Alþýðublaðið - 04.12.1948, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 04.12.1948, Qupperneq 4
ALÞÝÐUBI-APIÐ Laugardagur 4. des- 1948. Úígefandi: Alþýðuflokkuriim. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt- Gröndal Fingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiffslusími: 4900. Affsetur: Alþýffuhúsið. Alþýffuprentsmiffjan h.f. UM ÁTÖKIN milli Rússa og Vesturveldaxna um Berlín hefur mikið verið rætt og rit- að síðasta missirið; og er það ekki nema að vonum, svo ör- iagaþrungin sem þau átök eru- En við hliðina á þeim hafa farið fram önnur átök, ininan hinnar þýzku höfuð- borgar, sem ekki eru síður at- hyglisverð, þótt minna orð hafi verið á þeim gert. Það er hin tiltölulega þögla barátta Berlínarbúa sjálfra við hið rússneska ofbeldi og þýzk handbendi þess, kommún- ista. En báðir hafa þessir þættir Berlínardeilunnar á- hrif hvor á annan og geta fyrr en. varir, hvor um sig eða báðir í sameiningu, valdið úr- slitaviðburðum í átökunum milli austurs og vestui’s, milli einræðis og lýðræðis, ekki að- eins í Evrópu, heldur og í heiminum yfirleitt. * Fáar borgir bera eins hræði legar menjar stríðsins og Ber lín, sem undir oki hálfsturl- aðrar stjórnar Hitlers varð að þola daglegar loftárásir Vest- urveldanna í fjögur ár. Ber- lín er í dag borg í rústumi. En á þeim rústum er nú háð ör- lagaríkasta orustan eftir stríð ið milli hins austræna ein- ræðjs og vestræna lýðræðis. Borgin er umkringd af her námssvæði Rússa á Þýzka- landi á alla vegu- En sjálfri var benni í ófriðarlok skipt í fjögur hernámssvæði, Banda- ríkjamanna, Breta, Frakka og Rússa, og skyldu alIaÁþessar þjóðir eiga óhindraðan að- gang til herflutninga og birgðaflutninga til borgar- innar, en borginni stjórnað af lýðræð-islega kjörinni borgar- stjórn íbúanna sjálfra undir sameiginlegu eftirliti hinna aðkommu heryfirvalda- En þetta samkomulag um Berlíni hélt ekki lengur en aðrir samningar, sem við Rússland St.alins hafa verið gerðir. Síðan í sumar hafa Rússar raunverulega neitað að uppfylla skuldbindingar sínar samkvæmt því við hina fyrri bandamenn sína. Þeir byrjuðu á því að slíta öllu sámeiginlegu eftirlitsstarfi, en stöðvuðu því næst, með fullkomnum samningsrofum, birgðaflutninga Vesturveld- anna 'til borgarinnar, sem urðu að fara þangað yfir rúss neskt hernámssvæði, og settu yfir tvær. milljónir Berlínar- búa þar með í hungurkví; og í þriðja lagi hófu þeir að styðja þýzka kommúnista til ofbeldisverka innan borgar- innar.' með það fyrir augum að steypa löglega kosinni stjórn hennar og setja í henn- ar stað löglausa, rússneska leppstjóm. * Það leikur ekki lengur á tveimur íungum, hvað fyrir Hvemig á bæjarfélagið að byggja, þegar hús- næðisvandræði eru? — Hugsum sérstaklega um unga fólkið, sem vill sfofna heimili. — Slökkvi- stöð og kvikmyndahús. — Um Bæjarbókasafnið. REYKJAVÍKURBÆR hefur sótt ura fjáriestingarleyfi fyrir byggingu 200 íbúffa á næsta ári. Eiga þetta eingöngu að verða tveggja og þriggja her- bergja íbúffir. Öllum er kunn- ugt um hina hörmulegu húsnæð isneyff í Reykjavík og þaff er rjálfsagffur hlutur aff bæjarfé- félagiff byggi eins mikiff af íbúff um og þaff frekast getur. Meff því er þaff ekki aff gefa neinum neitt, heldur aff affstoffa fólk, sem á viff neyð aff búa, til þess aff komast undir þak, ef svo má aff orffi komast. , ÞEGAR SVO ER ÁSTATT og nú er um