Alþýðublaðið - 06.05.1950, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 06.05.1950, Qupperneq 1
■flMBfcatea V'estur-xJemn er oyrjuo ao græða upp iuiia raoigu garoa sina, sem eyöilögðust a ólriöararun- um, og þá fyrst og fremst Tiergarten. Um 50 000 verkamenn hafa nýlega fengið atvinnu við þetta. Ilér sést einn vinnuhópurinn að verki t’l a* <7e,'a Tierearten aftur að fögrum garði. r VIÐ ATKVÆÐA- GKEIÐSLÚNA um fjárlög- in á alþingi í gær konui til atkvæða nokkur fjárfram- lög til alþjóðasamtaka, sem fslendingar eru aðilar a'ð. Tóku menn þá eftir því, að kommúnistar greiddu at kvæði með framlögum til þeirra stofnana, sem Kússar eni meðlimir í. en á nióti hinum, sem Rússar eru ekki í, án ails tillits til þess, í hvcrjum þeirra íslendingar eru meðlimir. Þannig voru kommúnistar á móti alþjóða vinnumálaskrifstofunni, al- þjóða fíóttamannastofnun- inni og Evrópuráðinu, sem Rússar taka ekki þátt í, en með sameinuðu þjóðunum, sem Rússar eru þátttakcndur í! Einar Olgeirsson hafði svo mikið v-i'ð, að krefjast þcss, að hver stofnum væri borin upp fyrir sig, svo að komúnistar gætu flygþ sovétlínunni út í yztu æsar! AKUREYRARTOGARARN- IR, Svalbakur og Kaldbakur, hafa nú lagt upp í Krossanes- verksmiðjunni sinn túrinn hvor. Togararnir komu einnig með nokkuð af saltfiski. Bræðsla hefst í Krossanesi einhvern næstu daga. í fyrsfa lagi mánuði ÞUNGLEGA HOSFIR NÚ í BYGGINGAEÍÐNAÐINUM vegna sementsskorts; en landið má nú heita gersamlega sements- laust, og ekki er vitað með neinni vissu, hvenær nýtt sement kemur, þó að vísu standi vonir til þess, að það verði síðast í þessíim mánuði. Á þessú ári hefur svo að segja ekkert sement verið flu.ít til Iandsins, að undanteknum 2000 smálestum, sem komu méð Köílu rétt fyrir páskana, en það er nú til þurrðar gengið, þrátt fyrir hina miklu verðhækkpn, sem varð á þeirri sendingu; en þá hækkaði tunnau um kr. 24,60. * BANDARÍKJASTJÓRN lét sendiherra sinn í Moskvú af- henda sovétstjórninni í gær nýja orðsendingu út af ame- rísku flotafiugvélinni, sem hvarf yfir Eystrasalti um páska leyíið og íalið er víst, að Rúss- ar hafi skotið niður. Bandaríkjastjórn neitar í þessari nýju orðsendingu að taka það svar gilt, sem hún fékk á dögunum frá sovétstjórh inni við fyrri orðsendingu. Seg ir Bandaríkjastjórn, að sovét- stjórnin hafi í því svari farið í kringum kjarna málsins. Banda ríkjastjórn liti hins vegar mjög alvarlegum augum á þetta mál Framhald á 7. síðu. Samkvæmt. upplýsingum, sem blaðið fékk hjá sements- verzlununum í gær. en þær eru SÍS, H. Benediktsson & Co og J. Þorláksson & Norðmann, er nú allt sement til þurrðar gengið, nema örlitlar brigðir hjá J. Þorláksson & Norðmann, en þó' mun fjárhagsráð vera búið að ráðstafa þeim. Hins 'vegar er ekki einn poki af sem- enti lengur til hjá sambandinu eða H. Ben., og engin vissa er íyrir því, hvenær nýtt sement kemur til landsins. Nú mun þó vera búið að gera ráðstafanir til þess að útvega sement, en ekki enn vitað, hvernig gengur með greiðslu á því vegna gjaldeyrisskortsins. Talið er þó ekki útilokað, að unnt verði að fá sement til landsins eftir urn