Alþýðublaðið - 09.12.1947, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 09.12.1947, Blaðsíða 4
ALÞYÐ6JRLAÐBÐ Þriðjudagux- 9, clts. 1947. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsimarít 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Ósigur kommúnista á Finnlandi. ÞÓ AÐ FINNLAND væri eitt þeirra ógæfusömu landa, sem urðu að ganga að afar- kostum Rússa í ófriðarlok, tókst þó, fyrir tilverknað Vestu'rveldanna, að spara því þá hörmung, að fá rúss- neskt setulið inn í landið svo sem allar aðrar þjóðir í aust anverðri Evrópu urðu að þola; og þó að friðarkostim- ir, sem Finnar urðu að ganga að væru þungbærir, — þótt þeir yrðu að láta stór land- flæmi af hendi við hinn volduga sigurvegara, undir- gangast að greiða honum 300 milljónir dollara í stríðs- •skaðabætur, og -— það, sem þungbærast var af öllu — leigja honum herstöð í mæsta nágrenni höfuðborgar innar, Helsingfors, í fimmtíu ár, þá hafa þeir þó ekki verið eins ofurseldir rússneskri í- hlutun um innanlandsmál sín eftir stríðið og þær þjóð- ir, sem við rússneskt setulið hafa átt að búa, svo sem PóllandT- U ngver jaland og Balkanlöndin. Og því hefur þróunin á Firmlandi síðan í ófriðarlok, þrátt fyrir allt, sem þjóðin hefur orðið að þola verið með öðrum og vænlegri hætti en þar. * Þegar kosið var til finnska ríkisþingsins rétt eftir ófrið arlokin voru horfurnar þó ekki glæsilegar í innanlands málum Finnlands frekar en í utanríkismálunum; vonleys ið eftir tvær tapaðar styrj- aldir við hinn volduga óvin í austri lá eins og martröð á þjóðinni, og fjöldi manns sá þá enga leið út úr öngþveit- inu og neyðinni aðra en þá, að varpa sér í ,,náðarfaðm“ sigurvegarans og hinna póli- tísku erindreka hans innan- lands, kommúnista. Þá var það, sem stofnaður var eins konar „sameiningarflokkur alþýðu, sósíalistaflokkur“, á Finnlandi, sem kommúnistar voru aðaluppistaðan í, en þar kallaði hann sig „bandalag fólksdemókrata“, og fékk hann mikið fylgi við kosn- ingarnar, varð svo að segja jafnsterkur hinum gamla flokki finnskra jafnaðar- manna, og hefur síðan átt sæti í stjórn landsins og ver Það er hollt að lesa: w> Bergur Jónsson • héraðsdómslögmaður. . Málaflutningsskrifstofa: Laugavegi 65, simi 5833. • .Hekna, Hafnarfii'ði, sírni 9234. Nýkomið Gániásíubuxur, ' barna- kjólar heklaðir, lopi 3 lit- ir, vinnuvettlin.gar. Þórsbúð, Þórsgötu 14. vantar ungling til blaðburðar á Seltjarnarnes TALIÐ VIÐ AFGREIÐSL (JNA. Auglýsing Nr. 25 1947 frá skömmtunarstjóra, Samkvæmt heimild í 3. gr: reglugerðar frá 23. sept. 1947 um vöxuskömmtun, takmörkun á sölu, dreifingu og afhen-dingu vara, hefur viðsfciptanefndin ákveðið að tekin skuli upp skömmtun á eplum þeim, sem nú- eru » ó leiðinni til landsins. Stofnauki nr. 16 af núgildandi matvælaseðli skal því vera lögleg innkaupaheimild fyrir 3 kg. af eplum frá og með 20. þ. m. fram til 15. janúar 1948. Viðskiptanefndin hefur jafnframt ákveðið að smá- söluverzlunum þeim, sem verzla með matvörur, skuli heimilt til 15. þ. m. að veita fyrirframviStöku stofnauk ar verzlanir eplin á fyrrgreindu tímabili til þeirra einna, • um nr. 16 frá viðskiptavinum sínum,, enda afhendi slík- er !hafa afhent þeim stofnauka nr. 16 fyrir 15. þ. m. Smáverzlanir þær, er hér um ræðir, g'eta afhent óddvitum eða bæjarstjórum þá stofnauka nr. 16 hinn 16. þ. m. og verður eplunum skipt milli verzlanna sam kvæmt því. Oddvitar og bæjarstjórar eru beðnir að senda skömmtunarskrifstofu ríkisins í símskeyti 17. þ. m. staðfestingu ó því, hve marga stofnauka nr. 16 hver verzlun hefur afhent. Símskeyti, sem berast skömmt- unarskrifsföfunni eftir 17. þ. m. um afhendingu þessa stofnauka, verða ekki tekin til greina. Reykjavík, 8. desemher 1947. Skömmtunarstjórinn. W. C„ og ¥ Kaupendur Alþýðubfaðsins eru vinsamlega beðnir að láta afgi'eiðslu blaðsins vita, ef vanskil verða á blaðinu, enn fremur að tilkynna bústaðaskipti. SlS. e .* ■ •!• ‘með ki-önum og botnventli, crom. útvegum við beint fi'á frakkneskri verksmiðju,- gegn- gjaldeyris- og innflutnings leyfi. H. Gíslason & Stefánsson^ ■ Sími 7461. — Box 381. Auglýsið í Alþýðublaðlnu ,ið þar að vonum valdamikill, svo augljóst sem það þótti, að hann hefði velþóknun hins volduga sigurvegara. * En finnska þjóðin hefur ekki þurft langan tírna til þess, að fá nóg af völdum og starfsemi þessa flokks, sem bæði leynt og ljóst hefir rakið ■erindi hins volduga og óvin- sæla nágrannaríkis með þjóð sinni. Nú hafa í annað sinn farið fram kosningar á Finn- Landi eftir stríðið5 í þetta sinn bæjar- og sveitastjórnarkosn iingar; og þó að fullnaðar- úrslit þeirra séu ekki enn kunn, er öllum þegar ljóst, að /„bandalag fólksdemó- krata“, þar með kommúnist- ar, hefur beðið hinn herfileg- asta ósigur; en bæði jafnaðar- menn og borgaraflokkarnir unnið stórkostlega á að sama skapi. í höfuðborg Finnlands, Helsingfors, þar sem ,,fólks- demókratar" eða kommúnist- ar voru stærsti flokkuirinn við ríkisþingskosningarnar í ófriðarlokin, hafa nú ekki að- ( eins jafnaðarmenn, heldur og hægri flokkurinn, farið langt fram úr þeim; ög í sveitunum er sagt, að kosningaósigur komniúnista megi heita al- gert fylgishrun. * Það hefur þannig komið finnskum kommúnistum að liitlu haldi í þessum kosning- um, þótt hinn kommúnist- íski innanríkismálaráðherra þeirra bannaði kosningakvik. mynd jafnaðarmanna, en leyfði aðra, er kommúnistar létu gera. Það hefur heldur ekki komið þeim að neinu haldi, þó að Rússar reyndu á síðustu stundu að hjálpa þeirn með þeirri kosninga- beitu, að linað myndi verða á stríðsskaðabótakröfum, sem nú hvíla eins og farg á fimisku þjóðinnli. Allt kom þetta fyriir ekki; Finnar létu ekfei blekkjasit. Heilbrigð frelsisást þeirra varð í kosn- ingunum öllu öðr.u yfirsterk ari.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.