Alþýðublaðið - 18.08.1949, Síða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fimmtudagur 18. ágúst 1349.
Útgefandi: AlþýSuflokkurinn.
Eitstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Beneðikt Gröndai.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
ASsetur: Alþýðuhúsið.
Albýðuprentsmiðjan hJL
Sffórnlagaþingslil-
lögur Framióknar
ÞAÐ hefur aldrei verið neitt
leyndarmál, að til væru í báð-
um íhaldsflokkum landsins
menn, og það meira að segja
áhrifamenn, sem hyggðu á af-
nám ýmissa þeirra kjarabóta og
trygginga, sem verkalýðurinn
og launastéttirnar hafa öðlast
við margháttaða félagsmálalög-
gjöf undanfarinna áratuga. En
um mjög langt skeið hafa fáír
látið sér detta það í hug, að til
væru í landinu öfl, þegar komm
únistar eru undanskildir, sem í
alvöru hyggðu á árás á hið
stjórnarfarslega lýðræði og
jafnrétti, sem skapazt hefur
með þjóðinni á þessari öld, í því
skyni að takmarka það og
breyta stjórnskipulagi landsins
í afturhaldsátt. Svo sjálfsagt
hafa menn talið það í seinni
tíð, að stjórnarfarslegt lýðræði
og jafnrétti væri tryggt hér á
landi um allan aldur.
En alveg nýlega hafa komið
hér fram tillögur, börnar fram
af öðrum íhaldsflokknum, sem
sýna, að andvaraleysi í þessum
efnum er á engan hátt réttlæt-
anlegt, og að full ástæða er til
að vera vel á verði um stjórn-
arfarslegt lýðræði og jafnrétti
þjóðarinnar, eins og um allt
annað, sem unnizt hefur í bar-
áttu hennar fyrir bættum kjör-
um og auknum réttindum á
undanförnum áratugum Þess-
ar tillögur eru tillögur þær,
sem Framsóknarflokkurinn bar
nýlega fram í stjórn landsins
um sérstakt stjórnlagaþing,
kosið á allt annan hátt, en al-
þingi.
❖
Tíminn hefur af skiljanleg-
um ástæðum verið ákaflega
hljóður um þessar tillögur
flokks síns; og sannast að segja
hefur þjóðin hingað til ekki
fengið annað um þæi’ að vita
en það, sem Alþýðublaðið hef-
ur skýrt frá. En í s'tuttu máli
voru tillögurnar, sem lagðar
voru fram í ríkisstjórninni í
júlí, á þessa leið.
Ef samkomulag næst ekki
með stjórnarflokkunum um að
kalla saman sumarþing til að
ræða tillögur Framsóknar-
flokksins í fjárhags- og dýrtíð-
armálunum, þær sem nú hafa
leitt til þingrofs, skal alþingi
að minnsta kosti kallað saman
til að ganga frá stjórnarskrár-
breytingu þess efnis, að stofn-
að skuli til sérstaks síjórníaga-
þings til að setja lýðveldinu
fyrirhugaða stjórnarskrá, og
skal til stjórnlagaþingsins kos-
ið í um hundrað einmennings-
kjördæmum, sem jöfnusíum að
kjósendafjölda. Skal þetta þing
því næst vinda bráðan hug að
því að ganga frá stjórnarskrár-
málinu.
í fljótu bragði reka menn sig
fyrst á það augljósa atnði í
þessum tillögum, að Sjálfstæð-
isflokkurinn, sem er lang-
stærsti flokkur landsins, hlyti
að verða í hreinum meirihluta
á því stjórnlagaþingi, sem
þannig yrði kosið og því svo
til einráður um framtíðarstjórn
arskrá lýðveldisins, ef hann
vildi. Og menn spyrja: Eru
foringjar Framsóknarflokksins
gersamlega búnir að missa
alla vitglóru?