það bil þrjár vikur eða síðast í þessum mán- uði. Hefur sementsskorturinn að sjálfscgðu hinar alvarlegustu afleiðingar í för með sér í Framh, á 7. síðu. Róssar tvfsaga ym þaö, hve marga þýzka striösfanga þesr hafi tekið. DR. ADENATJER, forsætisráðherra Vestur-Þýzkalands, mótmEelti í sambandsþinginú í Bonn þeirri fullyrðingu Moskvu- útvarpsins í fyrrinótt, að Rússar væru nvi búnir al5 skiia ölíum þýzkum stríðsföngum. Taltli hann, a'ð um hálf önnur milljón þýzkra stríðsfanga væri enn ókomin frá Sovétríkjunum, og krafðist upplýsinga um það, livar þessir stríðsfangar væru nið- ur komnir. En þrálátur orðrómur gengi um það, sagði hanh, að þeim væri haldið í nauðungarvinnu einhvers staðar í fjar- lægum héruðum Sovétríkjanna. Það var tilefni þessara mót-*- mæla Dr. Adenauers, að Moskvuútvarpið lýsti yfiar því í fyrrinótt, að Rússar hefðu nú sent samtals 2 milljónir þýzkra stríðsfanga heim og þar með Iátið lausa alla þá þýzkj stríðs- fanga, sem þeir hefðu tekið, að 10 þúsundum undaiiskildum, sem væru í fangelsi í Sovétríkj unum fyrir stríðsglæpi. ifr sigur &iþý$u- flokksins í auka- kosnlngu á Englandl BREZKI ALÞÝÐUFLOKK- Dr. Adenauer benti 1 Bonn í gær á það, að þessi fullyrðing Moskvuútvarpsins stangaðist við rússneskar stjórnaryfirlýs- ingar eftir stríðið, en í þeim hef-ði það verið viðurkennt, að 3Vé milljón þýzkra stríðsfanga væru í Sovétríkjunum. Spurði Dr. Adenauer hvar sú lVz millj. stríðsfanga væri, sem enn hefði ekki verið skilað. Kvað hann það ólíklegt, að svo mikill f jöldi þýzkra stríðsfanga hefði látizt í Sovétríkjunum síðan í stríðs- lok, og heimtaði skýr svö.r um það, hvort satt væri, að fjölda þýzkra stríðsfanga væri enn haldið í nauðungarvinnu þar eystra. URINN vann sigur í aukakosn ingu, sem fram fór í Yorkshire á Englandi í fyrradag. Var frambjóðandi flokksins kosinn með 437 atkvæðum meira, en keppinautur hans, sem var frambjóðandi frjálslynda flokksins, fékk. Við kosningarnar í febrúar vann frambjóðandi Alþýðu- flokksins þetta kjördæmi og fékk þá 2000 atkvæðum meira en frambjóðandi frjálslynda flokksins. En þá bauð íhalds- flokkurinn einnig fram í kjör- dærninu; nú gerði hann það hins vegar ekki, heldúr studdi frjálslynda frambjóðand- ann. KVELDÚLFUR H.F., fjölskyldufyrirtæki Thorsar- anna, átti rúmlega 1000 lesta birgðir af síldarmjöli, þegar gengislækkunin var lögleidd. Hafði þetta ekki vcrið flutt út, þar sem ggtlunin var að það færi til notkunar innan- lands, eins og lög mæla fyrir. En við það að geyma þessa vöru og fiytja hana út eftir gengislækkunina græddi Kveldúlfur, að því er áætlað er, um 1 400 000 krónur. Það er ekki að furða, þótt flokkur Ólafs Thors hafi mikínn áhuga fyrir gengislækkun, og vafalaust er Kveld- úflur ckki eina fyrirtækið, sem liefur liirt slíkan gróða af gengislækkiminni. Bankarnir voru skyldaðir til þess samkvæmt gengislækkunarlögunum að skila hagnaði af þeim gjaldcyrisbirgðum, sem þeir áttu. En Kveldúlfur og aðrir slíkir þitrfa ekki að skila þeirn hagnaði, sem þeir hafa af vörubraski sínu í skjóli gengislækkunarinnar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.