Alþýðublaðið - 06.02.1948, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 06.02.1948, Qupperneq 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ Föstudaginn 6- febrúar 1948 Ein milljón króna í erlendum gjaldeyri á dag. — Höfum við gert okkur bað lióst. — Búskapur heimilanna og búskapur þjóðarinnar. — Bréf um skringilegt útvarpskvöld. HÖFUM VIÐ í raun og veru gert okkur það Ijóst, að við þurfum eina milljón króna í erlendum gjaldeyri á hverjum einasta degi til þess að afla brýnustu nauðsynja handa okk- ur erlendis frá? Mér finnst alltaf að fólki sé það einhvern veginn ekki Ijóst, að það gildir ná- kvæmlega sama um þennan bú- skap okkar og búskap hvers heimilis. Ef heimilið hefur ekki nægilega miklar tekjur til að fjölskyldunni geti liðið sæmi- Iega, fer allt um þverbak. Ef við öflum ekki nóg íil útflutn- ings eða erum ekki samkeppn- isfærir við aðrar útflutnings- þjóðir, þá sverfur að, nauðsynj- ar vantar, kaffiskammturinn minnkar, fatnaðurinn verður af skornum skammti, glysið hverf ur alveg. ÓÁNÆGÐUR HLUSTANDI skrifar þetta bréf: „Ég er einn af þeim, sem lesa öll blöðin og hlusta á útvarp þegar ég hef stund frá störfum mínum og eitthvað er að hafa í því ágæta menningartæki. Ég vil finna eitthvað gott v.ið alla hluti, en útvarpið er eitt af þeirn tækjum menningarinn'ar, sem mér finnst vera alveg búið að íyrir- g-era rétti sínurn með að fólk hlusti nokkru sinni á það, í það minnsta ef manni skyldi liggja á að bera það fyrir sig sem ó- yggjandi heimild.“ „ÉG ER MIKILL unnandi Slysavarnafélagsins og hef æv- inlega glaðzt af hverjum sigri þess og hryggzt að sama skapi af hverju óhappi og mistökum, sem því hafa orðið á.“ „EÍNS GG FLESTIR VITA af frásögn blaða og útvarps, þá átti þetta ágæta félag 20 ára af- mæli nýlega, og hafði ég ætlað mér að vera viðstaddur skemmt un félagsins í Sjálfstæðishús- inu, en vegna óviðráðanlegra atvika g'at ekki orðið. af því. Ég ásetti mér því strax að reyna að fylgjast svo sem unnt væri með dagskrá félagsins í útvarpinu, því ég á kost á að hlusta á það á vinnustað. Ég var búinn að lesa í öllum dagblöðum bæjar- ins samhljóða tilkynningu um dagskrá' útvarpsins, þar sem meðal annars var g.etið um, að hinn góðkunni gamanleikari A1 freð Andrésson myndi annast eitt skemmtiatriði í hófi félags- ins um kvöldið.“ „EINS OG KUNNUGT ER, er þessi ágæti listamaður búinn að dvelja lengi utanlands til að fullnuma sig í list sinni og hugði ég nú gott til að hlusta á hann og það fyrir- lítinn pen- ing. En hvað skeður svo? Kvöld útvarpið tilkynnir, að Brynjólf ur Jóhannesson annist þetta at- riði. Þessi ágæti og vinsæli leik- ari er að vísu ákaflega góður kraftur í skemmtanalífinu, en það er nokkur missmíði á, að maðurinn heitir alls ekki Al- freð Andrésson. Það var svo sem allt eins hjá útvarpinu. Það tilkynnti ekki einu sinni að Brynjólfur kæmi í stað Alfreðs. Það virðist ekki vera upp á marga fiska háttprýðin hjá þeim þarna í útvarpinu gagn- vart hlustendunum, eins og raunar kom allt of átakanlega fram hjá þulnum síðar um kvöldið.“ „ÞAÐ VAR ALLTAF öðru hvoru allt kvöldið verið að til- kynna þetta atriði, sem fram átti að fara í Sjálfstæðishúsinu, en svo þegar kemur að hinni stóru stund, tilkynnir þulurinn að ekkert verði af ,þessu og verði þess í stað leikin nokkur danslög, að vísu a£ skemmti- stað, en í lok dagskrárinnar tal- ar þulvurinn enn einu sinni til okkar og tilkynnir, að eins og áður hafi verið tilkynnt, þá falli þetta margnefnda atriði niður að þessu sinni í útvarpinu, en þetta fari að vísu fram, en Brynjólfur hafi óskað eftir að þuría ekki að flytja það í .út- varþ að þessu sinni. En aftur á móti, segir þulurinn, sé hverj- um manni, sem þess óskar, heimilt að koma niður í hús og hlusta þar á leikarann, ef hann vilji kaupa sig inn.“ „NÚ ÍMYNDA ÉG MÉR, að margir vilji spyrja: r Hvaðan fcom þulnum heimild til að hafa þessi orð? Var honum ekki kunnugt um að klukkan var orðin 23.35 og búið að loka hús inu fyrir 5 mínútum? Kemur þetta kannske frá æðri stöðum? Ef svo er, hver er það þá, sem gefur þessa fáránlegu fyrirskip- Frh. 