Alþýðublaðið - 02.12.1947, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 02.12.1947, Blaðsíða 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ Þriðjudagur 2. des. 1947. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstióri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h-f. ÞBGAR óeirðimar byrjuðu á Frakklandi á dögunum, var sú skoðun látin í ljós á þess- um stað, að það væri ekki líklegt, að kommúnistarnir á Frakklandi kærðu sig um að láta sverfa til stáls þar að svo stöddu, — áhættan væri of mikil og engrar hernaðar- legrar hjálpar að vænta frá ’Rússlandi. En hitt væri svo annað mál, hvort frönskum kommúnistum tækist að ráða við þá anda, sem þeir voru búnir að særa fram, hvort þeir sæju sér annað fært en að reyna að ná vöid- mn með borgarastýrjöld og byltingu úr því, sem komið væri. Um það var engu spáð, en aðeins á það bent, að hinn mikli kosningasigur de Gaulle í bæjarstjórnar- kosningunum á Frakklandi í október væri sízt líklegur til þess, að draga úr hættunni fyrir innanlandsfriðinn þar. * Síðan þeta var skrifað hafa verkföllin á Frakklandi haldið áfram að magnast og kommúnistar látið ófriðlegar með hverjum degi, sem liðið hefur. En með því hafa þeir framkallað svo alvarlegar gagnráðstafanir stjórnarvald- anna, að þei,r virðast nú varla eiga lengur nema um tvennt að velja, -- að hlaupa gönuskeið sitt á enda og gera uppreisn innan skamms, eða lippast niður, svíkja verkamennina, sem þeir hafa æst upp til verkfallanna, og sætta sig við þann álits- hnekki og það fylgishrun, sem slíkum ósigri er a^vin- lega samfara. Það virðist að minnsta kosti ekki álitamál, að hin nýja stjórn Sehu- manns, sem mynduð var á Frakklamdi í byrjun vikunn- ar, sem leið, sé einráðin í því að mæta ofsa kommún- ista og yfirgangi með full- kominni festu og binda enda á þá óöld í landinu, sem þeir hafa valdið undanfarið. * Um það, hvorn kostinn franskir kommúnistar velja til að komast út úr þeirri sjálfheldu, er þeir hafa búið sér, skal enn engu spáð. Margir eru þeirrar skoðunar, að Frakkland sé á barmi borgarastyrjaldar; og má vel vera, að kommúnistar sjái sér ekki fært að snúa aftur, — telji líka, að ekki sé seinna vænna meö tilliti til hinnar ört vaxandi hreyf- ingar de Gaulle og þeirrar stöðnunar í fylgi þeirra sjálfra, er fram kom við bæj- arstjórnarkosningarnar í okt- óber. En það er fleira, en innan- landsþróunin á Frakklandi, sem þeir verða að taka með í reikninginn. Rússland hefur Ánægjusíund í Austurbæjarbíói á simnudaginn. — Erfiðir tilheyrendur. — Umræður um kvikmyndir og kvikmyndasýningar. — Kvenfólkið fær góðar fréttir. ÞAÐ VAR ánægjulegt að sjá átt hérna á hafnarbakkanum og hinn mikla barnafjölda í Aust- urbæjarbíó á sunnudaginn, þeg ar fjórir þjóðkunnir upplesarar Iásu fyrir böm — gamlar og góðar sögur, kvæði og gaman- sögur. En það er erfitt að lesa fyrir svo unga og órólega á- veldur því gjaldeyrisskorturinn. Hann kemur við kvikmyndaöfl unina eins og annað.“ ÉG VISSI ÞETTA og hélt að ég hefði látið í það skína í pistli mínum. En ef til vill hefur það heyrendur. Ekki svo að skilja að ekki verið nógu skýrt' halskar mikill hluti þessa stóra hóps hlustaði eins og hann ætti lífið að Ieysa, en þau sem óróleg voru gerðu svo mikinn klið að margt tapaðist af því, sem sagt var svo að upplestrarnir komu ekki að eins góðu gagni og ann ars hefði orðið. HÚSIÐ VAR meira ' en full- skipað. Þegar fullt var orðið í öllum ssetum, en enn stóð hóp- ur fyrir utan dyrnar og bað um að sér væri hleypt inn höfðu dyraverðirnir ekki hjarta til að loka dyrunum á litlu nefin og hleyptu þeim inn. Börnin, sem ekki höfðu sæti röðuðu sér svo fyrir framan leiksviðið og stóðu þar, en það var til þess að mörg stóðu upp úr sætum sínum og þustu upp að leiksviðinu. Það var nefnilega miklu skemmti- legra að standa þar með fingur- inn upp í sér en að sitja prútt í sæti sínu. SVO VORU hátalarnir held- ur ekki eins góðir og gert hafði verið ráð fyrir, þegar svona á- myndir eru sagðar taka flestum Jívikmyndum fram á heims- markaðinum sem stendur, en erfitt mun vera að fá þær. Nýja bíó sýndi þó fyrir stuttu ííalska kvikmynd. Helzt mun < vera að reyna að fá ítalskar kvikmyndir sem sýndar hafa verið í Danmörku, en þar er gjaldeyrisástandið sízt betra en hér og því líklegt að Danir eigi erfitt