Nei þetta er allt með ráði
gert: Tilgangur Framsóknar-
foringjanna er að umturna
öllu kjördæmaskipulagi og
allri kosningatilhögun lands-
ins. Þeir óttast, að það sé
skammt fram undan, ef stjórn-
arfarslegt jafnrétti á grund-
velli hlutfallskosninga til al-
þingis verður við haft hér á-
fram, að flokkur þeirra dragist
aftur úr Alþýðuflokknum og
verði framvegis ekki nema
þriðji stærsti stjórnmálaflokk-
ur landsins. Þess vegna vilja
þeir í tíma afnema hlutfaíls-
kosningarnar og koma á ein-
tómum einmenningskjördæm-
um með einföldum meirihluta-
kosningum og án allra upp-
bótarsæta á alþingi, svo að þeir
tveir flokkar, sem nú eru fá-
mennastir, og þá einkum AI-
þýðuflokkurinn, sem hann ótt-
ast mest, fái framvegis ekki
þingmannatölu í neinu hlut-
falli við kjósendafylgi sitt. Þeir
vilja með öðrum orðum gera
verkalýðinn og launasíéttirn-
ar í landinu pólitískt réttlitlar
eða réttlausar! Og svo áfjáðir
eru foringjar Framsöknar-
flokksins í þessa gerbreytingu
á kjördæmaskipun og kosninga
tilhögun landsins í afturhalds-
átt til þess að tryggja í fram-
tíðinni valdaaðstöðu hlutfalls-
lega minnkandi flokks síns, að
þeir skoða ekki hug sinn um
það, að bjóða Sjálfstæðisflokkn
um upp á hreinan meirihluta
og þar með raunverulegt ein-
ræðisvald á stjórnlaga þingi
í von um, að hann noti sér þá
aðstöðu til slíkrar árásar á
st j órnarf ar slegt lýðræði og
jafnrétti í landinu til þess að
tryggja íhaldsflokkunum, sér
og Framsóknarflokknum, á-
framhaldandi völd um ófyrir-
sjáanlegan tíma!
Hér er um afturhaldsfyrir-
ætlanir að ræða, sem eru al-
veg einstæðar í stjórnarfars-
legri sögu þjóðarinnar á þess-
ari öld. Og það er sannarlega
full ástæða fyrir alla unnend-
ur lýðræðis og iafnréttis í land-
inu, að vera vel á verði gagn-
vart þeim.
Það er máske ekki svo rangt
út reiknað af foringjum Fram-
sóknarflokksins, að Sjálfstæð-
isflokkurinn sé vel viðmæl-
andi um tillögur þeirra, og að
óhætt væri fyrir þá, af þeirri
ástæðu, að gefa honum hrein-
an meirihlut.a á hugsanlegu
stjórnlagaþingi. í svari Sjálf-
stæðisflókksins við tillögum
Framsóknar áður en þing var
rofið segir: „Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur þegar áður til-
kynnt, að hann er fús til við-
ræðna um hugmyndina um
st j ór nlagaþing11.
Alþýðuflokkurinn svaraði
hins vegar því til,. að hann sæi
enga ástæðu til þess, að öðru
þingi en sjálfu alþingi yrði fal-
in afgreiðsla hinnar nýju stjórn
arskrár; og að sú kosningatil-
högun, sem Framsóknarflokk-
urinn vildi við hafa við kosn-
ingar til hugsanlegs stjórnlaga-
þings, kæmi að minnsta kosti
ekki til nokkurra mála frá
hans sjónarmiði, þar sem
stærstu flokkunum, eða jafn-
vel einum flokki, yrði með
henni tryggð miklu hærri full-
trúatala á því þingi, en sem
svaraði kjósendafjölda þeim,
er á bak við þá eða hann
stæði.
Það er á þessarí afstöðu Al-
þýðuflokksins, sem hinar furðu
legu stjórnlagaþingstillögur
Framsóknarflokksins strönd-
uðu, að minnsta kosti í þetta
sinn. En menn skulu vera vel
á verði. Þær geta komið fram
aftur eftir kosningar.
Dæmdir ir lelk
ÞJÓÐVILJANUM líður ber-
sýnilega illa í fyrirlitningu
þeirrar þagnar, sem nú ríkir
um Kommúnistaflokkinn. í
öngum sínum er hann í gær að
reyna að minna á hann með
því að lepja upp rógskrif Tím-
ans og Morgunblaðsins um Al-
þýðuflokkinn síðustu dagana;
og sýnir Þjóðviljinn með
þeirri iðju, að enn sem fvrr
eru það ekki íhaldsflokkarnir,
Sjálfstaéðisflokkurinn og Fram
sókn, sem kommúnistar líta á
sem óvini sína heldur AlþýðTi-
flokkurinn. Hafa þeir og fyrir
Lögreglan bar og hér. — Vantar heimild. —
Ný lög og nýiar regiur. — Afmæli Keykja-
víliur. — Eins dæmi.
