Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 02.04.1939, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 02.04.1939, Blaðsíða 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 í herrans nafni endileg dómsálykt un téðra lögþingsmanna innan vébanda, að fyrrnefnd Steinunn Steinmóðsdóttir hafi sitt líf for- brotið, en straffsins tegund og þess executio (fullnæging) er af téðum dómendum sett undir til- hlutan og dispensationem (ráð- stöfun) hans velb. kongel. Majst. amtmanns yfir íslandi, herra Christians Muller". UM ÞÆR SYSTUR, Ingibjörgu og Ingveldi, var ekki kveð- inn upp endanlegur dómur á þessu þingi. Voru dómsmenn staddir í hinum mestu vanda. Þótt þær væri hafðar í varðhaldi fanst enginn bilbugur á þeim. Neituðu þær stöðugt, að hafa átt nokkurn þátt í því að myrða Gísla. Segir í dómsástæðunum, þær hafi verið „iðulega og í ná- kvæmasta máta, sem orðið hefir bæði af andlegum og veraldleg- um, yfirheyrðar og examineraðar, með margföldum áminningarfor- tölum“. Þrátt fyrir það hafi þær „báðar og hvor um sig, sem ber- lega forhertar manneskjur, þrá- lega þverneitað, að valdar séu á nokkurn hátt í morðsverki eða líftjóni Gísla sáluga Péturssonar". Þótti dómsmönnum, með tilliti til vitnaframburðanna og játning- ar Steinunnar, sem „þeirra líf mætti sýnast hanga sem á einuml þræði", en treysta sér þó ekki til þess að dæma þær til ídauða, vegna þess að játning þeirrafékst ekki. Nú voru verjendur þeirra systra, Stefán Jónsson, sem var verjandi Ingibjargar, og Brynjólf- ur Hannesson, sem var verjandi Ingveldar, spurðir að því, hvort þeir hefði Ltokkrar málsbætur fram að færa fyrir þær systur. Neituðu því báðir. Niðurstaða dómsins varð sú, að alt málefni þeirra systra var lagt „undir náð og ónáð vors allra náðugasta arfakóngs og herra, Kristjáns V“. Var amtmanni síðan falið að koma málinu á framfæri og á- kveða, hvar þær systur skyldi geymdar, þar til málinu væri lok- ið. Eftir að dómar höfðu verið kveðnir upp, komu þeir séra Gissur og séra Arngrímur, fyrir lögréttu og fóru fram á vitnis- burð lögréttumanna um það, hvort þeir hefðu ekki sótt málið sæmilega „sem réttum eftirtals- mönnum byrjaði". Var þeim gef- inn sá vitnisburður, að þeir hefði „ærlega, skikkanlega, löglega og í forsvaranlega máta procederað (sótí málið)". Árið eftir var mál- ið að nýju tekið fyrir á Öxarár- þiagi 4. júlí 1695. Var þá loks hveðinn upp endanlegur dómur yflr þeim systrum. Vora þær nú fíuttar íii Þingvalla aftur ogenn »ð nýju yfírheyfiÍWí'. Var þar ekk- ert lát á þeim að finna, og segir í dómsástæðunum, að þær sýni „sig enn nú í forherzlulegum andsvörum og þverlegri neitun". Hljóðar dómsniðurstaðan á þessa leið: „Þar fyrir í nafni drottins, er lögmanna og lögréttumanna innan vébanda, endileg ályktun, að hér téðra beggja systra, Ingi- bjargar og Ingveldar Oddsdætra, eiðfalli beri hart og minnilega að straffast, þar svo aðskiljan- lega merkileg líkindi og svarnar kringumstæður hafa í téðu morðs máli fram farið og þess vegna fullkomlega dæma, að áðurtéð Ingibjörg Oddsdóttir, sem og hennar systir Ingveldur, skulibáð ar og hvor um sig, fast og stór- lega kagstrýkjast hér á Öxarár- þingi, eftir tilsögn þeirra lög- mannanna Sigurðar Björnssonar og Lauritzar Christianssonar. Og þar að auki skuli þær vera frá þessu íslandi útlægar og öllum kringumliggjandi eyjum, og séu sjálfar í framkvæmd og útveg- um hið allra fyrsta hér úr landi að koma, ef ei vilja síðar mót laganna ákvæði á það auka, á landinu friðlausar reiknist fyrir þverúð og óhlýðni mót þessum dómi“. Strýkingin fór fram 6. júlí eða tveimur dögum eftir að dóm- urinn var kveðinn upp. Áttu þær systur síðan að sigla um sumarið Ingibjörg í Keflavík, en Ingveld- á Eyrarbakka, en þær fengu ekki far. Árið eftir (7. júlí 1696) kom mál þeirra systra enn fyrir al- þingi, Höfðu engar ráðstafanir verið gerðar um flutning þeirra burt úr landinu, og sjálfar höfðu þær ekki getað fengið flutning, Ályktuðu þvl lögmenn og lög- réttumenn innan vébanda, að, standa skyldi við þann fyrra dóm, að þær skyldu sjálfar verða sér úti um far erlendis. Ef þær væru ekki farnar burt á þriðja ári eftir að dómurinn var kveðinn upp, hefðu þær fyrirgjört lífinu. Þetta var lagt fyrir sýslumann- inn, þar sem þær kynnu að dvelja, að tilkynna þeim hið allra fyrsta. Eftir að þær Ingibjörg og