Alþýðublaðið - 19.06.1949, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 19.06.1949, Qupperneq 5
Sunnudagúi’ 19. júní 1949 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Níu árum efíir morð Irotzkys: VESXUíi f MEXÍKÓ hefur morðin"! Leons Tro'tzky nú setið í fan^eisi í hér um bil níu ár. En enn vita menn ekki með neinni vissu hver hann er. Dómararnir, sem dæmáu hann, voru sannfærðir um, að aílt það, sem hann sagði fyrir réttinum um nafn siít og uppruna, væri ósatt. I grein þeirri, sem hér birtist, og er eftir ameríska blaða- manninn Joseph Bornstein, eru þó fyllri upplýsingar um þennan dularfulla morðingja og ódæðisverk hans, en blaðalesendur hafa hingað til fengið. Greinin er þýdd úr „The Reader’s Digest“, júníhefti þessa árs. INNAN MURVEGGJA dyfl-! issu éinnar í Mexíkó dvelur kynlegur fangi. Dómarinn, sem órið 1943 fann hann sekan um morð, var sannfærður um, að jhvert einasta orð, sem hinn seki sagði um sjálfan sig og íortíð sína, væri uppspuni. Myndir af honum og frásagnir varðandi verknað hans birtust í blöðum og tímaritum um víða veröld, en aldrei hefur nokkur sá maður gefið sig fram, sem teldi sig þekkja hann. Um níu ára skeið hefur honum tekizt að dylja hver hann er og hverj- ir voru hvatamenn að glæp þeim, er hann vann. Þessi dularfulli fangi kveðst heita Jacques Mornard Van- dendreshd og vera Belgíumað- ur að þjóðerni, en fæddur 1 Persíu árið 1904. Hann myrti þann mann, sem Joseph Sta- lin hataði mest, — Leon Trot- sky. Ekkert er vitað um ævi hans fyrr en árið 1938. Þá var það, að Sylvía nokkur Ageloff, 27 ára að aldri, sérfræðingur í sálarfræði og starfsmaður við menntamálaráð New York borgar, sagði lausri stöðu sinni og hélt til Parísar. Skömmu eftir komu sína þangað kynnt- ist hún glæsilegum, ungum manni, sem kvaðst heita Jacques Mornard og stunda jnám í blaðamennsku við Sor- bonneháskóla. Hann bauð henni með sér í söfn leikhús, veitingahús og skemmtistaði. Hann skorti ekki fé, og sagði bann Sjdvíu, að ætt sín væri mikils metin í Belgíu. Ari áður en þau kynntust hafði ein af systrum Sylvíu farið til Mexíkó og gerzt einkaritari Leons Trotskys, en sjálf átti Sylvía vini og kunn- ingja meðal fylgismanna Trot- skys í Bandaríkjunum. Ekki 'kom henni samt sem áður til hugar, að Mornard kynni að leita vináttu við hana í leynd- um tilgangi. Hann virtist eng- an áhuga hafa á stjórnmálum «og aldrei minntist hann á Trotsky. Dag nokkurn kvaðst Morn- ard gjarna vilja veita henni nokkra fjárhagslega aðstoð. Hann.sagði, að útgáfufyrirtæki eitt væri fúst til að greiða henni þrjár þúsundir franka á mánuði fyrir ritgerðir um sál- arfræði. Sylvía tók boðinu alls- 'hugar fegin og fékk Mornard í hendur ritgerð á viku hverri, en aldrei birtist nein þeirra á prenti. Skömmu eftir að þau kynnt- ust, hvarf Jacques á brott úr París um nokkurt skeið. Þann 26. júlí 1938 reit hann Sylvíu bréf frá Brússel og sagði, að móðir sín hefði slasazt hættu- Frank Jacson hélt í október- mánuði sama ár til Mexíkó- borgar. Ekki leið á löngu áður en Sylvíu barst bréf frá hon- um, og kvaðst hann vera mjög einmana. Hann bað Sylvíu að koma til Mexíkó. Um þetta leyti var Trots- ky, sem bjó í Coyacán, oft getið í fréttum. Leiðtogar kom- múnista í Mexíkó kröfðust þess, að honum væri vísað úr landi, kváðu hann handbendi bandarískra heimsveldissinna og glæpsamlegan svikara við máistað verkamanna í Mexíkó og á Rússlandi. Eftir að Trotsky hafði beðið lægra hlut í keppninni við Stalin um það, hvor þeirra