Alþýðublaðið - 05.05.1951, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 05.05.1951, Blaðsíða 8
Gerizt áskrifendur að AIf>ýðubiaðinu. Alþýðublaðið inn á hvert heimili. Hring- ið í sími 4900 og 4906 Laugardagur 5. maí 1951 Börn og unglinga^ Komið og seljið Alþýðublaðið Allir vilja kaupá AlþýðublaÖið Hikið fjén if eSdi í viðgerðar- verksfæði flugvallarins í gær ---------+---------- Gúmbirgðir, vélar og tæki eyðilögðust. ------------------------------------ MIKILL BRUNI varð á Reykjavíkurflugvelli í gærmorguu, er eldur kom upp í viðgerðaverkstæ'ði og birgðaskemmu flug- vallarins. Skenuna, sem var áföst sjálfu viðgerðaverkstæðinu, gjöreýði"agðist, og brann þar inni mikið af gúmi af vinnuvélum vallarins, tæki ýmis konar, steypuhrærivél og tveir vörubílar, sem voru geymdir barna, skemmdust mikið. ieyn! verSur að fijúga Dakoiaffug- I vélinni aS ausian < ENGAR FRÉTTIR bárust i gær af leiðangri Loftleiða; en eí'tir síðustu fréttum að dæma á fimmtudagskvöldið munu þeir í gær hafa unnið að því að styrkja skíði flugvélarinnar og - undirbúa hana til flugtaks. Eft- ir er þá að finna völl fyrir hana eða laga til það ianga braut, að hún geti hafið sig til flugs. Við aýhugun hefur komið í ljós, að hreyflar vélarinnar eru ó- skemmdir; I fyirákvöld var Guðmund- ur Jónsson á leið í snjóbílnum niður af V&tnajökli, en hann , sóttí þangað þá fimm leiðang- . ursmenn, sem eftir urðu hjá Gevsisflakinu, og var von á 'í þeim- til hinna leiðangursmann- anna í fyrrakvöld eða fyrrinótt. Baiar Kveníélags Alþýðuflokksins KVENFÉLAG alþýðu- FLOKKSINS í Reykjavík held- ur bazar mánudaginn 7. maí r.æst komandi. Félagskonur og aðrir, er kunna að viLja gefa '■> tnuni á bazarinn, eru minntir á að koma þeim sem fyrst til stjómar félagsins eða í allra u'.ðasta lagi í góðtemplarahúsið . íyrir kl. 9 á mánudagsmorgun- í *nn. Tveir togarar seldu fyrir rúm 23 þúsund pund AÐEINS TVEIR íslenzkir togarar hafa seþ afla sinn í Bretiandi frá því um mánaða- « Kiót, þeir Egill Skallagrímsson, er seldi 3989 kits fyrir 11 380 sterlingspund, og Jón forseti, er seldi 4236 kits fyrir 11 921 sterlingspund. Eldurinn kom upp laust fyr- ir kl. 9 í gærmorgun. Var slökkvilið vallarins ásamt slökkviliðinu í Reykjavík kvatt á staðinn og tók það á þriðja tíma að ráða niðurlögum elds- ins, enda mjög erfitt að ná í vatn. Viðgerðaverkstæði flugvall- arins er skammt sunan við inn- aksturshliðið á völlinn, og voru þar margs konar vélar og tæki, og í skemmu, áfastri við, voru einnig ýmis verðmæti geymd, svo sem gúmmí og fleira til- heyrandj vinnuvélum vallarins. Þessi skemma brann til kaldra kola og mest af því, sem í henni var. Aftur á móti varð lítið tjón af eldi í sjálfu viðgerða- verkstæðinu, og þaðan var flestum vélum og öðrum verð- mætum bjargað út. Þó urðu nokkrar skemmdir þar vegna þess, að jarðýtu eða vélskóflu var beitt á skemuna til þess að lcomast fljótar að því að bjarga út úr henni. Þegar slökkviliðin komu á vetvang var eldurinn orðinn mjög magnaður, og langt var í vatn. Varð að leggja um 50 slöngur að næsta vatnspósti, en þangað voru nokkur hundr- uð metrar. Þess má geta, að rétt hjá skemmunum eru þó vatnstankar frá dögum setu- iiðsins; en þeir hafa nú allir