Alþýðublaðið - 17.06.1947, Blaðsíða 8
r
Laugavegi 74.
súD&r/s/t&fi
J
w
Smurt brauð og snyttur.
Þriðjudagur 17. júní 1947
Nokkrir af farhegum Heklu
Nokkrir af farþegum Heklu, rétt eftir að þeir stigu út úr
flugvélinni á sunnudag.
Skymasferflugvélin Hekla
[ Íslandsglíman:
r
Guðmundur Agústs-
son vann glímuna
í 5. skipfi í röð
ÍSLANDSGLÍMAN var
háð 1 Haukadal á sunnudag-
inn, og mættu til leiks 4 þátt
takendur frá Ármanni 3 frá
KR og 1 frá ungmennafé-
laginu Vöku. Þetta var í 37.
skipti, sem Íslandsglíman
var háð, og urðu úrslit þau,
að Guðmundur Ágústsson,
Á. bar sigur af hólmi og
lagði alla keppinauta sína.
Er þetta í fimmta sinn í röð,
sem Guðmundur vinnur ís-
itandsglímuna. Aðeins einn
maður hefur áður unnið
glímuna svo oft á röð, og var
það Sigurður Greipsson, er
einnig vann hana fimm sinn
um í röð. Oftast hefur hins
vegar Sigurður Thorarensen
unnið glímuna, eða 6 sinn-
um alls.
Guðmundur Ágústsson
hlaut 7 vinninga á íslands-
glímunni á sunnudaginn.
Ánnar varð Guðmundur Guð
mundsson, Á, með 6 vinn-
inga. Þriðji varð Friðrik
Guðmundsson. KR. Um 4.
og 5. sætið urðu jafnir þeir
Davíð Hálfdánarson, KR, og
Kristján Sigurðsson, Á. 6.
varð Ágúst Steindórsson,
KR. 7. Steinn Guðmundsson,
Á, og 8. Sigurjón Guðmunds
son úr Vöku.
í þau 37 skipti, sem ís-
landsglíman hefur verið háð,
hafa nú alls 19 sinnum unn-
ið hana menn ættaðir úr um
dæmi héraðssambandsins
Skarphéðins, og þaðan eru
allir þeir komnir. sem unn-
ið hafa glímuna oftast.
Dómendur á Íslandsglím-
unni á sunnudaginn voru
þeir Sigurður Greipsson í
Haukadal, Bjarni Bjarnason
á Laugarvatni og Þorsteinn
Einarsson, íþróttafulltrúi rík
isins.
Íþróttahátíðán — Suomen
Suurkisat — er einn mesti
íþróttaviðburður Evrópu og
hefur 26 þjóðum verið boð-
in þátttaka í nærhverri ein-
ustu grein. sem til er. Ár-
mannsflokkarnir munu sýna
nærfellt hvern dag, meðan
hátíðin stendur yfir.
Eftir hátíðina, sem byrjar
29. þessa mánaðar, munu Ár-
(Frh. af 1. síðu.)
ig til máls og árnaði félaginu
heilla með flugvélina.
,,Hekla“ mun fara í
fyrstu ferð sína til Kaup-
mannahafnar í dag og legg
ur hún af stað klukkan
tíu. Mun hún fljúga til
Norðurlanda á næstunni
og sennilega einnig til
Bretlands og Frakklands.
FULLKOMIN FLUGVÉL
Moorte flugkapteinn skýrði
svo frá, að Skymaster flug-
vélarnar væru beztu og
reyndustu farþegaflugvélar,
sem til væru. Þessi vél var
notuð til herflutninga og
varð þvi að breyta henni all
verulega til farþegaflugs.
Vélin er búin öllum nýtízku
tækjum. til dæmis um 20
sendi- og móttökutækjum.
Stærð vélarinnar er 118 feta
vængjahaf og 94 feta lengd,
en mestur þungi er 33 smá-
lestir.
Moore lét vel af flugvöll-
menningar sýna fyrir ís-
lenzku kvöldi á norrænni í-
þróttaráðstefnu í Vierumáki,
en auk þess sýna þeir í all-
mörgum finnskum borgum.
Þetta mun vera ein mesta
utanför íslenzkra íþrótta-
manna, og verður flogið í
tveim ferðum til Stokk-
hólms. Flokkurinn fær frítt
uppihald í Finnlandi.
unum hérna, og sagði að
Reykj avíkurf lugvöllurinn
væri alltaf nógu stór til að
lenda á, en geti verið helzt'
tii stuttur fyrir mjög þungar
vélar, ef sérstakar aðstæður
eru. Stakk hann upp á, að
stórar farþegaflugvélar
tækju farþega hér en benzín
í Keflavík, því að benzín-
þunginn einn er 9 smálestir.
VESTUR ÍSLENZIR
FARÞEGAR
Þegar flugvélin var tilbú-
in, flaug hún til Winnipeg.
þar sem hún tók allmarga
vestur-íslenzka farþega, auk
þeirra, sem komu frá New
York. Farþegalistinn fer hér
á eftir:
FRÁ NEW YORK
Raymond Hoover flugmað
ur, Kristján Mikaelsson flug
maður,, Elena M. Moore,
Richard Moore, Mellie C.
Cronish. Ásta Bjarnadóttir,
Helga Þórðardóttir, Rögn-
valdur Johnson, Kristjana
Elíasson, Unnur Dóra Gunn
laugsdóttir, Hjalmar Finns-
son.