Ingveldur höfðu verið hýddar á alþingi 1695, var þeim slept úr varðhaldinu, og flæktust þær til Vestfjarða og dvöldu þar úr því til ársins 1698, að mál þeirra var að nýju tekið fyrir á alþingi, og þær dæmdar rétttækar, hvar sem þær næðust. — Hafði Ingi- björg þá eignast barn með Árna 'Jónssyni í Barðastrandarsýslu, og var hann dæmdur í sekt fyrir það. Þetta sama ár var þeim komið af landi burt með frönsk- um hvalveiðamönnum, og er sagt að Ingibjörg hafi gifzt í Eng- landi. Talið er, að séra Páll Björnsson í Selárdal hafi hjálpað þeim systrum að komast utan. Með öðrum hætti er sagt frá burtför þeirra systra af landinu í handriti einu í safni Árna Magn- ússonar í Kaupmannahöfn. Frá- sögnin* er á þeissa leið: „Eftir annálum, skrifuðum af einhverj- um manni á Vestfjörðum undir biskupanöfnum, er þetta eftir- fylgjandi seinast í Skálholtsbisk- upatíð, undir mag. Jóni Þorkels- syni, sem kallast að vera 33. Skálholtsbiskup. Hér stendur við árið 1702: Á þessa árs sumri með skipherra Páli Andréssyni, skipherra á Skutulshöfn, sígldi Vestmcmnaeyjakona Ingveldur Oddsdóttir, en hennar systir Ingi- björg sigldi með engelsku hval- veiðaskipi af Tálknafirði anno 1700. — Þessari Ingveldi kom í skip Sesselja Sæmundsdóttir á ,Hóli í Bolungavík, með tíu ríkis- dala undirgift fram yfir hafið.“ Þessi frásögn virðist sanni nær. Að öðru leyti er ekki kunnugt um afdrif þeirra systra. Eins og áður getur ,lá Stein- unn Steinmóðsdóttir þungt hald- in, er dómur féll í máli hennar á alþingi 1694. Árið eftir var hún flutt til alþingis, „kreppt í kláf, með mjög veikum burðum." Átti hún að fullnægja dauðadóminum, er hún var komin til heilsu. En skömrnu eftir að hún var komin á Þiiigvöll, strauk hún úr tjaldi Magnúsar Kortssonar lögréttu- manns úr Rangárvallasýslu, sem hafði haft hana í varðhaldi. Amt- maður lýsti þá eftir henni, 9. júlí 1695, og ákvað að hún skyldi rétttæk hvar sem hún næðist, og skyldi þar fullnægja dauðadóm- inum. Henni er svo lýst í skjali þessu, að „flestum sýndist sem krept og kararómagi, og svo i yfirlit, sem afskræmileg og sótt- lera, nokkuð toginleit og gráföl, nokkuð rauðbirkin, með litla hönd og hnífskurð þvert um inn- an til á hægra handlegg.“ Lítil gangskör mun hafa verið gerð til þess að hafa uppi á Steinunni, og er sagt, að hún hafi lifað vestur undir Jökli til hárrar elli, undir dulnefni. III. F FRAMBURÐI Steinunnar Steinmóðsdóttur er ljóst, að Pétur Vibe hefir verið meira en lítið riðinn við morðsmál þetta. Sagði hún beinlínis að þær syst- ur, Ingibjörg og Ingveldur, hefðu haft samtök í Dönskuhúsum um að myrða Gísla, og þess gat hún einnig, að Ingibjörg hafi heitið á fátæka, að Gísli yrði fjarver- andi heimili sínu, svo að hún gæti komist til umboðsmannsins. Virðist augljóst, að náið sam- band hafi verið milli þeirra Pét- urs Vibe og Ingibjargar eftir að hún giftist Gísla, en áður hafði hún átt barn með honum. Frá- sögn Steinunnar virðist vera sönn að öllu leyti, og verður ekki önn- ur ályktun af henni dregin, en að Péttur Vibe hafi átt upptökin að því, að þær systur frömdu þetta hermdarverk. Eftir að rann- sókn málsins komst á rekspöl fór. Pétur Vibe með skyndingu til Bessastaða, að því er virðist, til þess að leita ráða og hjálpar amtmanns i málum þessum, og þaðan fór hann til alþingis. Eftir þing sigldi hann síðan til Dan- merkur, og kom aldrei síðaa tii Islands, og er ókunnugt um feril hans þaðan í frá. Skipun Einars t Frh. á 8. siðu, i ÍSLAND Gotneska goða land! Gullfagra sólarland! Ljóðfræga land! Hetjanna hörgum á heimslistir dafnað fá, lífsspekin fortíð frá frægir vort land. Óðinn úr Hliðskjálf hátt horfir í vesturátt, lítur vort land. Sendir oss sólar yl, sólblæ og hríðarbyl, byltir og breytir til, blessar vort land. Lífsgöfgin helg og há heimilin ljósi strá — menning og mál. Hátt ofar hamra tind heilög skín norræn mynd. Birtist í ljóða lind lifandi sál. Fram gengin frægðar spor flytja þér dáð og þor, metnað og móð. Þátíð, er færist fjær, framtíðin stendur nær, draum-vona dýrðin grær dafnandi þjóð. Al-laufgað lífs þíns tré lykur þín helgu vé, loft, sæ og land. Syngur nú sigur-ljóð, sí-ungt er streymir blóð, endurfædd aldin þjóð — ástkæra land! S. B. Benedictsson.

x

Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/53

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.