húsnæffismálin, verður að kreíjast þess, að fyrst og fremst sé hugsað um það að bæta úr neyðinni, en ekki að I byggja dýr og fín hús. Skilzt mér, að mest nauðsyn sé að byggja eins og tveggja her- bergja íbúðir með eldhúsi, en ekki stærri. Tel ég mikið vafa mál, að rétt sé af bæjarfélag- inu eins og stendur að byggja þriggja herbergja íbúðir. HÚSNÆÐISVANDRÆÐI eru hörmuleg fyrir alla, en nær eng um get ég vorkennt eins og ungu fóki, sem langar að stofna heimili, en getur það ekki af því að það fær hvergi inni. Þetta veldur óhamingju og sár um vonbrigðum, en geta haft mjög slæm áhrif á framtíð þessa unga fólks. Þetta fólk mundi feginsamlega taka eitt herbergi og eldhús til að byrja með, enda væri það og í sam- ræmi við getu þess að minnsta kosti í langflestum tilfellum. ÞAÐ ER EINMITT rétt af bæjarfélaginu að aðstoða þetta unga fólk, og það á það að gera með því að byggja litlar íbúðir en ekki stórar. Með því væri bæjarfélagið ekki aðeins að stofna heimili handa æskufólk inu, heldur einnig að kenna því að byrja smátt og byggja upp afkomu sína á þann hátt. Það mundi hins vegar hafa þau áhrif að ýta undir sjálfsbjargar viðleitni þess til þess að geta fengið stærra húsnæði þegar fjölskyldan stækkar og þörf er fyrir það. BORGARI SKRIFAR: „Þú bentir á það á fimmtudaginn, að tími væri kominn til að reisa nýja slökkvistöð hér í bænum. Er ég þér þakklátur fyrir að minnast á þetta — enda verð- ur ekki hægt að draga fram- kvæmdir í því máli öllu lengur. Annars er það mesta mildi, að ekkert slys skuli hljótast af að slökkvistöðin er þarna við hlið ina á kvikmyndahúsi. Er Reykjavík víst eina höfuðborg in á Norðurlöndum, sem á slökkvistöð og kvikmyndahús í sama húsi — en ekkert ráðhús. Það er eingöngu leikni slökkvi- liðsmanna að þakka, að bifreið ar þeirra skuli ekki oft lenda í Tjörninni, þegar þeir þurfa að keyra ær út eða inn!“ GESTUR SKRIFAR: „Bárðar saga Snæfellsáss geymir þjóð- sögu um jólaveizlu hjá tröllum, sem söfnuðust saman í einhverj um Hundahelli. Og þegar komið er inn í Bæjarbókasafnið hér í Reykjavík, virðist ekki fjar- stæða að hugsa sér það eins konar hundahelli, sem tröll hafi á leigu til veizluíþrótta. Bæði er það, að múgur manns þrífur til hlutanna, án þess að skeyta um röð og reglu, og að ef ein- hver er til, sem raðar í hillurn- ar, þá er hann ekki starfi sínu vaxinn. Dettur athugulum að- komumanni helzt í hug sagan af litla drengnum svarta, með kartöflunefið, sem norski þjóð- sagnasafnarinn Ásbjörnsen seg- ir frá, að heimsótti tröllin í Dofrafjöllum og festist á nefinu við rassinn á einu þeirra. BÆJARBÓKASAFNIÐ, eða útlánsdeild þess, er líka ekkert bókasafn lengur. Þar eru sam- an komnar ritjur af alls konar gömlum og nýjum bókum, helzt þeim, sem fólk hefur ekkert eftirlæti á, því að úrvalinu hef- ur annaðhvort verið stolið, eða það tætt upp til agna. Virðist Frh. á 7- síðu „Gullfaxi” Reykjavík - Flugferð verSur frá Reykjavík til Oslo og Stokkhójms 18. desember, frá Stokkihólm og Oslo til Reykjavíkur 19. desember. Væntanleg ir farþegax hafi samband við sikrifstofu vora Lækjargötu 4, sími 6607, 6608 og 6609. Fíugfélag íslands. Listsýning Félags íslenzkra myndlistarmanna opin í dag frá kl. 11 til 22. Aðgöngumiðar á kr. 5.00. , ;f« ■ .. . Næst síðasti dagur. Frá og með 1. jan. n. k. hættir Páll SigurSssoh, læknir, að gegua heimilislæknisstörfum' fyrir