Alþýðublaðið - 30.12.1943, Qupperneq 7
Fimmtudagur 30 des. 1943
ALÞYÐUBLAÐIÐ
íBœrinn í dag. |
Starf iþröttanefsd'
ar rfkisias.
Æskaa og Aigýðu-
flokkurinn.
Næturlæknir í er Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki
ÚTVARPIÐ:
'20.20 Útvarpshljómsveitin leikur
(Þórarinn Guðmundsson
ij stjómar): a) Porleikur að
- óperunni „Zampa“ eftir
í Herold. b) Blysadans eftir
1 Meyerbeer. c) ,Estudiantina‘
vals eftir Waldteufel. d)
Mars eftir Fucik.
20.50 Hljómplötur: Lög leikin á
celló.
21.15 Lestur íslendingasagna (dr.
Einar Ól. Sveinsson háskóla
bókavörður).
21.40 Hljómplötur: Islenz kórlög.
21.50 Fréttir.
ST^AÐ SEGJA HIN BLÖÐEN7
Frh. af 4. síðu.
áfram af sjálfdáðum, svo öll um-
Æerð verður jþess vegna að sveigja
út í £en og foræði, þá verður að
setja ný öfl af stað til að ryðja
veginn.
Eg læt hér staðar numið að
sinni. Ég get búist við því, að
jþeir flokksbræðra minna, sem ekki
þola að heyra Framsóknarflokkinn
nefndan á nafn án þess að um-
hverfast, telji mig hafa unnið mér
til óhelgis með þessum skrifum,
ég sé að svíkja Sjálfstæðisflolckinn
ganga í Framsóknarflokkinn eða
stofna nýjan flokk, o. s. frv.
Þessa og þvílíka sleggjudóma
læt ég mig engu skifta. Ég tel
:stjórnmálaástandið svo alvarlegt,
að ég hika ekki við að benda á
hætturnar, er af því geta leitt og
jafnframt leiðir til úrbóta, þótt
þær séu ekki öllum að skapi.“
Það leynir sér svo sem ekki,
jhvað í aðsígi er. Ekki ætlar Jón
Sigurðsson á Reynistað, að
láta hinn nýja flokk strandi á
sér!
Dömukragar
nýkomnir.
Unnur
(homí Grettisgötu og
Barónsstígs).
VIKUR
HOLSTEINN
EINANGRUNAR-
PLÖTUR
| Fyrirliggjandi.
PfiTVK PÉTDRSSON
Gleislipnn & speglageri)
Sími 1219. Hafnarstræti 7,
j .
Frh. af 2. síðu.
eldri mannvirki hafa verið lag-
færð og endurbætt.
Undirbúningur er hafinn að
byggingu 7 íþróttamannvirkja
auk þeirra, sem fyrr eru talin.
Þar af er ein sundlaug, ein
baðstofa og tveir viðleguskálar
við sundstaði.
Þá hefir í. S. I. og U. M. F. í.
verið úthlutað fé til starfsemi
þeirra
Tveir íþróttakennarar voru af
nefndinni styrktir til framhalds
náms í íþróttafræðum við há-
skóla í Ameríku.
Nefndin hefir leitað til ýmissa
verkfræðinga um sérfræðilega
aðstoð.
Markverðast má nefna á sviði
tækninnar snertandi íþrótta-
mannvirki.
1. Hreinsitæki við sundlaug-
ar smíðuð að fullu hér á landi.
2. Notkun kælivatns og út-
blástursreyks frá aflvélum, til
þess að hita upp sundlaugar.
3. Smíði á baðstofuofnum
bæði rafhituðum og kolahituð-
um.
Síðan samgöngur teptust
við Norðurlönd varð erfitt að
útvega áhöld til íþróttaiðkana.
Nefndin réðst í að smíða leik-
fimishesta, jafnvægisbekki og
fleiri tæki, sem síðan hefir ver-
ið dreift út um landið og íþrótta
sjóður greitt Vs kostnaðarverðs.
Þá hefir nefndin einnig að-
stoðað við útvegun ýmissa ann-
ara tækja. Nefndin hefir í sam-
ráði við húsameistara ríkisins
látið teikna mismundandi sýnis
hornateikningar af íþrótta-
mannvirkjum.
Þá er í skýrslu nefndarinnar
sýnt fram á áhrif íþróttalag-
anna.
T. d. hefir félagatala sam-
bandsíélaga í. S. í. fjölgað úr
115 í 157 og félagatala U. M.
F. í. úr 94 í 151. Héraðssam-
böndum fjölgað úr 8 í 14.
Umferðakennurum fjölgað
hjá í. S. í. úr 2 í 7 og hjá U.
M. F. 1. úr 5 í 11 og starfstími
þeirra til samans lengst úr 23
mán. í 84 mán. Störf hinna ötulu
umferðakennara hafa leitt af
sér auk meiri íþróttaiðkana,
fleiri íþróttamót og samtök um
byggingu íþróttamannvirkja.
Áhrif laganna á skóla hafa
orðið þau að skólaárið 1940—41
vóru börn send til sundnáms
úr 72 skólahverfum af 225 en
1942—43 var sent úr 162 skóla-
hverfum.
Leikfimi var stunduð í um
70 skólahverfum skólaárið
1940-t—41, en 1942—43 var sú
tala komin upp 1 174.
Samskonar aukning er sýnd
varðandi framhaldsskólanna.
1 hinni nýju íþróttanefnd
eiga sæti: Formaður Guðm.
