Alþýðublaðið - 06.09.1947, Page 7
Laugardagur 6* sept. -1947.
AÍ.ÞYÐUBLAÐIÐ
Naeturlæknir er í læknavarð
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki, sími 1618.
Næturakstur annast Litla bíl
stöðin, sími 1380.
Ljósatími ökutækja
,er frá kl. 19,50 til kl. 5 að
nóttu. — Þar sem bifreiðar-
stjóri sér skammt frá sér, í
kröpþum beygjum, við gatna-
mót, þar sem vegurinn er sleip-
ur og þar sem mikil umferð
er, skal gæta sérstakrar varúð-
ar, og má þá aldrei aka hraðar
en svo, að stöðva megi bifreið-
ina þegar í stað.
Dómkirkjan
Messað kl.
Jónsson.
11. Séra Bjarni
Fríkirkjan
Engin messa í Fríkirkjunni á
morgun.
Hjónaefni
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sína ungfrú Sigrún Gísla-
dóttir frá Eskifirði og Hallgrím
ur Steinarsson, Vesturgötu 30,
Reykjavík.
Hallgrímssókn
Messað í Austurbæjarskólan-
um á morgun kl. 11 f. h. Séra
Jakob Jónsson.
SENATOR BRIDGES frá
New Hamshire sagði í ræðu
í Columbus í gær, að Rússar
hefðu nú sölsað undir sig
jafn mikið án stríðs og
Hitler hlaut með hjálp herja
sinna. Hann hvatti til þess,
að ofbeldisstefna Rússa verði
þegar stöðvuð.
EITT HUNDRAÐ ÞÚS-
UND smálestir kola hafa
glatazt við verkfall kolanámu
manna í Yorkshire. Shinwell
eldsneytismálaráðherra vinn
ur nú að lausn deilunnar.
HANNES Á HORNINU.
(Frh. af 4. síðu.)
íslenzkra stjórnmálamanna. Vel
má vera að einn og einn, eða
nokkrir í hóp, rísi upp ösku-
reiðir út úr þessu og hinu. Um
það dugir þó ekki að fást. Það
eitt kemur til álita, hvað ís-
lenzka þjóðin getur leyft sér.
Hannes á horninu.
Heildarútgáfa af
Hagalín
(Frh. af 3. síðu.)
horfum þeim, sem fram hafa
komið í skrifum hans um
bókmenntir o.g hlutverk þeirra
— og þá einkum á síðustu ár-
um, en hann hefur látið þessi
efni æ meir til sín taka í skrif
um sínum.
Á árunum 1921—1923 skrif
aði Guðmundur Hagalín ýms-
ar greinar, sem bera þess ljóst
vitni, að hann hefur furðu-
fljótt markað sér þá stefnu á
sviði bókmenntanna, að ís-
lenzkum skáldum beri að
fylgjast með því, se'm fram fer
í umheiminum, en -hafa fyrst
og fremst að grundvelli ís-
lenzkar menningarerfðir. Rit-
höfundarnir skulu gerast leið
togar þjóðarinnar í menn-
ingarmálum „nú á þess-
um upplausnartímum, sem ó-
hjákvæmilega fara í hönd,
þegar langþráðu marki póli-
tísks sjálfstæðis er náð og
menn óvissir, hvert halda
skuli“ — svo sem Hagalín seg
ir í júlí 1923 í grein í Austan-
fara, þá 24 ára gamall. Höfund
arnir verða því að finna á-
kveðna leið, „ekki -eins og and
inn inngefur þeim og ekki eins
og margar raddir hrópa hand-
an yfir hafið. Þeir verða að
finna leið, sem er í samræmi
við þjóðarsálina11. Til þess ieiga
þeir „að fara inn í hvert hús,
inn á hvern bæ, inn í hvert
hreysi, kenna þjóðinni með
því að draga fram kosti henn
ar og galla, en einkum með
því að sýna fram á, alls stað-
ar og í öllu, eitthvert gildi, ein
hvern víst að gróandi þroska,
beilbrigðu og náttúrlegu hugs
analífs. Hér er nægilegt verk-
svið. Og einmitt hjá alþýðunni
getur að finna meiri, styrkari
og hlýrri frumsindur en okk
ur grunar . . , Að þessari
mannrannsókn og mannrækt-
un hafa skúldin unnið í öll-
um löndum og á öllum tím-
um og ættu þess vegna að geta
það enn . . .”
Þetta er í fyllsta samræmi
við þau sjónarmið, sem Haga
lín heldur fram í greinum sín-
um enn í dag, og ennfremur
er það auðsætt við athugun á
ritum hans, að hann hefm’
ekki látið sitja við orðin ein.
