Alþýðublaðið - 10.01.1945, Qupperneq 7
ALÞYÐUBLAÐW
:?
Sæmundar Einarssonar
fer fram, frá DómMrkjiuinl fimmtudáginn 11. janúar og hefst með
húskveðju kl. 1 e. h. frá Öldugötu 52.
Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum.
Vegna okkar systkinanna og annarra vandaonanna
Páll Sæmundssom
vantar í Kleppsspítalann.
Upplýsingar hjá yförhjúkrunar-
konunni
í síma 2319.
I Landsspítalann vanfar
konu tál hreingerninga nokkra tíma að kvöld-
inu. Sömuleiðis vantar starfsstúlku. Upplýs-
ingar gefur forstöðúkonan.
lHWkudagur 10. janúar 1045
Bœrinn í dag.
Wæturlæknir er í Lækriayarð-
(Stofunni, sími 5030. ♦
Næturvörður er í Reykjavíkur-
aipóteki.
Næturakstur annast Aðalstöðin
flísoá 1383.
ÚTVARPÍÐ:
®.&® Morgunfréttir.
£2.10—13.00 Hádegisútvarp.
t5.S0—16.00 Miðdegisútvarp.
tS.30 íslenzkukennsla, 2. flokkur
,19.60 ÍÞýzkukermsla, 1. flokkur.
i50.,®6 Kvöldvaka: a) Guðni Jóns
eon magister: Mannbjörg
fyrir Loftstaðasandi 1895;
frásaga. b) Kvæði kvöldvök
unnar. c) 21.10 Sigurður
Skúlason magister; Úr Þús
und og' einni nótt. — Upp
lestur. d) Ámi Óla blaða-
aður: Afdrif Grænlendinga
hinna fornu. — Erindi.
Pél&gskonur
í kvenfélaginu Hrmgurinn eru
aninntar á fimd í félaginu, sem
verður í kvöld kl. 8.30 í Félags-
heimili verzlunarmanna, Vonar-
atræti.
Fermingarbörn í Hallgrímssókn.
Fermingarbörn sr. Jakobs Jóns-
jonar eru beðin að koma ti.1 við-
lals í Austurbæjarbarnaskólanum
á morgun kl. 5 e. h. Fermingar-
bðm sr. Sigurjóns Arnasonar eru
Ibeðin að koma á föstudaginn kl.
S e. h. á sama stað. (Hallgríms-
fermingarbörn ganga til spuminga
ásamt hinum.)
Nesprestakall.
Vegna þess að ekkert húsnæði
fæst í sókninni eins og stendur,
verða barnaspurningar ekki aug-
lýstar fyrr en eftir næstu helgi.
Fermingarbörn í Laugamespresta
kalli,
bæði þau, sem eiga að fermast
í vor og næsta haust, eru beðin
að koma til viðtals í Laugames-
Jkirkju (austurdyr) föstudaginn
mæstkomandi kl. 5 e. h.
Fermingarbörn dómkirkjuprest-
anna
komi til viðtals í dómkirkjuna
i þessari viku sem hér segir: Til sr.
Friðriks Hallgrínussonar fimmtu-
dag og til sr. Bjarna Jónssonar
föstudag, báða dagana kl. 5 síð-
degis. Bömin eiga öll að koma,
sem ferma á á þessu ári, hvort
heldur er að vori eða hausti.
Fermiugarbörn
séra Árna Sigurðssonar em beð
in að koma til viðtals í fríkirkjuna
föstudaginn 12. þ. m. kl. 5 s. d.
Félagslíf.
'i~\
Aðalfundur skíðadeildarinn-
<ar verður haldinn í Kaupþings-
salnum á föstudaginn og hefst
KL 9.
Fjölmennið.
í DAG:
©—7 Fimleikar (telpur)
7— 8 Fimleikar (drengir)
8— 9 Fimleikar 1. fl. (karlar)
9— 9.45 Glíma
9.45—10.30 Knattspyma.
Mætið olL
t Frh. af 2. síðu.
afsson og Þorleifur Jónssori.