FRÁ WINNIPEG:
■ Paul Olofsson Einarsson,
Ásgeir Guðjónssen. Júlía
Guðjónssen, Pétur Guðjóns-
sen. Sif Guðjónssen, Jón
Guðjónssen, Laura Johnson,
Oddný Ásgeirsdóttir, Ása
Jónsdóttir, Jóhann Pálsson,
Alma Levy, Halldóra Peter-
sen. Guðbjörg Sigurðsson,
Jena Louise Sigurðsson,
Kristján Thorsteinsson, Sig-
ríður Jóna Margrét Westdal.
PRESTSKOSNING fór
fram í Grímseyjarprestakalli
7. júní og voru atkvæði tal-
in á skrifstofu biskups í gær.
Aðeins einn maður var í
framboði, Robert Jack, og
var hann löglega kosinn. 50
kjósendur voru á kjörskrá,
en 36 neyttu atkvæðisréttar
síns. Greiddu þeir allir at-
kvæði með frambjóðandan-
um.
Yfir 40 Ármenningar.fara á mikla
íþróftahátíð í Finnlandi
-------♦--------
Tveir fimleikaflokkar og glímuflokkur
fara undir stjórn Jóns Þorsteinssonar.
-------4--------
YFIR 40 ÁRMENNINGAR fara innan skamms á mikla
íþróttahátíð í Finnlandi og fara þeir fljúgandi með Sky-
masterflugvél Loftleiða* Eru þetta fimleikaflokkar karla og
kvenna og glímuflokkur, en flokkunum stjórnar Jón Þor-
steinsson.
Listaverkasýning Ninu Sæmunds-
son var opnuð í gærkveldi
-------♦------
Á sýningunni eru 29 málverk og 28
höggmyndir auk margra teikninga.
----------------——————
,,ÉG VINN alltáf fyrir listina, en ég vinn jafnframt
fyrir ísland“; segir Nina Sæmundsson myndhöggvari, en
hún opnaði sýningu á verkum sínum í Listamannaskálan-
um í gær. Mikill fjöldi gesta var viðstaddur, og Sigurgeir
Sigurðsson biskup opnaði sýninguna með ræðu. Ungfrú.
Nna hefur nú dvalizt 21 ár vestan hafs en allan þennan
tíma hefur hún haldið íslenzkum rikisborgararétti og þar
með neitað sér um mörg og mikil verkefni, sem eingöngu
voru fyrir ameríska borgara.
Á sýningu Ninu eru 29*'
málverk og 28 höggmyndir,
en auk þess mikdll fjöldi
teikninga og ljósmyndir af
nokkrum stærri verkum,
sem ógerlegt var að flytja
hingað. Vegna flutningserf-
iðleikanna eru flestar högg-
myndirnar heldur af minni
stærðum, en stórar_ myndar
á ungfrúin meðal annars í
þrem görðum í Los Angeles,
við Waldorf Astoria hótelið
og víðar. Bezt þekkja íslend
ingar myndina ,,Móðurást“.
sem er i garðinum við Láekj-
argötu.
Myndirnar á sýningunni
eru allar til sölu og voru
þær verðlagðar iaf viður-
kenndum listverkasala 1
Hollywood. Sýningin verður
opin í hálfan mánuð.
3 Gyðingar dæmdir
lli dauða fyrir
ofbeldisverk
ÞRÍR ofbeldismenn úr ó-
aldarflokkum Gyðinga voru
dæmdir til dauða af herrrétti
í Jerúsalem í gær. Þeir
höfðu tekið þátt í árásinni á
fangelsið í Acre í Palestínu í
maí og beitt skotvopnum
þar; en í þeirri viðureign
biðu 15 manns bana.
Tveir aðrir voru dæmdir
til fangelsisvistar, 15 ár
hvor.
Truman neitar að sfaðfesla
lögin um lækkun íekjuilitfs
------4------
Fyrsti árekstur forsetaus við auðmemi-
ina í fiokki repúhlikana.
-----------♦----------
TRUMAN BANDARÍKJAFORSETI neitaði í gær að
staðfesta hin nýlega samþykktu lög Bandaríkjaþingsins mn.
stórkostlega lækkun á tekjuskatti, sem talið er að myndi
nema um 4000 milljónum dollara, ef til framkvæmda kæmi.
Þes hefur undanfarið ver-
ið beðið með mikilli forvitni.
hvort Truman staðfesti þsssi
lög, sem meirihluti repúblik-
ana í Bandaríkjaþinginu og
auðmenn þess flokks stóðu
að. Nú hefur Truman synj-
að þeim um staðfestingu og
er það í fyrsta sinn, sem
hann gengur í berhögg við
meirihluta repúblikana í
Bandaríkjaþinginu. Hins veg
ar kemur nú til kasta þings-
ins, hvort það heldur lögun-
um til streitu og ákveður að
láta þ'au koma til fram-
kvæmda þrátt fyrir synjun
forsetans.
Truman lét svo um mælt
í gær, er hann neitaði að
! staðfesta lögin, að Banda-
! ríkin ætti mörgum fjárhags-
| legum skyldum að gegna er-
iendis og mættu ekki leyfa
sér slíka lækkun tekjuskatts
ins á þessu augnabliki. En
þar að auki myndi hún
magna stórkostlega þá hættu
sem Bandaríkjunum stæði af
verðbólgu; og þjóðinni allri
væri fyrir beztu að fá um-
flúið hana.
Viðræður í París
um tilboð Marshails
BEVIN utanríkismálaráð-
herra Breta fer 1 dag til Par-
ísar til þess að ræða tilboð
Marshalls um fjárhagslega
hjálp til viðreisnarstarfsins í
Evrópu við frönsku stjórn-
ina. t
Var tilboð Marshalls, sem
kunnugt er, við það bundið,
að Evrópuþjóðirnar hefðu
samtök með sér um að
byggja upp lönd sín á ný og
notfæra sér hina amerísku
hjálp í því skyni.