Alþýðublaðið - 07.02.1943, Page 3

Alþýðublaðið - 07.02.1943, Page 3
Smmudagur 7. fcbrúar 1943,. ALÞÝÐUBLAÐK) \ Innsiglingin til Bizerta. A \ $ $ S $ * s \ S N s s s s I s s s s s s -s s ■s ■'S V 'S s s i Bizerta er ein af helztu iliafnarborgunum í Tunis, og hafa möndulveldin iþar mikila bæki- vstöð. Myndin er 'tekin um borg í skipi. sem er að sigla inn í höfnina í Bizerta. $ \ S s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s c \ \ s 5 Rússar við hlið Rostov. Bataisk, 16 km. frá borg- inni, á valdi Rássa. Qiislingar skipía bo aðferð. ■p RETTIR til norska blaða- fulltrúans í Reykjavík herma, að foringjar quislinga í Noregi hafi skipt um áróðurs- aðferð. Fylkingarleiðtoginn dr. Hareid, fylkisstjóri Quislings lét svo ummælt í ræðu, sem hann hélt 1. febr., að það væri leiðtogum quislinga að þakka, að Norðmenn þeir, sem teknir voru fastir á Ögðum og í Roga- lands-fylki hafi ekki hlotið leiðinlegan dauðdaga. Hdnn sagði ennfremur, að þeir atburðir hafi átt sér stað í héraðinu, sem hafi verið þess eðlis, að þeir hafi verið hættu- legir fyrir hernámsaðilann og þetta hafi skeð á þeim tíma, — sem slíkir atburðir hafi skipt lífi eða dáuða fyrir hið „ger- manska fólk.“ Nánari tilkynning hefir nú borizt um handtökurnar í Nor- egi og ségir, að það sé vegna mikillar leynilegrar \ andstöðu gegn Þjóðverjum. Þá hafa blaðafulltrúa Norð- manna borizt, þær fregnir frá London, að norsku flugmenn- irnir, sem tekið hafa þátt í á- rásum á Norður-Frakkland und anfarið hafi getið sér mjög góð an orðstír. Á þriðjudaginn og miðviku- daginn skutu þeir niður nokkr ar flugvélar og nú í fyrradag skutu þeir niður 3 flugvélar. í öllum þessum loftbardög- um misstu Norðmenn enga flug vél. , Þá berst sú frétt frá Banda- ríkjunum, að sendiherra þeirra í Finnlandi, sem undanfarið hefir dvalið í Washington — muni bráðlega hverfa aftur til Finnlands. Þessi frétt' þykir benda til þess, að Finnland muni ekki telja sig eiga samleið með Hitl- er-Þýzkalandi, eins og ummæli Fagerholms við blaðamenn í Stokkhólmi benda hiklaust til. Eish við Azoskev fallin. LONDON í gærkveldi. HIN MIKLA SÓKN RÚSSA hefir nú náð hámarki, er hersveitir þeirra eru komnar að hliðum Rostovborgar og nálgast Kharkov með hverjum deginum sem líður. — Aukatilkynning herstjórnarinnar í Moskva í kvöld stað- festir fyrri fregnir um, að Rússar hefðu tekið Bataisk, sem er aðeins 16 km. sunnan við Rostov, og munu framvarða- sveitir vera komnar fram hjá henni. Enginn vafi er á því, að Þjóðverjar munu leggja mikla áherzlu á að halda Rostov, enda er borgin hin mkilvægasta. Ef Rússum tekst að ná henni á sitt vald, verður það í fjórða sinn, sem hún skiptir um húsbændur, því að Rússar tóku borgina aftur af Þjóðverjum í fyrravetur, en misstu hana aftur í sumar. Nokkru sunnar er annar rússneskur her kominn að ströndum Azovshafs og hefir þar tekið borgina Fisk. Hefir þá Kákasusher Þjóðverja misst síðustu von sína um að komast landleiðina undan, og er þá ekki annað fyrir hendi en að reyna að bjarga því, sem bjargað verður, yfir