Alþýðublaðið - 29.04.1950, Page 6

Alþýðublaðið - 29.04.1950, Page 6
ALÞVÐUBLAÐSÐ Laugardagur 29. apríl 1950 Frú DáríSiu DalbeÍHu: Á ANDLEGUM YERÐLAUNA- VETTVANGI Lifandis ósköpin öll gat ég orðið hrifin af því, ssm flutt var í útvarpinu í fyrrakvöld,. þessu með verðlaunin og medalíurn- ar. Ef nokkur ætti í sannleika sagt skilið að fá verðlaun fyrir frammistöðu sína í útvarpinu og fyrir sínar tillögur til úrbóta ,á þjóðarástandinu, þá er það sánnarlega erindisflytjandinn. Satt að segja finnst mér, að ó- athuguðu máli raunar, að hann hafi funHið eitt allsherjarráð við öllu, sá maður, — sem sé verð- laun og medaliur. Maður sér nú bara til dæm- is með iþróttirnar. Sér hvernig unglingarnir hlaupa sig og sprikla hálfdauða til þess að ná í verðlaunapening á brjóstið, að ég nú ekki tali um blaðagrein með mynd. Hvað væru íþrótt- irnar hér á landi án verðlauna- peninga og vonir um mynd í blöðunum? Þ.etta virtist hann skilja svo einstaklega vel. Og það éru ekki bara börnin og unglingarnir, sem hafa gam- an af að fá medalíur til þess að hengja á brjóstið eða að sjá mynd af sér í blöðunum. Allar orðurnar og heiðursmerkin sýna og sanna að þar .eru þeir fuli- orðnu enn barnalegri en börn- jn, og ég segi nú bara fyrir mig, að mér hefur alltaf fund- izt fálkakrossinn einstaklega fallegur, svona sem punt. Bezt gæti ég trúað, að þessi medalíu- þrá mannsins væri eitthvað í ætt við andlegu þrána, svo sterk er hún og samgróin honum. Og svo er hún tiltölulega meinlaus, því að enginn gerir neinum miska með því að bera medalíu á barminum, nema hvað hann kann að vekja öfund eigin- kvenna þeirra manna, sem enga hafa, — en það er bara prívat- mál medalíulausra hjóna, sem medalíumaðurinn á engá sök á. Og nú er ráðið sem sagt fund- ið: keppni í öllum greinum, med alíur í öllum greinum handa þeim, sem skara fram úr. Nú er til dæmis afar erfitt að fá heimatilbúnar vinnustúlkur, heldur hefur þar orðið að grípa til erlendrar framleiðslu, og fá færri en vilja, Ég er viss um, að þetta myndi óðar breytast, ef farið væri að veita vinnu- konumedalíur. Við skulum segja sem svo, að fyrir að hafa verið tvo vetur í vist fái stúlkan bronz pening, silfurpening fyrir fimm vetur og gullpening fyrir tíu. Én til þess yrði hún auðvitað nð hafa alla pappíra í lagi, — og undirritaða af húsmæðrunum, en ekki húsbændunum. Allt verður að taka með í reikning- inn. Og sú vinnukona, sem ver- íð hefði hjá sömu húsbændunum í tólf ár, fengi þess utan fagran silfurbikar og mynd af sér í blöðunum, — tekna áður en hún byrjaði í vinnukonubransanum, — og titilinn „Stofustúlku- drottning Reykjavíkur“. Yrði þetta fyrirkomulag tekið upp, er ég handviss um að við frúrnar þyrftum ekki lengi að kvarta um vinnukonuleysi. Og auðvitað yrði þetta system notað á öllum sviðum, þar sem bví yrði við ltomið. Við skulum bara taka til dæmis afgreiðslu- fólkið. Á hverju ári héldu þá viðskiptavinirnir í hlutaðeigandi bæjarhverfi fund og kysu svo og svo margar afgreiðslustúlkur og svo og svo marga afgreiðslu- tnenn til þess að hljóta verð- íaunamedalíur