verið fylltir tjöru. Um upptök eldsins er ókunn- ugt. Iðnskólanum slilið 30. apríl IÐNSKÓLANUM í Reykja- vík var sagt upp þ. 30. apríl. Nemendur í skólanum voru alls 770, en 234 luku burtfararprófi. Hæstu einkunn við burtfarar plóf hlaut Leifur Steinarsson vélvirki, 9,61, en næstur varð Rudolf Stoltzenwald klæð- skeri, með 9,44. Fimmtán nem- endur hlutu verðlaun frá skól- anutn og auk þess tveir fyrr- nefndir nemendur verðlaun Iðnnemafélagsins „Þráinn“. Bókbandsverðlaun Guðmundar Gamalíelssonar hlaut Tryggvi Sveinbjörnsson, og teikniverð- laun húsgagnasmíðameistara Hörður Hjálmarsson. Finnur Thoriacius byggingameistari hefur kennt húsateikningar í skólanum í 40 vetur og við skólauppsögn afhentu nemend- ur hans honum útskorinn vegg- lampa að gjöf. Skólinn hefur áður látið mála mynd af Finni og gefið honum sem viðurkenn ingu fyrir starf hans. f GÆRÐAG varð þriggja ára drengur fyrir hifreið á Tún- 1 götunni og meiddist hann nokk logarinn Jupiler hefur verið seldur fil Þingeyrar ---------------♦-------- Olíukyriding verður sett í sklpið. ------------------«--------- „JUPITER“, einn af gömlu togurunum, hefur nú veri seldur til Þingeyrar. Eru hinir nýju eigendur að láta set.i í togarann olíukyndingu; en því mun verða lokið um miðja jú’í, og mun togarinn þá geta hafið veiðar. * " ♦ Það er Togaraútgerð Dýra fjarðar h.f., sem keypti Jupite en framkvæmdarstjóri félagsii er Eiríkur Þorsteinsson kauj félagsstjóri. Stofnendur hlut; félagsins eru nokkrir’einstak ingar á Þingeyri og nágrenn Júpiter er seldur í „klössuð ástandi“, það er að segja nývi gerður, en nýju eigendurni munu kósta olíukyndinguna skipið. Er Jupiter nú uppi slepp, og hefur Héðin og Stál snliðjan tekið að sér að setja skipið olíukyndingartæki. Forseiinn á baiavei FORSETI íslands, herra Sveinn Björnsson, dvelur um þessar mundir í Cannes í Frakk landi s,ér til heilsubótar. Sam- kvæmt fregnum frá la\kni hans hefur forseti þegar hlotið góð- an bata. Forsetafrú Georgia Björns- son er á förum til Danmerkur í einkaerindum. ræktin fær plönfnr o§ fræ frá Eldlandseyjum ---------------------■ Sturla Friðriksson grasafræðingur [ vann bar að fræsöfnun í þriár vikur. j •---------------♦------ STURLA FRIÐRIKSSON grasafræ'ðingur er nýlega kom«- inn heim úr för sinni til Eldlandseyja, sem er syðsti hluti Suður- Ameríku, en þangað fór hann á vegum skógræktar ríkisins til þess að safna plöntum og fræjum. í gær sagði Sturla blaðamönn- um frá hinni ævintýralegu för sinni til syðsta hluta hins byggi* lega heims. Hákon Bjarnason skgræktar*' stjóri sagði að góðs árangurs megi vænta af plöntu og fræ- söfnun Sturlu. Hefði hann ssfn- að plöntum og fræjum af trjá- tegundum, runnum, jurtum og grastegundum sem vaxa þar við svipuð slcilyrði og hér ger ist. Kvað hann að vísu veturna vera mildari þar syðra, en sum arhiti og regn væru líkt og hér og taldi þess vegna góðar horf ur á að gróður þessi næði þroska hér á landi. Sturla kom með nokkuð af því, er hann safn- aði, með, sér, en sumt er vænt- anlegt með Tröllafossi frá New York. Plönturnar og fræin verða sett í skógræktarstöðina að Tumastöðum í Fljótshlíð og í gróðrarstöðina í Fossvogi. FÖR STURLU Sturla var staddur í einka- I