Alþýðublaðið - 29.08.1947, Síða 7
Föstudagur 29. ágúst 1947.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Bærinn I dag.
*----------------------------♦
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni ,sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni' Iðunn, sími 1911.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 6633.
Ljósatími ökutækja
. er frá kl. 21 til 4 á nóttu. —
Ljós
á bifreiðum, sem aka um bæ-
inn, mega ekki vera svo sterk,
né þannig stillt, aS þau villi
vegfarendum sýn.
Jarðarför Páls Steingrímssonar,
fyrrverandi ritstjóra, fer fram
frá Fríkirkjunni í dag og verð-
ur kirkjuathöfninni, sem hefst
kl. 14,15, útvarpað.
Höfnin
Ingólfur Arnarson og Belg-
aum komu af veiðum í gærmorg
un og fóru síðdegis áleiðis til
Englands með afla sinn. Brú-
arfoss kom af ströndinni í fyrra
kvöld, fér í kvöld áleiðis til
Rússlands með frosinn fisk.
Fjallfoss fór áleiðis til Ame-
ríku í fyrrakvöld.
Farþegar
frá Kaupmannahöfn ög Prest-
wick með leiguflugvél ■ Flugfé-
lags íslands h.f. 27. ágúst: Frú
Ólavía Jónsdóttir, frk. Björg
Sveinbjörnsdóttir, frú Grete
Pétursson og tvö börn, Sigrún
Aðalbjarnardóttir, Halldóra
Ingibjörnsdóttir, Haukur Snorra
son og' frú, Mr. Lloyd-Carson,
Mr. Josef Palaty, hr. Lúðvig
Stoi’r konsúll, John Jern-
berg, Halldór Eiríksson, Einar
Guðmundsson, frú Ástfríður
Ásgríms og barn, frk. Steinunn
Sigurðardóttir, Einar Harmsen,
Kjartan Gíslason, frú Friðbjörg
Helgason, frk. Oddný Þórarins
son, Tryggvi Ófeigsson.
Farþegar
til Prestwick með leiguflug-
vél Flugfélags íslands h.f. 28.
ágúst: Mr. Cane, Mr. Beal, Col.
Lloyd-Carson, frú Ölöf Einars-
dóttir, frk. Þórdís Kalman, Jan
Moravek, Sigurður Þorsteinsson
og frú og 3 börn, Carl Olsen
konsúll, Mr. Tomlinson, frú
Ólöf Stefánsdóttir, Geir H.
Zoega og frú og barn, frk. Sim-
one Gautier, Haukur Hvann-
berg, Mr. O’Sullivan, Mr.
Brown, Mr. Green, Mr. Goe-
dertier, Mr. O’Rourke, Mr. Fair-
weather. ■
Öngþveiti í alþjóSa-
málum.
Framhald af 5. síðu.
ástæðuiausum fjandskap, er
orðið gæti hættulegur.
Með þeirri stefnu er enn-
þá von um, að núverandi
hindrunum verði rutt úr
vegi og Rússar og vesturveld-
in finni samkomulagsgrund-
völl til þess að vinna saman
að hagsmunum alþjóða. Og á
þéirri stefnu hvílir einnig von
in um að vemda hugmyndina
sem sameinuðu þjóðirnar og
einn heim.
Kennarasambandið
(Frh. af 3. síðu.)
kennurum færi á áð skoða
hinn m'ikla heimavistarskóla,
sem þar er að rísa upp, og
dáðust þeir að stórhug og
bjiartsýni þeirra manna, er þar
hafa forystu. Einnig sátu ken a
arar heimboð hjá Haildóri
Asgrímssyni, alþingismanni og
Jakobi Einarssyni, prófasti að
Hofi. Ekki mun það ofmælt.
að ailir þeir, er þátt tóku í
förinni, minnist hennar með
sérstakri ánægju. og færi
Vopnfirðingum1 alúðar þakkir
fyrir viðtökurnar.
TILLAGA BRAZILÍU í
Egyptalandsmálunum var í
gær felld í öryggisráðinu
teftir allmiklar umræður. Til-
laga frá Colombia var tekin
til umræðu næst.