úr bronse, silfri og gulli, og úr hópi þeirra, sem hlytu verðlaunin, yrði svo val- in. jeim afgreiðsludrottning og einn afg'reiðslukóngur, og þau fengju svo hvort um sig sinn bikar og blóm og mynd af sér í blöðunum. Mikil unun held ég bað yrði að koma í búðirnar á eftir og aðra þá staði þar, sem fólk er afgreitt. Já, það mætti víða koma þessu kerfi fyrir til stórbóta fyrir alla aðila. Hvernig væri til dæm- is, að hlustendur væru látnir dæma um útvarpsverðlaun ór- bsga. Þá fengi þá fyrirlesari, upp lesari, þulur og svo framvegis, sem sjaldnast hefði verið skrúf að fyrir, sína gullmedalíu, sá næstsjaldgæfasti silfurmedal- íu og eftir því. Og ef svo kæmi fram á heyrnarsviðið einhver, osm aldrei hefði verið skrúfað fyrir, fengi sá eða sú fagran bikar og tignarheitið „Hljóð- nemadrottning" eða „Hljóðnema garpur“ íslands. Auðvitað yrði athöfninni útvarpað. Jæja, ég mun ef til vill ræða betta mál nánar síðar, en aðal- atriðið er að þetta komizt sem Cyrst í gang. Takizt það, er gæfa lands og þjóðar tryggð um aldur og æfi, og þökk sé beim, sem fyrst vöktu máls á þessu. Þeir, eiga skilið tignarheítið „hugsjónakóngar íslands“. í andlegum friði. Dáríður Dulheims. (TVTYTVlYiYTmTvrdVTVi Auglýsið í Alþýðublaðinu! Eric Ambler og starði ólundarlega á hann. „Jæja?“ „José skýrði mér svo frá að óg skuldaði yður nú tvö þúsund íranka. Þessi seðill er aðeins r.eytján hundruð og fimmtíu íranka virði. Hann dró upp franska peningaseðla, setti þá í tíupunda seðilinn o_g rétti henni. Hún hrifsaði peningan úr hendi hans. „Og hvað ætlizt þér t.il að fá fyrir bessa peninga9“ cagði hún hæðnislega. „Ekkcrt. Ég hef haft mikla ánægju af félagsskap yðar.“ Hann opnaði dyrnar. „Verið þér cælar Josette“. Hún ypti öxlum, stakk pen- ingunum í töskuna sína cg sett i.st út í horn. „Verið þér sælir. Það er ekki mér að kenna „þó að þér séuð heimskingi." José hló. „Eí yður mundi kannske snúast hugur, monsie- ur, „byrjaði hann glettnislega, þá munum við . . .“ Graham lokaði dyrunum og gekk eftir ganginum. Hann var nöeins að hugsa um þao að kom ast sem fyrst til lilefa síns. Hann tók ekki eftir Mathis fyrr en hann hafði næstum því rek- Lzt á hann. „Monsieur Graham. Er það :nögulegt?“ „Ég var einmitt að gá að yð- ur“, sagði Graham. „Kæri vinur minn. Þetta gleður mig ósegjanlega. Ég var einmitt að brjóta heilann um. . . .Ég var svo hræddur um . . “ „Ég náði lestinni í Asti“. Hann tók skammbyssuna úr vasa sínum. „Ég ætlaði að skila yður þessu, með kæru þakk- læti fyrir lánið. Ég er hrædd- ur um að ég hafi ekki haf t tíma til að hreinsa hann. Ég skaut tvisvar sinnum með henni“. „Tvisvar? Drápuð þér þá báða?“ Mathis starði á hann stóreygður. „Aðeins annan. Hinn dó í bif reiðaslysi." „Bifreiðarslysi?“ Mathis hló. „Það er ný aðferð við að ráða r.vona glæpahyski af dögum“. Ef til vill hreinsa ég hana_alls ökki“, bætti hann við.og skoð- aði byssuna með aðdáun, Ég held að nú fyrst verði hún mér dýrmætur minjagripur“. Hann leit upp. Var ekki allt í lagi með skilaboðin, sem þér báðuð mig fyrir?