Alþýðublaðið - 29.08.1947, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 29.08.1947, Blaðsíða 8
VERZLUNIN Brezka stjórnin ætlar að auka landbúnaðinn um helming ---------------«------- Fyrsta áætlun stjórnarinnar um aukna framleiðslu á Bretlandseyjum. --------»------- LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA Breta, Tom Will' -ns, Iýsti í gær í brezka útvarpi'nu fjögurra ára áætlun um mikla aukningu landbún&Sar á Bretlandi, og er þatta fyrsta áætlun stjórnarinnar tii að sigrast á erfiðleikum þjóðarinnar, ssm iýst -er opinberlega af nokkurri n'ákvæmni. Ætlunin er ao auka svo landbúnsað Bretlandseyja, að hann verði tvisvar sinnum meiri en fyrir‘stríðið. „Ekki brann sá máfS- ur sem Laugavatns- skólinn heíur veift 2000 manns." Endurbygging skólahússins fer fram næsta sumar. „EKKI BRANN SÁ MÁTT URU, sem ég vona að kennslu starfið á Laugavatni hafi veitt nálega 2000 manns l>ar“, sagði Bjarni Bjarnason skólastjóri í ávarpi sínu í út- varpinu í fyrrakvöld. „Skól- inn mun því starfa áfram í vetur þrátt fyrir bruna skóla hússins, og endurbyggingin hefst á næsta sumri“. Skólastjórinn gat þess í á- varpi sínu, að nemendur yxðu að sjálfsögðu að búa þrengra í vetur en verið hefði áður, en þeir sem vildu sætta sig við það gætu komið til skól- ans á tilsettum tíma. Þó gætu nýir umsækjendur, sem sótt hefðu um skólavist mjög ný- Iega og ekki fengið svar við umsóknum sínum, ekki vænzt þess að komast að. Nemendurnir eiga að koma í skólann sem hér segir: Gagnfræðadeild og fram- haldsdeild 25. september, nemendur annars bekkjar 25. október og nemendur fyrsta bekkjar 1- nóvember. Sex síldveiðibátar komnir að norðan ----o---- NOKKRIR síldveiðibátar eru nú hættir veiðum. Und- anfarna daga hafa sex bát- ar héðan af Suðurlandi, sem stundað hafa síldveiðar fyrir norðan í sumar komið til Reykjavíkur. Fyrir nokkrum dögum kom „Karl“ frá Reykjavík, ífyrra dag kom „Vilborg“ . frá Reykjavík, og í gær komu „Báran“ frá Grindavík, „Skógarfoss“ frá Vestmanna eyjum, „Faxaborg” frá Rvík og „Heimir“. ■ Williams skoraði á brezka bændur að leggja sig alla fram til þess að þessi áætlun stjórnarinnar fái staðizt, því að þjóðin hafi hvorki ráð á að iáta land standa óræktað né að kaupa allar þær landbún- aðarvörur utanlands,. s&m nú eru fluttar til landsins. Ráðherrann skýrðj einnig frá því, að ætlunin væri að sjá bændum fyrir öllum þeim landbúnaðarvélum, sem þei.r þyrftu á að halda til að auka svo framleiðslu sína, sem gert er ráð fyrir- Hafa einnig verið gerðar áætlanir um ráðstafanir til þess að bæta úr mannskorti sveit- anna og að sjá fyrir betra húsnæði fyrir bændur og vinnuhjú. Alls er búizt við, að landbúnaðarframleiðslan verði aukin um 100 milljón sterlingspunda virði á ári og þegar áætlunin hefur öll ver-* ið framkvæmd verður fram- leiðslan helmi.ngi meiri en fyrir stríð. BIFREIÐAFRAMLEIÐSLA BRETA Birgðamálaráðherra Breta, Wilmont, hefur átt viðræð- ur við bifreiðaframleiðendur landsins um hinar nýlegu ráðstafanir stjórnarinnar til skömmtunar á benzíni, en þær munu draga mikið úr bif reiðakaupum Brata sjálfra. Sagði Wilmont frá því, að brezkir bifreiðaframleiðend- ur mundu verða að sætta sig við að framleiða færri teg- undir og flytja meira út en nú væri gert, þar'sem aðeins þeir Bretar, sem nauðsyn- lega þurfa á bifreiðum að halda, munu fá benzín- skammt. Mun allt þetta hafa í för með sér miklar breyt ingar í bifreiðaiðnaði lands- ins. TRUMAN FORSETI mun innan skamms fljúga til Braz ilíu, þar sem ráðstefna Ame- ríkuríkjanna um sameigin- legar varnir hefur staðið yf- ir. Líklega verður undirritað ur varnarsáttmáli milli allra Amerrkuríkja, er nái frá Grænandi og Aoaska til Suð- urheimskautsins. Truman verður í Brazilíu til 7. sept- ember. Síðan Georg V. Bretakon- ungur lézt hefur lítið heyrzt um drottningu hans, Mary, utan Bretlands. Hún kemur þó öðru hverju fram opin- berlega með syni sínum, Georg VI. Borgarsfjóra heimil- að ráða norskan verk fræðing til að sfjórna sprengingum við Sogið. RAFMAGNSSTJÓRA hef- ur verið heimilað að ráða H. Bronder, verkfræðing í Osló til að stjórna tilraunaspreng- ingum vegna fyrirhugaðrar rafmagnsstöðvar við Sogið. Á síðasta fundi