Farþegar
með ,,Heklu“ frá Reykjavík
til Kaupmannahafnar í gær:
Edmund Eriksen, Ragnar Kaa-
ber og frú, Jörgen Klerk, Þór-
unn Þórðardóttir, Sigurður
Þormar, Theodór Árnason, Þór
oddur Sigurðsson, Ólafur Jen- ■
son, Skúli Guðmundsson, Barði
Guðmundsson, Ölöf Sigurðar-
dóttir, Árni Pétursson, Margrét
Jóhannesdótttir, Ellen Knud-
sen, Jóhannes E. Jóhannesson,
Sigurbjörg Jónsdóttir, M'atthías
Ástþórsson, Arne Aarfelt, Karl
Jónasson', Grigore Prakhine og
Gleb Zekhov.
Til barnaspítalasjóðs Hringsins.
Minningargjöf, kr. 500, um
Hróðnýju Einarsdóttur frá Brú,
Jökuldal, f. 14. des. 1841, d. 3.
ág. 1925, frá dóttur hennar
Helgu Pálsdóttur. — Kærar
þakkir. Stjórn Hringsins.
Síidveiðarnar 1946
(Frh. af 3. sfðu.)
lækka í samræmi við það,
sem söltun yrði minni en 300
þús. tunnur, og fóru því ekki
nema 66 477 tunnur af salt-
síld til Rússlands. Hið fyrir-
fram ákveðna verð á Svíþjóð
arsíldinni var 75 sænskar kr.
fyrir tunnuna af hausskor-
inni síld, enda legðu kaup-
endurnir til tunnur og salt.
Fengu þeir um 29 þús. tunn-
ur á þessu verði, en urðu að
greiða hærra verð fyrir þá
saltsíld, sem þeir keyptu þar
fram yfir, vegna þess að
minna veiddist af síld en bú-
izt var við. Var það verð 100
—110 sænskar kr., og er þá
tunna og salt innifalið í verð-
inu- Meiri hluti Svíþjóðarsíld
arinnar árið 1945 mun hafa
farið á hærra verðinu það
ór, sem var 73 sænskar kr.
fyrir hausskorna síld. Verð-
ið á síldinni, sem seld var fyr
irfram til Svíþjóðar 1945, var
58 sænskar kr. — Smásend-
ingar af saltsíld fóru til Banda
ríkjanna, Finnlands og Dan-
merkur. — Fluttar voru út á
árinu 158 662 (114 541) tunn-
ur af saltsíld, fyrir 27 971 (16
896) þús. kr., þar af 3 453
tunnur, fyrir 628 þús. kr-,
fyrra árs framleiðslu. Skipt-
ing útflutningsins á lönd var
sem hér segir: Rússland 66
477 (0) tunnur, fyr.ir 10 757
þús., Svíþjóð 65 870 (72 726)
tunnur, fyrir 12 1.65 (9 503)
þús., Bandaríkin 9 628 (11
640) tunnur, fyrir 2 126
(2 278) þús., Danmörk 8 468
(14 994) tunnur, fyrir 1 499
(2 646) þús., og Finnland 8
000 (0) tunnur, fyrir 1 398
þús. kr- Ekki var um að ræða
neina saltsíld til Bretlands og
Frakklands, en árið áður voru
fluttar út 8 233 tunnur, fyrir
1 439 þús., til fyrr nefnda
landsins, og 6 948 tunnur, fyr
ir 1 030 þús. kr., til hins síð-
ar nefnda.
SÍLDVEIÐARNAR
í gærmorgun komu 18
skip til Raufarhafnar, með
■samtals 3300 mál síldar. Á
sama tíma var saltað á Rauf-
arhöfn í hátt á annað hundr-
að tunnur-
Úlbrelðið
Alþýðublaðið
| - Skemmtanir dagsins - |
<jK^5X?<5<>5><?<2S><>3><<><3K^C>3><?<3>'i><3><S><?<>Ú<*Q><*^5><><^3><><>3><<3>^><3K?<>S><^2><3><>3><2><^®<^^
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Hjartsláttur“.
Ginger Roges, Jean P. Au-
mont. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ: „Tvíkvænismaður-
inn“. Joan Blondell, Phil
Silvers. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TJARNARBÍÓ: „Hollywood
Canteen. Sýncl kl. 5 og 9.
TRIPOLI BÍÓ: „Séra Hall“.
