Alþýðublaðið - 21.04.1943, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 21.04.1943, Blaðsíða 5
Miðvikud&gur 21. apríl 1943. ALWUBiAP^ Beitiskip í orustu. m ***** Framiradan ern 4 belgidagar EFTI'R)FA3RAÍNDI grein fjallar um brezka flotadeild, sem var faliði jj,að hlutverk að ráð ast á skipalestir möndulveld anna á leið til Norður-Afríku. Flotadeildin hafði bækistöð á Malta. FLOTADEILD „K.“-Aurora, Lance, Lively og skipið okk ar — átti að hafa bækistcjð við Malta. Herstjórnin hafði hætt á að hafa þennan litla en nauð- synlega flotastyrk við hina um- setnu eyju í þeirri von, að okk- ur tækist að leggja hindranir á samgönguleið óvinanna til Li- byu, áður en þeir áttuðu sig á nauðsyn þess að koma okkur fyr ir kattarnef. Áhöfn skipsins var lengi að átta sig á því, að bæki- stöð okkar væri í raun og veru Malta. Mánuðum saman spurðu sjóliðarnir: — Hvenær eigum við að fara tiTMalta? Eða: — Hvenær snúum við aftur heim til Gibraltar? Yfirmaður okkar sagði venjulega dálítið íbygg- inn: — Ég býst við, að við lát- um hér fyrirberast um sinn. Og okkar á milli sagt, þá trúði skip stjórinn mér fyrir því einn dag- inn, að okkur hefði verið falið bezta starfið, sem fyrir brezka flotanum hefði legið að inna af Iiendi. Og þegar tímar liðu vorum við orðnir sannfærðir um að svo væri. Flotadeildin var lítil og skammt var milli skipanna. í flotadeildinni voru tvö lítil beitiskip, hraðskreið, traust- byggð og ágætlega vopnum bú- in, og tveir ágætir tundurspill- ar undir forystu Agnew skip- stjóra á Aurora. Lífið var þægi lega frjálslegt og agi ekki strang ur. Áhafnirnar á beitiskipunum beimsóttu áhafnir tundurspill- anna og öfugt. Frá okkar sjónar miði var gleðilegt að verða þess var, að félagar okkar á litlu skip unum minntust aldrei á „déskot ans beitiskipin“. Vel fór á með okkur og fé- lögum okkar, og sumum okkar var það ljóst, að við gátum lent i sameiginlegum ævintýrum. Laugardagskvöld nokkurt, skömmu eftir að við komum á áíangastaðinn, lagði flotadeild ,,K“ frá landi og sigldi brátt með miklum hraða í átt til Beng hazi. Við komum á vígsvæðið, en sáum þar ekkert grunsamlegt <og snerum því aftur til bæki- stöðva okkar. Næsta laugardags kvöld var þetta endurtekið: Brunað á staðinn, við fullir eft irvæntingar, en ekkert skeður. Sjóliðamir voru nú farnir að gerast eirðarlitlir og töluðu sín á milli í skopi um „drauga- tundurspillanna“. Loks var bor in fram sú kenning, að við vær um sendir út á rúmsjó á laugar- dagskvöldum aðeins til þess að flugliðarnir væru einir um ungu stúlkurnar í Valletta um helg- ar. Og ekki var brugðið vanan- um. Næsta laugardagskvöld var okkur skipað að búast til brott ferðar með sérstaklega stuttum fyrirvara. Þetta þótti okkur hin kynlegasta ráðstöfun, (að því fráteknu, að sérstaklega margir flugliðar höfðu frí þetta kvöld), því að stjórnpallurinn hafði ver ið málaður um daginn með fall egum, grænum lit, og málning var ekki orðin þur. Hér fór sem fyrri daginn, að þetta virtist ætla að verða hlaup, en ekkert kaup. Mary- land flugbátur hafði komið auga á sex óvinakaupskip, í fylgd fjögurra tundurspilla, fjörutíu mílur austur af Spartiventa- höfða klukkan 14:00 um dag- inn. Við vorum bjartsýnni en venjulega, þegar við lögðum af stað, þar eð okkur hafði verið lofað því að flugvél yrði látin elta óvinaskipin og vísa okkur á þau. En því miður biluðu skeytatæki flugvélarinnar og við sigldum án leiðbeiningar um nóttina og bjuggumst ekki við neinum árangri. Við vorum bún ir að missa alla von og vorum að því komnir að snúa við, þeg