LÖGREGLAN í KAUP-
MANNAHÖFN segir, að það
séu nær alltaf sömu vagnstjór-
arnir, sem valdi árekstrum og
slysum í borginni. Er hafin ný
herferð gegn þessum mönnum
og hefur lögreg;lan heimild í
lögum til þess að innkalla öku-
skírteini og hyggsí hún nú að
gera þetta og krefjast þess að
hrakfallabálkarnir verði látnir
ganga undir nýtt próf, miklu
strangara en áður v;.r og með
löngu lýst yfir því, að Alþýðu-
flokkurinn sé „höfuðóvinur-
inn“!
í gær hefur Þjóðviljinn það
eftir Morgunblaðinu, að Al-
þýðuflokkurinn sé mesti bitl-
, ingaflokkur landsins og senni-
’ lega heimsins; en eftir Tíman-
um hefur hann það, að Alþýðu-
flokkurinn muni áreiðanlega
fallast á gengislækkun eftir
kosningar. Telur Þjóðviljinn
þetta hvorttveggja miklar
„uppljóstranir“, sem ekki þurfi
frekar vitnanna við, fyrst svo
sannleikselskandi blöð og Morg
unblaðið og Tíminn segja
það!
Þjóðviljanum skal af þessu
tileíni því einu svarað, að
hversu margar. níðklausur um
Alþýðuflokkinn, sem hann lep-
ur upp úr íhaldsblöðunum, þá
munu þær aldrei nægja til
þess, að rétta við hið hrynjandi
kjörfylgi Kommúnistaflokks-
ins. Almenningur veit, að
kommúnistar hafa með fram-
komu sinni undanfarið • dæmt
sig úr leik, og allir hinir
flokkarnir lýst yfir því, að þeir
vilji ekki eiga við þá neina
samvinnu um stjórn landsins.
Þeim atkvæðum, sem Komm-
únistaflokkinum kynnu að
verða greidd, væri því kastað
algerlega á glæ.
Ekki veldur sá* sem varar
TÍMANUM er vissulega ekki
alls varnað í fábjánalegum
skrifum eins og vel kom fram
í grein blaðsins, þar sem því
var haldið fram, að ummæli
Alþýðublaðsins um lúxus-
ílakk íslenzkra auðmanna
‘ erlendis sanni getuleýsi Em-
ils Jónssonar og sé óræk
sönnun þess, að Hermann
Jónasson hafi farið með rétt
mál, er hann hélt því fram,
að inneignir íslenzkra auð-
manna erlendis væru 130
milljónir. SHka hundalógik
eru ekki aðrir vanir að bera
hér fram en Þjóðviljinn og
má mikið vera, ef lesendur
Tímans gína við slíkum f jar-
stæðum.
KJARNINN í grein Alþýðu-
blaðsins, sem Tíminn hefur
svo gersamlega gengið fram
hjá, er sá, að íhaldið og
kommúnistar hafi, með því
að samþykkja afnám alls
eftirlits með gjaldeyri ferða
manna í vetur, tryggt auð-
mönnum „frelsið til að
braska og sóa“ með þeim af-
leiðingum, að ekki minna
en 7—10 milljónum í erlend-
um gjaldeyri hafi verið eytt
erlendis í sumar. Þegar slík-
ar sakir eru bornar á íhaldið
(og hjálparkokka þess, komm
únista, sem einnig sam-
þykktu þetta) á Tíminn, sem
þykist allra blaða skelegg-
ast í baráttunni við íhaldið,
að hafa vit á því að þegja
og lofa íhaldinu og hjálpar-
kokkum þess að svara fyrir
sig.
ÞAÐ VAR ÁÆTLAÐ í fyrri
grein blaðsins, að ólöglegur
gjaldeyrir, sem íhaldið og
hjálparkokkarnir gáfu
mönnum tækifæri til að sóa,
mundi vera 3,5 — 6,5 mill-
jónir. Eitthvað af þessu'er án
efa inneignir auðmanna er-
lendis, en mikið af því er
einnig fengið á svörtum
i markaði hér heima. Hvaðan
sá markaður fær gjaldeyris-
birgðir sínar, skal ekki full-
yrt hér, en mikið af því er
án efa frá erlendum ferða-
mönnum, sem bingað korna.
