Alþýðublaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 30.12.1943, Blaðsíða 6
ALÞÝÐUBLAÐiÐ Fimmíudagur 3i des. 194S Taxli um kaup og kjör á ísfiskflutmngaskipum, svo og skipum, sem eru í vöruflutnsnsum innanlands, sem ekki heyra undir gildandi samninga. I. gr. Frá 1. janúar 1944 skal lágmarkskaup vera á mánuði: 1. Hásetar ............. kr. 426.25 2. Kyndarar ............ kr. 480.50 3. Matsveins ........... kr. 465.00 4. I. vélstjóra ........ kr. 810.00 5. II. vélstjóra........ kr. 607.50 Auk kaups hafa allir skipverjar frítt fæði. Auk hins fasta kaup- gjalds fá skipverjar frá 1. janúar 1944 dýrtíðaruppbót samkvæmt vísi- tölureikningi kauplagsnefndar og breytist uppbótin mánaðarlega eftir peirri dýrtíðarvísitölu, sem birt er í næsta mánuði á undan. 2. gr. Á eimvélaskipum, sem sigla milli landa skulu vera 2 kyndarar og aldrei minna en 4 hásetar. Á mótorvélask:pum séu minnst 9 manha skipshöfn, þar af 4 hásetar. 3. gr. Skipverjar á skipum þeim, sem flytja fisk til útlanda, skulu að lokinni ferð frá útlöndum hafa 24 klst. dvöl í heimahöfn og fá hafnar- frí þann tíma. Nú flytur skip frá útlöndum kol eða aðrar vörur, í lestum eða á dekki, sem tekur lengri tíma en tvo sólarhringa að losa, skulu skipverj- ar þá hafa hafnarfrí þar til affermingu er lokið og lestir hreinsaðar og 'vera undanþegnir næturvarðstöðu fyrstu tvo sólarhringana. 4. gr. Starfi skipverjar þeir er á þilfari vinna að flutningi kola úr fiskirúmi eða af þilfari í kolabox, eða „fyrpláss“ í millilandaferðum, fá þeir 6 krónur á vöku, auk dýrtíðaruppbótar. Sama þóknun greiðist kynd urum fyrir flutning kola úr fiskirúmi eða af þilfari í kolabox eða ,,fyr- pláss.“ Engum einstökum manni er þó skylt að vinna að kolaflutningi lengur en 12 tíma á sólarhring. Sama greiðsla ber hásetum er kynda í ferðum milli landa. Skipverjar þeir, er þessi taxti tekur til, vinni eigi að löndun fiskjar í erlendum höfnum og meðan á styrjöldinni stendur, heldur eigi að borð- þvotti þar. 5. gr. Liggi skip í höfn að aflokinni ferð frá útlöndum eða afloknum fiskveiðum og vinni hásetar eða matsveinar að hreinsun og viðgerð skips- ins, skal þeim greitt tímakaup það er hafnarverkamönnum, þar sem verk- ið er framkvæmt, er greitt á sama tíma. Vélstjórar 25% hærra í dagvinnu- kaup og 50% hærra í eftir- og næturvinnu, enda fæði þeir sig að öllu leyti Vinnutímar í viku séu ékki fleiri en 48 og frí frá hádegi á laugardögum. Vinni hásetar eða matsveinar að botnhreinsun skipa á útgerðartíma- bilinu, skal þeim greitt fyrir það samkvæmt ákvæðum, sem gilda um eftir- vinnukaup hafnarverkamanna á hverjum stað. Nú vinna vélstjórar á skip- inu í samræmi við það sem að ofan greinir, skal þeim þá greitt það kaup, sem vélamenn á togurum fá greitt fyrir sömu störf. Skipverjar hafa að öðru jöfnu forgangsrétt til vinnu við skipin við þau störf, sem áður greinir, þar sem það kemur ekki í bága við lögbundin réttindi iðnaðarmanna. 6. gr. Útgerðarmaður greiði fyrir tjón á fatnaði og munum við sjóslys 100% hærra en nú er ákveðið í gildandi reglugerð, að viðbættri dýrtíðar- uppbót af hvorutveggja. 7. gr. Ef skipverji nýtur ekki fæðis um borð í skipinu, en vinnur ann- ars fyrir mánaðarkaupi, ber honum þá kr. 3.75 á dag í fæðispeninga frá útgerðinni, auk dýrtíðaruppbótar. 