Alþýðublaðið - 27.09.1947, Síða 7

Alþýðublaðið - 27.09.1947, Síða 7
Laugardagur 27. sept. 1947. ALÞÝÐUBLAÐIP ttéf ví'a- TS tírQftf-.-rR^rrs.T «------------1 Bærinn í dag. 1----------------------—♦ Næturlæknir er í Læknavarð stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Ingólfsapó teki, sími 1330. Næturakstur annast Hreyf- ill, sími 6633. Ljósatími ökutækja er frá kl. 18,35 til kl. 6 ár- degis. Ef bifreið mætir vögnum eða vegfarendum á stað, þ’ar sem hvorugir komast fram hjá öðrum, skal bifreiðin aka til baka og nema staðar þar sem hinir komast framhjá henni. Dómkirkjan Messað á morgun kl. 11 f. h. Séra Jón Auðuns. Hallgrímsprestakall Messað á morgun í Austur- bæjarskólanum kl. 1,1 f. h. Séra Sigurjón Árnason. Laugarnesprentakall Messað á morgun kl. 2 e. h. Séra Garðar Svavarsson. Nesprestakall Messað í Mýrarhúsaskóla á morgun kl.'2,30. Séra Jón Thor arensen. Fríkirkjan Messað á morgun kl. 2 e. h. Séra Árni Sigurðsson. Merki Menningar og minningarsjóðs kvenna verða afhent í dag í barnaskólunum og í Þingholts- stræti 18. Kvæðamannafélagið Iðunn heldur fund í Baðstofu iðn- aðarmanna kl. 8 í kvöld. Menntaskólinn verður settur í dag kl. 2. Gagnfræðaskóli Reykvíkinga verður ■ settur í dag kl. 1,15 í Sjálfstæðishúsinu. 70 ára varð í gær Sigurður Jónsson, Selvogsgötu 14, Hafnarfirði. Sigurður bjó lengi í Ertu í Sel- vogi og er kenndur við þann stað. Hann er kvæntur Guðrúnu Þórðardóttur úr Selvogi. Sig- urður er myndar- og merkis- maður. ÚM Alþýðublaðið Oddviti í endurlausnaravímu (Frh. af 3. síðu.) ekki hafa svitnað og erfiðað undir þéim Satt er það, að ég hefi ekki svitnað við að troða mér í margar ábyrgðarstöður jí Þingeyjarsýslu, sýnzt satt bezt að segja ýmsum hafi iekkert léiðst að sitja að því sjálfir. Aldrei hefur mér heldur dottið í hug að vinna að því, að flokkur sá, er ég tel mig til, gangi tvískiptur til kosninga og hjálpa þeim tframbjóðanda, sem þegar er pólitískt dauður, til að ganga aftur á kostnað sér vaskari manns, svo að ég gæti síðar komið fram sem hinn' frels- ándi endurlausnari Þingey- 'inga. Samt hefi ég haldið, að ég mætti segja, hvað mér tfyndist satt og rétt í málum norður í Þingeyjarsýslu eins og t. d. um mæðiveikina í sauðkindinni. Hver veit nema ég dirfist líka einhvern itíma Iseinna að gera að umræðu- efni þá andlegu mæðiveiki, sem nú yirðist há ýmsum Þingeyingum, er sjálfir hyggja sig fædda til forustu heima í héraði? Mæðiveiki, sem gerir þá brjóstþunga og augnadapra í framfaramálum héraðsins. En viðhorf mitt yrði áreiðanlega það sama og i þessu máli, sem við Karl höfum deilt um: Ég yrði á móti niðurskurði svo lengi sem ég teldi önnur ráð hafa eins miklar líkur til gagn- semdar. Ég mundi telja að tfyrst bæri að einangra smit- berana og varna því að þeim 'takist að leggja dauða hönd sína á rísandi þrótt og fram- farahug æskunnar, þá bæri að setja í sérstakt girðingar- hólf, þar sem engin veruleg- hætta stafaði af þeim, og auðvitað ætti ekki að koma til mála að senda neinn af 'beim á hina virðulegu sam- 'kundu, alþingi, sem sýnis- horn þingeysks forustuliðs. Þingeyingar hafa nógan kinnroða orðið að bera í seinni tíð samt á þeim vett- vangi, þótt þeir gerðu