Alþýðublaðið - 29.01.1950, Side 8
8
ALÞÝÐUBLAÐSÐ
Sunnudagnr '29. janúar 1950
Kjósendur í Kópavogshreppí
IÍAFsÐ ÞIÐ YEITT ÞVÍ ATHIGLI að í tveimur
stórum biöðum, sem Finnbogi Rútur Valdimarsson hef-
ur sent frá sér nú fyrir kosningarnar, láist honum að
skýra ykkur frá:
1. Hvort og hversu mikla aukaþóknun Finnbogi hefur
greitt sjálfur sér fyrir umsjón með barnaskóiabygg-
ingunni.
2. Hvorí og hversu mikla þóknun hann hefur greitt sjáif-
um sér fyrir umsjón með vatnsveitunni.
3. Hvort og hversu mikla þóknun Finnbogi hefur greitt
sjálfum sér fyrir umsjón með verkfærum (skurð-
gröfu) hreppsins.
Hreppsbúaf hefðu áhuga á að veita um þetta. Ef
til vill hefur Finnbogi Rútur ekki sama áhuga á að
fræða hreppsbúa um þessa hluti. Hreppsreikningarnir eru
vel faldir.
Kjósið á-lisfann! Sími hans er 699
Skemmtigarður í hjarta Reykjavíkur
Kósningin í Kópavogshreppi
ÉG er að velta því fyrir mér,
hvort það mundi ekki reynast
núverandi hreppsnefndarmeiri-
hluta í Kópavogshreppi
erfitt, ef kosningar yrðu
i framtíðinni með jafnstuttu
millibili sem nú er á milli al-
þingis- og hreppsnefndarkosn-
inga. Þá mundu þeir aldrei
þora að birta íbúum hreppsins,
hvað þeir ættu að borga fyrir
vatnið, og þeir mundu líka lifa
í áframhaldandi ótta við nú-
verandi minnihluta hrepps-
nefndar, hreppstjórann okkar,
Þórð Þorsteinsson, sem þeir
leggja nú aðaláherzlu á að
níða og rægja eftir sinni beztu
getu, þó nú án undirskrifta,
sem áður hafa þó tíðkazt hjá
þessum sömu mönnum. Ég álít
að óvild þessara manna sé þau
stærstu meðmæli, sem Þórður
Þorsteinsson getur fengið til
stuðnings framboði sínu. Enda
getur enginn maður litið öðru-
vísi á, en hatur þeirra til Þórð-
ar sé vegna þess, hversu vel
hann hefur staðið á móti ein-
ræðisbrölti þeirra síðasta kjör-
tímabil.
Vitanlegt er það öllum
hreppsbúum, að vatnið fór að
renna, eins og Finnbogi Rútur
sagði, þegar hann var að veiða
fylgi fyrir kommúnista til al-
þingiskosninga á síðast liðnu
hausti; þá gátu menn ekki (
fengið að vita, hvað þeir ættu |
ao greiða í vatnsskatt eða hvað :
þeir ættu að greiða í tengi- ,
gjald. Enginn lætur sér detta ■
það í hug, að Finnbogi Rútur '
sé ekki það reikningsfær mað-1
ur, að hann hefði getað sagt
fólki svorta hér um bil, hvað
vatnið myndi koma til með að
kosta.
Listi kommúnista í Kópa-
vogshreppi, er eftir því sem
Þjóðviljinn segir, C-listi, og ef-
ar það víst enginn. Leyfi ég
mér að leggja nokkrar spurn-
ingar fyrir hæstvir-ta kjósend-
Ur viðvíkjandi þessum C-lista-
mönnum, sem skríða undir
rtafni Framfarafélags Kópa-
Vogshrepps, að mínu áliti í al-
geru heimildarleysi:
Trúið þið því, góðir kjósend-
ur, að Guðmundur Gestsson
hafi skipt það um skoðun síð-
an í alþingiskosningunum í
haust, að hann geti boðið kjós-
endum upp á að kjósa sig sem
ópólitískan mann? Ég geri ráð
fyrir, að það hafi fleirum en
mér dottið í hug, að Guðmund-
ur Gestsson hafi ekki kosið"
sinn eigin flokk, Framsóknar-
flokkinn, síðast liðið haust,
neldur muni hann hafa fylgt
kommúnistum að málum og
það með óaðfinnanlegum á-
huga, að áliti húsbænda hans,
kommúnista.