í gærkveldi hafði bæjarstjórn
in boð í Ráðhúsinu. Var ollum
sem starfað hafa að byggingu
Ráðhússins boðið á fyrstu kvik-
myndasýninguna í Bæjarbíóinu
en í kvöld er öllum Hafnfirð-
ingum boðið á kvikmyndasýn-
ingar í húsinu. Er þetta ágæt
tilhugsun og sannarlega lofsverð
því að allir bæjarbúar eiga
að njóta ágóðans sem verður ,af
rekstri þess.
f gær bauð bæjarstjórinn og
bæjarstjórnin blaðamönnum að
skoða Ráðhúsið. Skal það sagt í
fáum orðum að það er ákaflega
vandað og fagurt utan og.inn-
an. Er kvikmyndasalurinn sá
fegursti sem þekkist hér á landi
og margt í útbúnaði hans betra
en við þekkjum áður. Þama fær
og hið unga Leákfélag Hafnar-
fjarðar húsnæði og ætlar það
að hefja starfsemi sína í hús-
inu með sýningu á Kinnalivols
systmm um miðjan þennan
mánuð.
Bæjarstjórinn leiddi blaða^
mennina um húsið og fer hér’
á eftir lýsing á því;
Teikningar af húsinu gerði
Sigmundur Halldórsson, arki-
tekt. Voru þær samþykktar af
byggingamefnd 5. júní 1942 og
bygging hússins hafin þá þegar.
Grunnflötur hússins er 597
fermetrar. Á 282 fermetrum af
grunnfletinum eru byggðar
tvær hæðir, ásamt risi með
kvisti í suðurhlið. Rúmmál húss
ins er 4600 teningsmefrar.
Á neðri hæð þess er kvik-
mynda- og leiksýningarsalur
með tilheyrandi forsal, anddyri,
fatageymslu og hreinlætásklef-
um. Ennfremur eru tvö búnings
herbergi ásamt hreinlætistækj
um við hliðina á leiksviðinu.
Kvikmyndahúsið allt er 32 ¥2
m. af lengd. í því eru 325 sæti.
Kvikmyndasalurinn er 22 m. að
lengd að meðtöldu leiksviði.
Hann er breiðari að aftan, en
mjókkar að leiksviði. Meðal-
breidd hans er 12 m. Stærð leik
sviðs er um 60 fermetrar. For-
salur er um 60 fermetrar.
Kvikmyndasalurinn, ásamt
forsal, anddyri og fatageymslu,
er hitaður upp með nýtízku loft
hitunartækjum og eru loft-
hreinsunartæki í sambandi við
þau, þannig að hægt er að
tempra hitann og raka loftsins.
Sparisjóður Hafnarfjarðar
hefir einnig rúmgóð húsakynni
á neðri hæð hússins í austur-
enda þess.
Á efri hæð eru skrifstofur
bæjarins. Er þar stór afgreiðslu
salur, bæjarstjórnarherbergi,
bókaraherbergi og herbergi
framfærslufulltrúa. Þar er og
herbergi fyrir nefndarfundi. Á
þessari hæð eru einnig skrifstof
ur sjúkrasamlagsins svo og
fundarsalur bæjarstjórnar með
sætum fyrir 64 áheyrendur.
í þakhæðinni eru hafnarskrif
stofa, og skrifstofa skattstjór-
ans. Þar er eininág fundarsalur
um 63 fermetrar að stærð fvrir
ýmsa félagsstarfsemi og æfing
ar Leikfélags Hafnarf jarðar auk
ýmissa smærri herbergja.
Byggingarmeistari hússins
var Tryggvi Stefánsson, tré-
smíðameistari. Múrarameisarar
voru Friðfinnur Stefánsson og
Ingólfur Stefánsson. Járnateikn
1 ingar gerði Magnús Konráðsson
verkfræðingur. Terraso á ganga
og stiga lagði Ingólfur Waage.