ar við fengum allt í einu vís- bendingu frá Auroru um það, að hún hefði komið auga á óvin ina. Þeir, sem á stjórnpalli stóðu, segja, að einhver hafi sagt: — Hamingjan góða, þarna eru déskotans ryðkláfarnir! Skæðar tungur röktu þessi orð til skipstjórans, en hann þykist ekki muna að hann hafi látið sér þau um munn fara. Þær aðferðir, sem notaðar eru við árásir á skipalestir, höfðu oft verið ræddar á ráð- stefnum skipstjóranna fjögurra. Eftir fyrsta aðvörunarmerkið, þurfti aðeins að gefa tvö merki, meðan á árásinni stóð — annað viðvíkjandi því að hægja ferð- ina, hitt um að eyða ekki skot- færum að óþörfu. Sérhver mað ur vissi, hvað honum bar að gera, um annað hugsaði hann ekki. Aurora fór á undan í norður- átt, til þess að ná góðu skygni á óvinina í tunglskininu. Skygni skilyrði voru ágæt, og litardular búningur okkar (við höfðum notað undanfarandi vikur til að S mála skipin í samræmi við um- hverfi og birtu) var svo vel gerð ur, að við vorum komnir í 6.000 metra færi, án þess óvinirnir sæju okkur, þegar Aurora hóf skothríð á tundurspillinn, sem hafi forystuna vinstra megin skipalestarinnar. Hálfri mínútu seinna hófum við skothríð á tundurspillinn, sem var hægra megin skipalest- arinnar, og héldum skothríðinni áfram í fjórar mínútur. Því næst sigldi Aurora vestur fyrir skipalestina og kaupskipin voru einangruð og árásin hafin á þau. Skipin virtust enga tilraun gera til þess að sleppa, og þetta var allt of auðvelt. Þau stóðu í ljós- um loga um leið og þau urðu fyrir skoti. Stórt olíuskip leit út eins og logaveggur og skotfæra birgðaskip var tilsýndar eins og stórfengleg álfabrenna, unz það sprakk í loft upp með geysileg- um gný. Eftir ofurlitla stund sáum við átta brennandi skip og kolsvartan reykjarstrók þar sem skotfærabirgðaskipið hafði ver- ið. Einn tundurspillir varð okk- ur til ofurlítilla óþægindá með skothríð. Yið snerum að hon- um stjórnborðsbyssunum og eft ir ofurlitla stund leit hann út eins og gríðarstórt jólatré. Ekki gerði hann okkur ónæði framar. Við fengum ekkert færi á því að nota tundurskeyti, þó að Aurora og Lance gerðu það með góðum árangri. Óvinirnir skutu tund- urskeyti að Lively, en það missti marks og fór rétt fyrir framan stefnið. Tveir tundur- spillar héldu undan í norður- átt, en Aurora lét þá ekki lokka sig til eltingarleiks. Við skutum fáeinum skotum á eftir þeim, og ég held, að sumar kúlurnar hafi hæft. Þar með var viðureigninni lokið. Við sigldum umhverfis skipa lestina og fórum upp að einu hinna brennandi skipa, sem sýn lega hafði verið hlaðið bifhjól um og öðrum vélknúnum farar- tækjum. Piltur, sem staddur var uppi á stjórnpalli lét þess getið, að tuttugasti og fyrsti afmælis- dagurinn sinn hefði verið hinn viðbur ðarríkasti. Skipst j órinn sendi Aurora heillóskaskeyti í tilefni af ágætri frammistöðu. Þegar dagur rann urðum við undrandi á því, hversu lítið var eftir af græna litnum á stjórn- pallinum, en mikið á einkennis- búningum okkar. Þannig lauk fyrstu viðureign okkar — eftirminnilegri nótt. Árangurinn var: tíu birgðaskip um og tveim tundurspillum sökkt og þrír laskaðir. Þegar leið á morguninn feng- um við að æfa okkur í að skjóta á flugvélar. Við áttum von á skæðri hefndarárás úr lofti jafn skjótt og birti, og þegar aðvör- unarmerki var gefið rétt fyrir morgunverðartíma, sögðum við: — Jæja, loksins koma þeir. En hefndartilraunin var mjög við- vaningslega gerð og árangurinn eftir því. Skotið var að okkur fá einum tundurskeytum, en okk- ur tókst að forðast þau. Rarðstrendinga- bókin er komin. Ef