn er á, sé ég ekki á- stæðu itiil að fara um það fleiri orðum. ALÞYOUBLAPIÐ * Föstudagur 5. febrúár 194S. Kosnlngar i bæjarstjðrn Reykjavlknr I gær. Litlar breytingar, Sjálfstæðisflokkurinn i minnihluta í byggingamálanefnd. Vlðskiptaráðherr- ann f klípn við 2. nmr. verðlags- frnmvarpsins. Gagnrýni Finns Jónssonar. K OSNINGAR á forsetum bæjarstjórnar Reykja- víkur og öðrum starfsmönn- um, svo og bæjarráðs, fóru fram á bæjarstjórnarfundi, sem haldinn var í gær síð- degis. Kosningarnar fóru þannig: Forseti bæjarstjórnar var kos- inn Guðmundur Ásbjörnsson, en hann hefir gegnt því starfi lengi og nú setið í bæjarstjórn Reykjavíkur í aldarfjórðung. Hlaut Guðmundur 7 atkv., en 8 seðlar voru auðir. Fyrri vara- forseti var kosinn Jakob Möller og annar varaforseti Valtýr Stefánsson. Ritarar bæjarstjórnar voru kosnir: Helgi Hermann Eiríks- son og Björn Bjarnason. Vara skrifarar voru kosnir Gunnar Þorsteinsson og Steinþór Guð- mundsson. Þá fór fram kosning 5 bæj- arfulltrúa í bæjarráð og hlutu kosningu: Guðmundur Ás- björnsson, Jakob Möllér, Helgi Hermann Eiríksson, Jón Axel Pétursson og Sigfús Sigurhjart arsón og til vara Valtýr Stef- ánsson, Gunnar Thoroddssen, Guðrún Jónasson, Björn Bjarna son og Haraldur Guðmunds- son. í framfærslunefnd voru kos- in Guðm. Ásbjörnsson, Guðrún Jónasson, Gísli Guðmundsson, Katrín Pálsdóttir og Arngrímur Kristjánsson og til vara Bjarni Benediktsson, María Maack, Stefán A. Pálsson, Soffía Ing- varsdóttir og Zoponías Jónsson. I brunamálanefnd voru kos- in Guðrún Jónasson, Helgi H. Eir. Gunnar Thoroddssen, Stein þór Guðmundsson og Jón ,A. Pétursson. í byggingarnefnd voru kos- in (innan bæjarstjórnar) Guð- mundur Ásbjörnsson og Björn Bjarnason og utan bæjar- stjórnar: Hörður Bjarnason pg Ársæll Sigurðsson. í' hafnarstjórn voru kosnir (innan bæjarstjórnar): Valtýr Stefánsson, Björn Bjarnason og Gunnar Þorst. með hlutkesti milli hans og Jóns Axels Pét- urssonar. Til vara: Gunnar Thoroddsen, Helgi H. Eir. og Steinþór Guðmundsson. Utan bæjarstjórnar voru kosnir í hafnarstjórn: Sig. Sigurðsson og Sig. Ólafsson og til vara: Haf- steinn Bergþórsson og Sigurjón Á. Ólafsson. í heilbrigðisnefnd voru þeir kosnir: Guðm. Ásbjörnsson, Val geir Björnsson og Guðrún Jón- asson. I snt.tvarnanefnd var kosin Guðrún Jónasson. Til að semja verðlagsskrá var kosinn: Þorst. Þorsteinsson hagstofustjóri. Í stjórn eftirlaunasjóðs voru kosnir: Gunnar Thoroddssen Helgi H. Eir. og Steinþór Guðm. í stjórn íþróttavallanns: Gunnar Thoroddsen. í stjórn Fiskimannasr-^s Kjalarnessþings: Guðm. As- björnsson. Endurskoðendur bæjarre:kn- inganna voru kosnir: Ári Thor- lacius og Ólafur Friðriksson og til vara: Björn Steffensen og Jón Brynjólfsson. Endurskoðandi styrktarsjóðs sjómanna- og verkamannafélag anna í Reykjavík var kosinn Einar -Magnússon menntaskóla-. kennari. Endurskoðandi reikninga f- þróttavallarins: Gunnar E. Benediktsson. Endurskoðendur Músiksjóðs Guðjóns Sigurðssonar: Sigurður Briem og Hallgrímur Jakohs- son. í byggingarmálanefnd voru •kosnir (útlitsnefnd): Éinar Er- lendsson, Ársæll Sigurðssnn, Tómas Vigfússon, Sveinbjörn Jónssón og Eiríkur Einarsson. í fore+öðv.np.ind, Námsflokka Reykjavíkur voru kosnir: Helgi H. Éir., Jónas P. Jónsson, Knútur Arngrímsson, Sigfús Sigurhjartarson og Ármann Halldórsson. Við kosningu á endurskoð- anda styrktarsjóðs verka- manna og í útlitsnefndina kusu saman Alþýðuflokkurinn, Sós- íalistaflokkurinn og Árni Jóns- son. Rðnstilraun við konn r I ÞRIÐJUDAGSKVÖLD gerði 'hermaður tilraun ti'l að ræna tösku og poka af stúlku í Hafnarfirði. Var stúlkan í fylgd með tveimur öðrum sitúlkum á leið upp að Þórsbergi við Hafnar- fjörð ilaust fyrir