Alþýðublaðið - 01.03.1950, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 01.03.1950, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 1. marz 1950. ÁLÞÝÐUBLAÐI-Ð 7 Opinbert uppboð verður haldið hjá áhaldahúsi bæj- árins við Skúlatún fimmtu- daginn 9. þ. m. kl. 1.30 e. h. Seldar verða eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík eft- irtaldar bifreiðir: R—299, R—439, R—1118, R—1181, R—1502, R—1668, R—1692, R—2011, R—2091, R—2440, R—3038, R—3161, R—3363, R—3386, R—3488, R—3551, R—3913, R—3962, R—4328, R—4632, R—4754, R—4869, R—4916, R—4969, R—5578, R—5597, R—5855 og R— 6007. Greiðsla fari fram við hamarshögg. fflorgarfógetinn í Reykjavík. SKÁTAR! SKÁTAR! Hjálp í viðiögum. Námskeið fyrir alla drengjaskáta byrjar byrjar í dag, miðvikudag, klukkan 8 e. h. Síjórn S.F.R. Skákmótiðs Guðjón M. með ÁTTUNDA UMFERÐ skák- mótsins var tefld á sunnudag- inn, og er þá einungis ein um- ferð eftir, þar til séð verður hverjir komast í urslit. 9. um- ferð verður tefld í kvöld, en á siinnudaginn kemur hefjast úr- slitaskákirnar. Leikar standa nú þannig eftir 8 umferðir, að efstur er Guðjón M. Sigurðsson með 6 vinninga. Nr. 2, 3 og 4 eru Sveinn Krist- insson, Guðmundur S. Guð- mundsson og Benóný Bene- diktsson, allir með 5Vá vinning. Nr. 5, 6, 7, 8 og 9 eru Eggert Gilfer, Baldur Möller, Árni Snævarr, Friðrik Ólafsson, og Guðmundur Ágústsson með 5 vinninga hver, og nr. 10 og 11 eru Lárus Johnsen og Þórir Ól- afsson með 4Vá vinning hvor. Eftir 9. umferðina, sem tefld verður í kvöld, má búast við að 6—10 menn komist í úrslit, og' verður teflt til úrslita á sunnu- daginn. í 8. umferð fóru leikar sem hér segir: Þórir vann Björn, Baldur vann Árna Stefánsson, Guðmundur S. vann Gilfer, Jón vann Hauk, Guðmundur Ág. vann Lárus, Benóný vann Árna Snævarr, Friðrik vann, Ingvar, Hjálmar vann Kára cg Óli vann Þórð. — Biðskákir urðu hjá Steingrími og Bjarna og hjá Pétri og Gunnari, en jafn- tefli gerðu Sveinn og Guðjón M. Málfundur FUJ annað kvöld MÁLFUNDI Félags ungra jafnaðarmanna í Reykja- vík, sem vera átti í kvöld, verður frestað þar til annað kvöld, sakir útvarpsum- ræðnanna um vantraustið á ríkisstjórnina. Fundurinn verður á venjulegum stað og tíma annað' kvöld. Framhald af 1. síðu. Skipsmenn á dráttarbátnum urðu að draga inn slitnu fest- ina og hafa aðra tilbúna, og tók það mikinn tíma. Þá var það um sexleytið í gærmorgun, að aklcerisfest- ar „Clam“ slitnuðu og rak skipið þá upp í klettana skammt frá gamla Reykja- nesvitanum. Hafði vindátt þá færzt í suðvestur, svo að skipið rak beint á land. FÓRU í BÁTANA Þegar „Clam“ var þarna strandað í miklu brimi og sjó- gangi, hafði Slysavarnafélag- inu verið gert aðvart. Búið var að gera vitaverðinum, Sigur- jóni Ólafssyni, aðvart, kalla á björgunarsveit frá Sandgerði og björgunarskipið Sæbjörgu, en dráttarbáturinn var úti fyr- ir strandstaðnum. Þá var það, að skipsmenn á „Clam“ reyndu að setja út tvo báta, og er ekki Ijóst, hvorí BENZÍN, liráolía og ljósa- olía hækka stórlega í verði frá og með