Uppsetningu á hitunarkerfi og
hreinlæbistækjum annaðist
Bror Westerlund. Raflagna
teikningu gerði Valgarð Thor-
oddsen, rafveitustjóri, en raf-
virkjameistari var Enok Helga
son, Málarameistarar voru
Björn Bjarnason, Kristinn
Magnússon og Ásgeir Einars-
son. Skreytingu og litaval í for
salrium önnuðust þeir Ásgeir
JÚlíusson og Atli Már, og eru
myndir þeirxa listavel gerðar.
Dúkalagningameistari var Vict
or Helgasoai.
í bæjarskráfstofunum og
fundarsal bæjarstjórnar svo og
í Sparisjóði Hafnarfjarðar eru
ný *húsgögn, sem smíðuð eru
hjá h. f. Dverg í Hafnarfirði eft
ir ‘ teikningum Sigmundar Hall
dórssonar, arkitekts og Skarp-
héðins Jóhannessonar, ‘hús-
gágnaárkitekts. H. f. Dvergur
hefir einnig annast smíði á hurð
um, gluggum og öðrum hús-
búnaði.
Westem Electric tal- og kvik
myndatæki, miðstöðvar og loft
hitunartæki eru keypt frá Banda
ríkjunum fvrir milligöngu Guð
mundar Sigmundssonar. Upp-
setningu tal- og kvikmynda-
tækja annaðist Ríkharður Sig
mundsson, rafvárkjametistri í
raftækjaverzluninni „Ekko“.
Stólar í kvikmyndasal og fund
arsal bæjarstjórnar eru keyptir
frá Bandaríkjunum. Ljósaút-
búnaður fyrir leiksýningar er
ekki fullgerður ennþá, en Hall
grímur Bachmann, ljósameist-
ari ræður fyrirkomulagi og sér
um uppsetningu hans.
Um byggingarkostnað er
ekki vitað til fulls ennþá, en
hann verður um 1,3 milljón
króna og er þá meðtalið and-
virði véla, hú&gagna og alls inn
bús og er byggingin skuldlaus
eign bæjarsjóðs.
Framkvæmdarstjóri kvik-
myndahússins verður Helgi
Jónsson. Nafn þess hefir verið
ákveðið Bæjarbíó.
Skrifstofur bæjarins, spari-
sjóðurinn og sjúkrasamlagið
fluttu í húsið í okt. s. 1. haust.
Hafnfirðingar geta sannar-
lega verið stoltir af Ráðhúsi
sínu. Það sýnir framtak, fyrir
hyggju og bjartsýni. Það er
bæjarfélagi þeirra til mikils
sóma — og þeir standa í þakk
lætisskuld við alla þá sem hafa
starfað að þv,í að koma þessari
glæsilegu byggingu upp.
Ramuókn á efni
Frh. af 2. síðu.
lögu um rannsóknir á efni til
bygginga og annarra verklegra
framkvæmda:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að hefja nú þeg-
ar undirbúning þess, að hið ■
fyrsta geti hér á landi farið
fram fullnægjandi rannsóknir
á efni, innlendu og erlendu,
sem ætlað er til bygginga, vega
gerða, hafnarmannvirkja og
annarra slíkra verklegra fram-
kvæmda. Við undirbúning máls
ins skal þess sérstaklega gætt,
ef þurfa þykir, að nú þegar sé
stuðlað að þvi, að hæfir menn
afli sér menntunar til þessara
starfa, og íhugað hvort hentara
rnuni, að slikar rannsóknir séu
gerðar. í sérstakri stofnun eða
4 atvinnudeild háskólans.“
—
Það skal tekið fram
í sambandi við frásögnina í
blaðinu í gær, um ibrottför séra
Bigurbjörns Binarissonar dósents,
frá Hallgrímssöfnuði, að þar Iáð-
ist að geta ]>ess, að söngkór safn-
aðarins og meðhjálparinn færðu
prestshjónunum að gjöf forkunn-
arfagran borðlampa, útskorinn í
svanslíki.
Hjónaband.
Nýlega voru .gefin saman í
hjónaband ungfrú Steinþóra Níels
dóttir og’ Hannjes Guðmundsson.
