Alþýðublaðið - 07.07.1949, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 07.07.1949, Blaðsíða 1
Veðurhorfíjri Suðvestan gola, dálítil súld öðru livei'ja, sums staðar þoka. * e * * * * Forustugreinl Dimitrov. » * * XXX. árgangur. Fimmtudagurinn 7. júlí 1949. 148. tbl. Bretar ver’ða að mæta doilaraskortinom með ný|o átaki tiS að efia framieiðsiuna, lækka vöruverð og auka útflutning, SIE STAFFOED CKIPPS, fjármálaráðherra brezku jafn- aðarmannastjórnarinnar, sagði í ræðu, sem hann flutti í neðri máistofu brezka þingsins í gær, að svo mjög hefði gengið á doilaraeign Breta undanfarna þrjá mánuði, sökum minnkandi útflutnings vestur um haf, að til nokkurra vandræða horfði í bili. Sir Stafford kvað þó ekki koma tii mála, að lækka gengi sterlingspundsins, og hvatti þjóð sína til að sigrast á erfiðleik- unum með því að auka framleiðsluna enn og lækka fram- leiðslnkostnaðinn til þess að geta aukið útflutninginn. Sir Stafford sagði, að Bretar væru nú betur stæðir efna- hagslega og fjárhagslega en nokkru sinni eftir stríðið, þrátt fyrir hina nýju erfiðleika af völdum dollaraskortsins. En að svo mjög hefði gengið á dollaraeign Bretlands síðustu mánuðina stafaði af lækkun vöruverðs vestan hafs, seny hefði dregið úr eftirspurn þar eftir brezkum vörum og þar með úr útflutningi Breta til Ameríku. Kvað hann brezku stjórnina af þessum ástæðum hafa bannað að gera nokkra nýja samninga um innkaup gegn dollurum næstu þrjá mánuði; og vel mætti svo fara að Bretar yrðu að takmarka innflutning á matvælum og hráefnum frá Ameríku mun meira en þeir liefðu gert hing- að til. anprsmenn {! GEYSIR LOFTLEIÐA fer í dag til Kaupmannahafnar til þess að sækja Grænlandsleið- angursmenn Lauge Koch. f leiðangrinum verða 72 menn, og mun Geysir flytja þá og farangur þeirra fyrst hingað til Reykjavíkur og síðan til Græn- lands. í þessari ferð sækir Geysir 32 menn og farangur, en á mánudaginn fer hann aftur til Kaupmannahafnar og flytur þá 40 leiðangursmenn hingað. í næstu viku mun hann flytja þá til Grænlánds. Nefndin, sem fjaí skiiai álili sínn Sir Stafford kvaðst ekki ef- ast um, að Bretar sigruðust á þessum nýju erfiðleikum, eins og þeir hefðu sigrazt á öllum öðrum. En til þess þyrftu þeir enn að auka framleiðsluna og lækka tilkostnað við hana til þess að geta lækkað vöruverð- ið og aukið útflutninginn, ekki aðeins til landa á sterlings- svæðinu, heldur og vestur um haf. Lagði Sir Síafford í þessu sambandi ríka áherzlu á það við launastéttir Bretlands, að þær mættu ekki gera kröfu til hækkaðs kaups að sinni. NEFNDIN, sem ríkisstjórn- in skipaði 1. júní til þess að rannsaka laun og kjör opin- berra starfsmanna með hlið- sjón af þingsályktunarííllögu frá 18. marz þar að lútandi, skilaði álíti til ríkisstjórnar- innar í fyrradag. Allir nefnd- armenn stóðu að áliti nefnd- arinnar, nema Skúli Guð- mundsson alþingismaður, sem hætti störfum í nefndinni vegna ágreinings um störf hennar. í nefndina voru skipaðir Magnús Jónsson lögfræðingur formaður, Kristinn Gíslason hagfræðingur, Ólafur Björns- son prófessor, Skúli Guð- mundsson alþingismaður og Gunnar Þorsteinsson hæsta- réttarlögmaður. Yíkingaskip í srníðum. Þetta er hið renniiega víkingaskip, sem Danir ætla að senda til Engiands, mannað 50 ljóshærðum og rauðskeggjuðum, dönsk- um ræðurum, í lok júlímánaðar í tilefni af því, að í ár eru 1500 ár liðin frá því, að danskir víkingar réðust að því er talið er, til landgöngu á Englandi. Verið er að smíða víkingaskipið á skipasmíðastöðinni í Friðrikssunai og verður það 25 metra langt. Skrautlegt, gyllt drekahöfuð, með kolsvörtum augum og eldrauðri, flakandi tungu, verður