Kr. Guðmundsson skipaður af
Kennslumálaráðuneytinu og
varaformaður Erlingur Pálsson.
Tilnefndir frá í. S. í. eru Krist-
ján Gestsson og sem varamað-
ur hans Ben. G. Waage, U. M.
F. í. tilnefndi Daniel Ágústínus-
'reiau4i$kfars
•1 ' \ jdagSega glænýtt.S 3 ... -T .. J
. .. . 5
son og sem varamann Rann-
veigu Þorsteinsdóttur.
Félagslíí.
Kelviðaihéll.
Skíðaferðir að Kolviðarhóli.
Á Gamlársdag kl. 6 e. h., ef
næg þátttaka fæst.
A Nýjársdag kl. 9 f. h.
Á sunnudag kl. 9 f. h. Lagt
af stað frá Varðarhúsinu.
Farmiðar seldir í Verzl.
Pfaff, Skólavörðustíg á Gaml-
ársdag frá kl. 12—3.
Frh. af 4. síðu.
ið á því, að þær í framtíðnmi
dragist aftur úr þeim.
Það þairf því að auka að mikl-
um mun styrfki til skólabygg-
inga um land allt, jafnframt því
sem aúka þarf að miklum mun
námsstyrki.
Al'lir verða að hafa sama rétt og
sömu skilyrði til skólanáms. Það
má ekk ifara eftir því, hvar
hver eg einn stendur í mann-
félagsstiganum og ekki eftir því,
hvað pyngjan vegur mikið, held
ur eftir gáfum manna og hæfni
þeirra til nárns og til þess að
inna af hendi hin vandasamari
störf innan þjóðfélagsins.
Ég hefi nú hér að framan
getið fárra þeixra sérmála æsku-
lýðsins, sem Aiþýðuflokkurinn
telur að breyta þurifi til betri
vegar. Hins vegar eru mörg
önnur mál, sem ekki er hér get-
ið, og bíða einnig úrla/uSinar.
En til þess að svo megi verða
að iþessi mál fái sem bráðasta
Jausn þurfa áhrif Alþýðuflokks-
ins í þjóðmálum að aukast að
miklum mun.
Það er staðreynd, að sú laga-
lega vernd og öryggi, sem æsk-
an, svo sem aðrir þegnar þjóð-
félgsins, nýtur nú 4 mannrétt-
inda- og menningarmálum, er
'fycrst og fremst verk Alþýðu-
flokksins.
Til iþess að hraða framgangi
þessara sérmála sinna, verður
sú æska, sem byggir þetta land,
að fylkja sér um Alþýðuflokk-
inn.
Leiðin til Róma
borgar.
Frh. af 5. síðu.
þessir réttir vel, en eigi að síð-
ur get ég vel skilið það, að mat-
ur þessi verði leiðigjarn, þegar
hans hefir verið nejdt dag hvern
langa hríð. Þetta var lítið her-
sjúkrahús, sem flutt var til eft-
ir því, sem með þurfti, og hjúkr
unarkonurnar, iæknarnir og
sjúklingarnir bjuggu við sama
kost og hermennirnir á víg-
stöðvunum. Leirgólf sjúkra-
hússins er lítt frábrugðið gólf-
inu í skýlum þeim, þar sem fót-
igönguliðsmeninirmr sofa. Það er
og mannraun mikil að bera hi-na
særðu til herspítalans sem gef-
ur að skilja, þegar fyrir hendi
er lýsing á torfærum þeim, er
við er að etja. Og handan hæð-
arinnar, sem líta gat frá her-
sjúkrabúsinu, gnæfði önnur
hæð, og h-andan hennar enn
önnur mun hærri. Leiðin til
Róm-ar liggur yfir fjöll þessi og
dalina miilum þeirra.
Það er enginn sæld að búa
við kjör hermannanna. Þeir
hafa ekki af þægi-ndum né til-
breytingu í matar-æði að segj-a.
Þeir verða að þreyta fang. við
margþætta erfiðleika. Sömu
sögu er að segja um vinnusveit
irnar, s-em gera hernum auðið
að sækj-a fram yfir vatnsföll og
rofnar samgönguleiðir. Þær
enduriby-ggja brýr þær, sem eyð-i
lagðar hafa verið, þrátt fyrir
stórskotahríð og látlausar loft-
árásir. Þær hjálpa til við endur
reisn hinna brotnu þorpa og
borga Ítalíu. Ég skil betur kjör
þessara manna nú en áður. Ég
er þakkiátur fyrir það tækifæri,
er mér gafst til þess að sækja
þá heim og kynnast af eigin
raun háttum þeirra og högum.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför
HLÍFAR ÞÓRÐARDÓTTUR
Fyrir hönd okkar og annarra aðstandenda
Katrín Pálsdóttir. Ásgeir Kröger.
Við seljum
heimsfræg svissnesk úr af ýmsum
gerðum á aðeins
. 148.00
og við tökum ábyrgð á úrunum.
Jólabazarinn,
Laugavegi 53.
Jólatrésfagnaður
Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur
verður í Iðnó mánudaginn 3. jan. n.k. kl. 4 e. h.
Aðgöngumiðar fást frá klukkan 1 í dag.
Sjá nánar Alþýðublaðið í gær.
Unglingar óskast
strax til að bera blaðið til kaupenda víðs vegar um
bæinn. Talið strax við afgreiðsluna.
Alþýðublaðið, sími
AUGLÝSIÐ I ALÞÝÐUBLAÐINU