Þá væri ekki að undra, þótt
kjósendur veltu því fyrir sér,
hvort það gæti ekki virzt sum-
um heldur ótrúlegt, að Finn-
bogi Rútur sé nú allt í einu
orðinn ópólitískur, sem er þó
búinn að sitja á þingi nú und-
anfarið með kommúnistum og
fyrir þá án ágreinings, enda
lýsir Þjóðviljinn því yfir, að
C-listinn í Kópavogshreppi sé
sinn listi. Og ég álít, að Þjóð-
viljanum skjátlist ekki í þessu
tilfelli og svo munu fleiri
hugsa.
Þá kem ég að þriðja mannin-
um á ópólitíska listanum, og er
það Ingjaldur ísaksson, sem nú
býður hreppsbúum að kjósa sig
sem ópólitískan mann. Þessi
maður; Ingjaldur ísaksson, hef-
ur verið einn af puntstráum
kommúnista í bifreiðastjórafé-
laginu Hreyfill, og er það enn
í dag.Einnig hefur það komið
fyrir, að Ingjaldur hefur af-
neitað húsbændum sínum á
Hreyfislfundi, og það oftar en
einu sinni.
Þá er komið að fjórða fyrir-
brigði C-listans, Ólafi Jónssyni,
sem býður sig fram sem ópóli-
tískur sjálfstæðismaður, og trúi
þeir, sem vilja! Ég býst þó við,
að það verði erfitt að fá þá kjós
endur, sem hlýddu á upplestur
Hauks Jóhannssonar á fram-
boðsfundinum síðasta sunnu-
dag, þegar lesin var ræða, sem
Ólafur Jónsson var talinn faðir
að, til að trúa því,‘að hann sé
sjálfstæðismaður.
Fimmti maður á C-lista er
Framsóknarmaðurinn Óskar í
Kópavogi. Ég býst við að hann
telji sig ekki einu sinni sjálfur
vera á listanum sem Framsókn
armaður, því það veit Óskar, að
Framsóknarmenn í Kópavogi
hafa aldrei ennþá gengið Finn-
boga Rúti á hönd fyrr en þá ef
Óskar Eggertsson gerir það nú
sem kosningasmali í dag.
Ég tel útilokað, að þeim
mönnum, sem C-listinn stillir
upp sem ópólitískum, takist að
villa á sér heimildir á kjördag.
Hér hefur að vísu ekki verið
talað um nema fimm efstu
menn listans, því það, sem eft-
ir er á listanum, er fólk, sem
Framhald á 11. síðu.
íhaldið hefur hvað eftir annað gefið fögur loforð í sambandi.við skemmtigarða og opin svæði
í bænum. Þessi mynd sýnir, hvernig nú er ástatt í Hljómskálagarðinum, aðal skemmtigarði
bæjarins, sem er rétt hjá miðbænum.
r
Sæmundur Olafsson:
Sfóntanna
KOSNINGUNUM I SJO-
j MANNAFÉLAGI REYKJA-
jVÍKUR er að verða lokið. Þær
| hafa verið sögulegar að því
leyti, að kommúnistar hafa gert
þær að pólitískum kosningum,
’ eins og ég gat um í greinar-
j korni hér í blaðinu s. 1. fimmtu-
dag. Þá upplýsti ég einnig fyr-
irætlanir kommúnista á aðal-
fundi félagsins, sem haldinn
verður í Iðnó n. k. þriðjudag
; kl. 8,30 e. h.
1 Kommúnistar hafa rekið
þessar kosningar af miklum
dugnaði. Á hverju skipi, götu-
horni og hverjum vinnustað,
þar sem félagar okkar úr sjó-
j mannafélaginu hafa staðnæmzt
eða unnið, hafa kommúnistar
haft útsendara sína tilbúna til
þess að dreifa á meðal sjó-
mannafélaganna . ósönnum
fregnum og villandi frásögnum
um félag okkar og forustu-
menn.
Það mun láta nærri, að 40
kommúnistar hafi haft það fyr-
ir aðal frístunudavinnu og sum-
ir ekkert annað unnið síðan
fyrstu dagana í desember en
að „vinna í sjómannakosning-
unum“. Höfuðsmaður þessa
liðs hefur í orði verið Einar
Guðmundsson, en á borði hefur
aðförinni verið stjórnað frá
miðstjórnarskrifstofu Komm-
únistaflokksins, og hefur starf-
semin heyrt persónulega undir
Eggert Þorbjarnarson.
Við sjómannafélagar höfum
ekki eytt orðum við kommún-
ista í þessari kosningahríð. Við
höfum haldið okkar gömlu
venjum og forðazt allan áróður
í sambandi við kosningarnar,
Sem hafa verið nú sem jafnan
áður, algjörlega ópólitískar af
okkar hálfu.
En nú, þegar félagsmenn-
irnir eru búnir að velja á milli
okkar lýðræðissinna og komm-
únista, tel ég rétt að rjúfa
þögnina.
