Alþýðublaðið - 03.08.1945, Page 4

Alþýðublaðið - 03.08.1945, Page 4
4 AUÞYÐUBUtÐIÐ Föstudagnr 3. ágúst 1945 ÍTtgefandi: Alþýðuflokknrinn Bitstjóri: Stefán Pétursson. Simar: Ritstjórn: 4901 og 4902 Afgreiðsla: 4900 og 4906 Aðsetur í Alþýðuhiisinu við Hverf- isgötu. Verð í lausasölu: 40 aurar Alþýðuprentsnúðjan. Brezku kðsiiingamar o| ifepsiiall MORGUNBLAÐIÐ gerir í gær brezku kosningarnar og skrif íslenzkra blaða í tilefni 'þeirra enn einu sinni að um- ræðuefni i forustugrei.n. Hefir Morgunblaðinu bersýnilega fund izt hlutur sinn lítill í þessum umræðum og leitast nú við að rétta hann, þótt mjög sé sú tili raun af vanefnum gerð. Morgunblaðið þykist hafa það að gamanmáli' að Alþýðubiaðið ‘ hafi. birt fréttir af kosningasigr um Allþýðuf lokka __ annarra landa, svo sem í Ástralíu og Svíþjóð og nú á Bretlandi, og túlkað þessi tíðindi sem mikil- væga sigra jafnaðarstefnunnar og lýðræðisins í heiminum. Gef- ur það í skyn, að Alþýðublað- ið hafi dregið Sfram verðleika sína í samibandi við kosninga- úrslátin á Bretlandi, en fyllzt heilagri hneykslan yfir ótryggð Morgunblaðsins í garð íhalds- flokksins brezka. Skriffinnum Morgunblaðsins virðist vera ógerlegt að ræða mál af rökum og skynsemi, eins og bezt sést á þessum ummæl- um þess. Alþýðublaðinu hefir auðvitað aldrei komið til hug- ar að hálda því fram, að samúð þess.og viiisemd í garð jafnaðar manna á Bretlandi hafi ráðið úrsldtum i kosningabaráttunni þar í landi, enda myndu and- lega heilbrigðir menn ekki Ohalda fram slíkri fjarstæðu. En Morgunblaðið gaf hins vegar í skyn, þegar úrslii brezku kosn inganna voru orðin heyrin kunn, að ástæðan fyrir því, að brezki íhaMsflokkurinn hefði beðið ósigur í kosningunum, hefði verið sú, að hann hefði. ekki borið gæfu til þess að taka upp sömu eða svipaða 'baráttu og 5j áXfstæðisf lokkurinn hér og géra máLstað Morgunblaðs- ins að sínum málstað. Auk þess greip það til þess ráðs, að reyna að hnekkja andstöðu flokki sínum hér á landi með þvi að spá þvíí, að hlutskipti brezka íhaMsflokksins myndi verða hlutskipti Ffamsóknar- flokksins hér við komandi kosningar. Að þessu hafa menn hent góðlátlegt gaman að von- um og undrazt afneitun Morg- unblaðsins á brezka fhaMs- flokknum, sem það hefur áður lofsungið og spáð sigri undir forústu Churchills, svo og það, að Morgunblaðið skyldi bíða með að flytja þjóðinni þá vit- neskju sína, að brezki íhalds- flokkurinn myndi. bíða lægra hlut, þar til eftir að kosninga- úrslitin höfðu verið alheimi birt. En skyldi Morgunblaðið hafa afneitað brezka íhaldsflokknum og Mkt honum við Framsókn- arflokkinn hér, ef Churchiill hefði unnið sigur í kosningun- um? Og myndi það þá hafa far- ið slíkum viðurkenningarorðum Framh. á 6. sfða, Togarasjámaður: ♦ SJÓMANNA OG VERKA LÝÐSFÉLÖGIN VIÐ FAXAFLÓA, og viðar um land, hafa fengið allverulegar kjara- bætur á sildveiðum fyrir félags menn sina með hinum nýju samningum félaganna við út- gerðarmenn, sem undirritaðir voru um mánaðamóíin júní og júlí s. 1. Merkasta ákvæði samning- anna er, tvímælálaust, kaup- tryggingin í þeirri mynd, sem hún er samkvæmt samningun- um. Að vísu var kaupírygging , arákvæði í fyrri samningum Sjómannafélags Reykjavíkur, en það var orðið úrelt, vegna breyttra aðstæðna. Samninga- ‘ gerð þessi er að ýmsu leyti at hyglisverð, því i sambandi