Nova Pilbeam, Sir Seymour
Hicks, Wilfred Larson, Mar-
ius Goring. Sýnd kl. 9.
BÆJARBÍÓ: „Ungir leynilög-
reglumenn11. Lynn Bari, Ran-
dolph Scott, Peggy Ann
Garner. Sýnd kl. 7 og 9.
Skemmtisíaðir:
TIVOLI: Opnað kl. 7 síðd.
DÝR ASÝNIN GIN í Örfirisey.
Opnað kl. 8 árdegis.
Dansleikur kl. 10 síðdegis.
Samkomuhúsin:
BREIÐFIRÐIN G ABÚÐ: Dans-
leikur kl. 10 síðdegis.
HÓTEL BORG: Konserthljóm-
leikar frá kl. 9—11,30. >
TJARNARCAFÉ: Danshljóm-
sveit frá kl. 9—11,30 síðd.
Öfvarpið:
20.30 Útvarpssagan: „Á flakki
með framliðnum“ eftir
Thorne Smith, XIV (Her
steinn Pálsson ritstjóri).
21.00 Strokkvartett útvarpsins.
21.15 íþróttaþáttur (Brynjólf-
ur Ingólfsson).
21.35 Tónleikar.
22.00 Fréttir.
22.05 Symfóníutónleikar.
23.00 Dagskrárlok.
Jarðarför systur minnar
s Sigríðar Ingibjargar Sigurðardóttir
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík laugard. 30.
þ. m. kl. 11 f.h. Jarðsett verður í Gaulverjabæ og
hefst athöfnin þar kl. 3 s. d.
Jóhanna Sigursturludóttir
Fljóthól.
Alúðarþakkir til allra þeirra, er auðsýndu mér
samúð við andlát og jarðarför manns míns,
w Friðbjarnar Aðalsteinssonar,
skrifstofustjóra.
Sérstaklega vil ég þakka stjórn Landssímans og
starfsfólki hans.
Reykjavík, 28. 8. 1947
Ellý Thomsen Aðalsteinsson.
Fyrsfa flokks
KJALLARAÍBÚÐ í húsi á Melunum er til sölu.
Hún er útaf fyrir sig. Öll í tízkunnar ástandi með
sérmiðstöð. Þrjár samliggjandi stofur móti suðri
afar sólríkar, ef sól skín. Hagstæð lán hvíla á í-
búðinni Verð sanngjarnt. Sá verður ekki hús-
viltur, sem kaupir þessa íbúð. Nánari upplýsing
ar gefur PÉTUR JAKOBSSON löggiltur fast-
eignasali Kárastíg 12 sími 4492 Viðtalstími kl.
1—3.
Frí Melaikólanyni
Læknisskoðun þriðjud. 2. sept.
kl 8. f. h. 10 ára drengir (f. 1937). kl. 9 10 ára stúlk
ur, kl. 10 9 ára stálkur (f. 1938), kl. 11 9 ára dreng
ié, kl. 1,30 e. h. 7 ára drengir (f. 1940), kl. 2,30
7 ára stúlkur, kl. 3,30 8 ára stúlkur (f. 1939) og
kl. 4,30 8 ára drengir.
Miðvikudaginn 3 sept.
kl. 10 mæti 7 ára börn (f. 1940), sem eiga að sækja
skólann í haust, en komu ekki til prófs og innrit-
unar á síðasl. vori. — Sama dag kl. 11 komi börn
f. 1937, ’38 og ’39, sem stunda eiga nám í skólan-
um í vetur, en voru ekki í skóla hér síðastl. vetur.
Börnin hafi með sér prófvottorð frá síðastl. vori.
Fimmtudaginn 4. september mæti skólabörnin
til innritunar í bekki sem hér segir:
Kl. 9: 10 ára börn (f. 1937),
— 10: 9 ára börn (f. 1938).
— 11: 8 ára börn (f. 1949).
og kl. 2 e. h.: 7 ára börn (f. 1940).
Kennarafundur í skólanum mánudaginn 1.
september kl. 4 e h.
Auglýsingar
sem birtast eiga í blaðinu á sunnu-
dögum, þurfa í síðasta lagi að berast
til auglýsingaskirfstofu blaðsins á
á föstudgum fyrir klukkan 7 síðdegis.