Alþýðublaðið - 07.06.1947, Page 3
Laugardagur 7. julí 1947.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fimmlugur í dag:
Sfefán Einarsson préfessor,
Ari Arnalds.
i Arnalds 75 ára.
ARI ARNALDS er löngu
iþjóðkunnur maður, stjórnar-
ráðsfulltirúi, ritstjóri, alþing
ismaður og þæjarfógeti. Ætt
hans og ýmis ættmenni
þekkja allir. Ætla mætti, að
það væru aðeins rosknir
menn og aldraðir, sem minn-
ast hans nú, er hann verður
75 ára. Svo er þó ekki. Enn
grípur Ari til pennans öðru
hvoru eða lætur til sín heyra
í útvarpinu. Vekur slíkt þá
jafnan athygli, engu síður
hinna yngri en eldri.
Fyir nokkrum dögum var
stungið að mér greinarkorni,
sem maður nákunnugur Ara
um tugi ára, hefur skrifað og
hér fer á eftir. Dvelur hann
helzt við glæsmennsku og
skörungskap yfirvaldsins og
mælir hvergi um of.
Þó mun það vera svo, að
dómarastörfin hafa jafnan
verið Ara hugþekkust. Ég
minnist þess er hann ei’tt sinn
síðari hluta dags kvað upp
14 úrskurði í viðkvæmu máli
og vandasömu, og fylltu þeir
18 síður í gerðabók réttarins.
Ætla ég, að nokkrurn þeirra
hafi verið áfirýjað til hæsta-
réttar, en engum haggað.
Er þetta aðeins eitt dæmi
af mörgum um vinnubrögð
hans á þessu sviði.
Ég þakka Ara Arnalds
langa viðkynningu og góða
og árna honum hins bezta
fairnaðar um næstu áratugi.
Haraldur Guðmundsson.
SÍÐLA SUMARS 1918 var
ég staddur á Seyðisfirði og
var á gangi með kunningja
mínum eftir veginum, sem
liggur inn frá bænum til
Héraðs. Þegar minnst varði
sáum við jóreyk innar í daln-
um, og eftir stutta stund
fóru margir lausir hestar
fram hjá okkur og þar á
eftir tveir menn, sem ég
kannaðist ekki við og sem ég
þóttist á ýmsu sjá, að væru
langt að komnir. Méir varð
starsýnt a lausu hestana, sem
fúslega runnu á undan. Mér
sýndist hver þeirra hafa ein-
kenni góðra reiðskjóta, og
mér blandaðist ekki hugur
um, að hestarnir, sem ferða-
mennirnir sátu, væiru úrvals
gæðingar og mennirnir
sómdu sér vel á baki þeira.
Eg fékk áhuga fyrir því að
fá að vita, hverjir hefðu ver-
ið þar á ferð, og þegar ég
kom aftur í bæinn, vair mér
sagt, að það hefði verið Ari
Arnalds, tilvonandi sýslu-
maður N.-Mýlinga og bæjar-
fógeti á Seyðisfirði, og hefði
hann, ásamt fyigdarmanni,
komið landleiðina vestan úr
Húnavatnssýslu, þar sem
Arnalds hafði áður haft sýslu-
völd.
Þegar ég sá Ara Arnálds í
fyrsta sinn bregða fyirir, þá
vissi ég ekki, að ég ætti eftir
nálægt tuttugu sumur að
hitta hann á yfirreið um sýsl-
una, og ég vissi heldur ekki,
að jafn lengi ætti mér eftir
að finnast til um hann á þeim
ferðum, sem glæsilegt yfir-
vald og ferðamenn, sem
venjulega var með gnægð
góðra hesta, er hann lét sér
ætíð annt um, eins og þeir
væru félagar hans. Ég. vissi
heldur ekki þá, að sá bragur,
sem mér virtist yfir þessari
för hans til embættisins á
Seyðisfirði, var honum eðli-
legur og sómdi honum, hvar
sem hann fór, og ég hygg, að
yfirleit’t hafi sýslubúar fljót-
lega fundið, að svona ættu
sýslumenn að vera.