S j úkrasamlagi ð. Þes vegna þuxfa allir þeir, sem hafa hann fyr ir h-eimilislækni, að fcoma í afgreiðslu samlags ins, Ti* *ygg\fagötu 28, með samlagsbækur sínar, fyrir 1-ok deseaTiber mánaðar, til að velja sér lækni í hans stað. Skrá yfir samlagdækna þar, sem velja má um, liggur frammi í samlagimz. Sjúkrasamlag Reykjavíkur. ýff við Hraunteig 9, (Laugarnesshverfi). — Tekur bæði blautbvott og frágangs- þvott. Vantar fleiri starfsstúlkur. Sími 80442. Aðalheiður Ólafsdóttir. Rússum vakir með slíku of- beldi; þeir vilja 'bola Vestur- veldunum með öllu burt úr Berlín, beygja hana undir ok sitt og gera hana um leið að miðstöð fyrirhugaðs Sovét- Þýzkalands. En hafi Vesturveldin með hinum óvæntu og stórkost- legu birgðaflutningum í lofti til Berlirar gert flutnjnga- bann Rússa til borgarinnar áhrjfalítið, þá hefur viðbragð Berlínarbúa sjálfra gegn hjn- um rússnesku vélráðutmi og bolabrögðum ekki verið síður glæsilegt. Þeir hafa að visu haft minna að borða, orðið að þrengja að sér mittisólina og vantar Ijós og hita í vetrar- myrkrinu og vetrarkuldan- um; en það er þeim aukaat- riði, þrátt fyrjr allan skort og þrengingar, sem yfir þá hafa gengið, lengur en yfir íbúa nokkurrar annarrar borgar í Evrópu- Þeir hafa líka orðið að sætta sig við það, að fylgis- laus klíka kommúnista hrifs- aði til sdn völdin á hernáms- svæði Rússa í borginni, í skjóli rússneskra skriðdreka og byssustingja, og gerðu sameiginlega, þýzka borgar- stjórn þar með að engu- En þeir hafa einangrað þessa klíku þýzkra kvislinga svo með þrautseigri baráttu sinni gegn hinu rússneska ofbeldi, að hún þorir ekki lengur að ganga til leynilegra borgar- stjómarkosninga. Þess vegna hafa Rússar séð sig tl knúna að banna borg- arstjómarkosningarnar í Ber- lín nú á sunnudaginn, á her- námssvæði sínu í borginni. Þeir vita, hvað þær myndu leiða í Ijós um fylgi kommún- ! ista og fyrirlitningu Berlínar- búa á þeim fyrir þjónkun þeirra við Sovét-Rússland. í, stað þess að láta Berlínarbúa sjálfa skera úr því við kjör-1 borðið, hvaða flökka þeir vilja h-afa í borgarstjórn, eins og þeir eiga fu'llan rétt á sam-. kvæmt gerðu samkomulági um hernám borgarinnar, hafa Rússar látið þýzka kommún-, ista skipa ólöglega borgar-! stjóm og kjósa ólöglegan borgarstjóra á hemámssvæði sínu aðeins örfáum dögum áð ur en hinar löglegu borgar- stjórr.arkosningar eiga að fara fram. Greinilegar er ekki hægt að draga merkja- línumar milli einræðis og lýðræðis, milli ofbeldis og lögstjórnar. En Berlínarbúar balda bar áttunni áfram. Borg þeirra er orðin eitt höfuðvígi lýðræðis- ins í Evrópu í dag; það munu 1 borgarstjórnarkosningarnar á suinnudaginn líka sýna, þó að þær íái ekki að fara fram nema á herr ámssvæðum Vest urveldanna- En það er mikil ábyrgð, sem hin hugprúða barátta Berlíniarbúa leggur Vesturveldunum á herðar. Þar verða þau að sanna þaði í Berlín, að fyrir þeim vaki virkilega að verja lýðræðið gegn einræðinu. Þar hafa þau bingað til unnið sinn stærsta siðferðislega sigur í átökur.um milli austurs og vesturs. En þann sigur eiga þau ekki hvað isízt að þakka Berlinarbúum sjálfum, sem tekið hafa á sig allar þreng- ingar til þess að varðveita hið endurborna frelsi og lýðræði í borg sinni. Þar — í Berlín — verður að hrökkva eða stökkva í baráttunni milli lýð ræðis og einræðis í Evrópu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.