sett á framstafn skipsins og verið að smíða það í Helsingjaeyri. Skipið verður búið rönd- óttu bversegli, að víkingaaldarsið. KAUPLAGSNEFND hefur reiknað út húsaleiguvísitölu fyrir tímahilið 1. júlí til síð- j asta september, og reyndist hún vera 152 stig miðað við grunntöluna 100 hinn fjórða apríl 1949. sakaður um að vera í samsæri með Rajk og félögom hans í ungverska kommúnistaflokknum. Bæjarráð samþykkir styrk fii æfinga- valla KR og Vals. BÆJARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í fyrradag, að veita hvoru knattspyrnufélag- anna Val og KR 15 þúsund króna styrk til æfingavalla þeirra af fé því, sem á þessu ári er ætlað til undirbúnings íþróttasvæða. FLÓTTAMENN, sem nýlcga eru komnir frá Ungverja- landi, herma, að Pushkin, fyrrverandi sendiherra Eússa í Búdapest, hafi verið einn þeirra, sem teknir voru fastir, er Eajk og átján félagar hans í ungverska kommúnistaflokknum voru fangelsaðir í jútií, sakaðir iim njásnir fyrir vestrænt stórveldi. Er Pushkin sendiherra sagður hafa verið Rajk hlið- hollur, eða jafnvel í „samsæri“ með lionum, í deilunum inn- an flokksins. Samkvæmt frásögn hinna*' ungversku flóttamanna var það Revai, menntamálaráð- herra ungversku kommúnista- stjórnarinnar, sem tók rúss- neska sendiherrann fastan samkvæmt fyrirmælum, sem hann hafði fengið austur í Moskvu snemrna í júní. Kom til átaka í sendiráðinu, er Re- vai kom þangað með nokkra menn úr ungversku leynilög- reglunni til þess að taka Push- kin fastan, og á sendiherrann að hafa varið sig, skotið á Re- (Frh. á 8. síðu.) Hússsieskar bækistöSvsr fyrir Sangdræg raketfu- skotvopn við Eysfrasa!!. VAXANDI vígbúnaður Bandaríkjanna hefur nú stöðvað útþenslu Rúss- lands og kommúnismans í Evrópu, sagði Bedell Smith hershöfðingi, fyrr- verandi sendiherra Banda- ríkjanna í Moskvu, í ræðu, sem hann flutti á þjóðhá- tíðardag lands síns, á mánudaginn. En hann varaði við því, að halda, að „kalda stríðið“ væri þar með á enda. Það myndi halda áfram um ófyrirsjáan- legan tíma. Bedell Smith, sem lét af embætti sem sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu fyrir skömmu síðan, sagði í ræðu sinni, að Bandaríkin héfðu í stríðslok haft yfir að ráða öfl- ugasta her, sem um gæti í ver- aldarsögunni; en þar sem þau hefðu engar árásir eða land- vinninga haft í huga, hefðu þau ekki aðeins afvopnað þennan her, heldur og eyðilagt vopnin. Þetta, sagði Bedell Smith, hefði Rússland notfært sér eft- ir stríðið til þess að bæla undir sig og undir ok kommúnismans mun stærra landflæmi en það, sem rauði herinn hefði tekið í stríðinu. Þetta hefði neytt Bandaríkin til að vígbúast á ný, og nú hefði endurvígbún- aður þeirra stöðvað útþenslu Rússiands og kommúnismans í Evrópu. En hann varaði við því að halda, að þar með væri nokkur endanlegur sigur -unninn. Bandaríkin væru í „köldu stríði“, sem halda myndi áfram og standa um ófyrirsjáanlegan tíma. Sigur í því gæti aðeins unnizt með þrautseigju, festu og umfram allt með öflugum vígbúnaði. Og því aðeins gætu Bandaríkin tryggt friðinn, að her þeirra væri ávallt öflugri en her þeirra ríkja, sem á árás hyggja. EÚSSAR eru nú óðum að víggirða hafnirnar sunnan og ausían við Eystrasalt, segir Al- beiderbladet í Oslo, og télja hernaðarsérfræðingar Vestur- Frb. & S. síðu- VANDENBERG flutti ræðu í öldungadeild Bandaríkja- þingsins í gær og mælti ein- dregið með því, að deildin full- gilti Atlantshafssáttmálann hið allra fyrsta. Umræður um fullgildingu sáttmálans hófust í öldunga- deildinni í fyrradag, og verður gengið til atkvæða um hana að þeim umræðum loknum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.