Alþýðublaðið - 08.02.1946, Page 6

Alþýðublaðið - 08.02.1946, Page 6
Föstúdagur, 8. febrúar 1946. Þessi tvö hafa oft sézt hér á kvikmyndum í ýmislegu gerfi. En hér eru þessir kvikmyndaleikarar, þau Tyrone Power og Anna- bella, ekki að leika sér, Hér er Annabella að fagna manni sínum Tyrone, sem nýkominn er úr herþjónustu. Myndin var tekin' í Portland í Oregon-ríki í Bandaríkjunum. Ififp frá prestum Refklfíkarj I tilefni fjársöfn&inar f$au$a kr&ss Íslands. ----------♦_------— VEGNA HINNA hörmulegu fregna, sem borist hafa und- anfarnar vikur um það, að víða í Mið-Evrópulöndun- um skorti fólk nú brýnustu lífsnauðsynjar og að sérstak- lega börnunum sé af þessum sökum mikil hœtta búin, hefur biskupinn fyrir nokkru snúið sér til Hjálparstofnunar hinna, evangelisku lútersku kirkna með fyrirspurnum um, hvort unnt mundi að koma matvælum og fatnaði frá íslandi til þessara landa. Hafa honum þann 4. og 5. þ. m. borist svarskeyti, þess efnis, að Hjálparstofnuninni hafi nú tekist með hjálp Banda- ríkjanna, að tryggja flutninga um Danmörku á meðalalýsi til þýzkra og pólskra barna og mun hin fyrsta lýsissending fara héðan áleiðis til barna í Þýzkalandi næstu daga, en fé til þeirra lýsiskaupa er.safnað af sérstakri riefnd hér í höf- uðstaðnum undanfarnar vikur. í gær hefir Bauði kross íslands beitt sér fyrir almennri fjársöfnun til nauðstaddra barna í Mið-Evrópulöndunum. Mun fé því er safnast, verða skipt jafnt milli þeirra landa, er söfnunin nær til, en jafnframt telur Bauði kross íslands sér skylt og Ijúft að greiða fyrir því, að hverskonar hjálp, sem leitast er við að veita nauðstöddu fólki í hverju þessara landa sem er, komist til hlutaðeigandi aðila, ef kostur er. Vér undirritaðir prestar í Beykjavík fögnum þessari fjársöfnun og tökum fram, að vér viljum styðja söfnunina eftir mætti um leið og vér skorum á almenning, að bregðast nú vel og drengilega við til hjálpar þessum líknarþurfa börn- um. Er ess ljúft að taka við hverskonar gjöfum í þessu skyni, svó og mun biskupsskrifstofan á Öldugötu 14 fúslega taka á móti framlögum til þessa málefnis, og er hún opin alla virka daga frá kl. 10—5, nema laugardaga. Reykjavík, 5 febrúar 1946 Sigurgeir Sigurðsson. Bjarni Jónsson, ' Jón Auðuns. Árni Sigurðsson, Jón Thorarensen, Garðar Svavarsson, Sigurbjörn Á. Gíslason, Sigurjón Þ. Árnason, Jakob Jónsson, F. Hallgrímsson Ásmundur Guðmundsson. Milljónir munaðar- lausra barn í Póllandi VIÐVÍKJANDI fjársöfnun þeirri, sem Bauði kross ís- lands hefir hafið til handa hungrandi börnum í Mið-Ev- rópu, hefir Lúðvíg Guðmunds- son skólastjóri sent blaðinu til birtingar útdrátt úr skýrslum sem hingað hafa borizt viðvíkj- andi ástandinu í þessum lönd- um. Talið er að í Póllandi séu nú um 400.000 börn, sem á ófriðar- árunum hafa misst bæði föður sinn og móður. Auk þess um 700.000, sem misst hafa annað foreldra sinna. Reynt hefur verið að koma hinum munaðar- lausu börnum fyrir á uppeldis- heimilum og hælum, eða á heimilum ættingja þeirra, ef á lífi eru, eða hjá vandalausum. En þótt miklu hafi þegar orðið ágengt í þessu efni, er enn mik- ill fjöldi barna, sem bókstaf- lega á hvergi höfði sínu að að halla, en er á hrakningi og ver- gangi um sveitir landsins eða hefst við í skúmaskotum stór- borganna, einkum þó í höfuð- borginni. Fyrir stríð var íbúatala Var- sjár 1.500.000, en sl. haust bjuggu þar um 600.000 manns. Mikill hluti borgarinnar eru þó rústir einar og eru húsnæðis- málin því í hinu mesta öng- þveiti. Talið er, að enn séu nál. 100.000 Tík grafin þar undir húsarústunum, en