pér wfljfH gefa vlni yðar skenamtilega snmargjof, pá er Xaán við iaendina. Bókaverzlun ísafoldar og útbúið Laugavegi 12. BEZTA HVÍLDIH: Lestor oöðra bóka GEFIDBðRNDNUHMD,GRVlfiK- JIM jáj| |J|i jjjfi“ iB SJðNDEILDABBRIND DEIBRA ”UJ™ Lfl' WM “WM Hégóminn getur glatt barn- ið litla stund. En hann skilur ekkert eftir. Er hægt að gefa harni hetri sumargjöf en góða og fallega, þroskandi hók? Þær bækur, sem eru skrifaðar eins ög hörnin hugsa, með undiröldu 'þekkingar á sálarlífi þeirra, eru beztar. Þannig er hókin: „FERÐIN Á HEIMS- ENDA,“ sem Jón Ólafsson skáld þýddi og kom út fyrir áratugum, en er nú aftur kom- in. Þegar þið voruð lítil, spurð- uð þið: Mamma, hvert liggur þessi vegur? Pabbi, hvað er hak við fjallið? Afi, hvar end- ar sjórinn? Amma, hvert kemst maður, ef maður heldur alltaf beint áfram? Og þannig spurði litli hnokk inn, sem er látinn segja þessa undursamlegu barnasögu. Hann dró út svörin, heimtaði svar, og fékk það. Og furða hans var mikil og landafundir hans dásamlegir. Mál bókarinnar er, eins og menn hafa kynnst af „Kátum pilti“, hinni ágætu barna- og unglinga-bók, hið fegursta, enda var skáldið Jón Ólafsson framúrskarandi liagur á íslenzkt mál. Einmitt nú ber að stefna að því, að kenna börnunum hinn hreina og tæra hljóm íslenzks máls. „Ferðin á heimsenda“ og „Kátur piltur“ eru ékki einungis dásamlegar sögubækur fyrir börnin og unglingana, heldur og kennslu- bækur í fegurð íslenzkrar tungu. Þær vekja hugsunina, knýja til forvitni og spurninga, en hvort tveggja er skilyrðið fyrir vaxandi andlegum I þroska. Hendið ekki fé í fá- nýti. Ef þið gefið baminu sum- 11' íslenzk náttúra er æfintýra- heimur. Sjórinn í kringum landið er fullur af undrum, sem ótrúlega fáir landsmenn þekkja. Enginn íslendingur þekkti líf og gróður íslands- miða jafni vel og dr. Bjarni Sæmundsson og fáir íslending- ar hafa verið jafn glöggir og iðnir náttúruskoðarar og hann. í hinni tiýju bók hins látna doktors er skýrt frá rannsókn- um hans og niðurstöðum á landi og á sjó. En auk þess segir hann frá ferðalögum sín- um. Bókin: „UM LÁÐ OG LÖG“ hefst á þessum orðum: „Það var einn góðan; Veð:ur- dag .... áð foreldrar mínir fóru út fyrir íúngarðinn, út að sjónum .... til þess að tína rekaþang. Eg hafði fengið að fara með, en ekki segir af ferðinnj fyr en við vorum komin heim á Halavöll, það er skák úr túninu.“ ... Þetta var fyrsta ferðalag þessa ferða- langs og náttúruskoðara. Þá var hann að eins 2 ára og 4 mánaða. Hann mundi þessa ferð alla æfi, enda varð hún söguleg — fyrir hann. — Svo fór hann í fyrsta róðurinn, næst í smalaferð og uppgötv- aði, að fjöllin voru ekki eins báðum megin, þá til Keflavík- ur og svo til iHafnarfjarðar. En hann fór margar fleiri ferð- ir síðan — og frá þeim skýrir hann í bókinni. Frásögnin er lifandi og rík ag litskrúðiug- um myndum, gleði og gletni, fyndni, alvöru og kostgæfni. Þessi bók er ekki að eins fyrir fullorðna fólkið heldur og ekki síður fyrir unglinga. Ferðir hans og frásagnir hvetja til dáða. — Það liggja margar ferðir milli hinnar fyrstu og þeirrar síðustu, en þá var mynd in, sem hér fylgir, tekin. Síð- asta ferðin var á æskustöðvarn- ar. Myndin er tekin þar, á Sölvhól í Grindavík. Það hvílir friður yfir hinum gránaða öld- ungi, hendurnar hvíla á hnjám honum. Hann hafði unnið mik- ið æfistarf, æfistarf, sem aldrei mun fyrnast. Og þessu æfi- starfi fáið þið' að kynnast í bók hans: „UM LÁÐ OG LÖG“ argjöf, þá skuluð þið gefa þm fallega og góða bók. VÍK9NGSÚT6ÁFAM

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.