Það var aldrei hversdags-
blœr yfir þingaföir Ara Arn-
alds um sýsluna, og þeir, sem
áttu erindi við hann, komust
fljótt að raun um, að hann
var alúðlegur og ljúfur í við-
móti, iráðhollur þeim, sem til
hans leituðu, og skörulegur
og ékveðinn í úrskurðum, ef
til þess þurfti að taka, og
laiginn á að ráða fram úr
deilum manna þann veg, að
f’estum þótti gott við_að una.
Nánustu kynni mín af Ara
Arnalds hófust með setu
minni í sýslunefnd 1922. Ég
var þá ungur og lét mér ekki
ætíð vel líka formfesta og
varfærni sýslumanns, auk
þess sem ég í ýmsu hafði
önnur sjónairmið en hann. En
á hverju sem gekk, þá var
samvinnan ætíð í raun og
veru ánægjuleg, og réði þar
ekki minnstu um samvinnu-
Framhald á 7. síðu.
EINN af beztu og merkustu
sonum íslands er fimmtugur
í dag. Það er Stefán Einars-
son dr. phil. ,prófessor í ensku
við John Hopkins University
í Baltimore í Bandaríkjun-
um.
Stefán Einarsson er fædd-
ur á Höskuldsstöðum í Breið
dal í Suður-Múlasýslu, hinn
7. júní 1897 — en ekki hinn
9. júní eins og stendur í bók-
inni Hver er maðurinn? For-
eldrar Stefáns voru merkis-
bóndinn Einar Gunnlaugsson
og kona hans Margrét Jóns-
dóttir, prests á Klyppstað í
Loðmundarfirði, hin ágæt-
asta kona. Hún lézt árið 1923,
en Einar bóndi 1942, 91 árs
gamall.
Stefán ólst upp hjá foreldr
um sínum og stundaði þar öll
almenn störf, og var hann
strax natinn og duglegur við
hvað eina, sem fyrir hann var
lagt. En hann var snemma
bókhneigður með afbrigðum
og hafði mikla námslöngun,
og námsgáfur hafði hann á-
gætar. Hann var því settur
til mennta, og árið 1917 varð
hann stúdent.
Hann las síðan íslenzk
fræði við Háskóla íslands, en
var heima á sumrum og gekk
að heyskap með föður sín-
um. Árið 1923 lauk hann
magisterprófi hér í Reykja-
vík í íslenzkri málfræði,
sögu og bókmenntum. Hann
stundaði hljóðfræðinám við
háskólann í Helsingfors í
Finnlandi 1924—1925, og
haustið 1927 varð hann dokt-
or, fyrstur íslenzkra manna,
við háskólann í Osló. Fjallaði
doktorsritgerð hans um
hljóðfræði íslenzkrar tungu.
Sama haustið var hann svo
ráðinn kennari við John
Hopkins University í Balti-
more í Ameríku, og við þann
háskóla hefur hann verið síð
an. Hann á því í haust tutt-
ugu ára starfsafmæli við
þann skóla. Árið 1936 varð
hann þar prófessor í i^pskri
málfræði.
Stefán kvæntist árið
1925 estneskri konu, Margar
ethe Schwarzenberg.
Stefán er íslenzkur vara-
ræðismaður í Baltimore, og
eíast ég ekki um, að hann
tæki þau störf sín með
gleði og stakri samvizku-
semi, þá er til einhvers kem-
ur, og hygg ég, að ánægja og
jafnvel hreykni yfir sjálf-
stæði og velfarnaði íslands
búi undir þessum látlausu
orðum hans í bréfi frá 5.
marz s. 1.
„Af því að hér er komið
hafskip frá íslandi í höfn-
ina, hið fyrsta í minni kon-
súlstíð, þykir mér ekki ann-
að hlýða en að senda þér
kveðju“.
Stefán er félagi í ýmsum
vísinda- og bókmenntafélög-
um, hér og erlendis, og hann
hefur skrifað fjölda af rit-
gerðum í erlend tímarit um
málfræðileg efni úr íslenzku
og fornensku — og margt af
ritdómum um fræðibækur
bæði í íslenzk og erlend rit.