það hefur aftur valdið miklum rottufar- aldri í borginni. í Varsjá verður mikill hluti íbúanna að hafast við í ónot- hæfum húsakynnum, flestir í kjöllurum brunninna eða hrun- inna húsa. Af 150.000 börnum í Póllandi, sem talið er að búi við slík húsakynni, eru flest í Var- sjá. Af 6 milljónum barna í land- inu, sem eru innan við 14 ára aldur, búa um 2 millj., eða þriðja hvert barn, við ónógt viðurværi. Sýking og dauðsföll vegna berklaveiki hafa stórum aukizt að undanfömu og em hin þröngu og lélegu húsa- kynni, ásamt lélegu viðurværi, talin orsök þessa. Aðstaðan til þess að hlynna að þeim, sem sjúkir eru, er mjög erfið. Árið 1938 var tala sjúkrarúma í Varsjá um 9000, en nú aðeins 2300. Á sama tíma hefur lækn- um fækkað úr 2000 í 500. Sigurhátíð Alþýðu- Hokksbts í Hafnar- firði á sunnudags- kvöld. FJöSbreytt skemmtS- skrá. |0* INS og getið var í blaðinu í fyrradag efnir Alþýðu- flokkurinn í Hafnarfirði til sig- urhátíðar á sunnudagskvöldið í ! tilefni hins glæsilega sigur flokksins við bæjarstjórnarkosn ingarnar. Verður hátíðin hald- in bæði að Hótel Þresti og í Góðtemplarahúsinu og verða sömu skemmtiatriði á báðum stöðunum. Hátíðin hefst með sameigin- legri kaffidrykkju kl. 8,30. — Ræður flytja á samkomunum þeir Emil Jónsson ráðherra, Kjartan Ólafsson bæjarfulltrúi j og Eiríkur Pálsson bæjarstjóri. | Þá syngur Ólafur Magnússon í frá Mosfelli éinsöng og Lárus | Ingólfsson syngur gamanvísur. Að lokum verður stiginn dans. í Góðtemplaraihúsinu verða gömlu dansarnir, en nýju dans- arnir á Hótel Þresti. Aðgöngumiðar að sigurhátíð- inni eru seldir í Alþýðubrauð- gerðinni í Hafnarfirði og í Gunnlaugsbúð. Líkn Templarasundi Ungbamaverndm er opin þriðj u daga, fimmtudaga ag föstudaga kl. 3.15—4. — Fyrir bamshafandii’ konur mánuclag og miðvikudag kl. 1.—2. — Börn_ eru iþólusett gegn ibannáveiki á föstudagum kl. 5.30 —6. Þeir sem vilja fiá böm sín foólusett hringi í síma 5967 milli kl. 11 og 1.2 ■ ;ama dag. ALÞYPUEtLftQIÐ Tvö ný mef á sund- móti Æglsí gær. TVÖ MET voru sett á sund- móti Ægis í gærkveldi. Ari Guðmundsson úr Ægi setti met á 50 metra skriðsundi karla á 27,2 sek. gamla metið átti Bafn Sigurvinsson á 27,5 sek. Hitt metið setti Ánna Ólafsdóttir úr Ármanni í 400 metra bringu- sundi kvenna á 7 mín. 6,9 sek. Gamia metið átti Steinunn Jó- hannesdóttir á 7 m. 39,5 sek. Annar urðu úrslit sundmóts- ins sem hér segir: 50 m. skriðsund karla. 1. Ari Guðmunsson Æ. 27,2 selt. met. 2. Rafn Sigurvinsson KR. 28,6 sek. 3 Sigurgeir Guð- KR. 28,6 sek. 3. Sigurgeir Guð- jónsson KR. 28,6 sek. Hlutkesti réði verðlaunum milli þessara tveggja. 50 m. bringusund karla 1. Hörður Jóhannessón Æ. 34,7 sek. 2. Guðmundur Jóns- son Æ. 35,0 sek. 3. Sigurður Jónsson KR. 35,3 sek. Gamla metið er 34,5 sek. sett af Inga Einarssyni fyrir nokkrum ,ár- um. 400 m. bringusund konur.. 1. Anna Ólafsdóttir Á. 7 m. 06,9 sek. met. 2. Sunneva Ólafs dóttir A. 7 m. 43,4 sek. 100 m. bringusund drengir. 1. Kristján Þórisson S. R. 1. m. 29,3 sek. 2. Kolbeinn Óskars son Á. 1 m. 31,1 sek. 3. Georg Franklínsson Æ. 1 m. 34,9 sek. 400 m. bringusund karla. 1. Sigurður Jónsson U. Þ. 6 m. 27,5 sek. 2. Sigurður Jóns- son KR. 6 m. 35,7 sek. 3. Atli Steinarsson ÍR.» 6 m. 39,9 sek. 200 m. baksund karla. Ari Guðmundsson Æ. 3 m. 05,4 sek. 2. Leifur Eiríksson KR. 3 m. 08,0 sek. 3. Ólafur Guðmundsson ÍR. 3 m. 19,6 sek. 50 m. skriðsund konur. 