Alþýðublaðið - 29.01.1950, Page 12
Sunnudagur.29. janúar 1950
Þelta kallar bláa bó\in „barnaleikvöll66!
íhaldið gortar mikið af því, að hér í bæ séu 19 leikvellir, og
þeir eru merktir inn á kort, sem birtist í bláu bókinni og Morg--
unbiaðinu. Einn af leikvöllunum, sem merktir eru, er við Mjóu-
hlíð. Alþýðublaðið lét í gær taka þessa mynd af vellinum, rétt
' til að sýna, hvers konar blekkingar felast í áróðri íhaldsins og
bláu bókarinnar. Bæjarstjórn hefur tvö ár í röð samþykkt,
samkvæmt tillögum leikvallanefndar, að gera skyldi þennan
leikvöll. En í tvö ár hefur allt verið svikið og það eina. sem
gerzt hefur, er að íhhaldið gortar af þessum „barnaleikvel i.!'
og teiknar hann inn á kort sín.
Lesið ayðíýsingyoa u'm skiptlngu
kwsvæðanna.
KJÓSENDUM er bent á það að athuga vel í hvaða kjör-
hverfi þeir eru áður en þeir leggja af stað til að kjósa, en í aug-
lýsingu frá kjörstjórninni, sem birtist í blaðinu í dag eru allar
götur livers kjörhverfis taldar í
Eins og áður hefur verið tek-
íð fram er skipting kjörhverf-
anna gerð samkvæmt heimilis-
föngum á Kjörskránni, en bún
Brefar fá 70
risaffugvírki
BERZKI flugherinn fær f-ró
Bandaríkjunum 70 risaflug-
virki í sambandi við vopna-
liljálp til þátttökuríkja Atlants
hafsbandalagsins. Er þegar byrj
að að þjálfa brezka flugmenn í
rneðferð slíkra flugvéla.
stafrófsröð.
var samin samkvæmt manntali
haustið 1948 með leiðrétting-
ím (flutningstilkynningum) til
"ebrúarloka 1949. I
Þeir, sem hafa flutt milii
bæjarhluta síðan í febrúar
1949, eru sérstaklega beðnir að
hafa hugfast, að heimilisfanc- í
ið við manntalið 1948 ræður j
kjörstað. En kjósendur skulu;
'zjósa í þeim skóla, þar sem
.gatan er, sem. þeir bjuggu við
i-amkvæmt manntali haustið
1948 (eða febrúar 1949).
Stuðningsfólk A-listans er
öeðið að kjósa snemma og til-
'cynna kosningaskrifstofu A-
íiátans, ef það ósltar efiir að
vera sótt í bifreiðum.
VÍKVERJI Morgunblaðs-
ins er heldur önugur út í
Alþýðuflokksmenn út af því,
sem þeir hafa sagt um leik-
vellina í bænum. Hins veg-
ar eru íhaldsmenn ekki sam
mála um það, hversu mikil
dýrð bæjaríhaldsins í þessu
máli sé. Bláa bókin og Jó-
hann Hafstein segja, að
leikvellirnir séu 19, en Vík-
verji segir þá vera 21. Ei
ómögulegt að skýra þetta ó-
samræmi á annan hátt en
þann, að Víkverji telji leik-
völl Ivars Guðmundssonar,
KeflavíkurvöII, með og sjái
hann tvöfalt, enda er hann
talsvert stærri en barnaleik-
vellirnir hér í bænum.
Annars vill Alþýðublaðið
bjóða Víkverja til Icikja á
leikvellinum í Hlíðahverfi,
til dæmis. Mun blaðinu
verða ánægja að því að birta
myndir af Víkverja, er hann
rólar sér í rólunum, vegur
salt og leikur sér í sand-
kössum, ldifurgrindum og á
rennibrautum þessa ágæta
leikvállar. Víkverji mun þá
komast að raun um, að þetta
er einn þeirra leikvalla, sem
merktir cru inn á kort í-
haldsins í bláu bókinni, en
cru í rauninni ekkert nema
autt drullusvað.