deginum í dag, og er þetta önnur hækkunin á þess- um vörum á þrem mánuðum, Benzínlíterinn liækkar um 5 aura, hráolíuíonnið um 25 kr. og ljósaolíutonnið um 25 kr. Samkvæmt auglýsingu verð- lagsstjóra er hið nýja verð á olíum og bensíni miðað við af- hendingu frá tank í Reykjavík sem hér segir: Benzín kr. 1,12 pr. ltr. Hráolía kr. 450,00 tonnið. Ljósaolía kr. 700,00 tonnið- Sé hráolía og béhzín afhent á tunnum má verðið vera 3 aurum hærra hvert - kíló af hráolíu og hver lítri af ben- bíni. Þá er benzíör og olíu- verðið þeim mun hærra á öðr- um stöðum á landínu, sem flutningskostnaðinym nemur. gagnryna II Framhald'af síðu. skalts. ' y! Um þessi höíuðátriði og mörg fleiri snerisít gíígA' rýni þeirra. Þéiý:sJ.önas og Klemens töldu þó, eins og á málum hefði • vfeÉið. haldið hér á landi, gengis- lækkun nú óhjakyæmileg. ' •S'^iií — ... -rv í garð Finna RÚSSNESKA stjórnin hefur sent finnsku stjórninni nýjar kröfur um framsal stríðsglæpa manna, sem Rússar segja að Finnar haldi hlífiskildi yfir. Svipuð orðsending var send Finnum um nýárið, en Finnar svöruðu þá, að>. „stríðsglæpa- menn“ þessir væru flestir balt- neskir flóttameha. ætlun þeirra var að komast út í dráttarbátinn eða til lands. Skipti ekki um það togum, að björgunarbátunum hvolfdi við skipið eftir skamma stund, og fórust þar tuttugu og sjö menn. Alls fóru 31 í bátana, en fjórir komust heilir á húfi í land. Komst einn þeirra inn í hellisskúta undir bjarginu, og var sigið eftir honum, er björg- unarsveitin korp á vettvang. Vitavörðurinn náði hinum þrem og var þeim veitt að- hlynning. Björgunarsveitinni í Grinda- víli var gert aðvart um strandið á sjöunda tímanum, og fóru 30—-40 manns í bílum út að Reykjanesvita, en sú ferð sóttist seint, enda vegur mjcig slæmur. Komu þeir á strand- staðinn um klukkan hálfníu og tóku þegar til við björgunina. Tókst þeim að koma línu um borð í skipið og ná þeim 19 mönnum, sem eftir voru j skipinu, heilum á húfi í land, og blotnuðu þeir ekki einu sinni. Voru skilyrði góð til björgunar, og stóð bjargið nokkru hærra en brúin á skip- inu. TVEIR KÍNVERJAR Á SJÚKRAHÚSI Á „Clam“ voru samtals 50 manns, þar af 14 Bretar, en 36 Kínverjar. Þeir, sem björguð- ust, eru flestir við góða líðan, og aðeins tveir Kínverjar meiddust svo, að leggja varð þá á sjúkrahús flugvallarins i Keflavík. Læknar og sjúkra- bifreiðar frá Keflavíkurvelli fóru á strandstaðinn í gær- morgun. Clayton skipstjóri er meðal þeirra, sem björguðust, en hann er, sem vonlegt er, mjög beygður, sakir hinna hryggilegu atburða, sem fyrir hann hafa borið. BJÖRGUNARSVEITIN ÞORBJÖRN Það var ekki fyrr en í þriðja skoti, að björgunarsveitinni „Þorbirni" frá Grindavík tókst að koma línu til skipsmanna á "„Clam“. Fyrri línurnar lentu i loftneti skipsíns. Formaður fé- lagsins er Sigurður Þorleifs- son, en formaður sveitarinnar ’éé Tómas Þorvaldsson og sRýtta er Árni Magnússon. Skipsmenn voru allir komnir í land um klukkan tíu. SKIPIÐ TALIÐ ÓNÝTT . „Clam“ er aðeins 50—70 metra frá landi, og er yfir- bygging skipsins lítið sem ekk- ert brotin. Þó er skipið talið ónýtt, þar sem botninn mun mikið skemmdur, og olíubrák er um allan sjó. Brezka út- varpið sagði frá því í gær, að þj.