“ „Jú, allt var í bezta lagi og ég þakka yður innilega fyrir alla aðstoð yðar og hjálp.“ Hann hikaði. „Það eru ekki neinar veitingar í lestinni. Ég á dálít- ið af smurðu brauði í klefan- um mínum. Ef þér og kona yðar vilduð líta inn til mín. . „Þakka yður fyrir vingjarn- legt boð, en ég get því miður ekki þegið það. Við förum úr iestinni í Aix. Og bráðum er- um við komin þangað. Fjöl- ;:kylda mín er þar. Það verður gaman að hitta hana eftir svona langan tíma. Hún . . .“ Dyrnar á næsta klefa opn- uðust og frú Mathis glápti á þá. „Ó, þarna ertu þá“. Allt í einu starði hún á Graham. Svo kink aði hún ólundarlega kolli. „Hvað er nú á seyði, chéri?“ „Ekki minnast á hvað?“ spurði frú Mathis tortryggin á svipinn. „Hvað leynibrugg er- uð þið með?“ „Já, það er von að þú spyrjir“, hann veifaði til Gra- hams. „Ég og monsieur Graham höfum myndað samsæri til þess að sprengja Frakklandsbanka í loft upp, taka fulltrúadeildina herskyldi, skjóta tvö hundruð fjölskyldurnar og setja á lagg- 'trnir kommúnistastjórn“. Hún leit í flýti í kringum sig hrædd og hikandi. „Þú mátt ekki segja svonalagað, ekki einu dnni að gamni þínu“. „Að gamni mínu?“ Hann gretti sig og afskræmdi í fram- an. „Þú munt sannarlega kom- nst að raun um hvort þetta er eintóm grín, þegar við drögum þessa auðvaldshunda út úr stór um lúxusvillum sínum og bú- um til úr þeim kjötstöppu með hríðskotabyssunum11. „Glugginn. Þú opnaðir hann og fórst svo út til þess að reykja“. ,,Þá verður þú að loka hon- um, chéri“. „Heimskinginn þinn. Nú er nóg komið af svo góðu.“ Mathis ypti þreytulega öxl- um og rétti út höndina. „Ver- ið þér sælir vinur minn, Ég mun ekki minnast á þessi mál. Þér getið treyst mér í einu og öllu“. „Robert. Hugsaðu þér, ef ein hver heyrði þig tala svona. Guð minn almáttugur . . .“ „Mér er andskotans sama. All ur heimurinn fær að vita þetta innan stundar“. „Ég var bara að biðja þig um að loka glugganum, góði minn. Ef það hefði ekki verið svona afskaplega vont að loka honum þá hefði ég gert það Bjólf. . .“ Dyrnar lokuðust að baki þeim. Graham stóð um stund við gluggann og horfði á grátt mistrið leggjast yfir landið. Ilann hlakkaði til að komast heim tií Englands, heim til Stephanie, heim til alls þess sem beið hans. Hann sneri til klefa síns og hugsaði sér að fá sér brauðsneið og sötra í sig ölið, sem þjónn- inn hafði fært honum. Endir. Ný framha!dssaga ÁlþýðyhSaSsInss Systurnar eftir Ginu ------^------ NÝ FRAMHALDSSAGA hefst hér í blaðinu á morg- un; er það ein af kumiSustu sögum skáldkonunnar Ginu Kaus, en Alþýðublaðið hefur áður birt eina af sögum hennar. í þessari sögu er sögð saga tveggja systra. Það er saga mikilla ástríðna og meinlegra örlaga. Hér er um ágæta skáldsögu að ræ'ða. Er ekki efamái, að hún muni falla lesendum blaðsins vel í geð. Þeir, er eiga vangoldna reikninga á {sjéðleikhússb^giinguns, eru beðnir að framvísa þeim í skrifstofu húsameist- ara ríkisins fyrir hádegi n.k. fimmtudag, 3. maí. Reykjavík, 27. apríl 1950. EINAR ERLENDSSON. Auglýsið í ÁlþýðublaSinu!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.