Alþýðublaðið - 03.11.1946, Blaðsíða 2
ALÞÝDUBLADIÐ
Sunnudagur, 3. nóv. 1946.
Allmikið af VEFNAÐARVÖRUM eru þegar komnar til landsins. Aðrar
sendingar eru á leiðinni og enn aðrar væntanlegar í nóvember og desember.
Þeir, sem þegar hafa afhent okkur nauðsynleg leyfi, sitja að sjálfsögðu
fyrir með vörur, svo og þeir, sem NÆSTU DAGA afhenda okkur Innflutn-
ings- og gjaldeyrisleyfi.
heildverzlIn
REYKJAVIK
Slysa varnafélag ið
efnir til námskeiðs
fyrir sjófarendur.
Á MORGUN hefst nám-
skeið fyrir sjófarendur, sem
Slysavarnaféiag íslands
gengst fyrir. Mun námskeið
ið standa yfir í vikutíma, og
verða á því fluttir margir fyr
irlestrar, kennd verður hjálp
í viðlögum, og lífgun ur
dauðadái-
Námskeiðið verður haldið
li samkomusal Landssmiðj-
tunnar og hefst það þar á
anorgun kl. 6 e. h. Þá mun
Sigurbjörn Einarsson skip-
stjóri flytja erindi um stjórn
á opnum bátum á sjó og við
lland. Rætt verður um útbún-
lað opinna báta, hvernig setja
skuli á flot, hvernig beita á
opnum báti gegn sjó og vindi,
undanhald í stormi og vindi
■og um brimlendingu.
Þá verður enn fremur rætt
um hirðingu á skipum og út-
búnað þeirra. Undir þeim
m verður þetta rætt: Ryð og
flfúi og orsakir þess, ofhleðsla
og vanhleðsla á farmi, legu-
færin og þýðing þeirra, hin
lögskipuðu öryggistæki og'
eftirlit með skipum og nauð-
syn þess. Loks flytur Jón
Oddgeir Jónsson fyrirlestur
um hjálp í viðlögum, og fram
fer bæði verkleg og munnleg
kennsla við lífgun úr dauða-
dái,
Þetta eru þau helztu atriði,
sem fram fara á námskeiðinu
fyrsta daginn. Af öðrum er-
indum, sem filutt verða á
rtámskeiðinu síðar í vikunni,
skulu þessi nefnd: Skipin,
sem við siglum á, Tilhögun og
stjórn á skipum i vondum
veðrum, Radiovitar og radio-
smiðanir, Veðrabreytingar og
orsakir þeirra, Notkun og við-
hald talstöðva í skipum, Radio
miðanir og miðunartæki,
Notkun fluglínutækja og'
björgun úr sjávarháska. Starf
semi Slysavarnafélags íslands
og gildi slysavarna fyrir sjó-
farendur. Auk þessara erinda,
sem nefnd hafa verið, mun
Jón Oddgeir Jónsson kenna
hjálp í viðlögum flesta dag-
ana, meðan námskeiðið stend
Ur yfir.
Tlllögur um endur-
bælur á dánarbóla-
Iðggjöflnni.
STJÓRN Farmanna og
fiskimannasambands Islands
var á þingi sambandsins í
haust falið, að koma á fram-
fæi-i við alþingi tillögum um
endurbætur á lögum um
dánarbætur sem samþykkt
voru á alþingi 1944.
Fara tillögurnar hér á
eftir:
1. Að endurgreiða að fullu
með 4% vöxtum frá dánar-
degi viðkomandi lífeyri
þann, sem keyptur var handa
ekkjum, börnum og öðrum
aðstandendum hins látna,
samkv. lögum um lífseyris-
sjóð aðstandenda látinna sjó
manna.
2. Að greiða að fullu mis-
mun þann á dánarbótum
drukknaðra sjómanna sem
kemur í ljós við samanburð
á dánarbótum samkv. lögum
frá 1940 og 1944.
3. Að ekkjum drukknáðra
sjómanna, er orðið hafa frá
16. maí 1940 til ársloka 1946
verði auk þess veittur árleg-
ur styrkur frá 1. jan. 1947
að upphæð kr. 1000.00 — eitt
þúsund krónur — að við-
bættri vísitölu á hverjum
tíma.
ÍBÚÐ TIL LEIGU
Tveggja herbergja íbúð
til leigu nú þegúr.
Upplýsingar í síma 2640
milli kl. 4 og 5.
