Alþýðublaðið - 07.06.1947, Síða 4

Alþýðublaðið - 07.06.1947, Síða 4
4 ALfrÝÐUBLAÐIB Laugardagur 7. júlí 1947. Útgefandi: Alþýffuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Fr.kv.stj.: Þorvarður Ólafsson. Auglýsingar: Emilía Möller. Framkvæmdastjórasími: 6467. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. ANDÚÐ VERKALÝÐSINS á hinu pólitíska verkfalls- brölti kommúnista er engum Ijósari en kommúnistafor- sprökkunum sjáifum. Úrslit allsheriaratkvæðagreiðsl- unnar í Dagsbrún um upp- sögn samninga og mótmæli verkalýðsfélaganna um land allt við málaleitun stjórnar Alþýðusambandsins um kaupdeilur og verkföll hafa valdið bví, að kommúnistar eru orðnir: hræddir og ráða- lausir, og mun mörgum þeirra finnast nú orðið, að verr hafi verið af stað farið en heima setið með hinar heimskulegu iráðstafanir gegn viðleitni núverandi rík- isstjórnar til að binda enda á dýrtíðina og verðbólguna, sem er að sliga atvinnuvegi landsmanna. Norður á Siglufirði hefur þessi ótti kommúnista við vilja verkalýðsins orðið til þess, að hin kommúnistíska stjórn Verkamannafélagsins Þróttar hefur að undanföænu þrjóskazt við að láta fara fram allsherjaratkvæða- greiðslu í félaginu um upp- kast að nýjum samningum, sem samkomulag hafði þó nóðst um. Þegar sáttasemj- ari rikisins norðan lands tek ur svo upp þetta uppkast og geirir að tillögu sinni og fyr- irskipar allsherjaratkvæða- greiðslu eftir að stjórn Þrótt ar hafði vísað tilmælum þess efnis á bug, neita þeir Þón oddur Guðmundsson og sálU félagar hans í stjórn Þróttar að afhenda kjörskrá félags- ins til afnota við atkvæða- greiðsluna. Atkvæðagreiðsl- an fer þó fram eigi að síð- ur, og siglfirzkum verka- mönnum gefst kostur á að neyta þess réttar síns, sem kommúnistarnir í stjórn Þróttar ætluðu að svipta þá. Ofbeldi, svik og lögleysur hinnar kommúnistísku stjórn ar Verkamannafélagsins Þróttar á sér enga aðra hlið- stæðu en aðfarir kommún- ista d Kaupfélagi Siglfirð- inga forðum daga, enda eiga sömu menn Mut að máli. En vissulega er hag íslenzkrar verkalýðshreyfingar meira en lítið illa komið, ef slík vinnubrögð og slíkar baráttu aðferðir eiga að viðgangast innan vébanda hennar. ❖ Otti kommúnistaforsprakk- anna í stjórn Dagsbrúnar við vilja verkamanna kom þann ig í ljós, að þeir ætluðu sér að Iáta félagið hefja póíitískt verkfall hér í Reykjavík nú um helgina að félagsmönn- um fomspurðum. Fyrir þeim vakti að láta 11 me-nn fyrir- skipa 3000 reykvískum verkamönnum að íeggja nið ur vinnu og láta beita sér og Faískur tónn. — Það, sem veldur mismunin- um. — Hvað segir verkalýðurinn? — Kembd kjörskrá. — Utskúfaðir og úvaldir — Leikur- inn, sem hægt er að leika, en honum yrði að fylgja eftir. ÞAÐ ER FALSKUR TONN í verkfallsrapódíu kommún- istanna. í mörg ár sátu þeir í ríkisstjórn við grundvöll þeirr- ar vísitölu, sem við búum við — og allt var í stakasta lagi. Þeir gerðu ekki nein upphíaup, verkamennirnir áttu að geta unað við kaup sitt og engin á- stæða átti að vera til þess fyr- ir þá að hefja verkföll tii að knýja fram kauphækkanir. Skyndilega kveður við annan tón — um Ieið og kommúnist- ar fara úr ríkisstjórn. Þá er hafin upp spilamennskan, allt á skyndilega að verða ófært og verkamönnum er skipað að leggja niður vinnu. BREYTINGARNAR á tolla- lögutium eru sýndarástæða. Hefði engin breyting verið gerð á þeim, þá hefðu kommúnistar fundið nýtt tilefni, eitthvað ann að, sama hvao það væri, því að tilgangurinn er ekki 'kaup- hækkanir til handa verkamönn um, heldur pólitík, eins og í Frakklandi og fleiri löndum þar sem kommúnistar eru ekki við stjórn, að etja alþýðustétt- unum út í opna baráttu við rík isvaldið, löggjafann og lýðræð ið, brjóta allt þetta niður til að koma kommúnistum til valda. Og til þess að ná þessum til- gangi er beitt allskonar brögð um, því að tilgangurinn — hinn göfugi málstaður, að koma kommúnistum t-il valda, helg- ar meðalið. ÍSLENZKT LÝÐRÆÐI er nú í höndum reykvísksra verka- manna, ef þeir hlýða valdboði kommúnista stefna þeir út í ó- vissuna, ekki aðeins fyrir sig og heimili sín heldur og fyrir alla þjóðina. Ég veit að margs- konar bellibrögðum verður beitt og einskis svifist. Fjöldi manna fær ekki að greiða at- kvæði í Dagsbrún en aðrir sem nákvæmlega stendur