við hana gerðust þau áður áþekktu fyrirbri.gði, að stjórn Alþýðu- sambándsins gerði tilraun til þess, að ná samningsréttinum og meðférð samnihganna af jijó manna- og verkalýðsfélögun- við Faxaflóa, og þegar það tókst ekki, þá höfðu starfsmenn sam bandsins i frammi athæfi., í sem bandi við undirbúning miálsins, sem virtist eingöngu miða að því, að koma tvískinnungi. inn í málið, og rugla sjómennina í . deilunni. . Einn maður úr miðstjórn Al- þýðusambandsins varð frægur á, svipstundu fyrir framkomu sína í samningagerðinni.. Þessi maður er Kristján Eyfjörð, for maður Sjómannafélags Hafnar- fjarðar. S jómannafélag Haf narfj ar ð- ar er bpndið til þess af lögum sínum, að hafa samflot við Sjó mannafélag Reykjavíkur i samningum. Það er eðlilegt og nauðsynlegt, að þetta samstarf félaganna sé náið og rækt af fullri alúð af beggja hálfu, enda hefur það ávalt verið svo að undanförnu, og hefur aldrei bor i.ð þar minnsta skugga á, þar til hin „nýja forust.a“ Kristjáns komst til valda í Hafnarfjarðar félaginu. Þegar lokið var að ganga frá kröfum félaganna, héldu stjórn ir Sjómannafélags Reykjavíkur og Sjómannafélags Hafnarfjarð ' ar sameiginlegan fund um kröf urnar og undirbúning samning anna. Á þeim fundi. lýsti K. E. sig 100% samþykkan kröfun- um, eins og þær lágu fyrir. All ir aðrir úr stjórnum beggja fé- -laganna guldu kröfunum jáyrði. Samhugur og eining virtist því vera tryggð frá öndverðu um undirbúning og meðferð -samn- inganna hjá ö'llum forustumönn um félaganna beggja, og ekki dró það úr ánægju manna með samningaundirbúninginn, að öll önnur verkalýðs- og sjó- mannafélög við Faxaflóa, að einu undanskildu, óskuðu þess eindregið, að vera aðilar að samningaundirbúningnum og væntanlegum samningum við útgerðarmenn. Forustumenn þessara félaga töldu kröfur sjómannafélag- anna ágætan samningsgrund- völl, og voru þeim samþykk- ír í einu og öllu. „En Adam var ekki lengi í paradís“. Þegar samningsuppkast sjómannafé- láganna hafði verið lagt fyrir útgerðarmenn og við þá rætt ýtarlega um málið, og deilan af hent sáttasemjara, gerði, Al- þýðusambandið krötfur til þess, að fara með samningana í stað félagannai sem í samningun- um stóðu. Starfsmenn sambands ins ,lögðu þá fram yfirborðs- kröfur í þeim tilgangi, að því er virðist, að koma inn hjá sjó- mönnum óánægju með gerðir stjórná féiaganna, og á þann hátt veikja aðstöðu Sjó- mannafélags Reykjavíkur, sem hafði forustu í deilunni. Hina veiktu aðstöðu og afleiðingarn ar af henni — mislukkaða samn inga, —- ’ ætluðu Alþýðusam- samba.ndskommúnistarnir svo sjáaniega að nota til pólifísks áróðurs á hendur Sjómanna- félagi Reykjavíkur og stjórn þess. Félögin, sem bundizt höfðu samtökum um samningana, sáu þegar, hver hætta steðjaði að samtökum sjómanna af þessu dæmalausa brölli Alþýðusam- bandskommúnistanna. Forustu mennirnir létu þvi yfirboðs kröfur og bakferli þeirra.Her- manns Guðmundssonar og Jóns Rafnssonar afskiptalaust og héldu áfram samni.ngaumleitun um við útgerðamenn, allir nema einn — ,,hin nýja for- usta“, formaður Sjómannafé- lags Hafnarfjarðar, Kristjan Eyfjörð, sem skarst úr leik og hætti -að taka þátt í samninga- uimleitunum fyrir hönd féliags s'íns. Kristjan Eyfjörð er „sam-, bandsstjórnarmaður". Hann er ein af varaskeifunum, sem Þór- oddur Guðmundsson greip