Emaileruð
POTT-ELDAVÉL
með miðstöðvarhitun
til sölu. —
Nánari upplýsingar í dag
og á morgun eftir kl.
3 í Kirkjuvegi 11,
Hafnarfirði.
Sex bifreiðasmíða-
nemar Ijúka
sveinsprófum
SEX BIFREIÐASMÍÐA-
NEMAR luku prófi í bifreiða
smíði, 28. og 29. sept s. 1. og
hlutu allir fyrstu einkun.
Þetta eru fyrstu nemarnir, er
byrjuðu nám eftir að bifreiða
smíði var viðurkennd sem
iðngrein.
Þeir sem próf tóku voru:
Magnús Björgvin Gíslason og
Tómas Guðmundsson, lærðu
hjá Kristni Jónssyni, Frakka
stíg 12. Hjálmar Hafliðason,
lærði hjá h. f. Agli Vilhjálms
syni, Laugaveg 118. Eyjólfur
Einar Jónsson og Eysteinn
Guðmundsson, lærðu hjá h-
f. Bílasmiðjunni., Skúlatúni
4. og Gísli Guðmundsson,
lærði hjá Tryggva Péturs-
syni & Co. Skúlagötu.
I tilefni þessa atburðar
héldu eigendur verkstæða
þeirra, er nemana höfðu, hóf
að Hótel Borg og buðu þang
að hinum nýútskrifuðu svein
um ásamt prófnefndinni. Var
veitt þar af mikilli rausn og
sveinsbréfin afhent hinum
nýju sveinum og þeir boðnir
velkomnir í i.ðngreinina, sem
fullgildir iðnaðarmenn.
Kosningin í sfúdenfa-
ráð.
Framhald áf 1. síðu.
aðra sósíalista 57 atkvæði, en
fékk 49 í fyrra og félag frjáls
lyndra stúdenta 32 atkvæði,
en fékk 40 í fyrra.
Jafnaðarmenn hafa því
bætt við sig hlutfallslega
mestu fylgi í háskólanum frá
því i fyrra.
Kosningar í Banda-
ríkjunum.
Framhald af 1. síðu.
fyrir kemur á þingi.
Meðal þeirra fylkisstjóra-
kosninga, sem mest ber á, er
kosningin í New York, þar
semÐewey ver sess sinn gegn
ráð við Stefán Thorarensen
Er ekki ástæða fyrir einkasöiu á iyf jum?
Nead öldungadeildarþing-
tnanm.
STEFÁN THORARSEN-
SEN lyfsali hefur gert lyfja-
innflutning og leyfisveiting-
ar Viðskiptaráðs að frekara
umtalsefni í blöðum bæjar-
ins.
Viðskiptaráðið telur á-
stæðulaust að eltast við hár-
toganir lyfsalans, en þykir
eftir atvikum rétt að taka
fram eftirfarandi:
SKORTUR Á PENICILLIN
OG ÓNÓGAR LEYFIS-
VEITINGAR.
í sambandi við þá ásökun
að Viðskiparáðið hafi tafið
innflutning á penicillini svo
að skortur hafi verið á því,
má á það benda að á stríðsár-
unum flutti Viðskiptaráð
beinlínis inn það penicillin,
sem fékkst til landsins, vegna
þess að aðrir aðilar gátu ekki
fengið það keypt. Síðan að
afgreiðsla á því varð frjáls,
vegna aukinnar framleiðslu,
hefur ekki verið skortur á
því hér á landi,, og fullyrða
má að á þessu ári hafi það
verið fáanlegt til lækningar
þeirra sjúkdómstilfella, þar
sem þess hafi verið tvímæla-
laus þörf. En hvað sem má
um þetta atriði segja, þá vill
Viðskiptaráðið í þessu sam-
bandi benda á:
Stefán Thorarsensen upp-
lýsir að apótekarar hafi á-
ætlað að þurfa myndi eina og
hálfa milljón króna leyfis-
veitingu fyrir lyfjum og
hjúkrunargögnum, til þess
að fullnægja árlegri þörf
landsmanna fyrir þessar vör
ur.
Frá 1. janúar og til 30.
september þ. á. hefur Við-
skiptaráðið vei.tt apótekurun
urn leyfi eins og hér segir:
í$-gjaldeyri 795.313,00 kr.,
í £-gjaldeyri 1.010.019,00
kr., framlengd leyfi frá 1945
samtals 3.04.413,00 ltr. Sam-
tals ný og framlengd leyfi
2-109.713,00 kr.
