Alþýðublaðið - 21.02.1950, Blaðsíða 7
Þriðjuclagur 21. febrúar 1950
ALÞÝÐURLAÐIÐ
7
Skautamófinu var frestað veg'na
mannfjöldans á Ijörninni!
-------*—-------
Óttazt, að ísloo brotnaði undan áhorf-
endum, en mótlð var haldið sí’öar á
sunnudag, þegar færri voru viðstaddir.
TÍU TIL FIMMTÁN ÞÚSUND MANNS söfnuðust saman
á tjörninni og við hana á sunnudaginn til þess að horfa á fyrsta
landsmót í skautahlaupi, sem hér er haldið. Þessi mikli áhugi
Keykvíkinga varð þó til þess að gera framkvæmd mótsins mjög
erfiða, og safnaðist svo margt fóllt út á ísinn, að hann tók að
bresta og vatn kom upp um liann á nokkrum stöðum. Lög-
reglan og forseti sJysavarnafélagsins tóku nú af eðlilegum ástæð-
um að óttast, að ísinn kynni að bresta alveg, og hefði getað
orðið af því stórslys. Var því ákveðið að fresta sjálfri keppninni.
Daglega
á
boð-
stólurn
heitir
og
kaldir
fisk og kjötréttir
Veðurblíðan var með ein-
dæmum á sunnudaginn, er þús
undirnar tóku að flykkjast nið
ur að Tjörninni undir fánum.
Lengra komst mótið ekki að
sinni, því að búa’st mátti við,
að enn fleiri mundu þyrpast
fram á ísinn, er skautahlaupið
byrjaði.
Sjálf keppnin fór því ekki
fram fyrr en á fimmta tíman-
um um daginn, er mannfjöld-
inn var að mestu farinn af
Tjörninni.
Úrslit urðu þessi:
500 m. skautahlaup:
1. Einar Eyfells, ÍR 57,2 sek.
2. Ól. Jóhanness. SR 57,7 sek.
1500 m. skautahlaup:
1. Ól. Jóhannss. SR’ 3:20,2 mín.
2. Jón R. Einarss. SR 3:22,1 —
Sextán þátttakendur frá
fimm félögum voru skráðir til
leiks. Hefðu þeir þó orðið
miklu fleiri, ef ekki væri skort
ur á hlaupaskautum, því að það
er þýðingarlítið fyrir menn
á „hockey“-skautum að reyna
hlaup við keppinauta á hlaupa
skautum. Mót þetta var fyrst
og fremst haldið til þess að
vekja áhuga á skautaíþrótt-
inni.
FRANSKT HERLIÐ vinnur
nú að því að skipa vopnum um
borð í skip í tveim frönskum
hönfum, Nazza og La Roehelle,
þar sem kommúnistar hafa neit
að að vinna við umskipun
vopnasendinga.
Rafmagns-
NYKOMNIR
VÉLA- OG RAFTÆKJA-
VERZLUNIN
Tryggvagötu 23. Sími 81279
gmr
Vlðgerðir
Véla- og raftækjaverzlun ^
Tryggvagötu 23.
Sími 91279.
STJÓRNIN í Suður-Afríku
hefur lagt fram frumvarp, sem
bannar hjónabönd milli hvíts
fólks og svarts.
SPENDER, utanríkisráð-
herra Ástralíu, hefur hvatt ein
dregið til þess, að Kyrrahafs-
bandalag verði stofnað, áður
en það verður of seint.
Öllum þeim, er á einn eða annan hátt sýndu hlut-
tekningu og vinsemd í tilefni af fráfalli og jarðarför
stýrimanns,
vottum við hjartans þakkir.
Aðstandendur.
Brygifélfijr ÞorBáksson,
fyrrverandi söngstjóri og orgelleikari við Dómkirkj-
una í Reykjavík, verður jarðsunginn miðvikudaginn
22. febrúar.
Athöfnin fer fram frá Dómkirkjunni kl. 2 e. h.
Fyrir hönd aðstandenda.
Kristín Brynjólfsdóttir.
. .Hjartanlega þökkum við öllum þeim vinum
og vandamönnum, sem gerðu okkur 40 ára hjú-
sbaparafmælisdaginn ánægjulegan.
íngibjörg Guðjónsdóttir og Einar Dagfinnsson.
Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim, er
með gjöfum, blómum, skeytum eða á annan hátt
auðsýndu mér vinarhug á sextíu ára áfmæli mínu
17. þessa mánaðar.
Sigurður Pétursson,
■ Blönduhlíð 11.