Alþýðublaðið - 27.01.1951, Síða 3

Alþýðublaðið - 27.01.1951, Síða 3
Laugardagur 27. janúar 1951. ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 B-listinnÞ listi lyðrœðissinna, í Dagsbrún fffs: , Magnús Hákonarson. Guð2nundur Erlendsson. oJiann Sigurðsson. Magnús Hákonarson: SigurÖur Guðmundsson. Val’dimar Ketilsson. Gunniaugur Bjarnason. Ræða fiutt á fundi Dagsbrúnar, fimmtudaginn 25. janúar s. I. GÓÐIR DAGSBRÚNAR- MENN! Eins og lög mæla fyrir, eiga kosningar að fara fram í Verkamannafélaginu Dagsbrún dagana 27. og 28. þ. m. eða nú á helginni. Tveir listar hafa komið fram: A-listi, sem er listi núverandi stjómar, og B-íisti, sem er listi lýðræðissinnaðra verkamanna innan Dagsbrún- ar. Stefnumál B-listans eru í þessum íimm aðalatriðum: 1. Ðýrtíðar og kaupgjaldsmál. 2. Húsnaíðismál. 3. Atvinnuöryggi. 4. Öryggi, eftirlit og aðbúnað- ur á vinnustað. 5. Uppsögn samninga. í fyrsta liðnum, um dýrtíðar- og kaupgjaldsmál, er það tví- tnaelalaus krafa okkar verka- manna vegná hinnar síauknu verðþenslu í landinu, áð hækkun á nauðsynjavöru verði stöðvuð; að verkamenn fái áfrani fulla greiðslu á vísitö'.u; að skrifstofubákn ríkisins verði dregið saman til sparnaðar á útgjöldum ríkissjóðs; og að verkamönnum verði ekki í- þyngt með frekari tolla- og skattaliækkunum, nc nýrri géngislækkun. Er þessi liður mjög í sam- ræmi við tillögur þær, sem við fjórmenningarnir lögðum fyrir síðasta Dagsbrúnarfund, og samrýmdar voru samþykktum fundarins í heild.' Húsnæðismálin, sem er ann- að aðaktriðið á stefnuskrá okk- ar, eru sá liður dýrtiðarinnar, cem langverst fer með kaupgetu okkar verkamanna. Það er kunnara en frá þurfi að segja hið síaukna húsaleiguokur, sem á sér stað vegna hinnar síauknu eftirspurnar eftir húsnæði. Það er raunar bjóðfélagsvandamál, sem nær til feiri stétta en okk- ar verkamanna En það hlýtur að vera krafa okkar verka- manna, að b.vgging verkamannabú- staða og samvinnubygginga sé látin sitja í fyrirrúmi fyr- ir öðrum byggingafram- kvæmdum; því þar er þörfin brýnust Þriðja atriðið er atvinnuör- yggi. Það er krafa verkamanna að liið opinbera tryggi verka- ^ mönnum stöðuga og næga1 atvinnu, að atvinnumöguleikar verka- manna séu scnt minnst liáð- ir árstíðum og að Dagsbrúnarnienn sitji fyrir allri almennri verkamanna- vinnu í félaginu. Einnig er það krafa okkar lýð ræðissinna, að stjórn félagsins hafi sem nánast eftirlit með því, að samningar séu haldnir af atvinnurekendum. Verða mál þessi rædd ýtarlega af öðr- um ræðumönnum hér í kvöld, og fjölyrði ég ekki meii’a um þau hér. Fjórða atriðið, öryggi, eftir- lit og aðbúnaður á vinnustöð- Bjarni Björnsson. um, er einnig mál, sem aðrit ræðumenn munu koma inn á eða ræða frekar. Fimmta atriðið er um upp- sögn samninga. i*að er skýlaus krafa w.rlta manna, ef ekki fæst viðun- andi lattsit á dýrtiðar- eg verðlagsniáhnn og áfrarr- bahlandi greiðsla á rétír> vísitölu, eins og hsítt er cöa á að vera á hverjum tíma, að samningum félagsins viö atvinnurekendur verði sagt upp og grunnkaup hækksð til samræmis við hækkað vöruverð. Við verkamenn vitum þsé manna bezt, hvað laun dag- iaunamannsins hrökkva skammt fyrir öllu því, sern meðalfjölskylda þarfnast. V > vitum vel, að hver hækkun á verðlagi á nauðþurftum okkar þýðir vöntun eða skort, nema auknar kjarabætur komi á móti. En hver er auðveldjasia Framh. á 6. síðu. FRÁ MORGNITIL KVÖLDS í DAG er Iaugardagurinn 27. janúar. Fædclur Ðaði Níelsson fróffi árið 1809, Mozart árið 1756. Sóiarupprás í Rsykjavík er kl. 9.25, söl hæst á lofti kl. 12.40, sólarlag kl. 15.56. Ardeg- isháflæður kl. 7.20, síðdegishá- flæður kl. 19.37. Næturvarzla: Reykjavíkur apótck, sími 1760. Fksgferðir FLUGFÉLAG ÍSLANÐS: Innanlandsflug: Ráðgert er að fljúga í dag frá Reykjavík til Akureyrar, Vestmannaeyja, ísa fjarðár, Blönduóss og Sauðár- króks, á morgun til Akursyrar og Vestmannaeyja, frá Akur- eyri í dag til Reykiavíkur og Sigluf jarðar, á morgun til Reykjavíkur. Uíanlandsflug: Gullfaxi fer á þriðjudagsmorguninn kl. 8.30 til Prestvíkur og Kaupmanna- hafnar, kemur aftur á miðviku dag. LOFTLEIÐIR: í dag er áætlað að fljúga til ísafjarðar, Patreksfjarðar og