8. gr. Liggi skipverji sjúkur í heimahúsum, en ekki í sjúkrahúsi, og útgerðarmaður á að greiða fæði og sjúkrakostnað að lögum, skal útgerð- armaður þá greiða honum í fæðispeninga á dag kr. 3.75, auk dýrtíðarupp- bótar. Krefjist útgerðarmaður eða skipstjóri læknisskoðunar á skipverj- um við lögskráningu, skal hún framkvæmd skipverjum að kostnaðarlausu. Verði hásetar, matsveinar eða kyndarar frá verki sökum veikinda eða slysa, skal útgerðarmaður greiða þeim fullan hlut eða kaup í allt að sjö daga, en allt að 30 daga, ef um stýrimann eða vélstjóra er að ræða. 9. gr. Áhættuþóknun skipverja í utanlandssiglingum skal vera sú sama og felst í samningi, dags. 16. júlí 1941, milli Sjómannafélags Reykja- víkur, Sjómannafélags Hafnarfjarðar og Sjómannafélags Patreksfjarðar annars vegar og Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda hins vegar. Nú er skip í flutningum innanlands á hættusvæði, skal þá greidd áhættuþóknun kr. 450.00 á mánuði umfram það kaup, sem ákveðið er í 1. grein taxtans. 10. gr. Hásetar, matsveinn og vélamenn séu meðlimir viðkomandi fé- laga, eða annarra verkalýðsfélaga innan Alþýðusambands íslands, er veita sömu réttindi, enda tryggi skipstjóri eða útgerðarmaður að svo sé við lög- skráningu í skipsrúm. Útgerðarmaður eða skipstjóri heldur eftir af kaupi eða aflahlut skip- verja upphæð, er nemur ógreiddu iðgjaldi til stéttarfélags hans, ef þess er óskað af félaginu, og afhendir því, þegar þess er krafist. II. gr. Taxti þessi gildir frá 1. janúar 1944 og þar til öðruvísi verður ákveðið. í desember 1943. Sjómannafélag Reykjavíkur. Sjómannafélag Hafnarf jarðar. Verka- lýðsfél. Akraness. Verkam.fél. Þróttur, Sigl., Verkam.fél. Húsavíkur, Verkam.félagið Fram, Seyðisfirði. Verkalýðsfélag Norðfirðinga. Vél- stjórafélagið Gerpir, Norðfirði. Verkalýðsfélag Fáskrúðsfjarðar. Verkalýðs og sjómannafélag Gerða og Miðnesshrepps. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og Sjómannafélag Akureyrar, hvað viðkem- ur kaupi og kjörum á ísfiskflutningum. er gildir um kaup og kjör á öllum mótor- og gufuskipum undir 130 rúmlestir, sem stunda veiöar meö dragnót (Snorrevaad) og botnvörpu og gerö eru út frá félagssvæði undirritaöra félaga: 1. Af heildarafla skipsins (brúttó) greiðist skipverjum 37%, er skipt- ist jafnt milli þeirra er á skipinu vinna. • yyn " i .ii -M.sJ 2. Auk þess, sem greinir í tölulið 1, greiðir útgerðin: til skipstjóra, 1 hlut. til 1. vélstjóra, 14 hlut. til stýrimanns, sem er vanur botnvörpuveiðum, með óvönum skipstjóra, 1 hlut. til stýrimanns, sem ekki er vanur netaxnaður, 14 hlut. til háseta, sem er netamaður, 14 hlut. Nú er stýrimaður ekki fullgildur netamaður og skal þá netamaður fá V2 hlut. til 2. vélamanns kr. 116.00 og dýrtíðaruppbót, á mánuði. til skipstjóra, sem er vanur botnvörpuveiðum, fæðispeninga. til stýrimanns, vönum botnvörpuveiðum, fæðispeninga. til matreiðslumanns, sem vinnur önnur skipsverk, 78 krónur á mánuði, auk dýrtíðaruppbótar miðað við allt að 7 manna áhöfn, en fyrir 9 manna áhöfn kr. 116.00 auk dýrtíðaruppbótar. Sé um stærri skipshöfn að ræða, er skylt að hafa sérstakan matreiðslumann, og hefur hann kr. 116.00 auk dýrtíðaruppbótar á mánuði. Séu aukahlutir lægri en að framan greinir, hækkar hlutur skips- hafnar (sbr. 1. lið) að sama skapi. 