skyldi verða eftirmaður Len- ins, hafði hann verið gerður landrækur úr Rússlandi, Tyrk- landi, Frakklandi og Noregi. Frá Mexíkó hélt hann áfram baráttunni gegn Staiin og stjórnmálastefnu hans. I janúarmánuði árið 1940 fékk Sylvía þriggja leyfi frá störfum og flaug til Mexíkp. Fyrir atbeina hennar kynntist Frank Jacson nú systur hennar, sem var einka- ritari Trotskys, og sameigin- legum vinum þeirra systra, er! Golfleíkur í gleraugum Myndin sýnir, hvernig golfleikur úti á leikvelli speglast í gler- augum stúlkunnar, sem er á áhorfendabekkjunum. lega í bifreiðaárekstri, en föð- ur sinn kvað hann hafa slopp- ið ómeiddan. Tveim árum síð- ar sagði hann iögregluyfirvöld- unum í Mexíkó, að faðir sinn hefði andazt árið 1926, eða tólf árum áður en slys þetta átti að hafa orðið, og virtist hann þá hafa gleymt bréfi þessu. Sylvía ákvað þá að heim- sækja hann honum að óvörum, en ekki átti hann þá heima þar, sem hann taldi heimilis- fang sitt í bréfinu. Þegar hann skömmu síðar kom aftur til Parísar, tók hún þá skýringu hans góða og gilda, að þau hefðu farizt á mis í Brússel vegna þess, að hann hefði skyndilega verið kallaður til Englands. I febrúarmánuði 1939 skýrði Mornard henni frá því, ao hann væri ráðinn Bandaríkjafrétta- ritari blaðs nokkurs í Belgíu. Varð að ráði, að Sylvía hyrfi aftur til New York, en hann kvaðst koma skömmu síðar. Sylvía beið hans lengi í New York, og að síðustu barst henni símskeyti frá honum, og sagð- ist hann þá eiga í örðugleikum með að fá vegabréf til Banda- ríkjanna. Sylvía réði sig þá í vinnu hjá uppeldismálanefnd- inni í Brookiyn. Til New York kom Mornard ekki fyrr en í septembermán- uði. Hann nefndi sig þá Frank Jacson, sagðist ekki hafa kom- izt úr landi, þar eð hann væri á herskyldualdri; hefði hann orðið að kaupa sér falskt vega- bréf fyrir 3500 dollara. Þá hafði hann og breytt um at- vinnu og var nú orðinn að- stoðarmaður umboðssala, er seldi fyrirtækjum í Evrópu ýmis hráefni frá Mexíkó. Þótti Sylvíu þetta leitt, en ekki vakti samt frásögn hans neinn grun með henni. þær höfðu áður kynnzt í New York. Sylvía varð að hverfa aftur til vinnu sinnar í marzbyrjun. Jacson rækti vel kynni sín við hina nýju vini, einkum franska fjölskyldu, er Rosmer nefndist, en þau hjón voru gestir Trots- Arás þessi er enn óráðin gáta. Mátti furðulegt heita, að Trotsky og kona hans skyldu mánaða ! sleppa við sár eða jafnvel bana. Nokkrum vikum síðar fannst lík Roberts Sheldon Harte í kalkgróf einni. Fjórum dögum eftir þennan atburð ók Frank Jacson heim að bústað Trotskys í því skyni kys. Þegar hann heyrði, að þau saman. að taka þar Rosmershjónin og frú Trotskys og aka þeim til Vera Crus. Trotskyhjónin og gestir þeirra sátu að morgun- verði, og Jacson var boðið inn. Hann þáði kaffi, og var þetta í fyrsta skipti, sem fundum hans og Leons Trotskys bar ætluðu að leggja af stað frá Vera Cruz áleiðis til Frakk- lands í lok maímánaðar Trotzky hefði í hyggju fylgja þeim til hafnar, bauðst hann til að aka þeim til Vera Cruz, og var því boði tekið. Förin var afráðin þann 28. maí. Um fjögurleytið að morgni þess 24. maí réðust ' þrír tugir manna, klæddir ein- kennisbúningum mexíkönsku lögreglunnar og undir forustu manns, er bar einkennisklæði herforingja, á lögreglumenn þá, er stóðu vörð við bústað 1 Trotskys, afvopnuðu þá og ' fluttu einn af lífvörðum Trots- fys, Robert Sheldon Harte, inn , í eina af bifreiðum sínum. Síð- an hófu þeir óða vélbyssuskot- hríð á dyr og glugga