bæjarráðs var lögð fram skýrsla raf- magnsstjóra um för hans til Norðurlanda nú nýlega til viðræðna við sérfræðinga þar um undirbúning hinnar fyrirhuguðu virkjunar neðri fossa í Soginu. Var borgar- stjóra og rafmagnsstjóra fal- ið að athuga nánar um samn- inga við A. B- Berdal verk- fræðing í Osló um ráðunaut- arstörf við byggingarfram- kvæmdirnar og tilboð J. Nis- sens verkfræðings í Osló um að vera til aðstoðar vegna rafmagnsvélanna. NÁMUVERKAMENN í Yorks hire eru nú í verkfalli í 10 námum. Hefur verkfallið verið fordæmt af verkalýðsleiðtogum, þar sem kolaskortur þjóðar- innar er svo alvarlegur. Miðbæjarskólinn byrjar nú 50. skólaár siít í sömu byggingunni. ---------«--------- YFIR 5 000 börn munu eftir mánaðarmótin hefja nám í barnaskóium Reykjavíkur eftir sumarfríið og eru skóla- stjói'aruir þesea dagania að auglýsa læknisskoðun og sam- komudaga fyrir börnin. Fngar alvarlegar breytingar verða, iað því er bezt verður séð, á nemandatölu skólanna, nema hvað búizt er við 50—60 nemenda aukningu í Laugarnes- skólanum og um 100 börn flytjast frá Miðbæjarskólanum tiL Melaskólans. Melaskólinn mun nú taka við einum af þeim elztu ár- göngum sínum, sem voru í fyrra í Miðbæjarskólanum, meðan verið er að ljúka við bygginguna á melunum. Am grímur Kristjánssc.n skóla- stjóri segir svo frá, að kennsla muni tefjast fram undir aðra helgi vegna þess, að leikvangurinn vestan skól ans verður malbikaður. Efsta hæð skólans er nú að heita má fullgerð og von er um, að leikfimisalur og handavinnustofa drengja verði afhent skólanum til notkunar í október. Fasta- kennarar skólans verða í vet ur 22 til 23- Miðbæjarskólinn byrjar nú 50. skólaár sitt, sagði Ár- mann Halldórsson við blað- ið. Hátíðahöld hafa engin ver ið ráðiii enn, en sennilega verða þau í vor. Nemendur skólans verða í vetur um 1000, en voru 1100 í fyrra, að meðtöldum árgöngunum frá Melaskóla. Fastakennar- ar verða 35. Fyrsta nýja skip Eimskipafélagsins filbúið í febrúar. FYRSTA NÝJA SKIPINU, sem Eimskipafélag íslands er að láta smíða í Kaupmanna- höfn, verður væntanlega hleypt af stokkunum í haust og standa vonir til, að það verði fullbyggt og komi hing- að til lands í febrúar í vet- ur. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið hefur fengið, hafa miklar tafir orðið á smíði iskipsins. Hefur þar bæðd valdið efnisskortur, vinnu- stöðvanir, kuldarnir á síðast liðnum vetri og fleira. Skip þetta er eins og áður hefur verið frá sagt vöru- flutningaskip, 2600 smálest- ir að stærð. í Austurbæjarskólanum hefur verið unnið að því að setja hljóðeinangrunarplötur í kennslustofurnar, en því verki er enn ekki lokið í allri byggingunni, segir Arnfinn- ur Jónsson skólastjóri. Mun þá verða fyrirbyggt bergmál, sem hefur verið bagalegt í skólanum. Þá er verið að setja þak á húsið, en það hef- ur lekið töluvert undanfarið- Verður unnið að því fram á vetur, en það mun að vonum ekki hamla kennslu. Nemend ur skólans verða um 1550 og kennarar 49. Unnið hefur verið að því að fullgera Laugarnesskól- ann og má hann nú heita nær fullgerður, þótt ýmíslegt smá vegis sé ógert innanhúss, að sögn skólastjórans, Jóns Sig- urðssonar. Búizt er við að nemendum fjölgi um 50—60 í vetur, og verði þeir því um 1150. Auk þessara stóru skóla munu á þriðja hundrað nem endur sækja Grænuborg, skóla ísaks Jónssonar. Þá munu 205 nemendur stunda nám í Landakoti, og er það sama tala og í fyrra. Brúarfoss fer með fisk til Rússlands. E.S. BRÚARFOSS leggur af stað í kvöld áleiðis til Rússlands méð nálega 1100 smálestir af frostnum fiski, Skipið kemur við í Englandi og tekur þar kol og ennfrem ur kemur það við í Kaup- mannahöfn á austurleið, en það er fullskipað farþegiun bæði þangað og til Englands. Þetta er fyrsta ferð Brú- arfoss til útlanda eftir við- gerðina, sem framkvæmd var á skipinu í Danmörku. Fór Brúarfoss strax á hafnir á Vestur- og Norðurlandi eftir að hann kom heim um dag- inn og hefur lestað þar fros- inn fisk. Alls munu það vera 1050—1100 smálestir af fiski, sem skipið flytur héðan til Rússlands- Skipið mun losa í Leningrad, en á heimleið- inni tekur það vörur í Kaup- mannahöfn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.