Alþýðublaðið - 09.12.1948, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.12.1948, Blaðsíða 8
'10 ALÞÝÐUBLABIÐ •8T’6I 'S3P '6 -m;§epn]umu,j V . 4. og síðasta jólabók Prefltsmiðju Austuriands h.f. Seyðisfirði. Þay mæftusí í myrkri (THIS ABOVE ALL ...) eftir enska skáldið ERIC KNIGHT kom fyrst nt í Eng- iandi í júní 1941, nokfcru áður en 'höfundurinn fórst í árásarflu'gi yfir meginlandinu. Þetta er ‘hrífandi ástarsaga, sem minnir á beztu bæfcur Hemingways, og hefst með undanhaldinu líiifcla frá Dun- fcerque. — Söguhetjan, Clive Hanley, óbreytt- ur hermaður, kvænist læfcnisdóttur •— Pru- dence Cathaway •—- .úr hjálparsveitum kvenna (WAAF). Þau hittast i myrfcri og tafcast ástir með 'þeim, án _þess að þau hafi séð hvort framan í annað. Jafn- framt ástarævintýri þeirra er Cathaway- fjölsfcyldtmni lýst — gamalli yfirstéttarfjöl- skyldu — og viðhorfi hennar til stríðsins. Einn af fjölskyldunni er sendur til Ameriku í erindum stjórnarinn- ar til að sernja um við- skipti við iðjuhöldinn Lachran, og lendir þar í ástarævintýri með bróðursonardóttur Lachrans. Sam- tímis þessum ástarævintýrum.' er lýst hinum ógurlegu loftárásum á London og áhrifum þeirra á almenning. Bcfc þessi vakti óhemju athygli þegar hún fcom út, og spáði James Hilton, höfundur bófcarinnar „í leit að lið' inni ævi“ (Random Harvest), að 'hún myndi seljast í 500 000 eintökum í Englandi. Spádómurinn rættist og vel það, enda hefur bókin (samkvæmt upplýsingum í síð- ustu' útgá'fu af „Writer’s Who is Who?) verið metsölubók á hverju ári síðan hun kom út! Ameríska sfórblaðið LIFE lét, með aðstoð ensku stjóm- arinnar og 52 leikara, gera myndaflokk um efni sögunnar og birti myndimar á forsíðu blaðsins og 11 síðum öðrum, hinn 12. janúar 1942, — og eru þær prentaðar í bókinni. í Danmörku seldisí bókin í 125 000 eintökum á 2 árum. Bókin er í tveim heftum og kostar hvort kr. 27,00. Bæði heftin bundin saman koma í bókabúðir eftir fáa daga. Verð kr. 70,00. Kaiipum hreinar léreftstuskur. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Leonhard Frank: ATTHILDUR SBBBBSBP? andi: „Þjóðverjar eru hér. Hvers óskar þú fremur? Það er engin stund nú fyrir einhverja vitleysu.“ Varðmanninum hafði brugðið við að sjá ÞjÓðverja og vissi, að hann var á þeirra valdi nú, og hann var ruglaður af hinurn snöggu umskiptum, svo að hann var augsýnilega í vafa, hvað hann ætti að gera. Eitthvað virt íst bresta í honum. Hann varð alveg stirðnaður í framan. Að eins varir hans bærðust örlítið. Hann ieit undan, þegar þeir klifruðu upp vegginn. Þeir stukku til jarðar og hlupu niður brekku og út á bersvæði. Sagnfræðingurinn hafði dott ið, þegar hann kom niður, og dregizt örlítið aftur úr. Þegar tvífari Westons sneri við til að gæta að honum, sá hann þrjá þýzka hermenn hlið við hlið á stígnum langt uppi, og bar skugga þeirra við himinn. Þeir hrópuðu: „Halt! halt!“ og hann kraup niður. Vélbyssuskothríð gall við. Mennirnir hentu frá sér bögglum sínum og æddu áfram út í læk og yfir hann, klifruðu másandi og blásandi upp bakk- ann hinum megin og störðu ó- vissir í kringum sig og vissu ekki í hvaða átt þeir áttu helzt að fara, til þess að falla ekki í hendur Þjóðverjum. Vélbyssu,. skothríðin var þögnúð. Skóladrengur, sem stökk af hjólinu sínu, ókafur að veita hjálp sína, benti þeim á veginn til strandar, þar sem Þjóðverjar mundu ekki geta séð þá. Vegurinn lá yfir bratta brekku. Þegar upp á brekkuna kom, féll hínn sextíu og fimm ára gamli maður frá Mtinchen niður og hafði fengið hjarta- slag. Ómælanleg tilfinning fékk þessa menn, sem voru á flótta undan dauðanum, til þess að fórna nokkrum sekúndum hjá dauða manninum, vegna þess að hann lá í sólinni með opin augun. Þeir báru hann í flýti inn í skugga af nokkrum runn- um. Meðan þeir gerðu það, sagði sagnfræðingurinn, sem alveg var að springa af mæði, fölur með titrandi v.arir: „Hon- um hefur heppnazt undankom- an.