örgunarskip væri á leiðinni þingað frá Skotlandi til að at- huga, hvort skipinu veröur bjargað. Framh. af 1. síðu. unum og dró þá stór skip þessa ,Jeið til Englands. „Englishman" er 762 lesta skip frá Hull. Þegar „Clam“ var lagt inn við olíustöðina í Laugarnesi upphaflega, munu hafa verið skiptar skoðanir um það með- al kunnugra, hvort óhætt væri að leggja skipinu þar, og munu ýmsir hafa varað við því. Maðurinn minn, Skúlaskeiði 20, Hafnarfirði, verður jarðsunginn fimmtudaginn 2. marz kl. 1.30 frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði. Blóm afbeðin. En þeir, sem vildu minnast hins látna, vinsamlegast minnist Heilsuhælisjóð Náttúrulækningafélags íslands. Fyrir mína hönd og sonar okkar. Sigvún Sveinsdóttir. Fósturfaðir minn, f^lagnússoBi frá Nesjavöllum, andaðist að Elliheimilinu Grund mánudaginn 27. febr. Ingólfur Þorsíeinsson. Nr. 3/1950. Innflutnings- og gjaldeyrisdeild fjárhagsráðs hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á benzíni og olíum: 1. Benzín .............. ltr. 1,12 2. Hráolía ................ — 450,00 3. Ljósaolía .............. — 760,00 pr. ltr. tonn Ofangreint verð á benzíni og hráolíu er miðað við afhendingu frá „tank“ í Reykjavík eða annarri innflutn- ingshöfn, en ljósaolíuverðið við afhendingu á tunnum í Reykjavík eða annarri innflutningshöfn. Sé hráolía og benzín afhent í tunnum, má verðið vera 3 aurum hærra hvert kíló af hráolíu og hver lítri af benzíni. í Hafnarfirði skal benzínverð vera sama og í Reykja- vík. í Borgarnesi má benzínverð vera 5 aurum hærra hver lítri, og í Stykkishólmi, ísafirði, Skagaströnd, Sauðár- króki, Siglufirði, Akureyri, Húsavík, Þórshöfn, Norðfirði og Eskifirði má verðið vera 7 aurum hærra hver lítri. Ef benzín er flutt á landi frá einhverjum framangreindra staða, má bæta einum eyri pr. lítra við grunnverðið á þessum stöðum fyrir hverja 15 km. sem benzínið er flutt og má reikna gjaldið, ef um er að ræða helming þeirrar vegalengdar eða meira. Á öðrum stöðum utan Reykjavíkur, sem benzín er Jlutt til sjóleiðis, má verðið vera 11 aurum hærra en í Reykjavík. . 4..1 Verðlagsstjóri ákveður verðið á hverjum sölustað samkvæmt framansögðu. í Hafnarfirði skal verðið á hráolíu vera hið sama og í Reykjavík. í verstöðvum við Faxaflóa og á Suðurnesjum má verðið vera kr. 40,00 hærra pr. tonn, en annars staðar á landinu kr. 50,00 pr. tonn, ef olían er ekki flutt inn beint frá útlöndum. í Hafnarfriði skal verðið á ljósaolíu vera hið sama og í Reykjavík, en annars staðar á landinu má það vera kr. 70,00 hærra pr. tonn, ef olían er ekki flutt beint frá útlöndum. Söluskattur á benzíni og ljósaolíu er innifalinn í verðinu. 1950. Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 1. marz Reykjavík, 1. marz 1950. VERÐL AGSST J ÓRINN. Auglýsið í Alþýðublaðinul

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.