til á síðasta Alþýðusambandsþingi, þegar Þórarinn Guðmundsson neitaði að sitja í sambandsstjórn undir forsæti nazista, eins og allir frelsisunnandi menn gerðu. Margur mundi í sporum Kristjáns ekki taka umboð sitt í sambandsstjórn mjög alvar- lega. Honum eins og öllum öðr um hlýtur að vera það ljóst að i saimbandsstjórn. er hann póli- tísk varaskeifa kommúnista en ekki fulltrúi verkalýðsins. í stjórn SjómannaféLags Hafn arfjarðar var Kristján kosinn með yfirgnæfandi meirihuta; ber honum þvi skýlaus skylda til að fylgjast með málum fé- lagsins, án allra undanbragða. Enda virtist svo í fyrstu, að Kristján ætlaði að ganga áf heilum hug ti'l samstarfs við imeðstjórnendur sina í stjórn Sjómannafélags Hafnarfjarðar, og aðra forustumenn sjómann- anna. En þegar Kommúnistaflokk- urinn kallaði, vílaði hann ekki fyrir sér að hLaupa frá skyldu- og trúnaðarstörfum, sem félag hans hafði falið honum, til þess að taka þált í óhugnanlegum pólitískum skollaleik, sem var stórhættu’legur lífsafkomu og. málstað umbjóðenda- hans. Með stjórnendur Kristjáns Eyfjörð horfðu með undrun og hryll- ingi á aðferðir formanns síns, en létu sér þó í léttu rúmi liggja glópsku hans, og héldu samningaumlei.tunum áfram með fullri festu og rufu á eng- an hátt samstarfið við bræðra- félögin. Þegar svo samningar tókust, skrifuðu allir úr stjórn S j ómannaf élags Baf narf j ar ðar undir 'þá, að formanninum, Kristjáni Eyfjörð, undantekn- um. Fordæmi. Kristjáns Eyfjörð er 'lærdómsríkt. Það sýnir verkalýðnum það svart á hvitu, ennþá einu sinni, að kommún- istar eru óhætfir til að stjórna verkalýðsfélögum; því þó að þeir háfi til þess einhverja getu, sem- þá þó flesta brestur, þá verða þeir að setja hagsmuni Kommúnista'flokksins framar öLlu örðu, og jafnvel eins og Kristján Éyfjörð verða þeir að vdnná á móli hagsmunum síns eigin félags, þegar þess er af þeim krafizt. Hagsmunir Komm únistaflokksins og ver'kalýðs- ins fara aldrei saman, þess vegna er það stórhættulegt, að fá kommúnistum eins ög Krist- jáni Eyfjörð í hendur vald í verkalýðshreyfingunni. Félagar, við skulum láta dæmi Kristjáns Eyfjörð úr síð- ustu samningum verða okkur til’ varnaðar, og skila Komm- únistaflokknum honum aftur með þakklæti fyrir lánið, og það, að Kristjáni tókst að opna augu okkar ennþá belur en orð ið var fyri.r þeirri hættu, sem verkalýðsnum slarfar af hinni pólitísku undirráðursstarfsemi, sem forusta Kommúnistaflokks ins rekur í verkalýðshreyfing- unni og notar menn eins og Kristján Eyfjörð til að koma í verk. Síldarsamningarnir tókust vel, þrátt fyrir brotthlaup K. E. frá okkur félögum hans, og þrátt fyrir undirróðursstarfs-. semi Alþýðusamlbandskomm- únistanna. Að svo vel tókst til, eigum við að þafcka órjúfandi samhéldni. okkur og ágætri for ustu forustumanna okkar, þó ekki beri að telja K. E. í þeim hópi. Kommúnistar hafa rekið íburðarmikla áróðursstarfs- semi fyrir Kristjáni Eyfjörð. Þeir hafa kallað hann hi.na „nýja forustu“ og ýmsum öðr- Auglýsingar, sem birtast eiga í Aiþýðublaðinu,' verða að vera komnar til Auglýs- ingaskrifstofunnar í Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu, fyrlr kl- 7 að kvöldl Sími 4906 um gælunöfnum. Þeir, sem þekkja ,,nýsköpun“ kommún- ista í verkalýðshreyfingunni og hina „nýju forustu”, búast jafia an við hinum fráleitustu