Viðskiparáðið hefur því
fram til 30. sept- þ. á. veitt
lyfsölunum 600 þúsund krón
ur ineiri leyfi en þeir sjálfir
áætla heildar ársþörfina.
í þessu eru ekki taldar
leyfisveitingar til Lyfjaverzl
unar ríkisins eða annarra að-
ila, sem flutt hafa inn lyf í
áratugi. ; ■>**.
Á þessuisést bezt réttmæti
þeirrar ásökunar, að. Við^-
skiptaráðið hafi tafið lyfja-
innflutning, með því að
draga úr leyfisvei.tingum.
MISNOTKUN LEYFA.
Stefán Thorarensen segist
hafa flutt inn ormalyf fyrir
57 dollara. Votta það með
honum 2 dýralæknar sam-
kvæmt reikningum, sem
„þeir hafa yfirfarið.“ Vi.ð-
skiptaráðið hefur í höndum
faktúru tolláritað, er sýnir að
þann 18. ágúst fékk þó Stefán
Thorarensen 44 tunnur eða
um 3 smálestir af ormalyf-
inu Phenothaizine frá Ame-
ríku. Lyf þetta er eingöngu
ætlað skepnum og kaupir
Rannsólcnarstofa Háskólans
það frá Bretlandi og dreyfir
því út til bænda.
Stefán Thorarensen sótti
um leyfi fyrir ormalyfi frá
það frá Bretlandi og dreifir
beiðni var synjað á þeim
grundvelli, að það fengist frá
Bretlandi. En þann 8. apríl
s. I. pantaði hann fyrrgreint
lyf frá U.S.A., segir hann þó
orðrétt í fyrrnefndri grein:
„Þegar þess er gætt að apó-
tekarar mega ekki gera lyfja
pantanir fyrr en þeir hafa
leyfin í höndunum11, sést af
þessu hið fornkveðna, að
haégara er ,að kenma heilræð-
in en halda þau.
LYFJAVERZLUN RÍKIS-
INS.
Stefán Thorarsensen reyn-
ir á allan hátt að gera tor-
tryggilega Lyfjaverzlun rík-
isins og forstöðumann henn-
ar, hr. Kristin Stefánsson,
lækni. Það er Viðskiptaráð-
inu óviðkomandi- Lyfjaverzl
unin er hinsvegar stór i,nn-
flytjandi lyfja. Sú aukning
sem orðið hefur á starfi henn
ar varð mest, þegar lyfjaleyfi
voru veitt mjög ríflega þeim
aðilum, sem um þau sóttu.
Eins og Vi.ðskiptaráðið hef
ur áður skýrt frá, byggjast
dollara-leyfisveitingar í ár á
innflutningi 2 undanfarinna
ára. Ef Stefáni Thorarensen
þykir því skammtur Lyfja-
verzlunarinnar of stór, staf-
ar það af því einu, að Lyfja-
verzlunin hefur á undanförn
um árum haft meiri þörf fyr
ir leyfi heldur en Stefán
Thorarensen.
Viðskiptaráðið sér ekki á-
stæðu til þess að svara frekar
grein Stefáns Thorarensen
og er hér með útrætt um mál
þetta af þess hálfu, nema sér-
stakt tilefni. gefist til.
Reykjavík, 1. 11. 1946.
Viðskiptaráðið
Búlgaría.
Frh af 1. síðu
kosningarnar. Ætla Bretar
sannilega að kvarta um þetta,
og hafa fregnir borizt um að
Bevin mudi ræða málið við
Byrnes.
Þótt fleiri væru í framboði
en kommúnistar, var hafður
í frammi hvers konar dólgs-
háttur við andstæðinga
stjórnarinnar. Var fundurn
þeirra hleypt upp og jafnvel
settar hindranir á vegi til að
menn ekki kæmust á fundi
þeirra. Þá voru hafðar í
frammi alls konar hótanir við
menn, sem grunaðir voru um
stuðning við andstæðinga
stjórnarinnar, svo að þeir
þorðu ekki annað en að
kjósa kommúnista. Er talið,
að stjómin hafi haft ýmsar
aðferðir til að athuga hvern-
ig menn kusu, þótt það héti
svo, að kosningin væri leyni-
leg.
Bretar höfðu ekki eftirlits-
menn við kosningamar, en
ýmsir fulltrúar þeirra, sem í
Búlgaríu hafa verið undan-
farið, hafa sagt frá þessum
aðförúm.