“ Másandi og blásandi klöngr- uðust þeir áfram veginn, sem skóladrengurinn hafði lýst, og allt í einu komu þeir auga á hafið. Þeir hlupu áfram eftir ströndinni, knúðir áfram af til-/ hugsuninni um það, að' með hverju skrefi voru þeir fjær herbúðunum. Sólin gekk til viðar. Ekki fyrr en nóttin kom, hvíldu þeir sig í skjóli við moldarbarð. Þeir voriLfrjálsir. Þeir hlógy af því að þeir voru frjálsir. Það var sjúklegur hlátur, eins og hlátur morðingja, sem hafa brot izt út úr fangelsi rétt áður en átti að taka þá af, og geta átt það' víst að þeim verði náð. Þeim kom öllum saman um það, að England væri eina hæl- ið. Þeir yrðu að finna einhvern fiskimann, sem færi með þá yfir um. Sjór og himinn var orðinn dökkur. Þeir héldu áfram var- legá' í myrkrinu yfir grýtta ströndina alla nóttina. Weston stóð í fjörunni eins og maður, sem veit ekki hvað hann i á að gera af sér eða hvert hann i á að halda. Alltaf frá því að nann vaknaði í hlöðunni, þar sem hann hafði kvalizt alla nótt ina af martröð, hafði hann ver ið :jað hugsa um það í örvænt- ingu og árangurslaust, hvernig hahn gæti flúið þetta veggja- lausa fangelsi. Hann horfði aniiárs hugar á ströndina hin- um. megin, sem var ónáanleg: frjáls, en þó fangi. Þegar hann sá,.að mennirnir þrír, sem snigl uðtíst áfram þarna í fjörunni, vorii í borgaralegum fötum, sefdst hann niður í sandinn. Það var heiðríkur, fagur rnorgun, en hann sá það ekki. Á lognkyrrum sjónum voru mjóar rákir, eins og strokið hefðl verið hendi yfir þennan glitrandi græna silkiflauels- vefnað hér og þar. Að lokum sáu þremennnig- arrtir, sem höfðu numið staðar af skiljanlegum ástæðum, að þetta var ekki Þjóðverji, sem sat þarna í sandinum og héldu áfrám göngu sinni. Þeir' bundu einnig vonir sínar vio vélbát- ana, sem lágu á höfninni. „Hann gæti vel verið fiski-1 maður eftir útliti. Hver veit? Karinski er hann maðurinn, sem gétu.r farið með okkur yfir um,“ sagði Austurríski blaða-! maðurmn og bló órólega og þrammað yfir sandinn í áttina til Westons. Þessi stóri, herða- breiði og þrekni maður með hornspangargleraugun og rautt andlitið, sem var grátt eftir þessa nótt, spurði fyrsta mann- inn, sem hann hitti, um dálítið, sem hann hafði ekki minnsta áhuga á að viía: „Gætuð þér sagt mér hvað klukkan er?“ Þeir gengu hægt yfir sandinn til hinna, sem sátu og biðu. Austurríkismaðurinn fór að tala um hressandi morgunloftið, fallega hvítan sandinn, um Eng land, sem ekki gæti verið langt héðan, og um vélbátana og hver gæti átt þá. Loks, er hann var búinn að herða sig nóg upp til þess að hann þyrði að treysta hinum, sagði hann: ,.Við erum að flýja Þjóðverjana. Við vilj- um komast til Englands.“ „Ó; til Englands/1 sagði Weston þurrlega. Þó að sagnfræðingurinn hefði séð draug þennan heiða morgun í fjörunni í Bretaníu, hefði hann ekki getað orðið meira hissa. Og ekki fyrr en Weston, sem hresstist stórum af ánægju og undrun, hafði rétt sagnfræð- ingnum höndina, trúði hann því, sem hann sá, svo agndofa hafði hann orðið. Meðan þeir kynntu sig, Wes- ton og tvífari hans, hvor fyrir öðrum, tóku þeir brosandi eftir því, hve líkir þeir voru og að á andlitum þeirra var sama brosr ið. í grjótbyrginu byrjuðu þeir að ræða það, hvernig þeir ætt'u að komast til Englands. Það var að öllum líkindum ekki nema peningaatriði að ná í fiskimann, sagðí Austurríkismaðurinn og horfði á Weston, sem gat ekki fengið af sér að eyðileggja þessa einu von þessara þriggja manna, sem höfðu hætt lííi sínu á flótta og voru nú, þrátt fyrir þreytuna, í bezta skapi. Það var bezt að lofa þeim að sofna vel áður. Augu sagnfræðingsins voru þegar lokuð. ' Eftir að dimmt var orðið stóð Weston á sandinum og horfði á leitarljós þýzku vélbát- anna. Þegar hann kom aftur, settist hann á hálminn við hlið hinna þriggja, sem voru, ný- vaknaðir, og sagði þeim það, sem varð að segja þeim: að flótti til En"lands væri ómögu- legur, að Þjóðverjar hefðu tek- ið alla olíu og allt benzín í höfn um Bretaníu. Hann gai ekki séð framan í þá; það var dimmt. En í hinni MYNDASAGA ALÞÝÐUBLAÐSINS: ÖRN ELDING KÁRI: Töfrorðið er breytt og mér ÖRN: Ég vildi óska að doktor Jaxon að hann er einmitt maðurinn tii JAXON: Hvern skrambann sjálfan líður vægast sagt hálfilla.--------— væri hingað kominn. Ég er viss um þess að ráða fram ur þessari flækju. eruð þið að ómaka mig hingað, strákar?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.