Alþýðublaðið - 29.08.1947, Síða 2

Alþýðublaðið - 29.08.1947, Síða 2
2 ALÞVÐUBLAÐIÐ Föstudagur 29. ágúst 1947. Orðsending frá Félagi vefnaðarvörukaupmmanna í Reykjavík. Á almennum félagsfundi, er haldinn var 17. ágúsf 1947, var gerð svofelld samþykkt: „Vegna ástands þess, sem nú ríkir í verðlags- og innflufn- ingsmálum, sjá meðlimir Félags vefnaðarvörukaupmanna sér ekki fært að halda áfram lánsviðskipfum. Framvegis verða því vörur aðeins seldar gegn stað- greiðslu í sölubúðum vorum." Félag vefnaðarvörukaupmanna í Reykjavík. 1 MinningarorS: Pál! Steingrímsson, rifsfljórl PÁLL STEINGRÍMSSON var fæddur að Flögu í Vatns- dal 16. desember 1879, sonur hjónanna Stengríms bónda Jónssonar og Guðrúnar Frið- riksdóttur á Kornsá Krist- jánssonar Schram. Hann stundaði nám á Möðruvalla- skóla og varð gagnfræðingur þaðan- Um aldamótin fluttist hann hingað til Reykjavíkur og gerðist nokkru síðar starfs rmaður í pósthúsinu hér, fyrst póstafgreiðslumaður og síðar póstfulltrúi. Við þennan starfa Var hann yfir tuttugu ár. Árið 1924 tók hann við ritstjórn dagblaðsins Vísis, sem hann, sökum heilsu- brests, lét af árið 1938. Þá hafði hann og um nokkur ár ritstjórn Dýrarærndarans á hendi. Hann átti sæti í nið- urjöfnunarnefnd Reykjavík- ur fjögurra ára tímabil og var síðustu árin í útvarps- ráði. Hann giftist árið 1913 Guðrúnu Indriðadóttur leik- konu, og áttu þau tvö börn, Herstein ritstjóra, kvæntur Margréti Ásgeirsdóttur, og Kötlu, konu Harðar húsa- meistara Bjarnasonar. Páll átti við mikla vanheilsu að búa undanfarin ár, sem hann 'bar karlmannlega. Hann lézt að heimili sínu þann 22- þessa Páll Steingrímsson mánaðar og fer jarðarför hans fram í dag. Páll Steingrímsson tók við ritstjórn dagblaðsins Vísi ár- ið 1924 og hófst þá góð kynn- ing með okkur, sem hélst æ síðan. Skrifstofa hans varð, eftir vinnuhættur í prent- smiðjunni, sá staður, sem maður sneyddi ógjarnan fram hjá á þeim árum, og oft var orðið áliðnara en ætl- að var, þegar upp var stað- ið, því að húsbóndinn var ó- spar að miðla gestum og gangandi af þekkingu sinni í sögu og bókmenntum. Hann unni ljóðlist og ég minnist ekki að hafa kynnzt nokkr- um manni, sem kunni jafn mikið af kvæðum né fór með þau af meiri skilningi en hann. Auk ritstjórnarinn- ar fékkst Páll töluvert við ritstörf. Hann birti nokkrar smásögur eftir sig, undir dul nefni, í jólablöðum Vísis, sem vöktu mikla eftirtekt. Þær hafa enn ekki komið út sérstakar. Þá samdi hann nokkur leikrit og hafa sum þeirra verið sýnd á leiksviði hér í bæ og víðar. Hann var prýðilega ritfær og lét ekk- ert frá sér fara ófágað. Hann unni fögru máli í hverri mynd sem það b'irtist. I blaða mennsku, sinni var hann ó- áreitinn og kæmi það fyrir að hann lenti í ritdeilum, fann ég að honum þótti það stórum miður, því engan vildi hann særa. Hann var mikill dýravin- ur, og eins og áður getur, var hann ritstjóri Dýraverndar- ans nokkur ár. í æsku var hann hestamaður og skemmti lega sagði hann frá gæðing- unum, sem hann umgekkst þá. Þar var um vini að ræða, sem voru honum ógleyman- legir. Páll SteingrímSson var einn þeirra manna er lengi mun vinum sínum mikils- verður í minningunni. Hafliði Helgason. HOþúsund funnur af karföflum framleidd- ar ífyrra. KARTÖFLUUPPSKERA landsmanna var rúmum 25 þúsund tunnum meiri árið 1946 en árið þar á undan, eða um 110 þúsund tunnur. Árið þar áður var kartöflu- uppskeran á öllu landinu aftur á móti ekki nema 54 þúsund 580 tunnur, sam- kvæmt búnaðarskýrslum hagstofunnar. Er hagstæð veðrátta talin eiga sinn þátt í hinni góðu kartöfluuppskeru árið 1946 og enn fremur gerðu kartöflu sjúkdómar lítið vart við sig það ár. Félagslíf Sjálfboðavinna að Kolviðarhóli um helgina. Þátttakendur mæti kl. 2 e. h. á laugardag við Varðarhúsið. Skíðadeildin. Hekluför á laugardag kl. 2. Berjaferðir um helgina ef veður leyfir. Ferðaskrifstofa ríkisins. SKIPAUTC6RÐ RIKISINS Esja Hraðferð vestur og norður til Akureyrar 3. september. Vör um veitt móttaka árdegis á morgun og mánudag. -Pantað'ir farseðlar óskast sóttir á mánudag. Mb. Skaftfelfingur til Vestmannaeyja fyrir helg- ina. Vörumóttaka í dag. M.b. Fagranes hleður til Súgandafjarðar, Bolungavíkur og Isafjarðar mánudag,, sími 5220. Sigfús Guðfinnsson. rannlækningastofa mín er opin aftur. Engilbert Guðmundsson. Þvotfamiðstöðin Borgartúni 3. Sími 7263. Tökum blautþvott, Minningarspjöfd Jóns Baldvinssonar forseta fást á eftirtöldum stöðum: Skrifstofu Alþýðuflokksins. Skrifstofu Sjómannafélags Rvíkur. Skrifst. V. K. F. Framsókn, Alþýðubrauðg., Lvg. 61 og í verzl. Valdimars Long. Hafnarfirði. Kaupum tuskur Baldursgötu 30. Munið Tivoli, Þríhjó! Hlaupahjól Rugguhestar, Hjólbörur, Bílar, stórir, Brúðuvagnar o. fl. K. Einarsson & Björnsson h.f. Þvoffamiðsföðsn Borgartúni 3. Sími 7263. Töli urn blautþvott.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.