miðnætti, er hermiaðurinn Mjóp að þeim og reyndi að hrifsa af stúlkunni tösku og poka, er 'hún ibar. En er sitúilkumar köll'luðu á ihjálp, tók 'hermaðurinn til fót- anna, án þess að ná töskunni eða pokanum. Dánarfregn. í fyrradag andaðist Ásgeir Bjarnason frá Knarrarnesi á Mýr- um, faðir Bjarna Ásgeirssonar al- þingismanns. Lézt hann að heimili Bjarna sonar síns. FRUMVARPIÐ um verðlag fór til 3. umræðu í neðri deild í gær eftir nokkrar um- ræður. Fininur Jónsson deildi nokkuð á ríkisstjórnina fyrir framkomiui hennar í 'verðilagsmájlum og sipurði viðskipitamálaráðherra. hversu skilja bæri yfirlýsingu ráðuneytisins, sem hirt var fyrir mánaðamót'in. En þar reyndi stjórnin, svo sem kunnugt er, að afsaka verðhækkanir, sem urðu á nokkrum vörutegundum úti um land eftir að verðhækk- unarbannið gekk í gildi. Finnur kvað auglýsinguna um verðhækkuniaribannið hins vegar svo ótvíræða, að út úr henni væri efeki hægt aö leSa annað en iskilyrðislaust bann. Nú reyni stjómin að gefg þá skýringu, að tvö lágmarksverð hafi verið sett, á gömilum vörum og nýjum. Hafi verið prentvilla í auglýs- ingunni, sagði 'F. J„ er viðkunn- aníegra að sitjórnin iagfæri hana. Björn Ólafsispn svaraði fáu, vísaði til útvarpsræðu sinnar- o. s. frv. Gunnar Thorodd.sen, sem er í dómnefndinni, lýsti því yfir skýrt og skorinort, að nefndin hefði ekki gefið neitt .leyfi til nokkurrar verðhækkunar/ Breytingatillögur höfðu kamið fram við 3. gr. frumv. um verðlag. Greinin sjálf hljóðar svo: „Þegar viðskiptaráð fjallar um verðliagsmiál, skulu tveir nefndarmenn jafnan víkja úr ráðinu samkvæmt ákvörðun ríkisstjómar í skipunarhréfum þeirra, og skuiú í Iþeirra stað koma verðlagsstjóri og annar maður, er ríkisstjórnin skipar, með atkvæðisrétti um verðlags- álkyarðanir. í viðskiptaráði ræður afl at- , kvæða, og eru úrskurðir þess. Frh. á 7. síðu. Hafnarfirði. Skemmdarverk erlendra hermanna færast í aukana Lögreglan handsamar mann eftir að hann var búinn að eyðiieggja trjágarð á Njálsgötn SPELLVIRKI erlendra hermanna færast í vöxt og taka á sig æ furðu- legri myndir. Er þetta ekki óþekkt fyrirbrigði á styrjald- artímum — og þá fyrst og fremst meðal hermanna, sem ekki eru á vígvöllunum og lítið hafa fyrir stafni. Fyrir fáum dögum réðust her- menn á tvær bifreiðar og spörk- uðu þær og lömdu að utan. Er bifreiðarstjórarnir reyndu að, afstýra skemmdum á bifreiðun- um, gripu hermennirnir til hnífa og otuðu þeim. Amer- íkskum lögreglumönnum tókst að handsama þessa hermenn og voru þeir undir áhrifum áfeng- is. í fyrrinótt klukkan 2 var hringt í lögregluvarðstofuna úr húsinu nr. 81 við Njálsgötu. Var tilkynnt að þar væri her- maður að húsabaki í trjágarði og bryti niður tré, sem þar voru. íslenzkir og ameríkskir löregluþjónar hröðuðu sér inn- eftir. Er þeir komu þangað, sáu þeir hvar hermaður var önn- um kafinn við að brjóta trén í garðinum. Er hann varð lög- reglumannanna var, tók hann til fótanna og reyndi að flýja, en lögreglumennirnir hand- sömuðu hann. Reyndist maður- inn vera undir áhrifum áfengis. Hermaðurinn var búinn að brjóta 13 tré í garðinum þegar lögreglan kom á vettvang og voru sum þeirra mjög stór eftir okkar mælikvarða, 4—5 metr- ar á hæð. Lágu greinar trjánna víðs vegar um garðinn. Voru sum trén þannig, að ekkert var eftir af þeim nema nakinn stofninn. Er trjágróður garðs- ins, sem fólk hefir hlúð að lengi og lagt alúð við, að njestu eyði- lagður. Slík skemmdarverk eru furðuleg. En vitanlega erfitt að koma í veg fyrir þau. Það er aldrei of vel brýnt fyrir fólki að gæta sjálfs sín vel. Hætta er mikil þegar svo fjölmennt er hér af heimilislausum erlénd- um mönnum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.