Alþýðublaðið - 07.06.1947, Síða 7

Alþýðublaðið - 07.06.1947, Síða 7
Laugardagur 7. júlí 1947. ALÞÝÐUBLAÐiÐ Bærinn í dag. --------------------— I Næturlæknir er í Iæknavarð stofunni, sími 5030. Næturvörður er Ingólfsapó- teki. Næturakstur annast Litla bílstöðin, sími 1380. Hjónaband: Gefin verða saman í hjóna- band í dag, Þorgerður Jóns- dóttir, Óðinsgötu 28 og Þor- geir Þorleifsson frá Þverlæk, Holtum. Ari Arnalds 75 ára (Frh. af 3. síðu.) þýðleiki Arnalds og það, að ég vissi, að hann vildi það eitt gera, sem hann taldi sýslunni fyrir þeztu, eins og á stóð í hvert sinn. Lokaþáttur hvers sýslu- fundar var veizla hjá sýslu- manni. Þar söfnuðust fund- armenn saman að loknum störfum og nutu kvöldstund- ar með oddvita sníum. Hver, sem eitt sinn hefur átt kost á að njóta igestrisni Ara Arnalds, mun vafalaust vera mér sammála um ó- venjulega hæfileika hans sem gestgjafa. Og víst er, að hvar maður, sem sæti átti í sýslunefnd N.-Múl. á þeim árum, mun minnast margra ógleymanlegra ánægjustunda með félögum sinum á heimili hans. — Þá var Arnaids í essinu sínu, hinn veituli gest- gjafi og hrókur alls fagnað- arv Ég hef hér lauslega rif.jað upp minningar, sem sóttar eru allt að 30 ár aftur í tim- ann, og það er margs að minnast, sem ég verð að sleppa að rifja hér upp. Nú eru tæp 10 ár síðan Ari Arnalds lét af embætti i N,- Múlasýslu, og nú er hann orðinn 75 ára öldunugur með óskerta sálarkrafta og furðu mikið starfsþrek. Ég flyt honum beztu árnaðaróskir og minnist hans, eins og aðrir N.-Mýlingar, sem góðs yfir- valds og prýðis drengs. Halldór Ásgrímsson. Lesið Alþýðubíaðið Sfefán Einarsson lenzku eftir Stefán Einars- son um íslenzk sagnaskáld. Það vildi svo til, að sama vorið og Stefán Einarsson varð stúdent, tók ég gagn- fræðapróf í Menntaskólann hér — sem utanskólamaður. Af tilviljun var mér þá bent á Stefán Einarsson, en ekk- ert kynntist ég honum þá. En síðar urðum við mötu- nautar í Húsmæðraskólan- um í Þingholtsstræti 28, og þá hófust kynni okkar. Stef- án var maður stilltur, en hann tók nákvæmlega eftir hverju orði, sem féll í ná- vist hans, og það kom brátt í Ijós, að þrátt fyrir h'ina stilltu og rólegu framkomu, var hann gamansamur mjög og hláturmildur í sinn hóp, og oft og tíðum var hlegið dátt að ýmsu, sem upp á var fundið, bæði uppi og niðri í Þingholtsstræti 28. Og einu verð ég að segja hér frá. Það var eitt sinn, að við Stefán sátum einir að kaffi- drykkju um nónbil í borðstof unni í Þingholtsstræti. Ekki man ég hvað við ræddum, en eitthvað var það þó gaman- samt. Þá kom inn einn af mötunautum okkar, séra Sveinn Ögmundsson, sem var manna glaðastur, og vildi hann gjarnan vita, hvað okk ur gengi til gleði. Hann spurði svo: — Hver . . hver var það? Ég svaraði af bragði: — Það var hann Jónatan Pálsson. Sveinn kannaðist ekki við Jónatan Pálsson og spurði: — Hver er Jónatan Páls- son? Ég svaraði: — Jónatan Pálsson