Hver er þá þessi áður um
getni Einar Guðmundsson,
undirtylla Eggerts Þorbjarnar-
sonar, í aðförinni að Sjómanna-
félagi Reykjavíkur?
Einar Guðmundssorj lauk
prófi við Stýrimannaskólann
fyrir nokkrum árum. Hann hef
ur síðan verið á ýmsum skip-
um, en sjaldan lengi á sama
skipinu. Mér er kunnugt um
það, að um stundarsakir var
hann 2. stýrimaður á bv. Eldey.
, Nú er Einar kominn í land, og
, ber við vanheilsu; en sagt er,
að hann sé á launum hjá Kom-
múnistaflokknum, þ. e. a. s.
t Rússum. Afrek Einars Guð-
mundssonar í Sjómannafélagi
(Reykjavíkur eru þau, .að hann,
ásamt Braga Agnarssyni, vildi
láta kljúfa félagið í nokkur
j smáfélög fyrir nokkrum árum.
1948 hleypti hann upp félags-
fundi ásamt þeim Auðunarson-
um og krafðist þess af Jóni
Rafnssyni, að han,nléti Alþýðu-
sambandið ógilda stjórnarkjör-
ið í Sjómannaýélaginu árið
1948—1949 á þeim forsendum,
að félagsfundur vildi ekki lúta
j valdboði minnihluta fundar-
manna. í togaradeilunni var
i Einar í svokallaðri baknefnd,
kosinn af skipverjum á togar-
anum Marz. Af því skipi fór
hann mjög bráðlega eftir að
deilunni lauk. í baknefndinni
vann Einar öll þau skemmdar-
störf, er hann mátti, með klíku-
fundum, undirróðri og sífelldu
baktjaldamakki við Lúðvík
Jósefsson útgerðarmann og e. t.
v. fleiri andstæðinga sjómanna-
félagsins, og er enginn efi, að
starfsemi hans og annarra kom-
múnista í deilunni dró hana
mjög á langinn og varð þess
valdandi, að ekki náðust eins
góðir samningar og efni og rök
stóðu til.
Nú vill þessi ágætismaður
láta reka % félaganna úr Sjó-
mannafélaginu og svipta þá
kosningarétti við stjórnarkjör,
þegar hann býst við að hafa
orðið undir í almennum kosn-
ingum, sem staðið hafa í 2 mán-
uði. Nú hafa félagar okkar Ein-
ars kosið um okkur í félaginu.
Vilji þeirra kemur í dagsljósið
n. k. þriðjudag. Falli ég, verður
Einar kosinn og andstætt. Á
aðalfundinum verður einnig
gert út um það, hvort sundr-
ungar- og niðurrifsstarfsemi
kommúnista á að ráða í Sjó-
mannafélaginu eða sameining-
ai'- og uppbyggingarstefna okk-
ar lýðræðissinna.
Á þriðjudjginn mætumst við
Einar Guðmundsson á aðal-
fundi Sjómannafélags Reykja-
víkur. Þar mun ýmislegt í
sambandi við störf og markmið
Einars verða dregið fram í
dagsljósið, til viðbótar því, sem
hér hefur verið sagt.
Félagar, mætumst heilir á
þriðjudagskvöldið og gerum
upp við Einar Guðmundsson og
hans líka, og sendum hann og
þá, sem hafa á sama hátt og
Einar Guðmundsson til þess
unnið, af höndum okkar heim á
Þórsgötu 1.
Sæmundur Óiafsson.
Alhugasemd
ÚT AF UMMÆLUM í grein
frú Soffíu Ingvarsdóttur, sem
birtist í Alþýðublaðinu í dag,
þykir rétt að benda á eftirfar-
andi:
Þegar Elli- og hjúkrunar-
heimilið Grund var reist árið
1929 voru íbúar Reykjavíkur
26 428, og tók stofnunin rúm-
lega 100 vistmenn. Nú eru bæj-
arbúar rúmlega 50 000, en vist-
menn á stofnuninni 254. Vist-
gjöld eru í dag kr. 20,00 og kr.
25,00 fyi'ir sjúklinga. — Fjár-
styrkur úr bæjarsjóði Reykja-
víkur er kr. 8000,00, en úr rík-
issjóði kr. 7000,00 á ári.
Með þökk fyrir birtinguna.
21. 1. 1950.
Gísli Sigurbjörnsson.
RÍKISSTJÓRN de Gasperis
á Ítalíu hefur unnið embættis-
eið sinn. í henni eru 13 kristi-
legir demókratar, 3 Saragats-
jafnaðarmenn og 3 lýðveldis-
sinnar. Frjálslyndi flokkurinn
tekur ekki þátt í stjórnarsam-
vinnunni.