Alþýðublaðið - 08.09.1950, Síða 8
Gerizt ’áskrifendur.
Bíi-rn og ungllngsr.
Komið og seljið
Aifoýðiibiaðiðo
Allir vilja kaupa
Alþýðublaðið.
að AlþýðubSaSinu. ,i
A'l'þýðublaðið inn a
'bvert heimili. Iiring-’
ið í síma 4900 og 4906.'
Föstudagur 8. september 1950.
i Rafmagnsvagn af Alfa Romeo-gerð,
Myndin sýnir rafmagnsstrætisvagn af ,.Alfa Romeo“-gerð, eins
og bæjarráði hefur borizt tilboð um frá Ítalíu.
Bæjarréð hefur fengið tiiboð frá
Itðiíu um rafmagnstrætisvagn
Rasinsókn, er bærinn hefur látið fram-
kvæma, lelðir I Ijós, að rafknúnir vagnar
eru heppilegri en bflar með benzfnmótor
---------------------*--------
BÆJARRÁÐJ REYKJAVÍKUE hefur borizt tilboð um raf-
magnsstrætisvagna, og er tilboðið frá einni stærstu og þekkt-
ustu bifreiðaverksmiðju á Italíu. „Alfa Romeo“. Býðst félagið
ti3 þess a'ð senda hingað sérfræðing til ráðuneytis um rekstur
vagnanna og uppsetningu línanna fyrir þá, en það er á engan
hátt bindandi fyrir bæinn að kaupa vagnana, þótt sérfræðingur-
inn verði sendur hingað.
Eins og Alþýðublaðið hefur
skýrt frá, bar Magnús Ástmars-
son bæjarfulltrúi fram tillögu
um það í bæjarstjórninni í vor,
að athugaðir yrðu möguleikar
á því að stofna hér til reksturs
rafknúinna strætisvagna í stað
benzínvegnanna, sem nú eru,
en eins og kunnugt er gengur
rekstur þeirra á hinum mestu
ii’éfótum.
Eftir að þessi tillaga Magn-
úsar var samþykkt í bæjar-
stjórninni var Jóni Gauta verk-
íræðingi falið að rannsaka
möguleika á rekstri rafmagns-
strætisvagna hér og gera sam-
anburð á rekstri þeirra og
strætisvagna með benzínvél eða
dieselvél. Hefur hann nú skilað
ýtarlegu áliti í málinu og kemst
að þeirri niðurstöðu, að rekst-
ur rafknúinna strætisvagna
taki fram hvort heldur sem um
er að ræða strætisvagna með
benzínmótor eða dieselmótor.
Rafknúnir strætisvagnar
bafa á undanförnum árum rutt
sér mjög til rúms í borgum er-
lendis og þykja á allan hátt
pægilegri og betri farartæki en
t. d. sporvagnar, — og þykja
þeir sérstaklega taka fram bif-
reiðum með benzínvélum.
í tilboði því, sem bæjarráði
hefur nú borizt um rafknúna
strætisvagna frá Ítalíu, mun
ekki vera getið um ákveðið
Verð, enda fer það að sjálfsögðu
eftir stærð þeirra vagna, sem
kynnu að verða valdir, en bif-
reiðaverksmiðjan framleiðir
slíka vágna af ýmsum stærðum.
Bifreiðar, bæði rafknúnar og
m&ö benzínvél, frá „Alfa Ro-
meo“ eru kunnar víða í Evrópu,
meðal annars heía Svíar fengið
rafknúna strætisvagna frá
verksmiðjunni, og víðar á
Norðurlöndum eru bíiar af
,,Alfa Romeo“ gerð vel þekkK
ir.
Maður slasast á
hendl í Höfnum.
ÞAÐ SLYS varð í fyrrinótt í
Höfnum, að maður fór með
höndina í loftblásara í þurrk-
húsi og missti tvo fingur en
meiðsli voru á hinum nema
þumalfingrinum.
Beðið var þegar, er slysið
varð, um aðstoð frá Keflavikur
flugvelli. Kom læknir þaðau og
gerði að meiðslum mannsins, en
síðan var hann flutú'.r á lands-
spítalann í Reykjavík. Maður-
inn heitir Þórður Kristinsson
úr Kirkjuvogi.
KjöliS koslar nú
kr. 17.40.
SUMARVERÐ á nýju dilka
kjöti hefur nú lækkað enn, og
verður það framvegis kr. 17,40
fyrir hvert kg.