Kerch- sund. En það verður ekki leikur fyrir þá, því að rússneskar flugvélar og skip úr Svartahafsflotanum munu gera allt, sem þau geta, til þess að valda Þjóðverjum tjóni, og hafa þegar borizt fréttir, sem sýna, að þessar tilraunir Rússa hafa borið tilætlaðan árangur. Rússneski herinn, sem sótti fram og tók Yzium, hefir sótt lengra fram og er kominn um það bil 40 km. framhjá borginni og hefir tekið bæinn Balaklaya. Eru Rússarnir þarna aðeins 70 km. frá Kharkov, einni af mestu og mikilvægustu borg- um Rússlands. Auk Balaklaya hafa Rússar tekið tvær aðrar mikilvægar borgir. Rússneski herinn, sem er við hlið Rostov, hefir að baki sér eina mestu, hröðustu og merkilegustu sókn í sögu stríðsins. Hann kemur úr 2 áttum. Hefir annar hluti hans, sem sækir frá Kákasus, farið 470 km. á 11 vikum og stöðugt hrakið þýzku .herina á flótta. Hinn hluti hersins, sem sækir frá Stalingrad, og þurfti fyrst að brjótast gegn um varnarlínur hinna sterku þýzku herja, sem voru þar við borgina, hefir farið 400 km. á rúml. mánuði. DEILDU OG DROTTNAÐU Sendiherra Breta í Rússlandi hefir undanfarið verið á ferð í Bretlandi og skoðað vígvélar og verksmiðjur. Hefir hann í ræðu lýst hrifningu sinni og fullviss að menn um, að vináttan milli brezku og rússnesku þjóðanna sé djúp og einlæg. Hann gat þess einnig, að Þjóðverjar hefðu gert miklar tilraunir til þess að spilla Gengur seint í Tnnis. London í gwrkveldi. ÞJÓÐVERJAR hafa náð aft ur hæð þeirri, sem fall- hlífahersveitir Bandamanna náðu í fyrradag í Suður-Túnis. Bandarískar hersveitir sækja nú að Mareth-línunni, þar sem talið er, að Rommel hafi búizt til varnar með hersveitir sín- ar. Mikil loftárás hefir verið gerð á Bizerta, sem er ein mesta birgðastöð möndulveldanna í Tunis. Brezkir kafbátar hafa enn sökkt 4 skipum á Miðjarðar- 'hafi og var eitt þeirra stórt' birgðaskip. Einu skipinu var sökkt mjög nærri Ítalíu og skaut kafbáturinn í sömu ferð á járnbrautarbrú á landi. Lofárás á Danmörku ? OREZKA ÚTVARPIÐ U skýrði frá því í gær- kveldi seint, að útvarps- stöðvarnar í Danmörku, Kalundborg . Kaupmanna- höfn, hafi hætt útvarpi £ gærdag. Hefir ekki frétzt um ástæðu til þessa, en al- gengasta orsök slíkra truflana á útvarpi eru loft- árásir. i stjéri- iðlastefoa í Norðnr- Frakhlandi. ÁÐ.það, sem Darlan stofn áði á sínum tíma í .Norð-i ur-Afríkú hefir nú verið end- urskipulagt. Giraud er formað ur ráðsins, auk háns eiga sæti í ráðinu landsstjóri Vestur-Af- ríku og Tunis. Þá er Giraud heimilt að út- nefna fleiri menn í ráðið og er tafið, að fulltrúi de Gaulle \ muni bráðlega taka sæti í ráð- inu. Giraud hefir tekið upp mik- ið frjálslyndari stefnu í innan landsmálum Norður-Afríku og er meðal annars skýrt frá því í sambandi við þessa frétt, að eignum Gyðinga, sem teknar hafa verið eignarnámi verði skilað aftur. Og eins megi Gyð- ingar gerast sjálfboðaliðar í hernum, ef þeir óska. Þjóðverjar herða kaf bðtahernaðinu. ' London í gwrkveldi. KNOX flotamálaráðherra hefir látið svo ummælt, að Þjóðverjar gerðu nú allt, sem þeir