Guðmundur Hagalín lagði í
fyrstu allmikla stund á ljóða
■gerð, og aðeins 19 ára gam-
all ortí haim kvæði Svefn-
eyjabóndinn, sem sýnir glögg
lega, hvers hefði mátt af hon-
um vænta sem ljóðaskáldi, ef
hann -hefði haldið áfram að
iðka Ijóðagerð. En hann vék
sér rúmlega tvítugur svo að
segja eingöngu að sagnskáld-
skap. Hann hefur skrifað um
það bil 50 smásögur, sem birzt
hafa á prenti, og eru sumar
þeiira með því fremsta, sem
hann hefur samið. Hinir stærri
skáldsögur hans eru átta, en
af þeim hafa hlotið almenn-
asta viðurkenningu og vin-
sældir Kristrún í Hamravík,
Sturla í Vogum og Blítt lætur
veröldin. Þá eru og ævisögurn
ar Virkir dagar og Saga Eid-
eyjar-Hjalta mjög merkur
hluti af ritverkum Hagalíns,
og mun ekki leika neinn vafi
á, að þessi nýja’gerð íslend-
ingasagna hefur átt veigamik-
inn þátt í því, hve margt minn
inga og ævisagna hefur kom-
ið út á síðustu árum.
I skáldritmn og ævisögum
eftir Guðmund Hagalín er
mikinn fróðleik að finna xrm.
líf og menningu þjóðarinnar á
seinustu þremur aldarfjórðung
um — og þá fyrst og fremst
þeirra manna, er sjóinn sóttu.
Eru margar lýsingar Hagalíns
á sjósókn og sæförum hinar
gleggstu og áhrifaríkustu. Hon
um lætur og mætavel að láta
koma fram í sögum sínum á-
hrif náttúruaflanna og lífsbar
áttunnar á mótun mannlegrar
skapgerðar, í ritum hans er
fjöldi af skýrum og lifandi
persónum, og eru sumar
þeirra þegar komnar i þann
tiltölulega litla hóp söguper-
sóna úr bókmenntum íslend-
inda frá síðari tímum, sem um
er talað eins og menn, er rairn
verulega hafi lifað. Hagalín
hefur líka í> bókum sínum náð
svo langt í þeirri grein listar
að sérkenna - mál persóna
sinna, að til fárra verður þar
jafnað. Þá er kímni hans fá-
gætt fyrirbrigði í íslenzkum.
bókmenntum, og bregður hún
oft þannig skini yfir viðhorf
manna við vandamálum lífs-
ins, að því er gaumur gefinn
Tvær frábærar skáldsögur
Asf og
búskapur
Heillahdi róman frá Nor-
egi í aðalatriðum sönn
frásaga um fyrstu bú-
skaparárin'.
Verð aðeins kr. 12,50
> •
Orlagabrúin
Ógleymanleg og spenn-
andi bók um stórbrotin
og ævintýraleg örlög, einkennileg og fágæts fólks. Bók,
sem enginn má missa af.
Verð aðeins kr. 12,50.
HELGAFELL
Box 263, Garðastr, 17, Laugav, 100, Aðalstr. 18,
Njálsg. 64, Laugav. 38.
og það skilið, sem ella mundi
verða lesandanum torrætt —
eða fara fram hjá honum. Stíll
Hagalíns er fjölbreyttur og þó
- Skemmtanir dagsim -
GAMLA BÍÓ: „Hjónabandsfrí“
Robert Donat, Deboran
Kerr, Ann Todd, Sýnd kl. 3,
5, 7 og 9.
Kvikmyndir:
NÝJÁ BIO: „Tónlist og tilhuga
líf“, Maureen O'Hara, Dick
Haymer. Sýnd kl. 3, 5, 7 og
9.
TJARNARBÍÓ: „Virginia City“.
Errol Flynn, Miriam Hopkins.
Sýnd kl. 5 og 9. „Seldur á
leigu“, sýnd kl. 3.
TRIPOLI BÍÓ: „Þú ert unnust-
an mín“. Alice Faye, George
Murphy, Ken Murray, Char-
les Winninger, William Garg
an. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ: „Hún samdi bók
ina“, Joan Davis, Mischa
Auer, sýnd kl. 7 og 9.
Söfn og sýningar:
SEPTEMBERSÝNINGIN í
Listamannaskálanuni: Opin
frá kl. 11 árdegis til 11 síðd.
Skemmfisfaðir:
TIVOLI: Opnað kl. 7 síðdegis.
Samkomuhúsin:
BREIÐFIRÐINGABÚÐ: Al-
mennur dansleikur kl. 10 s.d.