Heimili þrúðhjónanna er á Reykjá
cíkurvegi 7, Hafnarfirði.
Fáorð minning um
Stefán Stefánsson
leiðsögumann
FYRIR skömmu síðan and-
• aðist á sjúkrahúsi Hvíta-
bandsins Stef án Stef ánsson r
■leiðsögumaðuý, sextíu og sex
ára að aldri, eða Stefán túlk-
ur eins og hann var almennt
nefndur af kunningjum sínum.
Með honum er genginn góður
drengur og gegn. Ég var svo
lánssamur að kynnast honum
fyrir nokkrum árum, og er mér
minning hans kær. Hann var
lengi búinn að vera heilsuveill
en með óbilandi dug bar 'hann
mótlæti sitt til leiðarloka, enda
var allt vol og víl honum
fjarri skapi, og hnaut honum
jafnan hnittileg kímni af vör-
um í veikindum sínum. Til
marks um léttleika hans og
hispursleysi kemur mér í hug I
að í fyrravetur er ég mætti hon |
um á förriúm vegi, og við tók-
um tal saman, hafði ég ekki |
séð hann þá um nokkurn tíma
og innti hann eftir heilsufarinu.
O, mimistu ekki á það, ég er
sjúklingur, segir Stefán sál. En
þú hefir þó einhverja von um
bata, er það ekki? Jú, það hefi
ég, svarar Stefán sál„ í bálstof
unni.
í mörg ár var Stefán leið-
sögumaður erlendra ferða-
manna, og eru þær ótaldar
ferðirnar er hann fór um land
ið í fylgd með útlendingum, og
er mér kunnugt um að í, því
starfi ávann hann sér einróma
vinsældir, og það svo að marg
ir af hinum erlendu gestum
mátu hann mikils eftir þá við-
kynningu. Hann vax og sem að
líkum lætur fróður um landið
og sögu þjóðarinnar, og varð það
honum að ómetanlegu liði í hinu
vandasama starfi hans. Þá rit-
aði hann og bók á ensku fyrir
ferðamenn og einnig grejnar
um ýms efni, t.d. í Árbók Ferða
félagsin o. fl. Persónuleiki Stef
áns var fágætux og mörgum
kostum búinn, manna skemmti
legastur var hann í tali og fróð
ur um margt.
í gær var haldin kveðjuat-
höfn yfir líki hans, en að
henni aflokinni var kista hans
flutt á skipsfjöl áleiðis til Bret
lands til bálfarar þar.
Vertu sæll, og sofðu rótt,
senn er liðinn dagur,
til betri heima fórstu fljótt
friður var þér hagur.
Báturinn nú ber þig skjótt
burt á stóra — hafið.
Mun ég nefna nafn þitt hljótt,
nafnið, Ijóma vafið.
Stefán Rafn.
Leiðrétting.
Síðasta vísuorðið í afmæliskvæði
Erlings Pálssonar til Jóseps Hún-
fjörð í blaðinu í gær hefir mis-
prenitast. Þar stendur: ,,sveipist
Ijúfum frið“, en átti að standa:
„sveipi ljúfum frið.“
Leiðrétting.
Nokkrar prentvillur hafa slæðst
inn í grein Sæmundar Ólafssonar
um Alþýðusambandsþingið í blað
inu í gaár. Þar stendur „þinglok
(Alþýðusambandsþiijjgsins) þann
19. nóv.“, en á eftir ,,þinglok“
átti ;að vera púnktur, og ,,þann
19. nóv.“ upphaf næstu setningar:
„Þann Í9. nóv., tveimur dögum
fyrir sambandsþing“, o. s. frv. Á
öðrum stað átti að standa um
Verkalýðsfélag Dyrhólahrepps:
„Um Verkalýðsfélag Dyrhóla-
hrepps veður Jón Rafnsson elg-
inn lengi og leiðinlega, og hrúgar
upp hinum fárránlegustu fjarstæð
um og rökvillum“ o. s. frv.
Smurf braut
: ’ þ 570.
Betra að pant: iega.
Steintmn Valde - <tir.