Heildsöluverð hefur verið á-
kveðið kr. 15,00 hvert kg., en
áður var það kr. 18,00 og smá-
söluverð kr. 20,90.
FlupéS nauSlenfl á
túnblefti í Keflavík í gæ
Tveir menn voro í flngvélinni og sak*
aöi ekki, þótt heqnj hvoIfdL
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KEFLAVÍK í gær..
TVEGGJA MANNA FLUGVÉL ÚR REYKAVÍK nauðlenta
í dag á litlum túnbletti hér í Keflavík. Rakst hún eftir lend-
inguna á girðingu, sem er utan við blettinn, stej'ptist út í urði
og nam síðast staðar á hvolfi á milli búsa. Tveir menn voru íi
flugvélinni og sakaði hvorugan. Nauðlendingin orsakaðist af:
því, að hreyfill flugvélarinnar stöðvaðist skyndilega.
Flugvélin er eign Óskars Guð var henni rennt niður á blatt-
laugssonar Öldugötu 7 Reykja
vík. Var hann sjálfur í flugvél
inni og með honum Pétur Pgt-
ursson Eskihlíð 13 Reykjav'k.
Þeir eru báðir flugmenn.
Laust fyrir kl. 6,45 sást héð-
an frá Keflavík til flugvélarinn
ar inn undir Njarðvíkum.
Stefndi hún hingað en flaug
lágt. Lækkaði hún svo flugið
enn, og þegar hún var komin
yfir veginn, sem liggur héðan
áleiðis til Reykjavíkur, var hún
varla meira en 2—3 metra yfir
bifreiðum á veginum. Síðan
inn, sem ekki reyndist nógut
íangur fyrir lendingarbraut..
Sleit hún girðinguna um leiði
og hún steyptist inn á m'.lli:
húsanna. Þar sem hún að lokum.
staðnæmdist, eru börn oft aði
leik, en svo heppilega vildi til„
að þar voru engin, er flugvélinai
bar að.
Flugvélin er víst furðulítið
skemmd, en engin skoðun muni
enn hafa farið fram á henhi.,
og ekki er búið að rannsaka,,
hvað olli því, að hreyfillinm
stöðvaðist.
Verðgæzlusljóri filnefndur.
Hækkun rafmagns-
ins og heifavalnsins
Framhald af 1. síðu.
úsar og voru felldar af íhaldinu,
en þær hnigu allar í þá átt að
draga úr hinni miklu hækkun,
sem íhaldið knúði fram á. gjald
skránni.
Til viðbótar sjálfum raf-
magnstaxtanum var samþykkt
breyting á heimtaugargjöld-
um, 20% hækkun á jarðstrengj
um, og inntökugjaldið verður
framvegis miðað við rúmmetra-
fjölda húsanna í stað fasteigna
mats.
Loks var samþvkkt heimild
til bæjarstjórnarinnar um að
hækka rafmagnsverðið á notk-
un umfram meðalnotkun í hverj
um gjaldskrárlið allt Eð tífallt.
Verði þessi heimild notuð,
sem ekki er ólíklegt á þeim ?.ím
um þegar minnst rafmagn er
og mest spennufall, getur þetta
orðið drjúgur ábætir á rafmagns
verðið. Meðalnotkun á 3 her-
bergja íbúð er nú miðuð við
1800 kílówattstundir, en grun-
ur leikur á að þetta verði lækk
að niður í 1500 kwst., ef heim-
ildinni um aukagjald verður
beitt. Að minnsta kosti villtist
inn á fundinn tillaga um það frá
rafmagnsstjóra, sem borgar-
stjóri sagði að vísu að hefði
aldrei verið ætlunin að bera
fram, en þó var tillagan í hönd
um Magnúsar Ástmarssonar, og
brá borgarstjóra við er Magnús
sagði frá henni, en málið mun
hafa borið á góma í bæjarráði.
Jafnhliða þessari stórfelldu
rafmagnshækkun boðaði borg-
arstjóri á fundinum í gær, að
bæjarbúar mættu vera við því
búnir að rafmagnið yrði* af
þeim tekið öðru hvoru á næstu
þremur árum, þannig að bæn-
um yrði skipt í 8 hverfi, og eitt
hverfi jafnan tekið úr sam-
bandi á dag, þá tíma þegar
spennan væri lægst. Sagði hann
þó að rafmagnshækkunin væri
einn liðurinn í því, að draga úr
rafmagnsskortinum, þar eð nú
myndi fólk spara svo við sig,
að minna SDennufall yrði.