hlut- um af þeirra hálfu, en að jafn ósjálfstætt smlámenni, og K.E. reyndist vera í síðiistu kaup- deilu, skuli hafa hafizt til valda í verkalýðshreyfingunni, hefur fáá órað fyrir. Kristján Eyfjörð brást því trausti, sem við félagar hans höfðum til 'hans borið, og að það kom ekki. að sök, ber að þakka , mgnndómi og stefnu festu hinpa stjórnarimannanna úr stjórn Sjómannafélags Hafn arfjarðar, þeim Borgþóri Sig- fússyni, varaformanni félags- ins, Pétri Óskarssyni, Pálma Jónssyni og Ingimundi Hjörleifs syni. Kristján Eyfjörð hefur fengið eldskírnina sem forustú maður hafnfirzkra sjómanna, Hann stóðst ekfci rauriina og hopaði. af hólmi, þegar mest á reið, og skreið undir pilsfald Moskvavald.sins; þar ætti hann> að fá að hvila í friði i framtíð- inni, óáreittur af íslenzkum sjó mönnum. Málstað sjómannanna er sjáanlega betur borgið í hön<i um annara manna en Kristjáns Eyfjörð, og munum við í fram- tiðiinni. haga okkur samkvæmt því. TOGARASJÖMAÐUR VÍSIR flytur í gær forustu- grein um verðbólguna og dýrtíðina, þar sem hann segir svo ‘meðal annars: „Enginn fordæmir hóflega bjart sýni, sem og að ráðizt verði í margs konar framkvæmdir, sem þjóðinni eru nauðsynlegar. Það verður að kaupa og láta byggja ný skip og skipaviðgerðarstöðvar hér á landi. Útvegurinn er undir- staðan undir þjóðarbúskapinn í heild, og því ber nauðsyn, til að hann verði efldur eftir frekustu getu, og jafrrframt verði séð fyr- ir viðhaldsþörfum hans hér heima fyrir og ef til vill endurnýjiun hans að verulegu leyti síðar. Margs konar vélar þarf að fá himgað til lands til þess að auka á afköstin og jafnvel gerbreyta ýmsum bún- aðariháttum, innlendan iðnað þarf að efla stórlega, og' þá fyrst og fremst þann, sem miðar að því að gera útflutningsvörur þjóðar- innar verðmætari og eykur þann- ig heildartekjiur þjóðarbúsins. Allt eru þetta framfaramál, sem jafnt gildi hafa á tímum friðar og ófrið ar og valöa alls engum ágrein- ingi.“ Og enn segir svo í þessari grein Vísis: „Sökum aukinnar fjárveltu vilja ýmsir velta sér árfram í henni, alveg án tillits til að fjárveltan er bein afleiðing af verð’bólgu í land- inu, sem hlýtur að hjaðná fyrr en varir. V.erðbólgan dregur úr kaup- mætti krónunnar, skapar að visu blómliegt atvinnulíf meðan er- lendi m.arkaðurinn er hagstæður, en heldur ekki lengur. Strax og erlendi markaðuririn lækkar, dreg ur að hallarekstri, en markaðiur- inn lækkar um leið ag hlutaðeig- andi þjóðir geta að verulegu leyti orðið sjálfum sér nógar um fram- leiðslu, eða ef aðrar þjóðir sjá þeim fyrir ódýrari birgðum, vegna lægra framleiðslukosthaðar. Hvort tveggja þetta er íramundan, en af því leiðdr að við eigum í tíma að gera okkur grein fyrir þessu og ; leitast við af fremsta megni aS Oækka dýrtíðina, þannig að lík- indi séu til að við fáum staðizt samkieppni, er að henni rekur.“ Það er vissujiega fiagnaðar- efni ,að Vísir skuli ekki skipa sér í þeirra sveit, sem fordæina og forsmá hina fyrirhuguðu ný sköpun atvinnuveganna. Og víst er það hverju orði sann- ,ara hjá Visi, að leggja beri á það mikla áherzlu, að sigrast á dýrtíðinni og verðbólgunni, en ef það á að takast' verður a® taka dýrtíðarmálin öðrum tök~ um en húsbóndi V'ísis, Bjöna Ólatfsson, gerði meðan hann sat á ráðherrastóli.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.