'af 7. síðu Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h-f. Skorfur vinnuafls og opinberar frara- kvæmdir. KOMMÚNISTAR hafa gert írtikið að því að full- yrða, að núverandi ríkis- stjórn legði áherzlu á að draga úr hinum og þessum verklegum framkvæmdum. Ályktunin, sem þeir hafa svo dregið af þessari fullyrð ingu sinni, er sú, að ríkis- stjórnin s;tefni að atvinnu- leysi og hruni. Þeir, s'em fylgzt hafa með íslenzku atvinnulífi síðast lið ið ár, eru auðvitað ekki í neinum vafa um, að þessi 'flutningur kommúnista hef- ur ekki við minns-tu rök að styðjast. Það hefur til þessa verið hér skortur á vinnu- afli, og svo er enn. Atvinnu- leysi hefur ekki þekkzt hér á landi á þessu tímabili, nema hvað verkamenn gengu iðjulausir óhæfilega langam tíma á síðast liðnu sumri, meðan hið pólitíska verk- fallsbrölt kommúnisita stóð yfir- En sök þess var öll hjá kommúnistum, sem hafa gert íírekaðar tilraunir ttil að koma á vinnustöðvunum og . atvinnuleysi, en saka svo ríkisstjórnina um afbrot, sem þsir einir hafa framið. ’ >!: Kommúnistar hafa nú eimu sinni enn byrjað að kyrja sönginn um það. að verið sé að stofna rtil atvinnuleysis. í sambandi við afgneiðslu fjárlaganna, sem alþingi hef tur nú til maðferðar, fullyrða þeir sem sé, að verulegur niðurskurðuir á verklegum framkvæmdum eigi sér stað, en þar með sé verið að kalla yfir þjóöina hrun og atvinnu levsi. Fjárveitingar þær, sem á- ætlaðar eru til verklegra framkvæmda á vegum ríkis ins á yfirsitandandi ári, gefa ekkert tilefni til þessa mál- flutnings kommúnisita. Kom múnistar verða að reyna að gera sér grein fyrir því, að hér á landi er.u fleiri atvinnu rekendur en ríkið og að fleiri framkvæmdum að vinna en framkvæmdum ríkisins. Bæj arfélögin víðs vegar um , land hafa til dæmis marg- iþæltt og aðkallandi v-erkefni með höndum, og hér í Reykja 'vík eru framkvæmdir bæj- larfélagsins nú orðnar , mun umfangsmeiri en framkvæmd ir sjálfs ríkisins 'voru fyrir nokkrum árum. Til þessara framkvæmda þarf mikið vinnuafl, eins og raun hefur borið vitni undanfarin ár. En fyrst og fremsit ber þó að mimnast þess, að framleiðslu tækin til lands og sjávar þarfnasit mun m'eiri1 vinnú- brafts en áður var og að í þeim efnum hefur okkur ís- lendingum borið vandamál að höndum, sem full ástæða er til að hyggja að. * Nú þegar er svo komið málum, að sum fiskiskip okk ar íslendinga geta ekki sótt veiðar, vegna þess að ekki fæst (til þeirira það vinnuafl, sem nauðsynlegt er. Þetta vandamál verður stærra og alvarlegra svo að segja með hvierjum nýjum mánuði, þar eð stórfelld aukning á sér stað á sviði skipaflotans. Með tilliti til þess, að hagur og afkoma þjóðarinnar allrar stendur og fellur með því, að hægt sé að starfrækja til fulls hin nýju, stórvirku at- Alþýðuflokksfélags Eeykjavíkur verður í Alþýðu'húsinu við Hverfisgötu sunnudag- inn 8. febrúar.kl. 2 e. h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Áríðandi að sem flestir félagsmenn mæti. Stjórnin. um uppkasf ai viðbófarsamnfngi við kaups og-kjarasam ningi á bofn vörpuskipum frá 20. sepf. 1942 fer fram á skrifstofum Sjómannafélaganna í Reykjavík og Hafnarfirði, laugardagmn 7. febrú- ar 1948 og' stendur yfir' frá kl. 10—22. Atkvæðagreiðslan er fyrir þá togarasjómenn, úr Sjómannafélagi Reykjavíkur og Sjómanhafé-; 'lagi Hafnarfjarðar, sem í landi eru þann dag. Sam tímis fer fram atkvæðagreiðsla á þeim togurum, sem eru utan heimahafnar. Uppkast að viðbótarsamningnum liggur frammi á skrifstofunum þann dag. Félagsmenn 'sýni félagsskírteini sín er iþeir mæta við atkvæða- greiðsluna. Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur Stjárn Sjómannaféiags Hðfnarfjarðar, .'ti'ftsVfi*' k:k fú k. f&hLtz hihúhi hú fti T a Kaupum hreinar léreftstuskur. & Álþýðuprentsmiðjan hJ. Auglýsið í áijifðublaðinu vinnutæki, sem framleiða mesitan hluta þjóðarauðsins, og útflutningsins, er í meira lagi tvísýnt, að ríkið eigi að stuðla að manneklu við þau með því að ráðast í verkleg ar framkvæmdir, sem ekki eru tengdar nauðsyn Iíðandi stundar. íslendingar sem aðrar þjóðir verða að ein- beita kröftum sínum að fram leiðslustörfum, sem tryggja aukinn úitflutning. Rekstur framleiðsluitækjanna verður að sitja í fyrirrúmi fyrir öI3- um öðrum framkvæmdum, sem á annað borð þola bið. Þessi viðhorf skilja komm- únistar ekki; en þjóðin, og verkalýðurinn sér í lagi, mun skilja þau og svara á viðeig- andi hátt á sínum tíma blekk- ingunum um það, að forustu- menn landsins stefni að hruni og atvinrauleysi og láti stjórn- ast af hneigðum, sem ekki hvarfla lað nei,num nemat kommúnistum-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.