bústaðar- ins. Trotskyshjónin skriðu ifram úr rúminu og lögðust á ' gólfið. Niðamyrkur var í svefn- herberginu. Þau heyrðu, að einhver kom inn og skaut 1 nokkrum skotum, áður en hann i hélt aftur á brott. Sennilega hefur hann þótzt þess fullviss, að skothríðin hefði orðið beim hjónum að bana, og skömmu síðar óku árásarmennirnir á brott og fóru hratt. Upp frá þessum degi var Jacson alltaf boðinn og vel- og ' kominn gestur á heimili þeirra að, Trotskyhjóna. Bústaður Trotskys hafði þá verið gerður að virki. Tvöfald- ar stálhurðir voru fyrir öllum dyrum, og voru þær opnaðar og þeim lokað með rafstraumi, en stálhlerar voru fyrir glugg- um. Loft og gólf voru gerð sprengjuheld, bústaðurinn girtur gaddavír og útsýnis- trönur reistar, svo unnt væri að fylgjast með ferðum öllum um nágrennið. En Jacson gat gengið þar út og inn eins og hann viidi. Verðirnir álitu hann einn þeirra, sem „gamli maðurinn“ þekkti og treysti. Þegar Sylvía kom aftur til Mexíkó í ágústmánuði til þess að njóta þar sumarleyfis síns, sá hún að Jacson var kynlega niðurbeygður og að eitthvað hlaut að valda honum þungum áhyggjum. Þeim var boðið í tedrykkju heima hjá Trotsky, og þá var það, að Jacson ræddi í fyrsta skipti stjórnmál, svo að hún heyrði. Rætt var um, á hvern þátt Trotsky skyldi haga baráttu sinni; Jacsoh var K.R.R. I.S.I. K.S.Í. amnað kvöld klukkan 8,30. — Keppa þá K.R., Fram. Er þetta úrslitaleikurinn? — Nú má enginh sitja heima. — Sama lága verSiS. — Allir út á völl. • Trotsky sámþykkur í einu og öllu og bauðst til að rita blaða- grein skoðun hans til varnar. Sylvía var þeim hins vegar ó- sammála. Viku síðar sýndi Jacson , Trotsky frumdrætti að blaða- greininni. Seinna sagði Trots- ky konu sinni, að þetta hefði verið slagorðaþvæla. En hann hét Jacson því, að iesa grein- ina, er hún væri fullsamin, og var sá dagur ákveðinn. Þann dag, — þann 20. á- gúst, kiukkan hálfsex síðdegis, voru þrír vinir Trotskys, Joseph Hansen, Charler Cornell og Melqruades Benitez, staddir uppi á þaki bústaðarins og voni að ljúka við að ganga frá raf- knúinni aðvörunarblístru, ef til nýrrar árásar kæmi. Vörðuf inn, Heroid Robins, fylgdi Jac • son til Trotskys, en hann vaf þá staddur í gafðinurn að húsa - baki og bar kjúklingum og ali- kanínum fóður. Jacson sagði honum, að Sylvía kæmi eftir skamma stund tii að kveðja, en þau ætluðú bæði til New York næsta dág. Þegar hann sá frú Trotsky koma út á svalirnar, bað hann hana að gefa sér vatn að drekka og kvaðst vera mjög þyrstur. Frúin veitti því athygli, að hann var náfölur og æstur, og að hann. gangstætt venju. bar hatt á höíði og hélt á regnhápu á vinstri handlegg. Þegar hann kom aftur út í garðinn, ásamt frúnni, sagði Trotsky: „Jæja, — eigum við þá ekki líta á greinina“. Að svo mæltu leiddi hann Jacson inn í skrifstofuna og lokaði dyrunum. Þrem eða fjórum mínútum síðar heyrði frú Trotsky, sem orðið hafði eftir úti í garðin- um, og sömuleiðis menn þeir, sem voru við vinnu uppi á þak- inu, „hræðilegt, nistandi vein, langdregið og sársaukaþrung- ið“. Og áður en þau bar að, koma Leon Trotsky skjögrandi út úr skrifstofu sinni og inn í borðstofuna, þar sem hann féll á góífið. Antílit hans var allt blóði drifið. Jacson stóð inni í skrifstof- funni með skammbyssu í hendi. Robins barði hann niður. Hálf ■ meðvitunarlaus kjökraði hann: „Þeir neyddu mig til þess; þeir neyddu mig til þess! Þeir hafa hneppt móður mína í varð- (Frb. á 7. síðu.' 'mammsmam

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.