Heníugasf að hluflaus embætfis-
maðurfari með framkvæmdastjóm
bæjarins, eins og víða er erlendis
ÓSIGUR ÍHALDSINS í dag getur bundið enda á
valdatið íhinna pólitís'ku gæðinga í borgarstjóraemb-
ætti Reykjavíkur. Þegar íhal'dið hefur tapað meiri-
hluta sínum, liggur sú leið opin, að kosinn verði hlut-
lau’s en dugandi e/mbættismaður sem borgarstjóri, og'
verði harín látinn fara með framkvæmdastjórn:
Reykjavífcur án þess að 'þurfa ei'Mftega 'að hugsa um
póli'tíska hagsmuni eða pólitís'kt fylgi. I
Með því að taka upp þessa
skipun mundi Reykjavík skipa
sér í sveit með liundruðum
borga á Norðurlöndum, í Bret-
landi, Bandaríkjunum og víð-
ar, sem hafa fengið ópólitíska
framkvæmdastjóra til að
stjórna bæjarmálefnum sínum.
Aliar ákvarðanir um stefnu í
bæjarmáium verða eftir sem
áður teknar af bæjarstjórn og
bæjarráði, enda er flokkunum
nóg að bafa sína fulltrúa þar,
koma stefnumáium sínum þar
fram, þótt þeir geri ekki borg-
arstjóraembættið að feitum
pólitískum bitlingi, eins og
íhaldið hefur gert hér.
íhaldið heldur nú uppi hat-
römmum áróðri um það, að allt
muni fara í kalda kol og stjórn
leysi, ef Sjálfstæðisflokkurinn
missir meirihluta sinn. Þetta er
auðvitað fjarri öllum sanni, bví
að bæjarstjórn og bæjaráð
munu eftir sem áður taka á-
kvarðanir um meginstefnu í
bæjarmálunum, en hlutlaus
framkvæmdastjóri mun
tryggja samvizkusamlega fram
kvæmd liverrar ákvörðunar.
íhaldið hefur óspart reynt að
láta líta svo út, sem það sá
ómi'ssandi við stjórn bæjarins,
og er því reynt að hræða menn
frá því að kjósa eftir sannfær-
ingu sinni.
Sannleikurinn er sá, að f
| bæjarstjórnum eru engin þau
vandamál, sem gera flokkasam
! steypur og bandalög nauðsyn-
leg eins og á alþingi, eftir að
hlutlaus embættismaður eða
framkvæmdastjóri hefur tekið
!, sæti borgarstjóra. Það eru
I stórmál eins og skipting þjóð-
1 arauðsins, utanríkismál, geng-
ismál, dýrtíðarmál, sem krefj-
j ast samstilltra stjórna á al-
jþingi. í bæjarstjórn er því'nætf
alltaf samkomulag um það, hvað
i menn vilja (sjúkrahús, íbúðir,
! góðar götur o. s. frv.), en hins
j vegar deilt um framkvæmcl
mála. !
Það er því full ástæða til að
ætla, að það mundi gefast mjög
vel hér á landi, eins og víða
erlendis, að hafa í borgarstjóra
embætti góðan framkvæmda-
stjóra, sem ekki þyrfti að vera
bundinn neinum pólitískum
flokki eða klíku.
Kornmúnisfar bíða ósigur í Þróffí
KOMMÚNISTAR biðu enn
ósigur í vörubifreiðarstjórafé-
íaginu Þrótti við stjórnarkjör,
cem staðið hefur yfir tvo síð-
ustu daga og lauk kl. 10 í gær-
kvöldi. Fóru leikar þannig, að
listi lýðræðissinna fékk 110 at-
kvæði; en listi kommúnista 91.
Formannsefni lýðræðissinna,
Friðleifur Friðriksson, sem hef
ur verið formaður félagsins síð-
asta kjörtímabil fékk 117 at-
kvæði; en formannsefni komm
únista, Einar Ogmundsson,
lilaut 104, Flest atkvæði allra,
cem í kjöri voru, fengu þeir
Jón Guðlaugsson og Ásgrímur
Gísiason, 119 atkvæði hvor.
Rúmlega 96 % félagsmanna
kusu, eða flest allir, sem kosið
gátu. :
Harshallhjálpin
orðin 11 milljón
ÍSLAND hexur nú samtals
fengið Marshall-aðstoð, ýmiss
konar lán, styrki og fyrir-
greiðslu á sölu afurða, sem nem-
ur 11 100 000 dollurum. í des-
embermánuði voru keyptar til
landsins vörur fyrir 307 000
dollara fyrir Marshallfé, en
þar af voru fóðurvörur fyrir.
212 000.