1. Sigríður Konráðsdóttir Æ. 44.0 sek. 2. Ólöf Runólfsdóttir Æ. 48,7 sek. 4 X 50 m. bringusund karla. Sveit Ægis 2 m. 25,0 sek. 2. sveit KR. 2 m. 26,6 sek. 3. sveit Ármanns 2 m. 27,0 sek. Gamla metið í þessu sundi á Ármann á 2 m. 24,1. sek. Það var mjög hörð keppni í flestum sundgreinunum, enda varð árangurinn eftir því. Sund höllin var þétt skipuð áhorf- endum. t 10 embælth- og kanditatspróf fefcln við Háskóla íslands T JANÚARMÁNUÐI hafa 10 embættis og kandidats próf verið tekinn við Háskóla íslands, í guðfræði, læknisfræði og lögfræði, embættispróf, og kandidatsprófi í viðskipafræð- um. Fara hér á eftir nöfn og eink- anir þeirra, • sem lokið hafa prófi: Embættispróf í guðfræði: Sverrir Sverrisson. Embættispróf í læknisfræði: Esra Pétursson, 1. einkunr., 158 stig. Gísli Ólafsson, 2. betri eink., 140% stig. Sigurður Ólason, 1. einkunn 155% stig. » Þorsteinn Sigurðsson/2. betri einkunn, 134 stig. Embættispróf í lögíræði: Hafþór Guðmundsson, 1. eink unn, 226 stig. Oddur C. Thorarensen, 1. einkunn, 196 stig. Kandídatsprófi í viðskipta- fræðum: Benedikt Antonsson, 1. eink- unn, 254 stig. Sigurður Hannesson, 1 eink- unn, 302 Vá stig. örn Guðmundsson, 1. eink- unn. 298% stig. AHiugasemd ¥ ALÞÝÐUBLAÐINU frá 5. febrúar skýrir fréttaritari blaðsins á Kaupmannahötn trá norrænum hjúkrunarkvenna- skiptum og segir þar, að þeg- ar séu hafin skipti á sænskum, dönskum og norskum hjúkrun- ■arkonum. en ráð sé gert fyrir því, að íslenzkum hjúkrunar- konum verði innan skamms boðin þátttaka í þessum hjúkr- unarkvennaskiptum. Þetta er ekki rétt. Félag íslenzkra hjúkr unarkvenna er aðili í samvinnu hjúkrunarkvenna á Norðurlönd um og jafn rétthátt og hin önn- ur hjúkrunarkvennafélög Norð- urlanda, en þessi félagsskapur stjórnar öllum hjúkrunar- kvennaskiptum. Félag íslenzkra hj úkrunarkvenna sendi í haust 9 íslenzkar hjúkrunarkonur til Svíþjóðar á vegutn samvinnunn ar og eru þær allar við starf eða framhaldsnám þar. Danska hjúkrunarkvennaféla/: ið hefur sent 8 hjúkrunarkonur til ís- lands, og hafa þær allar fengið atvinnu hér. Ennfremur er í ráði að senda nokkrar íslenzk- ar hjúkrunarkonur til Dan- merkur og Noregs i vor. Reykjavík, 6. febrúar 1946. Sigríður Eiríksdóttir, form. Fél. ísl. hjúkrunarkvenna FæðikaupendafélairiS foeldur fund á 6U)mudagimi M. 2. e. Ih. í Kaupfþingssalnum. — Lagt veröur firam uppkast að lög- um og kosin stjórn féLagsins, enn- fremur verðá fleiri mál rædd. Handfcnalfleiksmót Haula í lilefni 15 ára afmælis fé- lagsins. ÆTSKOMANDI sunnudag efna Haukar í Hafnarfirði til handknattleiksmóts í íilefni af 15 ára afmæli félagsins. -— Mótið verður háð í íþróttahöll I. B. R. við Hálogaland og hefst kl. 2.30. Keppt verður í öllum aldúrs- flokkum, einn leikur í hverjum flokki þannig, að Haukar keppa við eitt sterkasta félag í hverjum flokki. í meistaraflokki karla við Val. T I. flokki karla við K. R. í II. flokki karla við F. H. í III. flokki karla við Ár- mann. í kvennaflokki A við Ár- mann. í kvennaflokki B við Fram. Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem eitt félag keppir í jafn- mörgum flokkum við jafnmörg félög í einu. Þess má geta, að á síðustu árum hafa Haukar verið með allra beztu félögum í hand- knattleik í öllum flokkum. Þeir hafa árlega verið í úrslitum og unnið í einhverjum flokkum. Sumt af þessum flokkum eru gamlir keppinautar t. d. í kven- flokki Ármanns gegn Haukum sem eru búnir að keppa til úr- slita við hvorn annan í mörg ár, sem frægt er orðið. Ármann hefur alltaf unnið þar til í fyrra, þá unnu Haukar. Það má því búast við, að margir muni hafa gaman af því.að sjá þessa leiki, þar sem um er að ræða mjög sterk lið í öllum flokkum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.