3. Skipverjar, sem vinna að útbúnaði skipa í byrjun veiðitíma eða að honum loknum, svo sem hreinsun og málningu skipsbotns, hreinsun og málningu ofan þilja og neðan, umfram daglegar venjur, svo og út- búnaði veiðarfæra, ber útgerðinni að greiða samkvæmt gildandi kaupi verkamanna á hverjum stað. Vélamenn og stýrimenn hafi 25% hærra kaup fyrir umrædda vinnu. Þar, sem kjör við svona vinnu eru betri en að framan greinir, skulu þau haldast óbreytt, eða í öllu falli ekki rýrð. í nætur- og helgidagavinnu greiðist 50% hærra kaup. Fæðispeningar greiðist skipstjóra og stýrimanni vönum á botnvörpuveiðum samkv. reglum sem gilda um fæðispeninga togaraháseta í Reykjavík. 4. Skip, sem siglir til útlanda með eigin afla greiðir skipverjum af brúttó-sölu samkvæmt tölulið 1 og 2. Nú kaupir útgerðarmaður fisk til viðbótar, kemur þá til skipta helmingur af brúttó andvirði þess fiskj- ar. Ef færri menn eru á fiskiveiðum en krafist er til að sigla skiptinu til útlanda, þá greiðist þeim mönnum kaup og áhættuþóknun eftir þeim reglum, sem gilda á flutningaskipum, og greiðist það af óskiptu. 5. Sigli skipið með veiddan afla og keyptan til sölu á erlendum markaði, og verði fyrir töfum í ferðinni af völdum ófriðarins, sjótjóns eða vélabilunar, sem nemur meira en 6 sólarhringum samanlagt í ferð, greiðist skipverjum kaup það, dýrtíðaruppbót og stríðsáhættuþóknun, sem greidd er á sams konar skipum í flutningum með ísvarinn fisk á er- lendan markað, samkvæmt samningum og kauptöxtum stéttarfélags hvers skipverja þann tíma, sem tafirnar tóku samanlagt lengri tíma en 6 sólarhringa. 6. Útgerðarmaður tryggi afla skipsins á sinn kostnað. Ónýtist afli af völdum sjótjóns, skiptist vátryggingarupphæðin á sama hátt og and- virði aflans. 7. Útgerðarmaður tryggir hvern hlut skipverja fyrir hverja 30 daga af ráðningartímanum með kr. 325.00 auk dýrtíðaruppbótar á það, og er það ekki afturkræft. Nú víkur skipverji úr skiprúmi áður en 30 dagar eru liðnir og skal honum þá greiddur hlutfallslegur hluti trygg- ingarinnar. 8. Hásetar, matsveinn og vélamenn séu meðlimir viðkomandi fé- laga, eða annarra verkalýðsfélaga innan Alþýðusambands íslands, er veita sömu réttindi, enda tryggi skipstjóri eða útgerðarmaður að svo sé við lög- skráningu í skipsrúm. Útgerðarmaður eða skipstjóri heldur eftir af kaupi eða aflahlut skip- verja upphæð, er nemur ógreiddu iðgjaldi til stéttarfélags hans, ef þess er óskað af félaginu, og afhendir því, þegar þess er krafist. 9. Taxti þessi gildir frá 1. jan. 1944 og þar til öðruvísi verður ákveðið. í desember 1943. Sjómannafélag Reykjavíkur. Sjómannafélag Hafnarf jarðar. Verka- lýðsfél. Akraness. Verkam.fél. Þróttur, Sigl., Verkam.fél. Húsavíkur, Verkam.félagið Fram, Seyðisfirði. Verkalýðsfélag Norðfirðinga. Vél- stjórafélagið Gerpir, Norðfirði. Verkalýðsfélag Fáskrúðsf jarðar. Verkalýðs og sjómannafélag Gerða og Miðnesshrepps. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur. Sjómannafélag Akureyrar. cssasa 'iSVXSSÍSSœt I gWM!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.