gætu til þess að herða kafbátahernaðinn og nauðsyn- legt væri fyrir Bandamenn að gera allt, sem í þeirra valdi stæði til þess að mæta þeirri hættu. Um viðureignina við Salo- monseyjar sagði Knox, að báð- ir aðilar hafi beðið nokkuð tjón en þeirri viðureign væri ekki en lokið. Loftárásir hafa verið gerðar 7 nætur í röð á Rabaul. Ekki er að þessu sinni getið um erindi hans, en hann hefir sagt við blaðamenn: „Menn virðist greina á um styrjaldar markmið Finna. í baráttu sinni hefir finnska þjóðin aðeins eitt markmið — frelsi. Hún tekur engan þátt í baráttu risanna.“ sambúðinni miRi Breta og Rússa, en það hefði ekki tek ist og sendiherrann kvaðst ekkert óttast um þessa við- leitni. Virðast Þjóðverjar hér háfa ætlað að fara að gamla máltækinu, sem segir: „Deildu og drottnaðu“ en, ekki gefizt sem bezt. BandamenD missa hæðJB48. London í gær. BANDAMENN hafa misst hina margumtöluðu hæð 648 í Tunis. Segir í tilkynning- unni frá aðalstöðvum Eisen- howers í dag, að gagnáhlaup ó- vinanna hafi neytt hqrsveitir Bandamanna til þess að hörfa af hæðinni, þótt þess sé jafn- framt getið, að viðureignir þess ar séu aðeins í smáum stíl. Það hefir verið tilkynnt, að Gen. Brerton ,sá, sem áður stjórnaði ameríska flughernum. á Filippseyjum, í Holl. Indíum og í Indlandi, hafi tekið við yfirherstjórn alls herstyrks Bandaríkjamanna í löndunum við botn Miðjarðarhafsins. —. Hann hefir um nokkurt skeið stjórnað flugher Bandaríkjanna í Egyptalandi. Hann tpkur við stöðu þessari af Andrews, sem nú er orðinn yfirhershöfðingi Ameríkuhersins í Bretlandi — eftir að Eisenhower fór alfar- inn til N.-Afríku. Það er athyglisvert, að Ame- ríkumenn eru farnir að fá fleiri flugforingjum yfirherstjórn í hendur og eru þeir Andrews og Brereton dæmi þess, báðir flugmenn. Bretar hafa aðeins einu sinni gert slíkt, en þá gafst það ekki sem bezt. Boisson, landstjóri í Dakar, hefir boðið Giraud hershöfð- ingja 300 000 manna lið. Hundrað Iþúisund þessara her- manirna eru til reiðu þegar í stað, því að þeir eru Senegal-svert- ingjiar í nýlenduher Frakika í Vestur-Afríku. Hinir verða til- búnir undir eins og bandaímienn geta búið þá ivopnum og lagt til foringja til að æfa þá og stjóma þeim. Senegalsvertingjar eru Jiraust- ir og góðir hermeinn. London í gærkveldi. Þegar amerískar sprengju- flugvélar af gerðunum „Fljúg- andi virki“ og „Liberatorar“ — gerðu aðra loftárás Banda- ríkjamanna á Þýzkaland í björtu fyrir nokkru, skutu þær niður hvorki meira né minna en 25 þýzkar orustuflugvélar af ýmsum gerðum, sem reyndu að hefta för þeirra. Sjálfir misstu Ameríkumenn 5 sprengjuflug- vélar. Það er athyglisvert, að þýzka stjórnin hefir enn ekki skýrt þýzku þjóðinni frá því, að Ameríkumenn hafi hafið loft árásir á Þýzkaland eða her- teknu löndin. Þegar Bandarísk- ar flugvélar taka þátt í loftárás um, segja Þjóðverjar alltaf í tilkynningum sínum, að ,bland- aðar brezkar flugsveitir' hafi gert árásina. Forsetakjör fer fram í Finn- landi um miðjan mánuðinn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.