Hólmavíkuy fyrir hádegi og til Vestmannaeyja kl. 13,30, á rnorg un til Vestmannaeyja kl. 13,30. PAA: í Keflavík á miðvikudögum kl. 6,50—7,35, frá New York, Boston og Gander til Óslóar, Stokkhólms og Helsingfors; á fimmtudögum kl. 10,25—21.10 frá I-Ielsingfors, Stokkhólmi og Ósló til Gander, Boston og New York. Skioafréttir Eimskip. Biúarfoss fó.r frá Reykjavík 24/1 til Grimsby. Dettifoss átti að fara frá Gdynia 25/1 til Kaupmannahafnar, Leith og Reykjavíkur. Fjallfoss fer frá Reykjavík í dag til Keflavíkur. Goðafoss fór frá Reykjavík 17/1, var væntanlegur til New York í gær. Lagarfoss er á Aust fjörðum. Selfoss er væntanlega á Siglufirði, fer þaðan til Húsa- víkur, Raufarhafnar og út- landa. Tröllafoss kom til St. Johns 23/1, fór þaðan í gær til New York. Auðumla fór frá Immingham 22/1 til Rvíkur. Ríkisskip: Hekla fsr frá Reykjavík í dag austur um land til Siglufjarð- ar. Esja er á Austfjörðum' á suðurleið. Herðubreið er á Aust fjörðum á suðurleið. Skjald- breið fór frá Reykjavík í gær kvöld til Breiðafjarðar. Þyrill er á Austfjörðum. Ármann fer ÚTVARPIÐ 20.30 Tónleikar (plötur). 20.35 Likrit: „Don Quixote" eft ir Miguel de Cervantes (áður útvarpað haustið 1948). — Leikstjóri: Lárus Pálsson. Leikendur: Lárus Pálsson, Þorsteinn Ö. Stephenssen, Brynjólfur Jóhannesson, Val- ur Gílason, Jón Aðil.s, Gest- ur Gíslason, Jón Aðils, Gest- son, Gunnar Eyjólfsson, Ró- bert Arnfinnsson, Anna Guð- mundsdóttir, Bryndís Péturs- dóttir, Ragnhildur Steingríms dóttir, Þorgrímur Einarsson og Steindór Hjörleifsson. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Passíusálmar, nr. 6. 22.20 Danslög (plötur). frá Reykjavík í dag til Vest- mannaeyja. SÍS: Arnarfell er á leið til Ítalíu frá Reykjavík. Hvassafell átti að fara frá Reykjavík í dag á- leiðis til Pörtugal. Fundir Aðalfundur Kvæðamannafé- lagsinns ..Iöunn" verður settur í Baðstofu iðnaðarmanna í kvöll kl. 8 síðdegis. Söfn og sýningar Lanclsbókasafnið: Opið' kl. 10—12, 1—7 og 8— 10 álla virka daga nema laugar daga kl. 10—12 og 1—7. NfáttúrugTÍpasalnið: Opið kl. 13.30—15 þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga, Þjóðskjalasafnið: Opið kl. 10—12 og 2—7 alla virka daga. Þjóðminjasafnið: Lokað um óákveðinn tíma. Safn Einars Jónssonar: Opið á sunnudögum kl. 13,30 til 15. Messur á morgyn Dómkirkjan: Biblíudagurinn. Messa kl. 1.1, altarisganga. Séra Bjarni Jónsson. Messa kl. 5. Séra Jón Auðuns. Eilliheimilið: Guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 10 árd. Séra Sigurbjörn Á. Gíslason. Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Séra Jakob Jónsson. Ræðu- efni; Hvað segir Biblían um sjálfa sig? Bamaguðsþjónusta kl. 1,30. Séra Jakob Jónsson. Messa kl. 5. Séra Sigurjón Þ. Árnason. Samkoma kl. 8,30 síð degis. Ræðumenn: Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup og Bjarni Eyjólfsson ritstjóri. Fríkirkjan: Messa kl. 5. Séra Þorsteinn Björnsson. Nesprestakall: Messa í kap- .éllu háskólans kl. 2: Síra Ás- mundur prófessor Guðmunds- son prédikar. Síra Jón Thorar- ensen þjónar fyrir altari. Óháði fríkirkjusafnaðurinn: Messa í Aventkirkjunni kl. 5. Sálmanúmer 131, 432, 419, 225, og 24. Séra Emil Björnsson. Hafnarf jarðarkirkja: Barna- guðsþjónusta kl. 10 í KFUM. Séra Garðar Þorsteinsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði: Messa kl. 2. Fermingarbörn 1951—1952 óskast til viðtals eft ir messu. Séra Kristinn Stefáns son. Bessastaðakirkja: Messa kl. 2. Séra Garöar Þorsteinsson. Úr öllum áttum Barnasamkoma verður í Tjarnarbíói kl. 11 f. h. á morgun. Séra Jón Auðuns. Sunnudagaskéli Hallgrímssóknar er í gagn- fræðaskólahúsinu við Lindar- götu kl. 10 á morgun. Skugga- myndir. Öll börn velkomin. Sjónleikurinn ,,Pabbi“ verður sýndur í þjóðleikhús- inu í kvöld í 32. sinn. Handbrúðulciltur Nemendur í teiknikennara- deild Handíðaskólans sýna hand ’brúðuleik í teiknisal skólans á Laugavegi 118 á morgun kl. 3 og kl. 4.30 síðd. Aðgangur er ó- keypis fyrir öll börn, sem njóta kennslu í skólanum. Aðgöngu- miðar vcrða afhentir á Grund- árstíg' 2 A í dag kl. 4—5 og á morgun kl. 1—2 síðd.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.