HÓTEL BORG: Konserthljóm-
leikar frá kl. 9—11,30 síðd.
T J ARN ARC AFÉ: Dansleikur
Mótor- og vélstjórafélags
Reykjavíkur kl. 10 síðd.
G.T. HÚSIÐ: Gömlu dansarnir
kl. 10 síðd.
IÐNÓ: Dansleikur kl. 10 síðd.
Dansleikur kl. 10 síðd.
Öfvarpið:
20.30 Útvarpstríóið: Einleikur
og tríó.
20.45 Leikrit: „Borðhald undir
beru lofti“ eftir Neill
i grant. (Leikstjóri Þor-
steinn Ö. Stephensen).
21.15 Tónleikar: íslenzkir kór
ar (plötur).
21.15 Ávarp um fjárhag og
gjaldeyrismál (Emil
Jónsson viðskiptamála-
ráðherra).
21.40 Tónleikar íslenzkir kórar
(plötur).
22.00 Fréttir.
22.05 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
ávallt auðkennilegur og er
fróðlegt að athuga þær breyt-
ingar, sem á honum hafa orð-
ið frá því, er höfundurinn
skrifar fyrstu sögur sínar og
greinar og til þessa dags — og
öll þau tilbrigði, sem þar koma
fram — ef'tir kröfum efnis
ins.
Vitað er, að flest rit- Guð<-
mundar Hagalíns eru uppseld,
— og hafa sum þeirra verið
ófáanleg um nokkurt s'keið
Hefur löngum verið lagt fast
að bóksölum og fornsölum um
öflun þeirra, og hefur oft bor
ið á góma, að nauðsyn bæri til
nýrrar útgáfu. Og nú hefur
verið hafizt handa um þetta
mál “
Norski
Alþýðuflokurinn
Framhald af 5. síðu.
ríkisstiórnin, sem þá varð
þjóðstjórn, varð að hverfa
til London. En eftir að Noeg-
ur Varð frjáls myndaði
Einar Gerhardsen samsteypu
stjórn. í kosningunum haust-
ið 1945 vann Alþýðuflokkur-
inn glæsilegan sigur. Var þá
mynduð hrein Alþýðuflokks
stjórn með Einar Gerhard-
sen í fosæti, og þessi stjón
hefur nú á aveim árum kom-
ið á miklum umbótum í
Noregi. Þörf er enn að vinna
sigur á mögum öðugleikum.
En Einar Gerhardsen er þeg-
ar reyndur að því að vera af-
burða foringi og samstarfs-
menn hans í ráðuneytinu og
stórþinginu eru dugnaðar-
menn. Noregur var hryllilega
leikinn í stríðinu, en tilfinn-
anlegasta tjónið hefur verið
bætt, og þótt við og við komi
fram harðsnúin andstaða frá
efnaðri stéttum þjóðarinnar,
skilur þó mikill meiri hluti
hennar, að alþýðustjórnin
stýrir þjóðarskútunni vel.
Og álþýðan safnast í traustar
fylkingar um Alþýðuflokk-
inn eins og kjarna og þunga-
miðju viðreisnar- og ný-
byg'gingarstarfsins. Fulla á-
stæðu höfðu norrænir al-
þýðuflokksmenn til þess að
fagna á sextugsafmæli flokks
síns.
Magnús þræfir...
Frh. af 4. síðu.
Kjartanssyni, og lagði hann
á þei mtíma sem dómsmála-
ráðherra nafn sitt við fyrir
réttmæti þess. Áréttaði hann
skjalið og ýmislegt fleira,
sem dregið var; fram Magn-
úsi til hróss í einkabréfum
til mestu áhrifamanna í Dan-
mörku, sem höfðu tekið öfl-
ugan þátt í dönsku "frelsis-
hreyfingunni og áttu því
mjög greiðan aðganig að her-
stjórn Breta í Danmörku,
enda var þá eigi vitað annað
en að lallt væri það satt og
rétt, sem sagt var um mann-
kosti Magnúsar og hæfileika.
En sjálfsagt mun Magnús
Kjartansson eftir ,sem áður
halda áfram að þræta fyrir
það, að Finnur Jónsson hafi
nokkuð fyrir hann gert; og
sennilega hefur hann af
ýmsum ástæðum litla á-
nægju af birtingu þessa
skjals nú.
•---------+---------
RAMADIER hlaut aðeins 49
atkvæða meirihluta á síðasta
fundi franska þingsins í gær,
en 54 þingmenn sátu hjá.
Þetta er minnsti meirihluti,
sem Ramadier hefur fengið
í þinginu.