Hann er og meðritstjóri frá
1939 við Journal of English
Sumarbúsiaður
TIL SÖLU.
Upplýsingar hjá Ingólfi
Hannessyni, Kópavogs-
bletti 181 og í síma 2297
klukkan 1—5.
Stefán Einarsson
and Germanic Philology, og
um íslenzka málfræði hafa
komið út eftir hann þessar
bækur: Beitráge zur Phone-
tik der islándischen Sprache,
Osló 1927 (doktorsrit-
gerð) — og A Specimen
of Southern Icelandic Speech,
Osló 1931. þá hefur komið
út eftir hann á íslenzku
Saga Eiríks Magnússonar,
Reykjavík 1933.
En áreiðanlega hefur Stef
án unnið mest að rannsókn
íslenzkra bókmennta, og sér-
staklega hefur hann lagt
rækt við íslenzkan sagna-
skáldskap. Hann hefur safn-
að afarmiklu efni um störf
íslenzkra rithöfunda og starfs
háttu, fyrirmyndir þeirra og
söguefni — ævi þeirra og
þroskasögu. Hann hefur skrif
að ritgerðir um íslenzka höf-
unda í amerískar handbæk-
ur, og nýlega hefur hann
lokið við stórt rit, History
of Icelandic Prose Writers
1800—1940. Saga íslenzkra
rithöfunda 1800—1940, og
mun það rit koma út í Is-
landica prófessors Halldórs
Hermannssonar. Þá er og
Stefán að semja sögu ís-
lenzkra bókmennta frá upp
hafi fyrir útgáfufélag í
Bandaríkjunum.
Stefán hefur oftast unnið
á sumrum í bókasafninu í
íþöku við söfnun heimilda
um íslenzkar bókmenntir, en
þar er hið ágætasta safn ís-
lenzkra blaða og bóka. Hann
hefur skrifað í íslenzk tíma-
rit hér heima og í Vestur-
heimi fjölmargar ritgerðir
um íslenzk sagnaskálda, og
þó að menn geti auðívltað
greint á við hann um sitt-
hvað í þessum efnum, þá cr
það eitt víst, að hann vill fyr
ir hvern mun hafa það, sem
sannast reynist, og vera sem
óhlutdrægastur dómari. Ó-
hætt mun að fullvrða, að
hingað til hafi enginn íslenzk
ur fræðimaður skrifað eins
mikið' samfellt og birt á
prent um nýíslenzkan skáld-
skap, en vitað er að dr. Stein
grímur Þorsteinsson leggur
mikla alúð við einmitt nýís-
lenzkar bókmenntir, og hef
ur þegar skrifað þannig um
skáldsögur Jóns Thorodd-
sens, að rit hans um þær er
með öllu einstætt í íslenzkri
bókmenntasögu. Eftir því,
sem ég bezt veit, mun von
ef hagsmunir flokks þeirra
(Frh. á 7. síðu.)
Húsgrunnur við
Hafnarfjarðarveg
nálægt Silfurtún er til
sölu. Upplýsingar í dag
og á morgun í síma 9186.
Hinningarspjöld
Jóns Baldvinssonar forseta
fást á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Alþýðuflokksins.
Skrifstofu Sjómannafélags
Rvíkur. Skrifst. V. K. F.
Framsókn, Alþýðubrauðg.,
Lvg. 61 og í verzl. Valdimars
Long, Hafnarfirði.
Minningarspjöíd Barna-
spifalasjóðs Hringsins
eru afgreidd í
Verzlun
Augustu Svendsen,
Aðalstræti 12 og í
Bókabúð Austurbæjar,
Laugavegi 34.
Kaupum fuskur
Baldursgötu 30.
GOTT
r
ER GÓÐ EIGN
Guðl. Gfsiason
Ú'rsmiður, Laugaveg 63.
in Jónsson
hdl.
Málflutningur. Fasteignasala.
Vesturg. 17. Sími 5545.
Ótbreiðið
&iþýðublaðið
L