Alþýðublaðið - 13.03.1948, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 13.03.1948, Blaðsíða 5
liMi^rdagm* 13u -marz 1948. ALÞÝÐUBLAQIÐ f-tr ÞAÐ ber oft við, að nem- endur í iskólum í grennd við Reykjavík, og jafnvel úr meiri fjarlægð, skreppa til hofuðstaðarins í hópum til þess1 að líta á eitthvað af því mlarkverða, sem þar er að sjá. Þetta er hvort tveggja í senn, skemmtiferðir og náms ferðir. Nú kann það í fljótu bragði ekki að þykja neitt stórfyrir- tæki að fylgja hóp skóla- fólks á nokkra opinbara staði í Reykjavík. En það er þó svo, að vandfarnara. er með hóp en einstakling við slík tækifæri. Ferðin þarf að vera allvel skipulögð og und irbúin, svo að ekki fari í handaskolum. T. t. eru ráða- menn sumra opinberra stofn ana í höfuðstaðnum svo drýldnir og miklir af sér og sínu embætti, að aðkomu- menn geta ekki alltaf átt hjá þeim. von skjótrar fyrir- greiðslu, Er hér ekki tilvalið hlut- verk fyrir hina nýju og efni legu ferðaskrifstofu okkar? Það eru hreint ekki síður ferðalög en hvað annað, þeg ar utanhæjarfólk kemur til DRÁGTIR og fertningarkápur KLÆÐAVERZLUN Andrésar Andréssonar. Kaupum fuskur Raldurgöíu 30. Reykjavíkur og æílar sér að skoða borgina. Ég er sannfærður um, að skólamenn utan Reykjavíkur, sem koma þangað msð nem- endur í námsferðum, mundu fagna því stórlega að mega vænta þar ráðaneytis og full tingis, sem ferðaskrifstofan er- Þegar allt væri þar að stað aldri á einni herdi, ætti að ganga greiðara og fljótara að fá aðgang og fyrirgreiðslu á ýmsum opinberum stöðum og stofnunum. Annars er þessi hugmynd að nokki’u leyti komin á rek spöl, og skal ég víkja að því, því áð ég er þar nokkuð hnút um kunnugur. — Fyrir skömmu var ég á ferð í Reykjavík í fylgd með rúm- lega tuttugu gagnfræðinga- efnum frá Akrar.esi. Átti að litast um á .einhverjum merk isstöðum syðra. Fyrra dag- inn, sem við vorum í lsið- a.ngrinum, var hið versta veð ur, auk þess sem nemendur voru bundnir við handknatt- leikskeppni þann tíma dags- ins, sem heppilegastur er til að heimsækja opinbera staði. Ég átti þá af tilviljun leið um í ferðaskrifstofunni og skaut því fram- við starfs- m-ennina þar, —-.þá fremur í ga-mni en alvöru, — að svona ferðalag ætti ferðaskrif stofan að hjálpa til að skipu leggja. Und-ir þessi orð var tekið með -svo mikilli alúð, að við fórum að ræða málið í alvöru og athuga, hvað hægt væri að gera. Við undir bjuggum -síðan án frekari um svifa fyrstu skólaferðina á Kefl-avíkurflugvöll, og þótts mér árang-urinn góður. Við fórum næsta morgun, og tókst ferðin með ágætum, þrátit fyrir hvimlei-tt veður. Gunnar Stefánsson, starfs- maður ferðaskrifstofunnar var leiðsögumaður okkar og leysti það st-arf af höndum með mikilli samviskusemi og alúð, svo að á betra varð ekki kosið. Það má áreiðanlega læra margt og mikið á því að skoða Keflavíkurflugvöll, -einn mesta flugvöll í heimi. M-arg !r halda, að þar sé ekker.t eða lítið annað að sjá en -auðn- ina aina, og hana ömurlega, en því fer fjarri, að svo sé. Auk hinna risavöxnu vallar- manrvirkja er þar að isjá glæsilegar og geysistórar flug vélar, hjálpartæki af full- komnustu gerð, radartæki, nýtízku hó-telrekstur o. m. fl. Fyrir skól-afólk er slík ferð, án nokkurs efa, varan- Iegri fræðsla en j'afnlangt flakk um Reykjavíkurgöt-ur — að þeim ólöstuðum. Ég sé mér ítil mikillar á- nægju, að síðan þessi fyrsta nemendaferð var farin á þess ar slóðir, hafa fleiri skólar komið á efítir á vegum ferða- skrifstofunnar. Það er óhætt. Þar