Það er því hlægileg fjar-
stæða, að þetta sanni þau
ummæli Hermanns Jónas-
sonar, sem hann læddi út úr
sér austur á Hornafirði í
fyrra, að inneignirnar er-
lendis séu 130 milljónir.
AFSKIPTI EMILS JÖNSSON-
AR af þessu máli hafa verið
þau, að hann lét skömmu eft-
ir að hann varð viðskipta-
málaráðherra árið 1947 gera
athugun á því, hversu mikl-
ar inneignir landsmanna
væru erlendis. Reyndust þær
vera rúmlega 24 milijónir í
Bandaríkjunum, og eru þar
með taldar löglegar innistæð
ur fyrirtækja eins og Eim-
skipafélagsins og SÍS. Ríkis-
stjórnin hefur síðan gert
þeim hæíti að vinsa úr þá, sem í
raun og veru ekki geta ekið bif-
reið þó að þeir sén að myndast
við það.
SUMIR MENN geta alls ekki
lært að aka farartæki. Ýmsir
eru þannig skapifarnir að þeir
gleyma því með hvað þeir eru í
höndunum og hvernig umhv’erfi
þeirra er. Ég þekki bifreiða-
stjóra, sem ekið hefur bifreið í
aldarfjórðung, valdið hefur slys
um og hvað eftir annaö lent í
árekstrum, þó er hann sam-
vizkusamur og gætinn, eins og
sagt er, en hann er svoddan
dæmalaus klaufi að engu iali
tekur, getur til dæmis aldrei
,,bakkað“ bifreið án vandræða.
EN SYO ÞEKKI ég líka aðra
sem eru þannig skapi farnir, að
þeir mega helzt ekki snerta bif-
reið — og eru þeir þó ekki
klaufar. Þeir hafa svo hvikula
skapgerð að þeir gleyma sér,
þeim finnst þeim vera allir veg-
ir færir, hægja ekki á sér, þó
að þeir fari fyrir horn, vaða í
hvað sem fýrir er, gá ekki til
hliðar, þó að þeir fari inn í
götu og beygi af aðalbrau o. s.
frv.
HVORUGÍR ÞESSARA AÐ-
ILA má stjórna bifreið. Ég veit
að lögreglan hér er farin að
þekkja þessa menn úr. Hana
skortir hins végar heimild til að
innkalla ökuskírteini og er nauð
synlegt að hún fái þessa heim-
ild. Annars eru lög um bifreið-
ar og umferð mjög illa gerð,
enda má segja, að reynslan
verður að kenna mönnum laga-
setningar í þessu ekki síður en
öðru — og jafnvel fremur. Hér
er verkefni að vinna og ástand-
ið í þessum málum hjá okkur
er vægast sagt mjög bágborið.
f DAG er afmæli Reykjavík-
ur, þessarar blessuðu borgar,
sem eltki á þak yfir höfuðið á
sjálfri sér og er alveg einsdæmi
meðal höfuðborga í menningar-
ríki, enda óvenjulegt líka að höf
uðborg sé stjórnað af íhaldi.
Höfuðborgir eiga að vera djarf-
ar, fagrar, háborgir framtaks og
bjartsýni með hverri þjóð, En
ef svo á að vera þá mega ekki
afturhaldsmenn, sofandi clurgar,
halda um stjórnartaumana.
ÖLLUM REYKVÍKINGUM
þykir vænt um Reykjavík. Þess
vegna munu þeir eiga þá afmæl
isósk heitasta til hennar á þess-
um degi, að meiri bjartsýnUgæti
í stjórn hennar, meira framtak
setji svip á framkvæmdirnar og
ekki sé ætíð miðað við það sem
var, þegar ákvarðanir eru tekn-
ar um framtíðina. Hér gildir það
sama og annars staðar, að völd-
in mega ekki verða rótgróin. Það
veldur kyrrstöðu og sofanda-
hætti — og þannig er og hefur
verið um stjórn Reykjavíkur.
Hannes á horninu.
allt, sem unnt er, til þess að
komast yfir slíkan gjaideyri,
en Tíminn veit eins vel og
aðrir, áð það hefur reynzt
ógerningur. Jafnvel þótt
þjóðin gerði slíkt mikil-
Framh. á 7. siðu. .