Alþýðublaðið - 27.06.1950, Page 6

Alþýðublaðið - 27.06.1950, Page 6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þriðjiulagur 27. júní 1950 Eliífefrisireiislyr til danskra, finnskra, norskra og sænskra ríkisborgara, sem búseítir eru hér á Iandi. Hinn 1. desember 1949 kom til framkvæmda milli- ríkjasamningur Norðurlandanna um gagnkvæmar greiðsl- ur ellilífeyris. Samkvæmt þessu eiga danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar, semr dvalizt hafa sam- fleytt á íslandi 5 síðast liðin ár og orðnir eru fullra 67 ára, rétt til ellilífeyris á sama hátt og íslenzkir ríkis- borgarar.Þeir eiga og rétt til lífeyris fyrir börn sín undir 16 ára aldri, sem hjá þeim dvelja á þeirra framfæri og koma til greina við ákvörðun uppbótar á lífeyrisgreiðslur til jafns við íslenzka ríkisbcrgara. Þeir erlendir ríkisbargarar, sem samningurinn tekur til og vilja njóta þessara réttinda, eru hér með áminntir um að snúa sér með umsóknir sínar til umboðsmanns Tryggingarstofnunar ríkisins og leggja fram sönnunar- ggn fyrir óslitinni dvöl hér á landi 5 síðustu ár. Þeir erlendir ríkisborgarar, sem samningurinn tekur skurðaðan lífeyri, þurfa þó ekki að endurnýja umsókn sína fyrir næsta bótatímabil, í. júlí 1950 til 30. júní 1951. Reykjavík, 22. júní 1950. Tryggingasfofnun ríkisins kðflskrá er til sýnis í Skattstoíu Reykjavíkur frá mánu- degi 26. júní til laugardags 8. júlí, að báðum dögum meðtöldum, kl. 9 til 16,30 daglega. í skattskránni eru skráð eftirtalin gjöld: Tekjuskattur, tekjuskattsviðauki, eignarskattur, eignarskattsviðauki, stríðsgróðaskattur, trygg- ingargjald einstaklinga og námsbókagjald. Jafnframt er til sýnis yfir sama tíma: Skrá um iðgjaldagreiðslur atvinnurekenda — vikuiðgjöld og áhættuiðgjöld •— samkvæmt 112. og 113 gr. laga um almannatryggingar. Skrá um þá menn í Reykjavík, sem réttindi hafa til niðurgreiðslu á kjötverði. Kærufrestur er tvær vikur, og þurfa kærur að vera- komnar til Skattstofu Reykjavíkur eða í bréfakassa hennar í síðasta lagi kl. 24 sunnudag- inn 9. júlí næst komandi. SKATTSTJÓRINN í REYKJAVÍK, Halldór Sigfússon. G ina Kaus Auglýsið í Alþýðublaðinu Þetta var ekki ósennilegt, og það varð því sennilegra þegar mér varð hugsað til þess, í hve slæmu skapiy. Alexar.der hafði verið. Hann hafði líkast til leit- a.ð eftir tækifseri til að sleppa við að heimsækja systur sína og verið um nóttina í einhverri vínstofu, annað hvort með ein- hverjum kúnningjum sínum eoa aleinn. ,,Hvers vegna eigum við að haía áhyggju af því?“ sagði Lotta. „Við vitum það fullvel, að hann á það til að vera dutl- ungafullur.“ Þegar hún sagði þetta, var hún einmitt að hreinsa hælana á gulu silkiskónum, sem hún hafði verið með um kvöldið; hún bleytti tusku í benzíni og þvoði hælana. Ég spurði hana, I hvernig hún hefði farið að því að óhreinka skóna svona mjög. „Við Martin gengum gegn- um borgargarðinn.“ Ég svaraði, að það hefði ver- ið þurrt veður. ,,Já, en þeir voru einmitt að vökva blómin,“ svaraði hún. Mér fannst í svipinn, að ekk- ert væri athugavert við þetta, og á næstu tíu eða tólf dögum bar ekkert til titla né tíðinda, sem vekti grun minn. Lotta vann í búðinni eins .og vant var. Baróninn ætlaði alveg cð l<æfa hana í gjöfum og ástúð. Bréfkort barst frá Martin. Það kom frá byrgðastöðvunum ein- hvers staðar á Ítalíu. Hann sagði, að hann byggist við að verða þar í tvær til þrjár vikur áður en herdeild hans færi á vígstöðvarnar. Svo rann upp sunnudagur. Baróninn boroaði hjá okkur. Eftir að við höfðum matazt, kom Helmut og baróninn varð glaður við, því að pilturinn kom að óvörum og af sjálfs- aáðum. „Eigum við að fara út, svo að þú getir skemmt sér svo- lítið fyrsta kvöldið, sem þú ert heima?“ spurði hann vinsam- lega. „Það er að segja, ef stúlk- urnar eru ekki of þreyttar til þess að geta farið út.“ „Þóx munt hafa verið í ákaf- lega fallegum kjól um daginri í óperunni," sagði Helmut og sneri sér að Lottu. „Gulum kjól. Já; dökkhærðar konur ættu einmitt að klæðast gulu eins mikið og þær geta. Ég segi þetta ekki af því, að ég sé svo afskaplega hrifinn af fánalit- unum okkar. Ég segi það bara af einskærri fegurðartilfinn- ingu.