Magnús Ástmarsson benti þá
á, að vafasamur hagnaður vrði
að því fyrir rafveituna, að
hækka gjaldskrána svo, að fólk
drægi stórlega úr rafmagnsnotk
uninni, eins og borgarstjóri
teldi að það myndi gera eftir
hækkunina.
Varðandi hækkun heita vatns
ins voru- rök íhaldsins einkum
tvenn, að auka þyrfti tekjurn-
ar til þess, að standa undir nauð
synlegum framkvæmdum og við
haldi hitaveitunnar, og í annan
stað væri þetta réttlætismál
gagnvart þeim; sem enga hita
veitu hefðu og verða að kynda
með kolum eða olíu. Borgar-
stjóri sagði að þetta væri mik
ið jafnréttismál, en Guðrón
Guðlaugsdóttir tók dýpra í ár-
inni og sagði, að það væri mann
úðarmál, og þess vegna væri
sér ánægja að því að greiða at
kvæði með hækkuninni og á
þann hátt stuðla að því að „sam
ræma kjör almennings í bæn-
um“.
Jóhanna ^gilsdóttir kvaðst
ekki geta tekið undir þessi orð |
Guðrúnar og benti á, að hagur
VERÐGÆZLUNEFND hefur
lagt til við ríkisstjórnina, að
Pétri Péturssyni skrifstofu-
stjóra Sigtúni 53 verði veitt em
bætti verðgæzlustjóra. Einnig
hefur nefndin skipað verðlags-
dómstóla í öllum kaupstöðum
landsins.
Verðgæzlunefnd er skipuð sjö
mönnum, tilnefndum af stétta
samböndunum í landin, en for
maður hennar er Jón Sigurðs-:
son framkvæmdastjóri Alþýou
sambands- íslands. Alþýðublað
ið snéri sér til hans í gær c.g
innti hann frétta af störfum
nefndarinnar.
„Nefndin auglýsti í byrjun
júlí eftir umsóknum um starf
verðgæzlustjóra,“ sagðiJón, „og
var umsóknarfrestur ákveðinn
til 1. ágúst. En á fundi nefndar
innar 5. þessa mánaðar, eða á
þriðjudaginn, varð samkomu-
lag um að leggja til við ríkis-
stjórnina, að Pétri Péturssyni
yrði veitt starfið.
Ekki er ætlazt til þess í lög-
um, að verðgæzlustjórinn fjalli
um verðlagsákvarðanir, heldur
á hann að hafa eftirlit með því,
að verðlagsákvæðum fjárhags-
ráðs sé hlýtt, annast allan dag-
legan rekstur í sambandi við
þeirra, er kynda með' kolum
eða olíu myndi lítið lagast, þótt
þeir sem nytu hitaveitunnar
þyrftu að borga jafnmikið fyr
ir hitann og þeir.
Fór eins með breytingartil-
lögur minnihlutaflokkanna
varðandi hækkun hita vatns-
ins og rafmagnshækkunina, að
þær voru stráfelldar, en tillaga
meirihlutans um 55 % hækkun
| samþykkt með 8 atkvæðum í-
haldsins.
Pétur Pétursson.
verðlagseftirlitið, vekja athygll
fjárhagsráðs á því, ef sams kon-
ar eða svipuð vara er löglegas
seld með mismunandi verði,,
svo að fjárhagsráð geti beint;
innkaupum þangað, sem þaiv.
eru hagkvæmust, og gera sam-
anburð á verðlagi og gæðum ís:
lenzkra iðnaðarvara og sams:
konar vara, sem hægt er að fá
erlendis frá.“ j
VERÐLAGSDÓMSTÓLL
„Þá hefur verið skipað í verð-
iagsdómstóla í öllum kaupstöð
um landsins. Eiga þeir aði
dæma í verðlagsbrotamálum..
Héraðsdómari á hverjum staðl
er formaður dómsins, en einm
meðdómari og annar til vara á
hverjum stað er skipaður sami
kvæmt tilnefningu verðgæzlu
nefndar.
Verðgæzlunefnd leggur kapp
á, að verðlagseftirlitið komist;
í betra horf en verið hefur og
mun leita samstarfs við ai-
menning til að það megi tak*
ast“.