eins á um í félaginu fær að greiða at- kvæði. Það hefur verið farið yfir kjörskrá félagsins af mik- illi nákvæmni, ýmsir verið týndir út og aðrir settir inn, allt eftir pólitískum skoðun- um. — Hér er ekki um bætt launakjör verkalýðsins að ræða heldur pólitískt valdabrölt kommúnista. Það sem þeir tapa við lýðræðislegar kosningar meðal þjóðarinnar, hyggjast þeir ætla að vinna upp í stór- kostlegum verkföllum og þar afleiðandi óeirðum. EKKI EINN EINASTI verka maður má horfa afskiptalaus á aðfarirnar að lýðræðinu. Allir verða þeir að skoða hug sinn vel og taka sínar ákveðnu á- kvarðanir. Þegar greitt var at- kvæði um það hvort segja skyldi upp samningum munaði mjóu. Þá var ekki greitt at- kvæði um það að leggja út í verkfall. Ellefu kommúnistar hafa tekið þá ákvörðun upp á sitt eindæmi. Þeir óttast úrslit- in við frjálsa atkvæðagreiðslu meðal fjöldans. Þetta sýnir að kommúnistar eru orðnir hrædd ir við verkalýðinn. Þeir þykjast hafa vald yfir honum, en eru hræddir við hann. Það mun líka sýna sig að ástæða er til þess fyrir þá. EF FARIÐ VERÐUR út í verkfall, mun það verða langt. ÁÁstæðan er sú, að hér er ekki um kaupbaráttu að ræða held- (Frh. á 7. síðu.) félagi þeirra fyrir pólitískan vagn Kommúnistaflokksins. Sem betur fer verður kom múnistum ekki _ kápan úr þessu klæðinu. í dag og á morgun fer fram i Dagsbrún allsherjaratkvæðagreiðsla um tillögu, sem sáttanefnd- in hefur l'agt fram til lausn- ar á deilunni. Verkamönnum hér eins og á Siglufirði gefst þvi kostur á að láta vilja sinn koma í Ijós á lýðræðis- legan hátt og firra þjóðina hættulegum vamdræðum, er forsprakkax kommúnista reyna að efna til af pólitísku hatri. Þessar aðfarir kommún- ista norður á Siglufirði og hér í Reykjavík eru lærdóms ríkar fyrir íslenzka verka- Iýðshreyfingu. Þær sýna bet ur en nokkuð annað, hver vinnubrögð og baráttuaðferð ir kommúnista eru og hvers má af þeim vænta. Þeir hika ekki við að fótum troða lýð- ræði, félagsréttindi og lands- 'lög og svipta verkalýðinn sjálfsákvörðunarrétti sínum, mjög bráðlega á riti á ís- eru annars vegar. En þessar aðfarir sanna einnig, hversu Eráleitur málstaður kommún ista er að dómi sjálfra þeirra. Menn, sem ekki þora að bera málstað sinn undir dóm þeirra aðila, er um harrn eiga að fjalla samkvæmt öttlum iögum og reglum, gera sér þess að sjálfsögðu fulla grein, að þeir eiga ekki á góðu von. Ótti kommúnista við vilja verkalýðsins er sannarlega orðinn mikill, þegar samvizkulausustu ó- þokkar eins og Þóroddur Guðmundsson finna til sekt- ar sinnar. Framferði kommúnista í hinu pólitíska verbfallsbrölti þeirra hefur vonandi sann- fæirt íslenzkan verkalýð um það, að þeir eru óhæfir til allrar forustu og vargar í vé- um alþýðuhreyfingairinnar. Hið vinnandi fólk á að láta sér vítin að vamaði verða og sameinast um að losa sig við áhrif og forsjá kommúnista. Ævintýramenn og óþokkar eiga sízt af öllu heima í sam tökum íslenzkrar alþýðu. S.F.J. Dansleikur iaugardaginn 7. júni í Breiðfirðmgabúð kl. 10. síðdegis. — Aðgöngumiðar, seldir frá iklukkan 5—7. frá sáffanefnd í vinnudeilu Dagsbrúnar annars vegar og YinnuveHendaféi. fs fands og Reykjavikurbæjar hins vegar Sáttanefndin hefur ákveðið að bera fram miðlunartillögur til lausnar í vinnudeilunni. At- kvæðagreiðsla um tillögurnar fer fram fyrir fé- laga í Verkamannafélaginu Dagsbrún og Vinnu- veitendafélagi íslands í Miðbæjarbarnaskólanum í Reykjavík laugardaginn 7. júní kl. 3—10 e. h. og sunnudaginn 8. júní kl. 10 f. h. til 10 e. h. og lengur ef þá þykir ástæða til. Tillögurnar verða birtar í hádegisútvarpinu á morgun og á annan hátt. Reykjavík, 6. júní 1947. fer fram sunnudsginn 8. júní klukkan 2 eftir hád. á íþróttavellinum. Keppt verður í: 100 metra hlaupi (úrval). 300 metra hlaupi, 3000 metra hlaupi og 4x200 metra boðhlaupi. Kúluvarpi. Kringlukasti. Langstökki. Hástökki. Flestir frægustu íþróttamenn íslands taka þátt í mótinu, þar á meðal Oslóar-fararnir. írlandsmeistarinn í kúluvarpi DAVID GUINEY Og Evrópumeistarinn GUNNAR HUSEBY eru þátttakendur í kúlúuvarpinu. Þetta er fyrsta og líklega frægasta íþrótta- mót ársins. AÐGÖNGUMIÐAR SELDIR VIÐ INNGANGINN. Reykvíkingar! Fyllið íþróttavöllinn á morgun. Stjórn K.R.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.