ek-ki leik að því að verða að roðna enn þá meira. Bragi Sigurjónsson. *f§M03LM J.gEI í ft Merkjasala Menningar og minn- ingarsjóðs kvenna (Frh. af 3. síðu.) Hvernig ættum við — jafn- vel nú — að skilja til fulls hinn sára þorsta fyrri kyn- slóðar eftir menntun — bók- vitinu, sem ekki var látið í askana — með djúpri og hreinni löngun til þess að vita og skilja. Þó er það þessi tilfinning, sem hefur bjargað lífi þjóðarinnar á liðnum ár- um- í rauninni skilja þetta all- ir, því þessi löngun- hefur verið sameiginlegt leyndar- mál svo marga, sem töluðu þó sjaldan um það. Því vænt um við mikils skilnings hjá íslendingum í þessu máli, og sjóðurinn okkar á að hjálpa okkur til þess að eignast hæf ar konur á sem flestum svið- um. Hvers óskum við frekar en að unga kynslóðin verði fremri okkur, sem eldri er- um, að hún verði djarfari og jmarkvissari? Kona. Athugasemd við at- hugasemd fyrrver- andi viðskiptaráðs % -........... Stjórn Skókaupmanna- félagsins hefur sent Al- þýðublaðinu eftirfarandi athugasemd: í ALÞÝÐUBLAÐINU í DAG birtist ,,svar“ fyrrver- andi viðskiptaráðs við at- hugasemd stjórnar Skókaup- mannafélagsins, er birzt hef- ur í blöðum undanfarna daga, vegna ádeilna á félagið og meðlimi þess. í áminnztu ,,svari“ við- skiptaráðs, gerir það veiga- litla tilraun til að hrekja eftirfarandi ummæli úr at- hugasemd stjórnar Skókaup- mannafélagsins, er hljóða svo: ,,Svör viðskiptaráðs voru mjög á einn veg, að ekki væri hægt vegna dollaraskorts að veita leyfi fyrir skófatnaði frá Ameríkji; en tækist skó- kaöpmönnum hins vegar að | - Skemmtanir dagsim - | Kvikmyndir: GAMLA BÍÓ: „Harvey-stúlk- urnar“. Judy Garland, John Iiodiak, Angela Lansbury. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. NÝJA BÍÓ: í„ leit að lífsham- ingju“. Tyrone Power, Gene Tiereny. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. TJARNARBÍÓ: „Frá furðu- ströndum". Rex Harrison, Constance Cummings og Kay Hammonds. Sýnd kl. 7 og 9. „Sonur Hróa Hattar“. Sýnd kl. 3 og 5. TRIPOLIBÍÓ: „Leynilögreglu- maður heimsækir Budapest". Wandy Barry, Kent Taylor, Mischa Auer, Dorothea Kent. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBÍÓ: „Brim“. Ingrid Bergman og Sten Lindgren. Sýnd kl. 7 og 9. Samkomuhúsin: BREIÐFIRÐINGABÚÐ. Dans leikur glímudeildar KR. kl. 10. G.T. HÚSIÐ: Gömlu dansarnir kl. 10 síðd. HÓTEL BORG: Konserthljóm- leikur kl. 10 siðd. IÐNÓ: Dansleilcur kl. 10 síðd. MJÓLKURSTÖÐIN: Dansleik- ur kl. 10. RÖÐULL: Dansleikur kl. 10. SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ: Dans- leikur kl. 10. TJARNARCAFÉ: Dansleikur Stúdentaráðs Reykjavíkur. ÞÓRSCAFÉ: Gömlu dansarnir kl. 10. Söfn og sýningar: LJÓSMYNDA- OG FERÐA- SÝNING Ferðafélags fslands í Listamannaskálanum. Op- in kl. 11—11. Skemmtistaðir: TIVOLI opið eftir kl. 2. síðd. fltvarpið: 19.30 Tónleikar: Samsöngur (plötur). 20.30 Útvarpstríóið: Einleikur og tríó. 20.45 60 ára minning Jónasar Guðlaugssonar skálds: a) Erindi: Guðm. Gíslason Hagalín. b) Upplestur. c) Tónleikar. Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, Guðrún GuÖmundsdóttir, andaðist í Landsspítalanum í gær. Agúst Markússon og börn. Hjartans beztu þakkir til vina og vandamanna nær og fjær, sem sýndu okkur margvíslega hjálp og samúð við hið sviplega fráfall og jarðarför okkar elskulega sonar og bróður, Péturs Eggertssonar. Sérstaklega viljum við þakka Skátafélögunum í Reykjavík og Lúðrasveit Reykjavíkur fyrir honum auðsýnda virðingu. Guð blessi ykkur ölí. « Halldóra Jónsdóttir, börn og tengdabörn. útvega skó frá þeim löndum, sem tækju greiðslu í ster- lingspundum þá mundi ráð- ið verða þeim þakklátt og veita leyfin um leið og varan kæmi til landsins.“ Eins og svar ráðsins ber með sér, sat nefnd frá Skó- kaupmannafélaginu fund með því í september 1946. Á þessum fundi voru allir með- limir róðsins mættir, sema hr. Friðfinnur Ólafsson. Sæt- ir því furð'u undirskbift hans undir nefnt ,,svar“ ráðsins. Fór nefndin fram á leyfis- vditingar fyrir skófatnaði frá Ameríku. Hafði þá for- maður ráðsins, hr. Oddur Guðjónsson, orð fyrir því og sagði m. a. það, sem fram kemur í athugasemd félags- stjórnarinnar og greint er í eftirfárandi yfirlýsingu: „Við undirritaðr, sem kosnir vorum í nefnd til að ræða við viðskiptaráð um innflutning á skófatnaði á s. 1. ári, og ræddum við ráð- ið í heild, að undanteknum Friðfinni Ólafssyni, lýsum því hér með yfir. að ráðið tjáði sig þakklátt, ef skó- kaupmenn gætu útvegað skó- fatnað frá þeim löndum, sem tækju greiðslu í sterlings- pundum, og mundi veita inn- flutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir þeim skófatnaði, sem þaðan næðist, um leið og varan bærist fil landsins. Reykjavík, 19. sept. 1947. Óli J. Ólason, Jón Bergsson. Gunnar Thorarensen.“ Þá leyfum við okkur einnig til frekari staðfestingar um- mæla okkar að birta eftir- farandi yfirlýsingu nokkurra skókaupmanna, sem hver fyrir sig átti tal við við- skiptaráð um þessi mál eða einstaka meðlimi þess. „Yið undirritaðir lýsum því”hér með yfir, að er við sóttum um leyfi á s. 1. ári til að flytja inn skófatnað frá Bretlandi og öðrum löndum, sem tóku greiðslu í sterlings- þundum, þá var svar við- skiptaráðs éða einstakra með lima þess, að ráðið væri þakklátt, ef vjö gætum út- vegað skófatnað frá nefnd- um löndum og mupdi veita gjaldeyris- og innflutnings- leyfi fyrir þeim skófatnaði, sem þaðan næst, um leið og varan bærist til landsins. Reykjavík. 19. sept. 1947i Óli J. Ólason, Lárus G. Jóns- son, B. Stefánsson. Torfi Jó- hannesson, Jón Guðmunds- son, Gunnar Pétursson.“ Fyrrgreind ummæli standa því að öllu óhögguð, og sjá- um við ekki ástæðu tíl að- svara þessu frekar. nema nýtt tilefni gefist til. Stjórn Skókaupmannafél: Aukakosningarnar á Bretlandi Framhald af 1. síðu hennar, þrátt fyrir þá erfiðu tíma, sem hún á við að stríða. En bersýnilega væru brezkir kjósendur þroskaðri en svo, að þeir kenndu stjórninni um alla erfiðleika. SKIPAUTG6RÐ RIKISINS M.s „Sfraumey" til ísafjarðar, Siglufjarðar, ( Ólafsfjarðar, Akureyrar, Húsavíkur, Kópaskers og Raufarhafnar um helgina. Vörumóttaka árdegis í dag. BÚSÁHÖLD m á rafmagnsvéíar- Pönnur. Skaftpottar. ÞORSBUÐ Þórsgötu 14. FÉLAGSLÍF FRAMARAR Áríðandi fundur fyrir II. og III. fl. verður í Fram skálanum á morg un kl. 11 f. h. Fjölmennið stundvíslega. Stjórnin. 1

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.