syðra mæta menn alúð- legum viðtökum, og auk þess eru þessar ferðir skrifstofunn. ar hræódýrar. Gott er, að þeissi nýbreytni ferða-skrifstofunnar hefur t-ekizt vel. En viss er ég um, að það mundi líka verða v-el þegið, að skrifstofan greiddi á sama hátt fyrir ferðalögum um sjálfa Reykjavíku-rborg — fyrir hópa námsfólks og -aðra ferðamannahópa utan af landi, sem þess óskuðu. Það var til þess að skjóta því erindi til réttra aðila, að ég -stakk niður penna í þetta sir.n. Ragnar Jóhannesson. Félagslíf FfUfÐAFÉLAG Reykjavíkur fer skíðaferð í Hv-eradali í fyrramálið kl. 9 ef veður lyefir. Farseðlar hjá L. H. Miiller og við- bíl- ana >ef -eitthvað v-erður óselt. Farið frá Austurvelli. eru flulfar á Laugaveg 24 01 símanúmerill er 1180 * Kaupið steypuna bjá -oss, þá sparið þér steypu-efni. Ekfcert efni fer í súginn. Nýtízku tæki tryggja fljóta afgr-eiðsiu -og mikil afkös-t. Nákvæmi-ega vegið ©fni tryggir -góða st-eypu. Öll steypa seld gegn staðgreið-slu og fást af§'reiðsluseð-kr á neðangreindum sölustöðum: Ileykjavík. SölusíaSir: STEYPUSTÖÐIN H.F. Laugavegi 24. - Sími 1180. II. BENEÐIKTSSON & CO. Hamai'shúsinu. — Sími 1228. 3 125 flugvélar komu fil Keflavíkur í marzmánuði í FEBRÚARMÁNUÐI 1948 komu 125 millilanda flugvél ar við á Keflavíkurflugvell- inum, eru það mun fleiri lendingar en undanfarna mánuði. Innanlands flugferð ir með viðkomu hér á vellin um voru 29, þ-ar með taldar 13 æfingarferðir björgunar- fl-ugvélanna hér á vellinum. Eins- og áður var Amerdcan Overseas Airlines með fíest ar flugf-erðir, eða 34, næst var Trans Canada Airlines með 19, British Overseas Air ways Corporation v-ar með 15, Air France með 11, og Royal Dutch Airlines (KLM) með 10 flugferðir. Sjö flug- vélar Bandaríkjaflughers, fimm Air Transport Comm- an C—54 Skaymaster og tvö B—29 -risaflugvirki lentu hér á vellinum á leið sinni til Þýzkalands. Þá höfðu einnig viðkomu sér: Scandinaviian Airlines System, Seaboard & West- ern, Trans Ocean Airways, International Skyways, Oce- on Air Tradeways og Ieeland Airport Corporation. • Með þeissum . flugvélum voru 2243 farþgar, 48547 kg. af flutningi og 35554 kg. af flugpósti. Hingað komu frá Evrópu og Ameríku 219 far þegar, 34 800 kg. af flutn- ingi og 887 kg. af flugpósfi. Héðan fóru til útlanda 244 farþegar, 1666 kg. af flutn- ingi og 450 kg. af flugpóst-i. Trygve Lie, 'aðalritari sam einuðu þjóðanna, kom hér vdð á flugvellinum á leið sinni til New York. Ráðherr- arnir Stefán Jóh. Stefáhsson, Bjarni Benediktsson, Emií Jón-sson og Pétur Benedikt-si son sendiherra fóru héðan til útlahda. Um það bil 1700 íslending ar skoðuðu Keflavíkurflug- völl í 'febrúar, þar >af 400 manns á veg-urn Ferðaskrif- stofu ríkisins, á sunnudög- um, og enn- fremur um 300 skólanemendur frá ýmsum: framhaldsskólum í Reykja- vík. MESSUR Á MORGUN: Fríkirkjan Barnaguðsþjónusta kl. 11. •—- Messa kl. 2. Séra Árni Sigurðs- son. Laugarnesprestakail Messa kl. 2 e. h. Barnaguðs- þjónusta kl. 10 f. h. Séra Garð- ar Svavarsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði Messað kl. 2. Séra Kristinn Stefánsson. Laugarnessókn Messa kl. 2. Barnaguðsþjóra-i usta kl. 10 f. h. Nesprestakall Messað í Mýrarhúsaskóla kk 2 e. h.‘ Séra Jón Thorarensen. Stjórn Bandalags ísl. listamanna heí ur mælt með því við alþingi, að Jóni Leifs tónskáldi verði veittur fastur lífeyrir eins og þeim rithöfundum íslenzkúm, um, sem bezt eru launaðir af opinberu fé.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.