revisor með meiru. Og þar með var Jónatan Pálsson orðinn til, og þó að við félagar hefðum þá ekki lesið sögu Anatole France um Putois, óx og þorskaðist Jónatan ámóta vel og per- sóna sú, er hinn frægi franski skáldsnillingur segir frá, og brátt kom þar, að ýms ir fóru að skipta sér af Jóna- tan Pálssyni aðrir en við Stefán og þeir, sem okkur umgengust mest. Hann pant aði mat, en kom ekki, aug- lýsti ýmislegt í blöðum, hringdi í kaffihús og spurði eftir mönnum skrifaði grein í Vísi og gerði sig sekan um fyllirí og strákapör, og loks varð út úr honum óskaplegt hneyksli með blaðaskrifum og fundarhöldum — en það var, þegar hann tók sig til og orti Píslarþankana ill- rændu. Og nú hef ég heitið því, að áður en langt líður, skuli ég sbrifa sögu Jónatans þessa — eftir beztu getu og heimildum og senda handrit ið vini mínum, hinum á- gæta fræðimanni og rithöf- undi prófessor Stefáni Ein- arssyni í Baltimore, enda var það strax fullyrt um Jónatan Pálsson, að hann væri mað- ur, sem lengst sinnar ævi hefði dvalið í Vesturheimi og væri alveg nýkominn þaðan til íslands. Og víst er um það, að marga glaða stund átti dr. Stefán Jónatan Páls syni að þakka fyrir nærfellt þrjátíu árum! Stefán Einarsson er mað- ur, sem er mjög lítið fyrir að láta á sér bera, og þannig hefur hann ávallt verið. Hann hefur unnið sín ágætu skorti á viðurkenningu eða ingar án þess að vera að hugsa um launin. Hann mun hafa fengið 700 dollara styrk til útgáfu bókmennta- sögunnar áðurnefndu frá al- þingi íslendinga — og þar með búið. En hann er svo sem ekki að mæðast vfir skorti á viðrukenningu eða styrk til starfa sinna héðan, og er hann að þessu fágætur, svo sem og að prúðmennsku og mannkostum öll ir.i. Hvar sem hann kemur fram, er það íslandi og íslenzkri mennlngu til heiðurs. Ég vil svo þakka honum tryggð sína og vináttu og störf hans í þágu íslenzkrar menningar — og óska honum og konu hans heilsu og bless unar. Hann hefur unnið mik ið unnið vel, en þó aðeins lítinn hluta síns ævistarfs, ef honum endist líf og heilsa svo sem vonir standa til. Guðm. Gíslason Hagalín. Jarðarför eiginmanns míns, Garðars Þorsteinss&nar, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 10. þ. m, og hefst með húskveðju á heimili hins látna á Vestur- götu 19 klukkan 1 eftir hádegi. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. F. h. vandamanna. Anna Pálsdóttir.. Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, Jónínu Árnadóttur, fer fram mánudaginn 9. júní kl. 1 e. h. frá Elliheimil- inu Grund. Jarðað verður frá dómkirkjunni. Jóhanna Hansen, Henry Hansen, Bjarni M. Einarsscn, Magnea Jónsdóttir, Sigurlaug Einarsdóttir, Júlíus Þorbergsson, ásamt barnabörnum. EEdri-dansarnir í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu í kvöld hefjast kl. 10. Aðgöngumiðar frá kl. 5 í dag. Sími 2826. HARMONÍKUHLJÓMSVEIT leikur. Ölvuðum mönnum bannaður aðgangur, ■' í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8,30. Húsið opnað kl. 7,45. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag í Sjálfstæðishúsinu. Kvikmyndir: GAMLA BÍÓ: „Dularfulla stúlkan“ — Van Johnson, Marilyn Maxwell, Ava Gard- ner og Lionel Barrymore. — Kl. 5, 7 og 9. NÝJA BÍÓ: „Kona manns“ kl. 7 og 9. Síðasta sinn. — „Hveitibrauðsdagurinn“ •— Rod Cameron, David Bruce, og dansparið Veloz og Yol- anda, kl. 3 og 5. TJARNABÍÓ: „Leikaralíf11 — Janet Gaynor, Fredric March. Kl. 3, 5, 7 og 9. BÆJARBÍÓ: „Litli lávarður- inn“ — Freddie Bartholo- mew, C. Aubrey Smith, Dol- ores Costello Barrymore og Mickie Rooney. Kl. 7 og 9. HAFNARFJARÐARBÍÓ: „Fé- lagarnir fræknu“ •— Abbott og Costello. Kl. 7 og 9. Hljómleikar: BEETHOVENTÓNLEIKAR Tón listarfélagsins í Austurbæjar- bíó kl. 9. Tivoli: SKEMMTISTAÐURINN Tivoli opinn kl. 2—11.30. Samkomuhúsin: BREIÐFIRÐINGABÚÐ: Dans- leikur kl. 10. GT-HÚSIÐ: Gömlu dansarnir kl. 10. HÓTEL BORG: Klassisk mús- ík frá kl. 8—11. Hljómsveit- arstjóri Karl Billich. INGÓLFSCAFÉ: Opið frá kl. 9 árd. Eldri dansarnir kl. 10 síðd. IÐNÓ: Dansleikur kl. 10. M JÓLKURSTÖÐIN: Dansleik- ur kl. 10. TJARNARCAFÉ: Dansleikur kl. 10. ÞÓRSCAFÉ: Gömlu dansarnir kl. 10. ALÞÝÐUHÚSIÐ, Hafnarfirði: Dansleikur VKF Framtíðin til ágóða fyrir dagheimilið. Tónleikar: FJALAKÖTTURINN sýnir re- vyuna „Vertu bara kátur“ í Sjálfstæðishúsinu kl. 5. LEIKFÉLAG RVÍKUR: „Ærsla draugurinn11. Sýning kl. 3. Síðasta sinn. Útvarpið: 19.30 Tónleikar: Samsöngur (plötur). 20.30 Upplestur: Kafli úr skáldsögunni „Dansað í björtu“ eftir Sigurð Gröndal (Þorsteinn Ö. Stephensen les). 21.00 Útvarp frá Beethoven- hátíð Tónlistarfélagsins: Verk eftir Beethoven (Busch-kvartettinn leik- ur). HANNES Á HORNINU. (Frh. af 4. síðu.) ur pólitískt verkfall. Það hef- ur það í för með sér að þeir sem leggja út í verkfallið og stjórna því, eiga engri samúð að mæta. Þeir hafa ekki einu sinni samúð meirililuta verka- lýðsins, hvað svo sem at- kvæðagreiðsla segir. Og annars staðar mæta þeir fullri andúð. Verkfallið mundi og snerta hvert eitt og einasta heimili í Reykjavík og jafnvel þó að víða væri leitað. ÞAÐ ER ALVEG ÁREIÐAN LEGT að verkfallsfyrirætlun hefur aldrei fyrr í sögu verk- lýðssamtakanna átt við að búa jafn mikla andúð og nú. ■— Ef kommúnistar hætta ekki við á- form sín og þeir reyna að hrinda af stað verkfalli með öllum þeim afleiðingum sem það get- ur haft í för með sér, tel ég rétt að þjóðin í heild yrði spurð um það, hvort fremur skuli ráða klíka glæframanna, sem komist liafa til valda í verka- lýðssamtökunum, eða alþingi sjálft. Það er hægt að efna til nýrra kosninga í sumar. Það er leikur sem kommúnistarnir óttast. Leikið þann leik og fylgið honum eftir. Hannes á liorninu. SJÁLFBOÐAVINNA að Kol- viðarhóli, lagt af stað kl. 2 í dag frá Varðarhúsinu. Kom- ið í bæinn kl. 2 á morgun. Nefndin.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.