“ Lotta klæddi sig undir eins í gula kjólinn og virtist glöð og kát, og augnabliki síðar sáturn við í bifreiðinni og ókum til Pötzleindorf, en þar hafði verið opnað nýtt veitingahús, sem mikið orð fór af. Meðan á stríð- inu stóð, komust ýmis veitinga hús í tízku, ekki sízt nætur- ldúbbarnir; en vitaskuld að- eins hjá þeim, sem vel gátu borgað. Að líkindum valt þetta á því, hve duglegur eigandinn hafði verið að hamstra. Að lík- indum hafði þessi Gassinger 1 Pötzleindorf komizt á einn eða annan undarlegan hátt yfir mik ði af áfengi. Þess vegna var líka salurinn, sem var mjög stór og einnig fallegur garðurirn, full- i raf prúðbúnu f ólki, sem virtist ekki þurfa að spara neitt. Þar voru margir liðsforingjar. Þarna hafði Helmut sig meira í frammi en faðir hans. Hann útvegaði okkur undir eins á- gætt borð. Á borðinu stóð lítill lampi með fallegri hlíf. í stað- inn fyrir að panta á bcröið sagði hann við þjóninn. „Þér vitið hvað við viljum.“ Og við fengum franskt kampavín. Okkur leið vel um stund, en svo fór að kólna, og við fórum í kápurnar okkar. Lotta var i svartri silkikápu með mold- vörpuskinnsb'lydddngum. „Varstu ekki í brúnni kápu. þegar þú varst í þessum kjpl um daginn?“ spurði Helmut. ‘ „Jú, og ég leitaði að henni í kvold, en mér tókst ekki að finna hana. Ég hef líkast til bara gleymt henni í óperunni." Ég hrökk við. Ég minntist þess, að ég hafði séð Lottu koma heim með kápuna á handleggnum, án þess að vita hvers vegna, fékk ég hjartslátt. „Það er ómögulegt,“ sagði Helmut í lágum hljóðum, en þó svo ákveðið, að baróninn tók eftir því. „Hvers vegna er það svo ó- mögulegt?“ spurði hann. „Gamli stúkuþjónninn þekk- ir Eottu alvtg eins vel og hann þekkir okkur. Hann hefði á- reiðanlega verið búinn að senda henni hana fyrir löngu eða símað til hennar og minnt hana á hana. Hefur þú ekki líka einu sinni verið í kápunni síðan?‘ö „Nei,“ svaraði Lotta. „Ég hef ekki farið í þennan kjól síð- an, annars hefði é'g áreiðanlega tekið eftir því, að mig vantaði kápuna." Það var ekki meira talað um þetta, og ekkert gaf til kynna, að þetta liefði haft nokkur áhrif á Lottu. En kápan fór ekki úr huga mínum. Hundrað sinnum reyndi ég að fullvissa sjálfa mig um það, að Lotta hefði leit- að illa að kápunni, og að hún héngi einhvers staðar þar, sem ég mundi strax finna hana. En það, sem fyrst og fremst gerði mig órólega, var framkoma Helmuts. „Eigum við ekki að ganga svolítið um?“ sagði Helmut. Og baróninn var því strax sam- þykkur. „Við skulum labba gegnum Schottenwald. Bifreið- in getur ekið þjóðveginn og tekið okkur hinum megin. Rat- ar þú ekki?“ spurði hann Lot.tu. „Veiztu ekki, hvar mað- ur kemur út úr honum?“ „Jú, við komum til Neu- waldegg," svarað’ Lotta. „En þetta er ekki Schottenwald. Hann er þarna, nær Húttel- dorf.“ „Já, þú ratar ágætlega. Rat- arðu þetta líka í rnyrkri?" En Lotta svaraði því ekki, og þá sagði ég, að fyrir stríðið hefðum við herra Kleh stund- um labbða hér um með báðar systurnar, já, næstum því á hverjum góðviðrisdegi. Við gengum gegn um skóg- inn. Það var niðamyrkur, svo að við héldumst í hendur til þess að við dyttum ekki. „Það hljóta að vera hér ljós- ker, en það hefur bara ekki verið kveikt á þeim,“ sagði baróninn. „Það er stríðið, sem veldur. Það er ekki öruggt að vera hér fyrir friðsama borg- ara.“ „En hér er ágætt að vera fyrir elskendur, pabbi minn. Þú mátt ekki gleyma húsnæðis vandræðunum. Og hver hefur ráð á því um þessar mundir, að fara í sæmilegt gistihús? Ekki einu sinni synir þínir. Jafnvel þau gistinús, sem leigja út herbergi ldukkustund í einu eða svo, eru troðfull alla tíma sólarhringsins, og auk þess er það ekki rómantíske, og svo er það líka hættulegt fyrir stúlk- ur frá góðum heimilum. Allir þessir vesalings strákar, sem eiga að fara tií vígstöðvanna og vilja gjarna- skemmta sér sem bezt þeir mega síðustu stund- irnar, sem þeir eru heima, þeir slá sér stundum út á næturnar. Skógurinn breiðir opinn faðm- inn á móti slíkum mönnum, og myi’krið og þögnin segja ekki frá, að minnsta kosti er það svona á sumrin.“ „Þetta er alveg nóg, dreng- ur minn,“ sagði baróninn. „Við skulum heldur taka skóginn til íyrirmyndar og þegja um þessi mál.“ Hann vildi ekki að talað væri á þennan hátt í návist Lottu. Hann sleppti handlegg Helmuts og gekk á undan með Lottu. Helmut gekk við hliðina á mér og flautaöi. „Þér skuluð segja Lottu, að hún hafi sézt,“ sagði hann stundu síðar. „Hvað eigið þér eiginlega við? Ilafi sézt til hennar?“ „Já, um daginn, þega hún fór í óperuna með Martin. Nokkrir vinir mínir sátu í garð- G O T

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.