með að fá myndir frá ít- alíu. Auk þess eru viðskipti milli Danmerkur og íslands á- kaflega eríið sem stendur. EIGENDUR kvikmyndahús- anna mega ekki vera hörunds- sárir þó að rekstur húsanna og sýningarnar séu gerðar að um- talsefni. Kvikmyndirnar eru orð inn stærsti og veigamesti liður- inn í skemmtanalífinu. Ég játa að þær eru ódýrarsta skemmt- unin sem völ er á og sú hand- hægasta. En kvikmyndirnar eru ekki aðeins til skemmtunar. Þær hafa líka geysimikil áhrif á allt uppeldi ungu kynslóðar- inn. Það hafa líka geysimikil á- heyrendur voru í húsinu. Þeir ^ hr;f á allt uppeldi ungu kynslóð voru ekki nógu sterkir fyrr en undir það síðasta, en þá voru þeir líka góðir. Að vísu hefðu hátalarnir verið alveg ágætir ef fullorðið fólk hefði hlýtt á, en því var ekki til að dreyfa að þessu sinni og því tókst þetta ekki eins vel og æskilegt hefði verið. Ég held þó að börnin hafi skemmt sér vel, að minnsta kosti sögðu þau, sem ég spurði að það hefði verið mjög gaman. AF TILEFNI ummæla minna fyrir nokkru hefur einn af eig- endum kvikmyndahúsanna í bænum komið að máli við mig og kvartað undan því, að ég hafi verið ósanngjarn í þeirra garð. Ég hafði fundið að því að kvik- myndirnar væru ekki nógu góð ar, -sem hér væru sýndar. „Við eigum enga völ“, sagði hann. „Okkur er skammtað það sem við fáum, enda virðist kvik- myndaframleiðslan ekki enn hafa náð sér eftir stýrjöldina. Auk þess hefur undanfarið ver- ið næsta ókleift að fá útleyst- ar myndir sem við höfum þó arinnar. Það ríður því á miklu að ekki sé litið á kvikmynda- húsarekstur sem atvinnuveg eingöngu. Mikil ábyrgð hvílir á öllum sem reka kvikmyndahús. OG ÞAÐ ER ÞVÍ nauðsyn- legt að þeir leggi sig alla fram um að fá góðar myndir. Mér er ljóst að þeir ráða ekki miklu um þær myndir, sem þeir'fá, en þeir ættu þó að geta ráðið nokkru. Þó að ísland sé ekki stór liður í tekjum kvikmynda- tökufélaganna þá efast ég um að mörg lönd séu þó eins stór liður og ísland í þessu efni mið að -við fólksfjölda. ÞAÐ VARÐ UPPI fótur og-fit hjá kvenfólkinu þegar Alþýðu- blaðið skýrði frá því á sunnu- daginn að í ráði væri að láta aukaskammt af kaffi og sykri fyrir jólin. Gott væri ef þetta væri hægt. Það er alltaf gott að geta komið fólki þægilega á ó- vart, ekki sízt þegar nauðsyn krefst þess að sparað sé og tekið Framh. á 7. síðu. úrslitaorðið um það, hvað frönsku kommúnistarnir gera, — það er engin tilvilj- un, að Thorez, forustumaður þeirra, varð að bregða sér til Moskvu í vikunni, sem leið, og kom heim þaðan aftur á sunnudaginn, eins og fréttir hermdu í gær. Og Rússland veit, hvaða hættur á alþjóða- vettvangi geta farið í kjölfar kommúnistiskrar uppreisnar á Frakklandi. Það mun því á- reiðanlega hugsa sig tvisvar sinnum um, áður en það gef- ur þjónum sínum þar fyrir- skipun um að heíja borgara- styrjöld og byltingu. Og það væri þá heldur ekki í fyrsta sinn, sem það fórnaði einni fimmtu herdeildinni til þess að bjarga .sínu eigin skinni. heldur skemmtikvöld miðvikudaginn 3. des. í Tjarnarcafé. DAGSKRÁ: Ræða: Hjöríur Hansson Harmonikuleikur: Einar Sigvaldason r Upplestur: Oskar Clausen rithöl Gííarleikur, 5 stúlkur Skemmtunin 'hefst kl. 8.30. Aðgöngumiðar seldir í KRON, Skólavörðustíg 12, hjá Silla og Valda, Laugavegi 43, og í skrifstofu VR. — Tryggið yður miða í tíma. SKEMMTINEFNDIN. Kvenfélag Neskirkju beldur afmælisfagnað sinn fimmtudagnm 4. des- ember kl. 8V2 í Tjamarcafé. Skemmtiatriði: Erindi:. Ingólfur Gíslason læknir. Heklukvikmynd: Kjartan Ó. Bjarnason. — Dans. Félagskonur mega taka með sér gesti. Húsinu er lokað kl. 9 V2. Aðgöngumiðar við innganginn. Ekki samkvæmisklæðnaður. SKEMMTINEFNDIN. Aðalfundur Sundfélagsins ÆGIS verður haldinn í Baðstofu iðnaðarmanna n.k. þriðjudag (2. des.j kl. 8 e. h. — Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN. AÐALFUNDUR verður haldinn í hlutafélaginu Fram, Akranesi, sunnu- daginn 14. des. 1947 að Krókatúni 11 kl. 4 sd. DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf. Akranesi, 30. nóv. 1947. STJÓIÍNIN. Kynnið landið Sendið vinum ykkar og viðskiptamönnum ísland í myndum eða Iceland and the Icelanders, eftir doktor 'Helga Briem. Þessar bækur eru báðar svo eigulegar, að þær eru geymdar, og eru því varanleg og góð landkynning.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.