erindum í Trindad er skógrækt- arstjóri fékk hann til fararinn- ar. Fór Sturla þessa leið flug- leiðis og kom til bæjarins Punta Arenas, sem stendur við Magellanssund, þann 13. marz. Þaðan fór hann svo í ferðalög um hin strjálubyggðu héruð í leit að ákveðnum trjátegund- um. Honum heppnaðist að finna þann stað er trjátegundin Libro cedrus vex, og náði hann talsverðu fræi. Libro cedrus er eftirsóttur nytjaviður, vegna þess hversu seint hann fúnar. Libro cedrus er suðlægasta barrtrjátegund í heimi. MILLJÓNAMÆRINGAR OG SAUÐAÞJÓFAR. í þessu strjábýla landi lifir fólk mest á sauðfjárrækt og er ekki óalgengt að bóndi eigi 10 þúsund fjár. Eru þeir því mill- jónamæringar, en ekki kVað Sturla hægt áð sjá það á klæða- burði þeirra eða hýbýlakosti. Einnig er talið að fjöldi fólks lifi á sauðaþjófnaði og fara ræn íngjar oft í stórhópum. Land- ið er vel fallið til sauðbeitar, enn jarðvegur er þar rýr. Sum staðar gefur að líta hörmulega sjón, þar sem sjcógurinn hefur verið brenndur og höggvinn svo beitiland skapist fyrir búpen- ing. Afleiðingarnar eru þær sömu og hér, landið blæs upp, vatn skolar gróðurmoldinni burtu og eftir nolckur ár blasir auðnin við. uð á höfði, en ekki hættulega, að því sem talið er. Drengurinn var á leið yfir götuna og hljóp fyrir sendiferðabíl. Féll dreng urinn í götuna og fór á milli framhjóla bílsins, og bar lá hann er bíllinn nam staðar. Anna Borg leikur aS alhlulverkið í I .ímyndunarveikin’ I SÝNINGAR á leikritinw „Heilög Jóhanna" verða aðeins örfáar úr þessu, þar eð bráðuna verður frumsýning á „Imynd- unarveikinni“, en» þar leikui? frú Anna Borg líka aðalhlut- verkið. Sama er að segja unai sýningar á „Sölumaður deyr,e9 að á því leikriti munu verða fá- ar sýningar, vegna sýninga & „ímyndunarveikinni“, seia mjög takmarkaður fjöldi sýn- inga verður á, sökum þess aS frú Anna Borg þarf að farai fyrr en ætlað var. | ........... í Í93 sögur bárust f í smásagnasam- keppni Samvinn- unnar 1 —_— i TÍMARITIÐ Samvinnarj efndi í febrúarmánuði síðast liðnum til smásagnasamkeppnt og lofaði ferð til Miðjarðarhafs-i landa með einhverju af slcipum SÍS sem fyrstu verðlaununa. Frestur til að skila sögum vaJ$ útrunninn um mánaðamótin, og hafa Samvinnunni nú borizfl 193 sögur. Mun þessi gífurlega 1 þátttaka vera algert einsdæml hér á landi. Dómnefndin hefur að sjálf- sögðu ekki komizt yfir að lesá allar sögurnar enn, enda barst mest af þeim síðustu dagana, þá oft 10—20 á dag. En ef dæma má eftir þeim handritum, sem lesin hafa verið, rithönd. þeirra og frágangi, hafa unglingar* gamalmenni og allt þar á milli slcrifað sögur, en póststimpl- arnir gefa til kynna, að höf- undarnir séu um allt land, í bæjum og þorpum o'g upp til sveita, og jafnvel frá Danmörkut og Svíþjóð bárust sögur. í dómnefnd þeirri, sem muií velja verðlaunasögurnar, eiga sæti þeir Andrés Björnsson, magister, Árni Kristjánsson, magister, og Benedikt Gröndal, ritstjóri Samvinnunnar.. Upp- haflega var ætlunin að verð- launasögurnar yrðu birtar f júníhefti Samvinnunnar, en vegna hinnar geysimiklu þátt- töku getur svo farið, að það dragist til júlíheftisins, enda þótt úrslitin verði tilkynnt fyrr.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.